Morgunblaðið - 09.10.1977, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÖBER 1977
Eina fyrirframsala
SR á mjöli farin
fyrir gerðardóm
FRAMLEIÐSLA Síldar-
verksmiðju ríkisins í
Siglufirði á þessu ári er nú
að náigast um 100 þúsund
tonn af loðnumjöli og hef-
ur ekki orðið þar meiri.
Listahátíð 1978:
Reyna ad fá
Theodorakis
og Dubliners
Listahátíðarnefnd 1978 er
byrjuð að undirbúa Listahátfð-
ina næsta vor og m.a. er verið
að kanna möguleika á því að fá
hingað f heimsókn grfska tón-
skáldið og vísnasöngvarann
Miki Theodorakis sem er
kunnur hér á landi fyrir tón-
list sína f kvikmyndinni
Zorba. A tónleikaferðum
Theodorakis fylgir honum
hljómsveit og söngvarar. Þá er
einnig verið að kanna mögu-
leika á því að fá á Listahátfð
frska þjóðlagasöngflokkinn
Dubliners en hann er einn
þekktasti söngflokkur tra.
Morgunblaðið hafði sam-
band við Davíð Oddsson, for-
mann Listahátiðarnefndar, og
innti frétta af fyrirspurnum til
þessara aðila, en hann kvað
engin svör hafa borizt ennþá.
Mjölið selst svo til jafnóð-
um og það er framleitt, að
sögn Jðns Reynis Magnús-
sonar, framkvæmdastjóra,
og á heimsmarkaði fer
mjölverð hækkandi.
Mjölverðið er nú í kringum 7
dollarar hver próteineining að því
er Jón Reynir sagði, og hefur ver-
ið að hækka upp á siðkastið. Lýsið
hefur einnig farið hækkandi en
Jón taldi að þar væri aðeins um
skammtimaástand að ræða og
stafaði af timabundnum skorti á
jurtaolíu.
Síldarverksmiðjurnar gerðu
fyrirframsamning um sölu á mjöli
og lýsi við danskan aðila í byrjun
og var þar um að ræða 2300 tonn
af lýsi og um 1500 tonn af mjöli.
Lýsið var á góðu verði en mjölið á
mjög háu verði, eða á um 8 doll-
ara miðað við proteineiningu og
þegar á reyndi neitaði danski
kaupandinn að taka við mjölinu.
Að sögn J'óns hefur þetta mjöl nú
verið selt, þar sem ekki er unnt að
geyma mjölið um langan tíma en
á lægra verði en gert var ráð fyir
samkvæmt fyrirframsamningn-
um. Málið er nú komið fyrir
gerðardóm, sem mun skera úr um
það á hvern hátt og að hversu
miklu leyti hinn danski kaupandi
skuli bæta Síldarverksmiðjunum
það tap sem þær hafa orðið fyrir
vegna þessa samningsrofs.
A sambandsfundi Norrænu
félaganna á tslandi í gær var
Vilhjálmuf Þ. Gislason, fyrr-
verandi útvarpsstjóri kjörinn
heiðursfélagi Norrænu félag-
anna á Islandi og afhent sér-
stakt heiðurskjal í þvf tilefni.
Vilhjálmi var sýndur þessi
sómi f tilefni af þvf að hann
varð áttræður 16. september sl.
og fyrir störf sín f þágu nor-
rænnar samvinnu. en Vilhjálm-
ur hefur tekið þátt í starfi nor-
rænu félaganna hér á landi frá
upphafi. Hér afhendir Hjálmar
Ólafsson formaður Norræna
félagsins heiðursskjalið.
Málverkauppbod í Kaupmannahöfn:
Málverk K jarvals, Júlí-
önnu og Jóns til íslands
SVNINGUNNI „Septem ‘77“ lýkur f Norræna húsinu f dag. Hafa allmörg verk selzt á sýningunni, en
þar sýna Valtýr Pétursson, Guðmunda Andrésdóttir, Kristján Davfðsson, Sigurjón Olafsson, Jóhannes
Jóhannesson og Þorvaldur Skúlason.
