Morgunblaðið - 09.10.1977, Side 14

Morgunblaðið - 09.10.1977, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1977 - Skammdegid kallar á aukna adgæzlu Skammdegid kallar á aukba adgæzlu Aldrei meiri ástæða til að sýna ýtrustu varkárni í um- ferðinni en í skammdeginu SLYSUM í umferdinni hefur í raun fækkað veru- le«a í Reykjavík í ár, en því er þð ekki að neita að árekstrar eru orðnir harð- ari og slysin, sem verða, því alvarlegri. Nú fer í hönd sá tími, sem undan- farin ár hefur verið hættu- legastur í umferðinni, skammdegið kallar á aukna aðgæzlu og til að sú skeflilega slysaalda, sem reið yfir í skammdeginu árin 1974 og 1975 endur- taki sig ekki þurfa allir ökumenn að halda vöku siiini í umferðinni. Undanfarið hefur veðr- áttan verið hagstæð til aksturs í Reykjavík, götur hafa verið auðar og engin hálka. Ur þessu má reikna með að allra veðra geti verið von og erfið aksturs- skilyrði kalla á enn aukna aðgát í umferðinni, tillits- semi og varúð umfram allt. Morgunblaðið ræddi í vik- unni við Óskar Ólason, yfirlögregluþjðn hjá Um- ferðardeild lögreglunnar í Reykjavík. Var Óskar fyrst spurður hvort uggur væri í lögreglumönnum vegna tímans sem í hönd færi. — Því er ekki að neita að ég ber nokkurn kvíðboga fyrir Betri er skömm dvöl en sár kvöl. skammdeginu, sagði Öskar. — Undanfarin ár hafa ill tíðindi úr umferðinni fylgt þessum árs- tíma, einmitt þá er sérstök og aldrei meiri ástæða fyrir öku- menn að þeir sýni að þeir séu færir um að fara með bifreið og haldi vöku sinni í hvivetna. Það er alltof algengt að fólk hugsi sem svo, að það komi ekkert fyrir það í umferðinni og verði hreinlega undrandi lendi það í umferðar- óhappi. Það er viss áhætta, sem fylgir þvi að aka bifreið og við verðum að hafa það í huga að á íslandi voru um 74 þúsund bif- reiðar skráðar um síðustu áramót, siðan hefur fjölgun bifreiða verið veruleg og nú er meira en einn bíll á hverja þrjá íslendinga á götum. Er þá allt talið með, börn, unglingar og aðrir, sem ekki geta né mega aka bifreið. Umferðin er mikil og fer síellt vaxandi, svo að það er alltaf nauð- synlegt að sýna aðgát — og aldrei meiri en einmitt í skammdeginu. — Það kom fram á blaða- mannafundi hjá Slysavarnafélagi Islands í vikunni að 26 íslending- ar hefðu látizt í umferðarslysum það sem af er árinu. Hve mörg siik slys hafa orðið í Reykjavík? — Það sem af er þessu ári hafa orðið 6 banaslys í umferðinni i Reykjavík og er það heldur meira en undanfarin ár, því miður. Hins vegar hefur óhöppum í umferð- inni fækkað í ár verulega frá sið- ustú árum og er það vel. Banaslys- um í umferðinni úti á landi hefur hins vegar fjölgað geigvænlega mikið á síðustu árum og virðist fólk alls ekki taka tillit til okkar misjöfnu vega úti á landsbyggð- inni. Hversu oft sér maður ekki fréttir í fjölmiðlum enda á því að Rætt við Óskar Óla- son, yfir- lögregluþjón Umferða- deildarinnar í Reykjavík óhappið hafi orðið við brýr eða ræsi. Það eru eins og þessir hlutir séu settir upp fyrir ökumenn svo þeir hafi eitthvað til að skella skuldinni á eða afsaka sig með. Fólk hugsi hins vegar ekki um að slíkt kallar á aukna varkárni. Þetta er þó ekki einhlítt og við höfum hryggileg dæmi um slys á góðum vegum eins og á Hellis- heiði og Keflavíkurveginum. — Hverju þakkarðu það að um- ferðaróhöppum hefur fækkaó í Reykjavík með hverju árinu? — Sektir voru hækkaðar veru- lega á síðasta ári, önnur viðurlög voru einnig þyngd, þá er öku- leyfissvipting vopn, sem notað er í meira mæli, en áður var slíkt aðeins gert vegna ölvunar. Þetta Eiga 108 okkar eftir að slas- ast 1 umferðinni í Reykjavík það sem eftir er þessa árs? NÚ ERU tæpir þrír mán- uðir eftir af árinu, en þaö er sá tími, sem erfiðastur er f umferðinni. Ef litið er á þróunina í október, nóvember og desember á undanförnum árum kemur í Ijós að 1974 slösuðust 139 f umferðinni þessa mánuði, 1975 voru slysin 107 og í fyrra voru þau á þessum tíma 77. Ef tekið er meðaltal af þessum tölum kemur út talan 108 og við getum því spurt: EIGA 108 OKKAR EFTIR AÐ SLASAST I UMFERÐINNI I REYKJAVÍK ÞAÐ SEM EFTIR ER ÞESSA AR Hér fara á eftir töflur yfir slys í umferðinni í Reykjavík þrjá síðustu mánuði síðustu ára. Umferðaróhöpp og fjöldi slasaðra þrjá síðustu mánuði ársins síðustu þrjú árin í Reykjavík: OKTÓBER 1974 1975 1976 Slasaðir samtals 46 55 23 Slys með meiðslum 34 45 20 Barn fyrir bifreið 5 6 5 Slasaður hjólreiðamaður 5 9 1 Fuliorðnir fyrir bifreið 10 8 7 Slasaður ökumaður bifr. 10 13 6 Slasaður farþegi 16 19 4 Dauðasiys 0 2 0 NÓVEMBER 1974 1975 1976 Slasaðir samtals 66 29 27 Slys með meiðslum 50 20 22 Barn fyrir bifreið 9 3 4 Fullorðnir fyrir bifreið 10 6 8 Slasaður hjóleiðramaður 6 1 2 Slasaður ökumaður 21 10 6 Slasaður farþegi 20 9 7 Dauðaslys 0 1 0 DESEMBER 1974 1975 1976 Slasaðir samtais 27 23 27 Slys með meiðslum 20 20 23 Barn fyrir bifreið 3 1 6 Fullorðnir fyrir bifreið 7 6 4 Slasaður hjólreiðamaður 2 4 2 Siasaður ökumaðru bifreiðar 7 7 4 Slasaður farþegi 8 5 11 Dauðasiys 2 3 1 Mjög misjafnt er hversu lengi hinir slösuðu hafa þurft að dvelja á sjúkrahúsum, en þróunin hefur verið sú í Reykjavík undanfarið að þó slysum fækki þá verða árekstrar harðari og slysin þá um leið alvarlegri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.