Morgunblaðið - 09.10.1977, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÖBER 1977
7
„Hvorki syndgaði hann né
foreldrar hans" svaraði Jesús
lærisveinunum, sem héldu
að böl blindfædda mannsins
væri refsins Guðs annaðhvort
fyrir synd mannsins sjálfs, og
þá áður en hann fæddist til
þessa heims, eða synd for-
eldra hans. Ekki leysir þetta
ráðgátu bölsins.
í kristninni túlkun og guð-
fræði hafa setið hlið við hlið
hinar óskyldustu hugmyndir
um þetta efni. Og líklega
sýnir fátt betur hina skilyrðis-
undanbragða frá ábyrgðinni.
Sú friðþægingarkenniog
stendur nálega i brennidepli
lútherskrar guðfræði, að blóð
Guðssonar borgi sekt og
syndir þeirra, sem til hans
flýja í trú. I það skjól hafa
margir flúið undan ábyrgð
þess, sem framið var, og í
þeirri trú hafa margir fundið
sekri sál sinni frið og skjól.
En sé það skjól eins og spila-
borg, sem hrynur svo að
mannssálin stendur eftir af-
drepslaus að berangri við al-
leika, sem okkur dreymir enn
ekki um, og að á þeirri löngu
ferð um ódáinsheima verði
maðurinn eitthvað mikið
annað en hann er enn við
jarðnesk ævilok.
Sra. Matthias kvað:
Það kostar svo mikla mæðu,
svo margfalt reynslustríð,
að sá fyrir lífið hér í heim
en hvað fyrir eilifa tið!
Meðan fávis maður er að
feta sig áleiðis í áttina að
visdómi himnanna hlýtur
honum að missýnast um
„Hvorki syndgaði
hann, né...”
lausu þörf mannsins fyrir trú
og trúarbrögð en það, hve
umburðarlyndir menn eru,
einkum trúaðir menn, við
ósættanlegar hugmyndir inn-
an sömu trúarbragða, og hve
furðulega litlar kröfur menn
gera yfir leitt til samkvæmni
og rökfestu, þegar um gaml-
an kenningararf er að ræða.
Þetta á ekki sízt við um þær
að ýmsu fráleitu hugmyndir
um bölið og uppruna þess,
sem Kristur andmælti, er
hann sagði: „Hvorki syndg-
aði hann (blindfæddi maður-
inn) né foreldrar hans"
Víst bera mörg börn syndír
feðranna og liklega í fleiri
myndum en við vitum, fyrir
erfðir frá kyni til kyns, en það
réttlætir ekki það myndamor
af refsingu hins reiða Guðs,
sem óhugnanlega algeng er,
jafnvel í sumum fegurstu
bókmenntum kristninnar. En
það.gefur ekki efni til þess að
telja bölið refsingu hins reiða
Guðs. Við fæðumst inn í
heim, þar sem voðalega
ábyrgð er hægt að baka sér
með voðaverknaði. Þetta er
ekki refsing og þaðan af síð-
ur vottur reiði Guðs. Þetta er
viturlegasta ráðstöfun, sem
hugsanleg er. Enginn læriref
engar hættur eru á veginum.
Enginn vitkast ef yfirsjónir og
gönuhlaup kenna honum
ekki, að þá stofnaði hann til
skuldar, sem hann verður að
greiða. Jesús segir meira að
segja, að skuldina verði að
greiða „til síðasta eyris"
Við leitum margvislegra
varleg vegaskil er þá ekki
vænlegra að gera sér Ijóst, að
hér erum við í skóla, þar sem
sumar námsgreinar eru erfið-
ar og sumar þær kröfur
strangar, sem til nemandans
eru gerðar?
Hvernig ætti annað að
vera? Guð er að leiða okkur
að markmiðum, sem eru
svimandi há og órafjarlæg.
Er þá að furða, að margt er
að læra, sem ofan skilningi
okkar og skyni er?