SUMARSVNINGIN í Asgrfms-
safni verður aðeins opin í fjóra
daga enn, en sýningin var opnuð
22. maf sl. Lýkur henni sunnudag-
inn 16. október nk.
Safnið verður síðan lokað um
tíma meðan komið verður fyrir
haustsýningunni, en 1 ráði er að
sýna þá eingöngu vatnslitamynd-
ir. Sumarsýningin er yfirlitssýn-
ing á verkum Asgríms Jónssonar,
se m hann málaði á hálfrar aldar
tímabili. Margt erlendra gesta
skoðaði sýninguna á þessu sumri.
Asgrimssafn, Bergstaðastræti
74, er opið sunnudaga, þriðjudaga
og fimmtudaga frá kl. 1.30—4.
Aðgangur er ókeypis.
I flaumi lífsins fljóta
MALVERK eftir Kjarval,
Júlíönnu Sveinsdóttur og
Jón Stefánsson voru slegin
Guðmundi Axelssyni í
Klausturhólum á uppboði
hjá Kunsthallen í Kaup-
mannahöfn fyrir helgina.
Munu málverkin koma
heim til fslands einhvern
næstu daga.
Kjarvalsmyndin er
fjallamynd, mynd Júlíönnu
er frá heimabæ hennar,
Vestmannaeyjum, og
mynd Jóns er uppstilling.
Á uppboðinu voru einnig
málverk eftir Svavar
Guðnason og Vilhjálm
Bergsson. Mynd Svavars
seldist á 9000 kr. danskar
en mynd Vilhjálms á 200
kr. d.
I spjalli við Morgunblað-
ið í gær kvaðst Guðmundur
Axelsson einnig koma
heim með málverk eftir
— þriðja minninga-
bók sr. Gunnars
Benediktssonar
BÓKAÚTGAFAN Örn og örlygur
hefur gefið út þriðju endur-
minningabók Gunnars Benedikls-
sonar og nefnist hún „I flaumi
Iffsins fljóta". Bókin er gefin út f
tilefni 85 ára afmælis höfundar.
sem er 9. október.
Utgáfan segir svo í frétta-
tilkynningu um bók séra
Gunnars: Með þessari minninga-
bók velur hann sér nýjan vett-
vang. Hann tekur sér næði til að
hverfa um stund til bernsku- og
æskuáranna í einu því byggðar-
lagi landsins, sem um aldamótin
siðustu stóð fjærst straum nýrra
vorboða í lífi þjóðarinnar, — um-
flotið og sundurskorið af stór-
fljótum i upphafi upplausnar-
tímabils hornfirsku skriðjökl-
anna. Hann lýsir mannlífi i um-
hverfi sem aðeins örfáir eiga nú
minningu um og enginn hefur
fyrr lýst, er nú ekki lengur til og á
sér enga hliðstæðu.
1 hinum umflotnu og sundur-
skornu hornfirsku bernskustöðv-
um fékk Gunnar fyrstu æfingu í
að kljást við straumþunga lífsins,
bæði beint og óbeint og bjarga sér
yfir ósköddum á líkama og sál,
með dirfsku og gætni. En bók sér
Gunnars er ekki aðeins lýsing á
þessu byggðarlagi. Hún er innlif-
un í lif ellefu barna fjölskyldu og
lífsreynslu unglinga, sem verða á
eigin ábyrgð að taka ákvörðun
um, hvar leggja skuli i ólgandi
Gunnar Benediktsson
vatnsflauma, þar sem um líf eða
dauða gat verið að tefla i hverju
fótmáli. Glíman við jökulvötn og.
óblíða náttúru stældi unglingana
og gerði þá hæfari i lífsbaráttunni
sem beið þeirra handan næsta
leitis — í flaumi lifsins fljóta —
en fjarri fer því að yfir frásögn-
inni hvíii blær ógna og erfiðleika.
