Morgunblaðið - 22.09.1977, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1977
WFTLEIDIR
S 2 11 90 2 11 38
■ (fMfc 5IMAK
|[y 28810
car rental 24460
bilaleigan
GEYSIR
BORGARTÚNI 24
FERÐABi'LAR hf.
Bdaleiga, sími 81260.
Fólksbílar, stationbílar, sendibíl-
ar, hópferðabílar og jeppar.
22-0-22-
RAUÐARÁRSTÍG 31
V_______________2
Útför Aðalgeirs
í Álftagerði
Útför Aðalgeirs Kristjánssonar
í Alftagerði var gerð frá Skútu-
staðakirkju s.l. laugardag að við-
stöddu fjölmenni. Séra Sigurður
Guðmundsson á Grenjaðarstað
jarðsöng. Aðalgeir andaðist á
sjúkrahúsinu á Húsavík eftir all-
langa veru þar. Hann fæddist i
Hörgsdal 20. des. 1892. Var hann
vinnumaður m.a hjá séra Arna
Jónssyni á Skútustöðum og flutt-
ist með honum austur að Hólmum
í Reyðarfirði. Síðan var hann hjá
séra Hermanni Hjartarsyni á
Skútustöðum. Hann hóf búskap á
Bjarnarstöðum, en fluttist i Álfta-
gerði 1945 og bjó þar upp frá því.
Eiginkona hans var Rebekka
Jónsdóttir. Hún er látin fyrir
nokkrum árum’ Þau eignuðust
eina dóttur, Arnfríði, og býr hún i
Álftagerði með syni sínum Jó-
hanni. Þau hjónin Aðalgeir og
Rebekka voru vel látin af öllum
sem til þekktu, greiðasöm og góð-
viljuð.
— Kristján.
F jórir sóttu um
prófessorsembætti
í jarðeðlisfræði
Umsóknarfrestur um pröfess-
orsembætti í jarðeðlisfræði við
verkfræði- og raunvísindadeild
Háskóla Islands, sem auglýst var
laust til umsóknar 15. júlí s.l.,
rann út 1. september s.l. Umsækj-
endur eru: Dr. Guðmundur
Pálmason, dr. Leó Kristjánsson,
Ragnar Stefánsson, jarðskjálfta-
fræðingur, og Sveinbjörn Björns-
son, eðlisfræðingur.
Rótað í
gámum
BROTIZT var um helgina inn í
vöruskemmu Eimskipafélags ts-
lands við Faxagarð. Var farið þar
í flutningagáma, mikið rótað í
þeim og einhverju stolið. Þá var
um helgina brotizt inn i Vélsmiðj-
una Klett í Hafnarfirði.
Útvarp ReykjavíK
FIM41TUDKGUR
22. september
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp
Veðurfegnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
(forustugr. dagbl), 9.00 og
10.00.
Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna ki.
8.00: Agúst Björnsdóttii
byrjar lestur „Fuglanna
rninna", sögu eftir Halldór
Pétursson.
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða.
Við sjóinn kl. 10.25: Ingólf-
ur Stefánsson talar við
Kristján Friðriksson iðn-
rekanda um auðlindaskatt
o.fl. Tónleikar kl. 10.40.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Nathan Milstein og Leon
Pommers leika Fiðlusónötu
nr. 12 „La Follia“ op. 5 heft-
ir Corelli/Auréle Nicolet og
Hátíðarhljómsveitin í
Lucerne leika Flautukon-
sert í G-dúr eftir Tartini:
Rudolf Baumgartner
stj./Maurice André og
Marie-Claire Alain leika
Konsert I d-moll fyrir
trompet og orgel eftir
Albinoni/Anton Heiller og
kammersveit leika Sembal-
konsert nr. 1 I d-moll eftir
Bach; Miltiades Caridis stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
SÍÐDEGIÐ
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar.
A frlvaktinni
Margrét Guðmundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
14.30 Miðdegissagan: „Ulfhild-
ur“ eftir Hugrúnu
Höfundur les (17).
15.00 Miðdegistónleikar
Sinfóníuhljómsveitin í
Vínarborg leikur Svítu í sex
þáttum fyrir strengjasveit
eftir Leos Janácek; Henry
Swoboda stjórnar. Régine
Crespin syngur með frönsku
útvarpshljómsveitinni
„Wesendonksöngva", laga-
flokk eftir Richard Wagner;
Georges Prétre stjórnar.
Fílharmoníusveit Lundúna
leikur „Mazeppa", sinfón-
ískt Ijóð nr. 6 eftir Franz
Liszt; Bernard Haitink
stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Tónleikar.
17.30 Lagið mitt
Helga Þ. Stepensen kynnir
óskalög barna innan tólf ára
aldurs.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.25 Daglegt mál
Gisli Jónsson flytur þáttinn.
19.40 Fjöllin okkar.
Sigurður Kristinsson kenn-
ari talar um Snæfell.
20.05 Samleikur í útvarpssal:
Valva Gísladóttir og Agnes
Löve leika á flautu og píanó
tónverk eftir Poulenc og
Debussy.
