Morgunblaðið - 10.09.1977, Page 40
Al'ííLÝSINíiASÍMINN EK:
22480
JW*r0un5>I«bií>
I.YSIMiASIMINN EK:
22480
JW*r0tinbI«í)it>
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1977
Mikið verðfall á
síld í Danmörku
Mikið jarðsig varð (garðin-
um á milli þeirra tveggja
þróa Kísiliðjunnar, sem
heilar voru. Gaf önnur sig
og flæddi úr henni allt
vatn, en aðeins munaði
hársbreidd að sú þró, sem
full var orðin af gúr, léti
einnig undan f náttúru-
hamförunum. Sést það
glögglega á myndinni.
(ljósm. Friðþjófur).
Hraun
uppúr
borholu
Þorsteinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar:
SAMKVÆMT upplýsing-
um, sem Morgunblaðið
hefur aflað sér, hefur orðið
mikið verðfall á síldar-
markaðinum í Hirtshals í
Danmörku vegna aukins
framboðs, sem stafar af
mikilli síldveiði í Skage-
rak. Meðalverð fyrstu vik-
una í september á fersksíld
hefur verið 2,08 danskar
krónur, sem er jafnvirði
69,37 króna íslenzkra, en
frá því verði dregst síðan
löndunarkostnaður og önn-
ur slík gjöld.
Föstudaginn 2. septem-
ber bárust á land í Hirts-
hals 1.098.591 kg og varð
meðalverðið þann dag 1,51
króna dönsk fyrir hvert kg.
Mánudaginn 5. september
bárust á land 862.935 kg og
var meðalverð þá 2,08
danskar krónur. Þriðju-
daginn 6. seþtember bárust
á land 406.830 kg og var
meðalverðið þann dag 2,63
krónur. Miðvikudaginn 7.
september bárust á land
709.293 kg og var meðal-
verð þann dag 2,86 krónur.
Daginn eftir, þ.e.a.s í fyrra-
dag, var magnið 294.330 kg
og meðalverð 2,85 krónur
danskar. I gær varð svo
magnið mest eða 1.397.315
kg og meðalverðið 1,82
krónur danskar.
Þetta síldarverð er all-
miklu lægra, en menn hér
fá fyrir þá síld sem nú veið-
ist hér við land.
Upp úr þessari holu stóð mik-
i11 eldstrókur f fyrrinótt og
skilaði strókurinn með sér
hrauni, f fyrsta skipti sem
slíkt gerist f borholu hér á
landi.
HRAUN kom upp um borholu
í fyrsta skipti hér á landi að
minnsta kosti, er hraun og
gjall komu upp úr holu 4
skammt frá gufuveitustöðinni
í Bjarnarflagi um miðnætti i
fyrrinótt. Segir Sigurður Þór-
arinsson, jarðfræðingur, að
nokkur tonn af hrauni og gjalli
hafi komið upp úr holunni.
Var i fyrstu talið, er eldsúlan
stóð upp úr holunni, að eldgos
væri hafið í Bjarnarflagi. Síð-
an kom í ljós að gas logaði upp
úr holunni.
„Höldum áfram af eins mikl-
um krafti og unnt verður
Miklar skemmdir á eignum Kísiliðjunnar og engin
þró til að taka við hráefni fyrir veturinn
Frá Agústi I. JAnssyni. fréttamanni Morgun-
hláðsins I Rc.vnihllð.
— EINS og málin standa nú höf-
um við ekki nægjanlegt hráefni
til vetrarins, sagði Þorsteinn
Ólafsson, annar tveggja fram-
kvæmdastjóra Kísiliðjunnar við
Mývatn, í gærdag. — Við erum að
vona að við fáum tfma þar til f lok
október til að dæla upp hráefni,
en við getum ekki reiknað með að
Mývatn verði íslaust lengur. Hins
vegar er það eitt af okkar stóru
vandamálum f dag að við höfum
enga þró til að dæla hráefninu í.
Ein þróin er full, hinar tvær
skemmdar, þannig að við verðum
að reyna að flýta viðgerðum eins
og framast er unnt til að tryggja
reksturinn í vetur. Þrátt fyrir það
tjón, sem varð á eignum Kfsiliðj-
unnar f þessum hamförum þá er
ekki annað til umræðu á þessu
stigi en að halda áfram rekstrin-
um af eins miklum krafti og unnt
verður, sagði Þorsteinn Ólafsson.
Umtalsverðar skemmdir urðu á
húsnæði Kisiliðjunnar, þróm
hennar og öllum lögnum að verk-
smiðjunni. Þannig gáfu sig i jarð-
raskinu vatnslagnir, gufulagnir,
sími og rafmagn í austurenda
skrifstofuhúsnæðisins, auk þess
sem rafstrengurinn fyrir verk-
smiðjuna var tekinn í sundur þeg-
ar farið var að stríkka iskyggilega
á honum í fyrrinótt. Sagði Þor-
Framhald á bls. 22.
Svart útlit í skreiðar-
sölumálum 1 Nígeriu
„VIÐ ERUM búnir að hafa tvo
fundi um skreiðarmálin hér í
Lagos og ekkert hefur komið út
úr þeim,“ sagði Bjarni Magnús-
son, forstjóri lslenzku umboðssöl-
unnar, en hann er einn þriggja
skreiðarseljenda sem nú eru í
Nígeríu að reyna að koma skreið-
arsölumálum Islendinga á hreint.
„Ekkert kom út úr þessum tveim-
ur fundurn" sagði Bjarni, „og
voru niðurstöður þcirra miklu
fremur neikvæðar en hitt.“
Bjarni kvað útiitið vera langt frá
því að vera gott. Hins vegar kvað
hann þá þremenninga eiga eftir
að kanna einn möguleika enn og
væri ekki ljóst hvað út úr því
kæmi. Bjóst hann jafnvel við að
þeir þremenningar myndu koma
heim um helgina en þó réðist það
af árangri þessa möguleika sem
enn væri ókannaður.
Bjarni sagði að Norðmenn
hefðu enn ekki sent sendinefnd
til Nigeríu. Spurnir hefðu þeir þó
haft af þvi að norsk sendinefnd
Framhald á bls. 22.
Tólf manns
fiúðu heim-
kynni sín
í hrinunni
Sjá viðtöl við fólk í Reykjahlíð
á bls. 21 og fréttir af náttiiru-
hamförunum á bls. 2, 3, 18 og 19.
□
NOKKUR uggur greip um sig
meðal fbúanna í Reykjahlíð
aðfararnótt föstudagsins er
skjálftavirknin var sem mest f
Bjarnarflagi og í nágrenni
Reykjahlíðar. Tólf manns
flúðu híbýli sfn og héldu í ná-
grannasveitirnar, en þess má
geta að Almannavarnir
hringdu neyðarhringingum á
bæjum í sveitinni um mið-
nættið er talið var að eldgos
væri hafið í Bjarnarflagi. Fólk
Framhald á bls. 22.