Morgunblaðið - 10.09.1977, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1977
3
Festíbúnaður verkpall-
anna ekki viðurkenndur
ÖRYGGISEFTIRLIT rfkisins
hcfur sent frá sér tilkynningu þar
sem greint er frá athugun, er gerð
var á verkpöllum af þeirri gerð.
sem slys varð við á Engihjalla 9 í
Kðpavogi 2. sept. s.l. og hefur
ekki talið ástæðu til að finna að
gerð verkpallanna sjálfra.
Segir
öryggismálastjóri, Friðgeir
Grímsson, að hins vegar hafi
festibúnaður verkpallanna, sem
bilaði, ekki fengið viðurkenningu
eftirlitsins, en sá búnaður er frá-
brugðinn öðrum verkpalla-
festingum, sem fallizt hefur verið
á að notaðar væru. Af 43 festing-
um verkpallanna á Engihjalla
fundust 9 frábrugðnar en ein
þeirra bilaði.
Segir jafnframt í tilkynningu
öryggiseftirlitsins, að þetta
hörmulega slysatilvik minni
ábyrga ráðamenn á að láta ekki
undir höfuð leggjast að tilkynna
til öryggiseftirlitsins um hluti eða
virki, sem taka á til afnota eða
vinna við og valdið geta slysi á
vinnustað ef þeir bila eða
bregðast, nema viðurkenning sé
áður fengin.
Skulu slikri tilkynningu fylgja
teikningar eða lýsingar, sem eftir-
litið telji nægar til umsagnar, sbr.
lög nr. 23 frá 1952 um öryggisráð-
stafanir á vinnustöðum.
Loðnuaflinn orðinn
jafnmikill
LOÐNUAFLINN var sfðdegis í
gær kominn í 111 þúsund tonn, en
það er jafnmikið og veiddist á
allri sumar- og haustvertfðinni i
fyrra. Undanfarna þrjá daga hef-
ur verið mokveiði og hafa komið á
land 18.760 tonn. t gær höfðu
bátar tilkynnt 4.270 tonn.
Lítil veiði var árdegis i gær, en
upp úr klukkan 14 fóru bátarnir
að tilkynna löndun. Átta bátar
og í fyrra
höfðu síðdegis í gær fengið 4.270
tonn og hugðust landa á Faxaflóa-
höfðanum, i Siglufirði og i Bol-
ungarvik. Löndunarbið er nú að
verða í Faxaflóahöfnum, en enn
er rými fyrir hendi í Grindavik.
Eftirtaldir bátar höfðu í gær
tilkynnt afla: Eldborg 500, Árni
Sigurður 420, Freyja 300, Helga
RE-49 280, Fifill 600, Ársæll Sig-
urðsson 220, Víkingur 1.350 og
Gullberg 600 lestir.
Margrét Elíasdóttir við eitt verka sinna.
Fyrsta einkasýning
ungrar listakonu
UNG listakona, Margrét Elías-
dóttir, opnar sina fyrstu einka-
sýningu í norræna húsinu á morg-
un, laugardag, klukkan 14.00.
Áður hefur Margrét átt verk.á
Listsýningu islenzkra kvenna
1975, og i fyrra sýndi hún leir-
muni i Gallerí Sólon íslandus.
Margrét stundaði listnám i Hol-
bæk i Danmörku 1965—66, við
Myndlista- og handiðaskóla Is-
lands 1966—71 og síðan við
Kunstfack skólann í Stokkhólmi
1972—74. Margrét er nú búsett i
Stokkhólmi.
Jón á örlítið
betri biðskák
JÓN L. Árnason tefldi í gær við
trann Delaney á heimsmeist-
aramóti unglinga f skák, sem
haldið er í Cagnes í Frakk-
landi. Skák þeirra fór í bið og
samkvæmt upplýsingum Mar-
geirs Péturssonar, fréttaritara
Morgunblaðsins, hafði Jón ör-
lítið betra tafl. Jón hafði svart
og tókst að ná heldur betri
stöðu í byrjun skákarinnar og
vann peð, en missti aðeins tök-
in á skákinni í miðtaflinu og
vann írinn þá peðið aftur, en
þegar í cndatafl var komið, var
Jón með aðeins betri stöðu.
Hefur Jón því 'A vinning og
biðskák eftir tvær umferðir.
Efstir í mótinu nú eru
Kasparov frá Sovétríkjunum,
Sendur frá Tyrklandi og Wei-
der frá Póllandi, allir með tvo
vinninga eftir tvær umferðir.