20.20 Leikrit: „Of seint að iðr-
ast“ eftir Walter K. Daly
Þýðandi: Eiður Guðnason.
Leikstjóri: Helgi Skúlason.
Persónur og leikendur:
Norman Randver Þorláks-
son
Kevin .......Hákon Waage
Manna ...Guðbjörg Þor-
bjarnadóttir
Billy .... Jón Sigurbjörnsson
Kata ......... Margrét
Guðmundsdóttir
Hjúkrunarkona .. Jóhanna
Norðf jörð
Læknir ....Ævar R. Kvaran
Dyravörður .. Flosi Olafsson
Jói frændi Arni Tryggvason
Aðrir leikendur: Kristín
Jónsdóttir, Skúli Helgason,
Kjartan Bjargmundsson,
Erla Skúladóttir og Guðrún
Jónsdóttir.
21.25 Tónverk eftir Jón
Þórarinsson
a. Prelúdía, kóral og fúga.
Ragnar Björnsson leikur á
orgel.
b. Sónata fyrir klarinettu og
pianó.
Egill Jónsson og Guðmund-
ur Jónsson leika.
c. „Of Love and Death“.
Kristinn Hallsson og
Sinfónuhljómsveit Islands
flytja;
Páll P. Pálsson stjórnar.
d. Sex gamlir húsgangar með
nýjum lögum.
Guðrún Tómasdóttir syng-
ur. Olafur Vignir Alberts-
son leikur á píanó.
— Atli Heimir Sveinsson
flytur formálsorð.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir.
Kvöldsagan: ,J)ægradvöI“
eftir Benedikt Gröndal
Flosi Olafsson leikari les
(10).
22.40 Kvöldtónleikar
a. „Þjófótti skjórinn", for-
leikur eftir Rossini.
Sinfóniuhljómsveit
Lundúna leikur; Perino
Gamba stjórnar.
b. Sinfónía nr. 6 í F-dúr
„Sveitalifshljómkviðan“
eftir Beethoven.
Cleveland hljómsveitin
leikur; George Szell stj.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR
23. september
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.30 Prúðu leikararnir (L).
Leikbrúðurnar skemmta
ásamt leikkonunni Juliet
Prowse.
Þýðandi Þrándur Thorodd-
sen.
20.55 Hvað næst?
Umræðuþáttur um jafnrétti
karla og kvenna.
Bein útsending.
Meðal þátttakenda Aðal-
heiður Bjarnfreðsdóttir,
Bcrgþóra Sigmundsdóttir,
Björg Einarsdóttir, Bryndfs
Schram, Haraldur Blöndal,
Ragnar Tómasson og Stefán
Karlsson.
Stjórnandi Ölafur Ragnar
Grímsson.
21.55 Nakinn sannleikurinn.
(The Naked Truth).
Bresk gamanmynd frá árinu
1956.
Aðalhlutverk Terry
Thomas, Peter Sellers,
Peggy Mount, Shirley Eaton
og Dennis Price.
Utgefandi hneykslisblaðsins
„Nakta sannleikans" kúgar
té út úr fjórum frægum
þjóðfélagsþegnum, lávarði,
sjónvarpsstjörnu, rithöf-
undi og fyrirsætu. Þetta
góða fólk vill ekki sæta f jár-
kúgun, og hvert þeirra um
sig ákveður að koma óþokk-
anum fyrir kattarnef.
Þýðandi Dóra Hafsteinsdótt-
ir.
23.20 Dagskrárlok.
Helgi Skúlason
Hákon Waage.
Guðbjörg Þorbjarnardóttir.
Hðn Sigurbjörnsson.
Arni Tryggvason.
Randver Þorláksson.
Leikrit vikunnar kl. 20.20:
Of seint að iðrast þegar
karlinn er að drepast
í KVÖLD kl. 20.20 ver8ur
flutt leikritið „Of seint að
iðrast" eftir Walter K. Daly.
Þýðinguna gerði Eiður
Guðnason, en leikstjóri er
Helgi Skúlason. í helztu
hlutverkum eru: Hákon
Waage, Jón Sigurbjörns-
son, Margrét Guðmunds-
dóttir, Randver Þorláksson,
Guðbjörg Þorbjarnardóttir
og Árni Tryggvason. Flutn-
ingur leiksins tekur rúma
klukkustund.
Leikritið segir frá sam-
skiptum sonar við dauð-
veikan föður sinn. Sonur-
inn Kevin er hálft i hvoru
Eiður Guðnason.
að hugsa um að fara til
útlanda með vini sínum, en
vill vita áður hvernig föður
hans reiðir af. Kevin hefur i
rauninni aldrei gert sér
Ijóst, hvers virði hann var
honum, en nú opnast augu
hans smám saman.
Walter K. Daly er enskur
höfundur, sem hefur eink-
um fengizt við að skrifa
útvarpsleikrit. Þetta er
fyrsta leikrit hans, sem
flutt er i íslenzka útvarpinu.