Alþýðublaðið - 31.10.1958, Blaðsíða 12
VEÐRIÐ : SA-kaldi, skýjað.
Föstudagur 31. október 1958,
Alþtjímblaðiö
Horfur á, að „biskupsfrumvarpið"
verði samþykkf á alþingi.
ALLAR horfur eru nú á því,'*
að frumvarp það, er liggur fyr-
ir alþingi varðandi biskupsemh
aettið verði samþykkt. Kirkju-
þingið lýsti efnislega stuðningi
við frumvarpið og er talið, að
ályktun kirkjuþingsins um
þetta efni hafi haft talsverð á-
hrif á afstöðu þingmanna til
l'rumvarpsins.
Frumvarpið, sem flutt er af
Bjarna Benediktssyni og Ölafi
Thors, gerir ráð fyrir, að bisk-
up geti setið í embætti til 75
ára aldurs svo framarlega sem
heilsa hans leyfi. En samkvæmt
núgildandi lögum er gert ráð
fyrir, að biskupar láti af starfi
70 ára.
EKKERT BISKUPSKJÖR
Ásmundur Guðmundsson,
biskup íslands, er nýlega orð-
inn 70 ára gamall. Var því gert
ráð fyrir að hann yrði að láta
af embætti og biskupskjör að
fara fram. Hafði Presta'félag ís-
lands þegar tilkynnt prófkosn-
ingu. En þá kom fyrrnefnt
frumvarp fram á alþingi og nái
það fram að ganga eins og allar
líkur benda til nú, fellur bisk-
upskjör niður og Ásmundur
Guðmundsson gegnir áfram
embætti.
ofIieIcIisaðger®ay
ef ...
NICOSIA, fimmtudag, EOKA
sendi í dag út fíugrit með til-
boðj um að hætta öllum ofbeld-
isaðgerðum gegn þvx að Bretar
iétti af öllum takmjörkunum og
gagnráðstöfunum á Kýpur. Seg
ir í flugritinu, að EOKA muni
halda aðgerðum sínum áfrain,
ef brezku yfirvöldin taki ekki
þessu tilboði.
Vopnaðir hermdarverkamenn
réðust í dag inn í opinbert
sjúkrahús í Nicosia og drápu
grískan. Kypurbúa, sem lagður
hafði verið þar til aðgerðar
vegna sára, er hann hlaut, þeg
ar óþékktir byssubófar réðust
á hann um helgina.
R-Ésar vilja ekki
MOSKVA, fimmtudag. Sov-
étstjórnin vísaði í dag á bug
brezk-amerísku tillögunni um
bráðabirgðastöðvun tilrauna
með kjarnorkusprengjur í eitt
ár. 1 orðsendingu sovétstjórn-
arinnar er þó undirstrikað, að
allir möguleikar séu á, að þri-
veldaráðstefnan, sem hefst í
Genf á morgun, muni komast
að samkomulagi um samninga
um varanlega stöðvun tilrauna.
Yaraþlngmaður
tekur sæii á ai-
þingi.
ÁSGEIR SIGURÐSSON skip
stjóri tók í gær sæti á alþingi
sem varamaður Sjálfstæðis-
flokksins í fjarveru Björns Ól-
afssonar, er dvelst erlendis.
Varaforseti neðri deildar,
Halldór Ásgrímsson, sem stýrði
þingfundunum í gær, las í fund
arbyrjun bréf frá Birni, þar
sem hann tlkynnti fjarveru
sína og bað þess, að Ásgeir tæki
sæti sitt á meðan. Jafnfram.t
bauð varaforsei hinn nýja þing
mann velkominn til starfa.
aað en
Bandaríski málarinn Mark
Tobey hlaut fyrstu verðlaun
fyrir verk sín á hinni frægu
,,B.ennale“ listsýningu í Fen-
eyjum, en þar. sýndi hann 36
málverk. Þetta er í fyrsta sinn
síðan árið 1895, að amerískur
.málari fær umrædd verðlaun,
Leikfélag Hafnarfjarðar:
Frumsýnir gamanleikinn .Oerviknapsnn
í Bæjarbíói n.k. þriðjudagskröld.
Leikstjóri: Klemenz Jónsson.
LEIKFÉLAG Hafnarfjarðar
frumsýnir enska gamianieikinn
„Gerviknapinn“ eftir John
Chapman í Bæjarbíó nk. þriðju
dagskvöld. Þýðinguna hefur
Valur Gíslason leikari gert og
valdi hann nafnið, en á frum-
ínálinu nefnist leikritið „Dry
Rot“. Leikstjóri er Klemenz
Jónsson.
Leikrit þetta var fyrst sýnt
í White Hall í Lundúnum í árs-
byrjun 1954 og var sýnt þár um
1800 sinnum þar til sl. sumar.
