Morgunblaðið - 22.09.1977, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 22.09.1977, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1977 15 Bók Guðrúnar Jacobsen fær góða dóma í Danmörku EINS og sagt hefur verið frá í fréttum er samsagnasafnið „Den lille mester“ eftir Guðrúnu Jacob- sen nýkomið út á forlagi Birgitte Hövring í Danmörku. Mbl. hafa borizt nokkrar umsagnir úr dönskum blöðum um bókina. I Jyllandsposten er fyrirsögnin: „Islenzk Guðrún með hæfileika". Þar sem i öðrum umsögnum er vakin athygli á hversu Danir séu fáfróðir um íslenzkar samtíma- bókmenntir ef Gunnar Gunnars- son og Halldór Laxness séu frá- taldir. Nú sé hér kynnt skáld- kona, algerlega óþekkt í Dan- mörku, og hún hafi skrifað skáld- sögu, ljóð og leikrit, fengizt við að mála og haldið sýningar í Reykja- vík. Guðrún sé hógvær og virðist sem hún þreifi sig áfram. Hæfi- leikar hennar dyljist ekki og bók hennar eigi erindi til danskra les- enda. í Arhuus Stiftstindende segir: I Danmörku þekkjum við ekkert til Guðrúnar Jacobsen. Hún er sögð vera gædd fjölþættum hæfileik- um, hafi skrifað skáldsögu, ljóð og leikrit og einnig hafi hún að baki teikningar og málverkasýn- ingar. Hér er hún kynnt með nokkrum smásögum. Þær eru ekki vitund íslenzkar, ef þar með er átt við að þær einkennist af náttúru landsins, sérkennum fólksins, eða efnahagslegri eða pólitiskri þróun. Þær eru tfma- lausar í lýsingum á smáfólki af öllu tagi, börn og fullorðnir i hvunndagsönnum sínum. Yfir þeim hvílir innilegur tónn, samúð með örlögum þeirra sem íeita hamingjunnar í því kyrra og smáa. En það er einnig nokkur ævintýrablær yfir sumum þeirra. Málfar sagnanna er einfalt og blátt áfram en kannski ekki nógu dirfskufullt. í Land og folk er itarleg grein í ,tilefni útkomu bókarinnar. Þar er vikið að is- lenzkri bókmenntahefð og sem annars staðar fjallað um ókunnugleika á rithöfundum af yngri kynslóðinni á Islandi. Farið er viðurkenningarorðum um sögur Guðrúnar og sagt að með hlýjum og knöppum stíl séu dregnar upp myndir af mönnum og dýrum, sem veki eftirvæntingu lesandaris. Er minnzt á nokkrar sögur sérstaklega og í niðurlagi greinarinnar segir: „Guðrún Jacobsen er rithöf- undur sem við höfum hug á að hitta aftur, hún er allrar athygli verð.“ llt og suður um nelgina Flugfélag fslands býður upp á sérstakar helgarferðir allan veturinn fram undir páska: Ferðina og dvöl á góðum gististað á hagstæðu verði. Út á land, til dæmis í Sólarkaffið fyrir vestan, á Sæluvikuna á Sauðár- króki eða þorrablót fyrir austan, til keppni í skák eða í heimsókn til kunningja. Víða er hægt að fara á skíði. Suður til Reykjavíkur vilja flestir fara öðru hverju. Nú er það hægt fyrir hóflegt verð. Þar geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi til að gera ferðina ánægjulega. Margir hafa notað helgarferðirnar og kunnaðvel að meta. Gerið skammdegið skemmtilegt! Leitið upplýsinga hjá skrifstofum og umboðum um land allt. FLUGFÉLAG ÍSLANDS INNANLANDSFLUG Eftirl dag hefst iðnkynnmg ' Laugardalshöll Pá veróur höllin með hýrri há Klukkan 4 á morgun verður iðnkynning- Flugleiðir bjóða sýningargestum 25% in í Laugardalshöll opnuð öllum lands- hópafslátt af fargjaldi í innanlands mönnum. Kynningin stendur í 10 daga flugi. aðeins, mun skemur en venjulegar vörusýningar. Iðnkynningin í Laugardalshöll verður opin til kl. 23. daglega. Húsinu lokað kl. 22. Opnað kl. 13 laugardaga og sunnudaga, kl. 15 í miðri viku. Hittumst í Höllinni og tökum þátt í fagnaðinum. ■ ■fllÐNKYNNINGiti LAUGARDALSHÖLL ■ 123. sept.~2.okt/77

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.