Sitt hvað er það í endur-
lausnardómi kirkju minnar,
sem ég hefi fjarlægzt mé ár-
unum og ég hef að sjálf-
sögðu hlotið andstöðu og
óvild margra fyrir. Ég get
ekki fengið mig til að trúa
þvi, að þegar eftir andlátið
og þaðan af síður á dóms-
degi eftir milljóna ára grafar-
svefn verði mannssál á vet-
fangi fulkomin og fullsæl
með dómsúrskurði eða al-
mættisorð Drottins Hvort
sem það hefur borizt inn í
mannheim frá þeim, sem
jarðlífið hafa kvatt, eða það á
með einhverjum þeim hætti,
sem enginn veit að greina
upptök sín í órannsökuðum
sálardjúpum jarðneskra
manna, sem lítt rannsakaðri
sérgáfu eru gæddir, þá hefur
sumt það, sem ég hef lesið
og tjáist komið „handan að"
sannfært mig um það, að á
óralangri lausnargöngu og
lærdómsbraut handan heims
og heljareigi maðurinn, það
af honum sem lifir dauða
líkamans, að öðlast hæfi-
margt. Erfiðleikar, sem á
þeim langa vegi verða, eru
ekki refsing Guðs fyrir drýgð-
ar syndir í þeim skilningi,
sem tíðum er kennt, og enn
síður vottur um reiði hins
algóða föður, sem Kristur
kenndi okkur að þekkja,
heldur uppeldistæki í hendi
hins alvitra, algóða Guðs.
Ég fæ ekki séð hvernig
unnt er án ódauðleikavissu
og öruggrar vonar um dag að
baki dauða, að trúa að rétt-
læti, visdóm og kærleika
Guðs andspænis þeirri byrði,
sem blindfætt barn er dæmt
til að bera.
Lærisveinarnir spurðu
Jesú, þegar blindfæddi mað-
urinn varð á vegi þeirra, hvor
hefði syndgað blindinginn,
að slík byrði væri á hann
lögð, eða foreldrar hans. Þeir
höfðu þá enn ekki lifað undur
upprisunnar, sem opnaði
þeim sýn til heimanna hand-
an við Golgata.
Við trúum ekki því, að eld-
gosið í Vestmannaeyjum hafi
dunið : íbúa Eyjanna vegna
þess að þeir hafi verið synd-
ugri en aðrir menn. Slík trú,
afar frumstæð og forn, hefur
orðið ótrúlega lífseig innan
kristninnar. Þósagði Jesús
um blindfædda manninn:
„Hvorki syndgaði hann, né
foreldrar hans". Er ekki bölið
uppeldisráðstöfun alviturs
Guðs, — ekki refsing í þeirri
merkingu, sem tiðast er lögð
í það orð.
Fossvogur
Einbýlsihús óskast í skiptum fyrir raðhús í sama
hverfi. Þeir sem áhuga hafa sendi nafn og
símanúmer á augld. Mbl. merkt: „Eignaskipti
— 4137".
og slífar
frá Kolbenschmidt
Sundaborg 25 — Reykjavík
Sími 36699
áte
Fatnaður
Barnasmekkir
Prjónasokkabuxur st. 1
Barnateppi
Hettupeysur st. 4—14
Prjónapeysur st. 4—
Drengjaskyrtur
Sportsokkar KT st. 0
Barnanáttfct
Telpnanáttkjólar
Ungbarnasokkar
Útigallar DK
Flauelsbuxur Skippý
Denimbuxur Pardus
Barnaúlpur loðfóðraðar \ 9 9 /
Flauelsjakkar loðfóðraðir
Kv. blússut ’/a erma hvitt IRIS
Kv. blússur 1/1 erma H.P.
Bómullarbolir
Kv. náttkjólar s—m—I
Tauscher
Triumph
Hr. sokkar Kunert
Herranærbuxur síðar
Blúndudúkar í mcrgum stærðum
Kaffidúkar
Baðmottusett
Metravara
Kjólaefni einlit/mynstr. Fóður i mörgum litum
Buxnaefni ull/terelin Lakaefni
Flauel teg. Cete Sængurfataefni
Flauel teg. Noly Stórisefni margar teg. og
Kaki svart 60% bóm. 40% breiddir
polyester ' Blúndustóris
Kakiefni 100% bomull Ytrigardinuefni
H úsgagnaáklæði
AGUST ARMANN hf
UMBOÐS-OG HEILDVERSLUN
SUNDABORG 24- REYKJAVÍK
Jte