Auk' þess hefur það verið sýnt í
Svíþjóð, Vestur-Þýzkalandi og
Hollandi, og verið er að'gera
kvikmynd eftir því. Verið er að
sýna annað leikrit eftir Chap-
man í White Hall, „Simþle
Spymen“ og hefur það einnig
hlotið mjög góða dóma. Bæði
þessi leikrit hafa gert höfund-
inn frægan. Hefur hann sjálf-
ur leikið í þeim báðum.
EFNI LEIKSINS
,,Gerviknapinn“ er gaman-
leikur af léttara taginu, fjallar
um veðreiðar og spaugilega
skúrka, sem ætla að auðgast á
veðbankanum. Allt lendir í mis
tökum og misskilningi og kemst
upp um þá kumpána áður en
lýkur. Er þetta fyrsta viðfangs-
efni LH á þessu leikári.
r mðlljónina
Óvenjuiegt erfðamál.
UM þessar mundir er unnið
að skiptingu arfs Brynleifs heit
ins Tobiassonar og konu hans,
en þau hjónin létust með stuttu
millibili. Þau hjónin höfðu gert
kaupmála. Námu eignir kon-
unnar tveim: milljónum, en
eignir Brynleifs hálfri milljón.
Nú þótti það ekki ljóst hvort
Þeirra hjóna hefði látizt á und-
an. Og er blaðinu ekki kunn-
ugt um hvort úrskurður ,er
kominn varðandi það atriði.
'En hafi Brynleifur látizt á
undan, ber lífserfingja hans,
Siglaugi bókaverði á Ákureyri,
helmingurinn af eign konunn-
ar á móti útörfum hennar (en
hún átti engin börn). Arfur
hans ætti því að vera Wz millj-
ón. Hafi Brynleifur hins vegar
látizt á undan konunni, ber erf
ingjum hennar fjórðungur af
eignum Brynleifs á móti lífs-
erfingja Brynleifs. I þeirra hlut
ætti þá að falla 2 125 000 kr.
Undanfarlð mun -hafa verið
únnið að því að ná samkomu-
lagi í þessu máli og má vera
að skipting arfsins verði eitt-
hvað á annan veg en hér hefur
verið lýst, náist samkomulag.
■
HLUTVERKASKIPUN
Steinunn Bjarnadóttir leik-
ur eitt aðalhlutverkið og er það
í fyrsta sinn, sem hún leikur
hjá LH. Guðjón Einarsson leik
ur ofursta, en hann hefur leik-
ið hjá LH í mörg ár. Katla ÓI-
afsdóttir leikur konu hans og
Dói'a Reindal dóttur þeirra,
Hún útskrifaðist úr Leikskóla
Þjóðleikhússins sl. vor. Skúrk-
arnir þrír eru leiknir af Sig-
urði Kristinssyni, Eiríki Jó-
hannessyni og Rágnari Magnús
syni, sem allir eru þekktir leik
arar í Hafnarf.rði. Önnur hlut-
verk Jeika Sólveig Sveinsdóttir,
Harry Einarsson og Ólafur
Mixa.
Leiktjöld hefur Magnús Páls
son gert. Formaður LH er Sig-
urður Kristinsson. Leikfélagið
rekur leikskóla með 10 nemend
um undir stjórn Klemenz Jóns-
sonar. Hann hefur áður stjórn
áð tveim leikritum LH, „Svefn
lausa brúðgumanum“, sem
sýndur var um 50 sinnum og
„Afbrýðisamri eiginkonu“,
sem sýnd var um 40 sinnum-.
Nokkrir vinir
-halda séra Sigurði Einarssyni
í Holti samsæti nk. laugardag.
Verður það í Tjarnarkaffi og
hefst kl. 7. Aðgöngumiðar eru
afhentir í Bókabúð Sigfúsar Ey-
mundssonar og eru væntanlegir
þátttakendur beðnir- að vitja
þeirra sem fyrst.
Skorað á Lúðvík aS leggja skjölin á boríil.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ hefur nú fregnað, ?ið lýsið,
sem Lúðvík Jósefsson vill heimila kommúnisíafyrii'*
tæki að selja fyrir silkisokka til Finnlands, muni aldrei
eiga til bess lands að fara. Finnar munu, ef til þessara
viðskipta kemur, selja lýsið til Vestur-Þýzkalands cg
tryggja sjálfum sér þar frjálsan gjaldeyri. Sýnir þessi
staðreynd betur en nokkuð annað, hvers konar vi'-)*
skiptum siálfur viðskiptamálaráðherrann er að reyna
að koma á.