Bandaríkjamaðurinn White-
head á betri biðskák gegn Leski
frá Frakklandi og vinni hann
hana, sem allar líkur eru á,
verður hann jafn hinum þrem-
ur efstu í mótinu. Sovétmaður-
inn Kasparov vann i dag Ne-
gulescu frá Rúmeníu. Biðskákir
verða tefldar árdegis í dag, en
siðdegis hefst þriðja umferð.
Biðstaða í skák Jóns og De-
laney er svohljóðandi:
Hvítur (Delaney):
Kf3, Be2, a2, c4, d5, g3.
Svartur (Jón):
Ke5, Bd7, b6, d6, f5, g6.
Svartur lék biðleik.
„EKKI segi ég að þessi eldsum-
brot staðfesti það að sama
sagan sé að gerast og gerðist
fyrir 250 árum, er Mývatns-
eldar geisuðu, en hver svona
hrina e.vkur líkindin með þessu
gosi og Mývatnseldum," sagði
dr. Sigurður Þórarinsson,
jarðfræðingur, í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Það er
auðvitað aldrei hægt að segja
að tvö gos, sem byrja eins, endi
eins, en það, sem hingað til
verði verri. Við hverja hrinu
hafa orðið meiri umbrot, þótt
hraunið hafi verið minnst í
hrinu númer 2. Þá voru um-
brotin í Mývatnssveit, en nú
var langmest hraun. Hingað til
likist þetta mjög Mývatnseld-
um, það er útilokað að neita
þvi,“ sagði Sigurður Þórarins-
son.
Sigurður sagði að Kísiliðjan
sæti mjög illa á svæðinu. Þar
væru nú miklar sprungur og
Dr. Sigurður Þórarinsson, prófessor:
Gosstöðvamar komnar
ískyggilega nærri Mývatnssveit
—Lyftist landið a ny, verður næsta hrina verri
hefur gerzt virðist vera ákaf- I
lega líkt.“
Sigurður sagði að nú væru
jarðeldarnir farnir að nálgast
iskyggilega Mývatnssveit, þvi
að það sem kom í ljós i Bjarnar-
flagi — þetta litla sem kom
upp, er ekki bara kveikt i pipu,
það var ekta hraun, þótt lítið
væri og aðeins nokkur tonn.
Það var samt glóandi hraun
sem sýnir að grunnt er á
kvikunni. Sigurður sagði: „Það
er alltaf til sá möguleiki að upp-
streymið hætti og verði ekki
eins langt og í Mývatnseldum.
Nú þá er þessu lokið, en ef
landið fer nú að rísa á ný, þá
má búast við að næsta hrina
meiri en i april óg enn kvað
hann ekki ljóst hvort gliðnunin
hefði stöðvast. Um leið og
landið fer hins vegar að rísa
aftur, sagði Sigurður, ætti
hættan að vera liðin hjá i bili og
meiri skemmdir ekki að verða.
Landið lækkaði ekki eins mikið
og i april og i gær mun lækkun
þess hafa verið mjög litil.
Höfn:
Saltað í 2000ustu
tunnuna í gærdag
Höfn, Hornafirði, í gær
— frá blaðam. Mbl.
Agúst Ásgeirssyni.
I DAG höfðu alls borizt 858 tonn
af reknetasíld hér á land. Veiðar í
reknet hófust héðan upp úr 20.
ágúst og eru miðin á um 40 fer-
mílna svæði rétt undan landinu.
Reknetaaflinn skiptist þannig, að
533,5 tonn hafa farið í frystingu
og rúmlega 320 tonnum hefur
verið landað til söltunar.
Söltun höfst hjá söltunarstöð
Fiskimjölsverksmiðjunnar fyrra
laugardag. Á fimmtudag höfðu
verið saltaðar rúml. 1700 tunnur
og i dag reiknaði Guðmundur
Finnbogason, verkstjóri, með að
saltað yrði í 2000ustu tunnuna,
þvi að alls bárust á land i dag
tæpar 800 tunnur.
Byrjað var í dag að salta upp í
15000 tunna samning, sem gerður
hefur verið við Niðursuðuverk-
smiðju K. Jónssonar á Akureyri.
Nú landa 18 reknetabátar afla
sinum i Höfn, en búizt er við að sá
fjöldi eigi eftir að aukast þegar
afli glæðist. Síldin sem berst á
land er enn mjög blönduð smá-
síld, en sjómenn tjá mér, að hlut-
fall stórsildar og fitumagn aukist
með degi hverjum.
Um og upp úr helgirtni hefst
söltun hjá nýrri söltunarstöð hér
á Höfn, Stemmu hf. Að þessu
fyrirtæki stendur hópur horn-
firzkra áhugamanna um fiskverk-
un.
