Morgunblaðið - 22.09.1977, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 22.09.1977, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1977 33 U „ -£**> VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL. 10—11 FRÁ MANUDEGI Stjörnumerkið Hjarðmaðurinn er líkt flugdreka að lögun. Allar stjörnur þess eru daufar, nema stðrstirnið Arktúrus, sem er ein af björtustu stjörnum himinsins. engin bæn er svo heit að hún geti bjargað þjóð, sem komin er í klær heimskommúnismans, þess vegna telur enginn eftir sér, sem frjáls vill lifa að verai í Nato, því það hefur heft útþenslu kommún- ismans i Evröpu hingað til. Húsmóðir.“ % Stjarnblik „Ut varð mér gengið í kvöld (31. ágúst 1977) og er ég leit til lofts, var himinhvelfingin öll stjörnum skrýdd. (Þetta er fyrsta heiðskíra kvöldið á þessu síð- sumri.) Þarna blikuðu þær hundruðum saman, stórar og smáar, bjartar og daufar, i ýmsum litbrigðum, svo unun var á að horfa. Ein stjarna, fremur lágt á vesturhimni, dró að sér sérstaka athygli mina. Hún Ijómaði svo skært, og rauðgult blik hennar var sérstaklega áberandi. Hvaða fagra stjarna var þetta? Hér var á ferðinni sólstjarnan Arktúrus í stjörnumerkinu Hjarð- maðurinn, (Bootes) Hún er ein af björtustu stjörnum himins. Stjörnumerkið Bootes (Hjarð- manninn) er auðvelt að finna, ef framlengd er lina vagnkjálkans i Karlsvagni, uns komið er að stór- stirninu Arktúrusi. Arktúrus er eina stjarnan, sem nefnd er með nafni í Biblíunni (iJobsbók). Arktúrus er i þvermál um 30 þvermál sólarinnar. Fjarlægð Arktúrusar er um 38 ljósár frá okkar sólhverfi. Við sjáum þvi störnuna eins og hún leit út fyrir 38 árum, því ljósgeislarnir, sem nú eru að berast frá henni til jarðar og mæta augum okkar, lögðu af stað fyrir 38 árum frá yfirborði stjörnunnar, eða árið 1939. Hraði ljóss er mesti hraði sem mældur hefur verið, en það bylgj- ast fram um geimdjúpin frá hverri lýsandi sól með um 300 þús. km hraða á sek. Frá okkar sól til jarðar er Ijósgeislinn 8 minút- ur að berast (um 150 millj. km vegalengd). Frá Slriusi berst hann okkur á 8 og hálfu ári, frá Kapellu á 42 árum, frá Deneb i1 Svaninum á 400 árum. Geislarnir frá Deneb, sem nú mæta augum okkar, hafa þvi lagt af stað árið 1577 ef mælingar stjörnufræð- inga eru réttar svo sem ætla má. Þessar stjörnur og ótal aðrar mega allar heita nágrannar okk- ar, stjarnfræðilega séð, því lang- flestar stjörnur himinsins eru miklu fjarlægri, og sjást aðeins sem litlir Ijósdeplar og varla sjáanlegir með berum augum. Með litlum sjónauka fjölgar sýni- legum stjörnum margfaidlega, og sýnast þá þessir litlu deplar standa þétt, hver við annars hlið. En raunverulega eru þó bilin milli þessara litlu, þéttsettu depla engu minni þar en hér, og nema yfirleitt mörgum ljósárum milli hverrar stjörnu. Furðulegur er þessi mikli al- heimur, og furðulegar allar stjörnur hans. Heillaðir horfum við jarðbúar á fegurð himinsins á heiðrikum kvöldum. Blikandi stjörnur geimsins í öllum litbrigð- um þeirra beina hug okkar til lífstöðva, sem þar hljóta að finn- ast. Furðulegar eru stjörnur himinsins, en ennþá miklu furðu- legra hlýtur það lif að vera, sem þróast hefur í skauti þeirra um milljónir alda. Þegar við horfum til stjarn- anna, hlýtur okkur að verða hugs- að til annara mannkynja, sem heima eiga á jarðstjörnum ann- arra sólkerfa, og til þeirra lífsam- banda, sem hljóta eiga sér stað milli alls sem lifir i alheimi. Ingvar Agnarsson." Þessir hringdu . . . % Hvað kostar menningin? Spurull: — Um Iangt skeið hefur verið unnið að þvi að lagfæra hús það er keypt var fyrir Listasafn ís- lands, er eitt sinn var frystihúsið Herðubreið og síðar Glaumbær. Var húsið keypt fyrir nokkrum árum að mig minnir og ráðgert að endurnýja það sem þurfti og lag- færa til að hægt væri að hýsa þarna þá starfsemi sem Listasafn- ið hefur með höndum. Ekki hefur komið fram, ekki nýlega a.m.k., hvað þessar aðgerðir kosta, en fróðlegt væri að fá það upplýst. Að sjálfsögðu ber að hlúa að list og menningu, en verður ekki lika að gæta þess að það kosti ekki of mikið? Með þessum orðum er þó ekki verið að halda fram að of miklu hafi verið til kostað, en ekki væri úr vegi að fá að vita það svo menn geti i það minnsta myndað csér skoðun á því og geti fylgzt með hvað hitt og þetta kost- ar hjá okkur. SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson A Olympiuskákmótinu í Haifa i fyrra kom þessi staða upp i skák þeirra Godoy (Chile), og Ochoa (Spáni), sem hafði svart og átti leik. 26 ... Hf3!, 27. Dh2 (Eftir 27. gxf3 — Rxf3+ á hvítur ekki um annað að velja en leika 28. Dxf3) Hxh3! og hvítur gafst upp. Tónlistarskóli Grindavíkur tekur til starfa 1. október. Kennslugrein- ar: Pianó, orgel og blásturshljóðfæri og undirbúningsdeild. Væntanlegir nemend- ur hafi 'samband við skólastjóra. Eldri nemendur staðfesti umsóknir. Nemendur hafi stundarskrár með. Skó/astjóri. Frá Badmintondeild Gerplu Lausir tímar eru á sunnudags- og föstudags- kvöldum. Einnig í hádegi mánudaga og mið- vikudaga. Upplýsingar í síma 44708 og 41110. V^ERPLfy BALLETTSKÓLI EDDU SCHEVING Skúlagötu 34. Kennsla hefst í byrjun október. Innritun og upplýsingar í síma 76350 kl. 1 —4 e.h. DANSKENNARASAM BAND ÍSLANOS óóó R O Y A L SKYNDIBÚÐINGARNIR ÁVALLT FREMSTIR ENGIN SUÐA Tilbúinn eftir fimm mínútur 5 bragðtegundir Morgunblaðið óskar eftir blaðburðarfólki Austurbær: Lindargata Uthverfi: Selás Upplýsingar í síma 35408 fógtntfrlfifeife

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.