Þjóðviljinn reyndi í gær að
verja hina furðulegu fram- i
komu Lúðvíks Jósefssonar í
þessu máli. Blaðið viðurkennir,
að Lúðvík hafi leyft þau við-
skipti, sem Alþýðublaðið skýrði
frá, en segir, að „bankarnir á-
kveði á venjulegan hátt hvaða
innflytejndup fá að flytja inn
þær vörur frá Finnlandi, sem
um er að ræða“. Þetta er al-
gerlega rangt með far.ð, því
viðskiptin eru algerlega taund-
in við umrædd vöruskipti þessa
fyrirtækis.
Hvernig stendur á því, að
Lúðvík Jósefsson viðskipta-
xnálaráðherra þarf að skrifa
Landsbankanum oe fleiri að-
ilum um þessi mjál, ef bank-
arnir eiga að ákveða „á venju
legan hátt“ afgreiðslu þess?
Vill Lúðvík hreinsa sig í þessu
máli xneð því að birta þau
bréf, sem hann liefur skrifað
bönkum og nefndum um þetta
mál?
GJALDEYRISSKORTUR
Einhver mestu vandræði ís-
lenzkra gjaldeyrismála eru
skorturinn á frjálsum gjald-
eyri, í>að er því furðulegt að
seljia lýsi í vörusklptum, þegar
Finnar ætla að selja það aft.ur
fyrir frjálsan gjaldeyri. Vitað
er, að verð á lýsi í Þýzkalandi
er lægra en Finnar bjóðast til
að greiða okkur. Hvernig geta
þeir jafnað muninn á‘ annan
hátt en að bæta honum á verð
silkisokkanna, sem við fáum?
Dettur nokkrum í hug, að Finn
ar ætli að gefa íslendingum mis
mun'inn?
BÆJARSTJÓRI
Loks segir Þjóðviljinn, að
Hjálmar Jónsson, framkvæmda
stjóri Baltic Trading Co., sé
„kunnur andkommúnisti“ og
„væntanlega meðlim.ur í Varð-
arfélaginu, sé hann ekki í Ál-
þýðuflokknum“. Sannleikurínrti
er sá, að Lúðvík Jósefsson og
menn hans réðu Hjálmar þsnn-
an fyrir fáum árum bæjarstjóra
á Norðfirði á sínum tíma. Dett-
ur nokkrum manni í hug, aS
kommúnistar ráði bæjarstjóra
á Norðfjörð úr Varðarfélagir.ut
eða Alþýðuflokknum? Sam-
band Lúðvíks við þennan mana
gerir og baráttu Lúðvíks fvrir
lýsissölunni enn grunsaml f gri
og staðfestir það, sem Aiþt 'iu-
blaðið hefur sagt um. málið. ,
ur versflði
svæði hreiiu
r>
1 ’ GÆRKVÖLDI voru 13
brezkir togarar að veiðun: .
an fiskveiðitakmarkanna -
við land.
Síðdegis í fyrradag by. .<
veður að versna fyrir Vestij j, S
um. Fóru þá allir brezkir tog-
arar á þejssum. slóðum sv. óur'
fyrir Látrabjarg og voru þar
flestir 26 talsins. Fiskuðu tog-
ararnir þarna í þéttum hóp inn-
an 12 sjómílna markanna und-
ir vernd herskipanna Hogue og
Lagos. í morgun byrjuðu tog-
ararnir svo að tmast af Þessu
svæði og voru 12 eftir þarna í
kvöld. i
Út af Langanesi voru 4 brezk
ir togarar að veiðum innau
markanna og gættu þeirra- frei-
gáturnar Blackwood og Zest.
Brezku flotadeildinni hér við
land hefur nú enn bæzt liðs-
auki. Er það tundursp.llirinn
Dainty. Hann var síðdegis í dag
staddur úti fyrir Austurlandi.
likil síld í Miðnessjé
20-30 bátar á sjó í nótt.
MIKIL síld er nú komin í
Miðnessjó að því er Sturlaugur
Böðvarsson útgerðarmaður á
Akranesi tjáði blaðinu í gær.
Munu 20—30 bátar hafa verið
á sjó í nótt.
Miklar ógæftir hafa verið
undanfarið, en á þriðjudag sl.
gaf á sjó og virtist-þá komin ný
ganga í Miðnessjó. Var aflinn
frá 40—170 tunnur á bát. í gær
voru 10—20 bátar við síldveið-
ar, en í .nótt er leið -munu bát-
arnir hafa verið 20—30 eins og
fyrr segir.. -
VEL SÖL.TUNARHÆF SÍLD
iSíldin er að fitumagni 15—
20%. Þykir það vel söltunar-
hæf síld og fer hún yfirleitt öll
í söltvm. Kvaðst Sturlaugur
Böðvarsson vona, að tíðin héld-
ist góð svo að unnt yrði að ná
sem mestu af síldinni, þar eð>
nóg væri af henni í sjónum.
MIKIL BIRTA í GÆRKVÖLDI
í gærkvöldi var mikil birta
og stóð síldin af þeim orsökum
dýpra. En búast má við að það
breytist fljótt.