Blíðskaparveður var á Höfn i
dag, logn og sölskin. Með kvöld-
inu kulaði og áttu sjómenn jafn-
vel von á brælu á reknetamiðun-
um. er líða tæki á laugardags-
morguninn.
Kópavogur samdi
um allt nema kaupið
EKKERT miðaði á sáttafundi í
kjaradeilu BSRB og ríkisins i
gær. Fundurinn hófst klukkan 14
og lauk um klukkan 20. Nýr fund-
ur hefur ekki verið boðaður. Hins
vegar tókust í fyrrinótt samning-
ar milli Kópavogskaupstaðar og
Starfsmannafélags Kópavogs um
öll atriði væntanlegs kjarasamn-
ings, þegár launaliðurinn er und-
anskilinn. 1 gærkveldi hófst'síðan
sáttafundur milli starfsmannafé-
laga sveitarfélaga i nágrenni
Reykjavíkur og viðsemjenda
þeirra. Var þar jafnvel búizt við
að unnt yrði að gera svipaðan
samning við þau og Kópavogs-
menn gengu frá í fyrrinótt og
einnig munu aðilar hafa ætlað að
freista þess að hefja umræður um
kaupliðinn.
Haraldur Steinþórsson, franv
kvæmdastjóri Bandalags starfs-
manna rikis og bæja, skýrði Morg-
unblaðinu frá því í gær, að í fyrra-
kvöld og fyrrinótt hefði verið
haldinn sérstakur sáttafundur
milli Starfsmannafélags Kópa-
vogs og-samninganefndar Kópa-
vogs. Var þá gengið frá samkomu-
lagi um öll meginatriði kjara-
samningsins önnur en launastig-
ann. Morgunblaðið spurði Harald,
hvort Kópavogsbær hefði með
þessu gengið lengra en aðrir við-
semjendur félaga innan BSRB.
Hann sagði, að fyrir hefðu legið
skriflegar gagntillögur frá sanv
eiginlegri samninganefnd fyrir 5
sveitarfélög á Reykjanesi. Bæjar-
starfsmannafélögin vildu hins
vegar semja hvert fyrir sig. Því
varó að ráði að byrja og reyna til
fullnustu samninga við Kópavog.
Hin félögin eru Keflavík, Mos-
fellssveit, Seltjarnarnes og Garða-
bær. Voru áður komnar skriflegar
gagntillögur frá bæjarfélögunum.
A sunnudag svaraði samninga-
nefnd Kópavogs mörgum atriðum
í þeim og i fyrradag var haldið
áfram og voru umræðurnar mun
opnari en hjá rikinu um mörg
atriði. Tókst þvi að ná samkomu-
lagi. Hins vegar hefur verið tekið
fram að sambærileg kjör yrðu
boðin hinum fjórum félögunum
og var ætlunin að fjalla um þau á
sáttafundi, sem hófst i gærkveldi.
Haraldur Steinþórsson kvað
mjög líklegt að þetta ýtti undir
viðræður bæjarstarfsmannafélag-
anna við bæjarstjórnir viðs vegar
um land, en þau eru 17, sem hafa
sjálfstæðan samningsrétt. Ef ekki
er búið að vinna eitthvað að samn-
ingum i héraði mun vera stefnt að
þvi að halda sáttafundi á þriðju-
dag eða miðvikudag. Haraldur
kvað það mundu hreinsa mjög
andrúmsloftið, ef þessir samning-
ar tækjust. Samningar væru mun
einfaldari við þessi litlu félög og
þeir alls ekki eins flóknir og
samningarnir við ríkið.
Morgunblaðið spurði Harald
um það, hver væru helztu atriði
samkomulagsins við Kópavog og
vildi hann ekki skýra frá einstök-
um atnóum að svo stöddu. Hins
vegar er Morgunblaðinu kunnugt
um að starfsmenn, sem unnið
hafa 12 ár eða lengur, fái 40
þúsund króna launauppbót og að
jafnframt verði laugardagar ekki
taldir til orlofsdaga.
Heimilis-
sýningunni
að ljúka
MIKILL fjöldi manna hefur lagt
leið sina i Laugardalshöllina i
Reykjavík undanfarna daga og
skoðað sýninguna „Heimilið '77".
í gærkvöldi var áætlað að um
64.000 manns hefðu komið á sýn-
inguna.
I dag og á morgun verður sýn-
ingin opnuð kl. 13.00 en henni
lýkur annað kvöld kl. 22.00.
Vegna góðra undirtekta sýningar-
gesta á tizkusýningunum i dag-
skránni hefur þeim verið fjölgað
og verða nú báða dagana fjórum
sinnum, sú fyrsta kl. 14.00 og sú
siðasta kl. 21.00.