Yfir henni allri er bjarmi
bernskugleði og æskufagnaðar í
leik og starfi.
Bókin er sett og prentuð í
prentsmiðjunni Viðey. Arnarfell
annaðist bókband en kápu-
teikningu gerði Hilmar Þ. Helga-
son.
Ólæti við Tónabæ:
2 lögreglumenn í átök-
um við unglingaskara
HÓPUR unglinga réðst að tveim- taka fastan þann sem kastað hefði
ur lögregiumönnum utan við
Tónabæ 1 fyrrinótt. Áttu lögreglu-
mennirnir tveir þarna f höggi við
stóran hóp unglinga í um hálfa
klukkustund áður en þeim barst
liðsauki, og var fjöldi unglinga þá
tekinn úr umferð og 5—6 þeirra,
sem harðast höfðu veitzt að lög-
reglunni, var stungið inn.
Að sögn annars lögreglumanns-
ins, sem fyrir þessu varð, höfðu
þeir verið sendir í bíl að Tónabæ
vegna óláta þar og þeir tveir orðið
eftir meðan bifreiðin ók nokkrum
ólátaseggjum á brott. Hafi þeir
verið að hverfa á brott fótgang-
andi þegar kastað var að þeim
flösku, sem lenti milli þeirra og
brotnaði þar. Kváðust þeir þá
ekki hafa átt annars úrkosta en
flöskunni en við það hefði. stór
hópur unglinga veitzt að þeim og
mikiar sympingar orðið. „Við
sluppum þó tiltölulega vel, hlut-
um aðeins minniháttar skrámur,
en þetta ástand hefur áreiðanlega
varað í um hálfa klukkustund eða
þar til okkur barst hjálp en þá
hafði einhver komið boðum á lög-
reglustöðina um hvernig komið
væri,“ sagði lögregluþjónninn.
Gizkaði hann á að alls hefðu verið
um 300—400 unglingar fyrir utan
Tónabæ þegar óspektirnar hóf-
ust. ----« » »
Sumarsýningu
Asgrímssafns
lýkur senn
Blöndal og er það af stúlk-
um við saltfiskverkun.
Verkfalls-
nefnd og
kjaradeilu-
nefnd á fundi
SlÐDEGIS í gær var fyrir-
hugaður fundur verkfalls-
nefndar BSRB og kjara-
deilunefndar til að skera
úr um ýmis vafaatriði
varðandi framkvæmd verk-
falls BSRB, ef til þess kem-
ur.
Guðni Jónsson, formaður verk-
fallsnefndar BSRB, sagði i sam-
tali við Mbl. í hádeginu í gær, að
hann gæti þá engan veginn gert
sér grein fyrir þvi, hver staóan
yrði, þar sem verkfallsnefndin
hefði ekki fengið lista yfir þá,
sem ættu að vinna i verkfalli, og
þá, sem ekki ættu að vinna. Hins
vegar myndu verkfallsnefndin og
kjaradeilunefndin hittast síðdeg-
is og þá yrðu þessi mál tekin fyrir
og skorið úr um vafaatriðin.
f
Alitsgerð vís-
indamanna um
hvað kann að
gerast nyrðra
LITLAR breytingar hafa orðið
á hverasvæðinu í Bjarnarflagi
undanfarna daga, að sögn Jóns
Illugasonar i Reykjahlíð. Er
hveravirkni þar mjög mikil,
en þó ekki meiri nú en fyrir
nokkrum dögum. Að sögn Jóns
hafa Almannavarnir ákveðið
að leita eftir álitsgerð vísinda-
manna um þróunina ásvæðinu
og hvað hugsanlega gerist
næst. Þá mun sennilega í lok
næstu viku verða efnt til borg-
arafundar I Reykjahllð og
Vogum, þar sem vísindamann
og forystumenn Almannavarn-
ar munu mæta.