Morgunblaðið - 22.09.1977, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.09.1977, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1977 Módel Jan Holck-Larsen frá Danmörku, dagfíreiðsla. Klipping og blástur, model Sigurður G. Benónýssonar. Model Kate Grasson frá Danmörku, en hún var nr. 2 í keppninni í daggreiðslu. Lokkar, skúlptúr og andtttsfegrun, Norðurlandakeppni hárgreiðslu- oghárskurðarmeistara 1977 Sunnudaginn s.l. var haldin Norðurlandakeppni í hárskurði og hárgreiðslu í Laugardals- höllinni í Reykjavfk. 46 kepp- endur tóku þátt í keppninni frá Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Noregi og Islandi. Dómarar voru frá öðrum löndum Evrópu og Bandarfkjunum. Slík keppni á milli Norðurlandanna er haldin annað hvert ár og verður næst haldin í Finnlandi. Þetta var í fyrsta skipti sem keppnin er haldin hér á landi, og í annað sinn sem Islending- ar taka þátt í öllum þeim grein- um sem keppt er í. Sigurvegari í daggreiðslu var Esa Kokko frá Finnlandi, f tízkuklippingu herra sigraði Niels Sehou. I klippingu og hlæstri vann Björn O. Thorstensen frá Noregi en hann vann einnig Galahikar- inn. Sigurður G. Benónýsson var nr. tvö f klippinu og blæstri. I skúlptúr-klippingu varð Jens Erik Behrnedtz frá Danmörku sigurvegari. I Morg- unhlaðinu í gær voru birtar myndir af aðalverðlaunahöfun- um og greiðslum þeirra. Verðlaunin samtals kl. 500.000.- voru al'hent sigurveg- urunum f fjölmennu hófi á Hótel Sögu um kvöldið, og færðu þar sambönd hár- greiðslu- og hárskurðarmeist- ara á Norðurlöndunum ís- lenzka samhandinu, sem stóð að keppninni, veglega gjöf, en það átti 10 ára afmæli í maí s.l. Aðsögn Arnfríðar Isaksdótt- ur, framkvæmdastjóra keppn- innar, eru slík mót mjög já- kvæð fyrir hárskurðar- og hár- greiðslumeistara, þar sem und- irhúningurinn er mikill og þjálfunin sem fylgir. Hún sagði ennfremur, að ftalskur dómari sem boðaður hefði verið á mót- ið hefði ekki komið, en það hefði verið mjög óhagstætt fyrir íslenzku keppendurna, sem hefðu lagt mikla áherzlu á „ítölsku línuna" í undirbún- ingi sínum fyrir keppnina, en Italir eru nú heimsmeistarar á þessu sviði. Islenzkir fegrunarsérfræð- ingar voru einnig með sýningu allan sunnudaginn í anddyrinu f Laugardalshöllinni. Módel Hjördísar Moberg frá Svfþjóð. Kkúlptúrklipping. Kvöldgreiðsla. Bára Kemp greiðir sfnu módeli. Módel Kaf Finnlandi. Kvöldgreiðsla. * SAMBAND - Módel ýmissa snyrtivörumerkja sem þekkt eru í tízkuheiminum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.