Morgunblaðið - 09.10.1977, Side 19

Morgunblaðið - 09.10.1977, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÖBER 1977 23 Mennsk rödd í auðninni Louis Simpson hefur ort ljóð sem nefnist Bandarískur skáld- skapur og gæti það verið eins konar stefnuskrá þeirra skálda sem mest hafa lagt af mörkum til þróunar bandarískrar ljóð- listar: Hvað sem hann er, verður hann að hafa maga til að melta togleður, kol, úranfum, tungl, Ijóð. Eins og hákarlinn er hann með skó inni f sér. Hann verður að synda margar mflur gegnum auðnina og gefa frá sér öskur, allt að þvf mennsk. Gagnrýnandinn M.L. Rosent- hal sagði í frægri grein um 'bandariska ljóðlist að i ljóði i Simpsons kæmi senn fram mis- kunnarlaus afstaða og fyndni. Simpson sér framundan nýjan og skelfilegan heim þar sem hið mannlega er á undanhaldi. Mörg bandarísk skáld yrkja eins og maðurinn hafi beðið ósigur, reyni að synda gegnum auðnina. Þannig er týlkun Rosenthals á ljóði Simpsons. En ef við gefum lokalínunni gaum, hinu mennska öskri sem Simpson yrkir um, getum við fallist á að með því sé skáld- skapnum ætlað veigamikið hlutverk. Þegar ég velti fyrir mér þessari linu tengi ég hana ósjálfrátt skáldskap Roberts Lowells sem lést fyrir skömmu. Ég skal fúslega játa að mörg bandarísk nútimaskáld hafa verið mér hugstæðari en Ro- bert Lowell. Ég nefni fáein nöfn: Robert Bly, Robert Creeley, Allen Ginsberg, Frank O’Hare, Louis Simpson og Jam- es Wright. Bandarísk nútíma- ljóðlist er óvenju auðug. En því ber ekki að neita að i skáldskap Roberts Lowells átti sér stað sífellt endurnýjun, erindi hans til lesandans varð æ brýnni eft- ir því sem á ævi hans leið. Ég held að flestir geti verið sammála um að merkasta verk Roberts Lowells sé Life Studies (1959). I þessari bók snýr hann baki við akademiskum og hefð- bundnum skáldskap að dæmi Williams Carlos Williams. J_Jfe Studies eru endurminningar skáldsins í frjálsu Ijóðaformi, oft á mörkum ljóðs og prósa. Hann yrkir um foreldra sina og ættingja á persónulegan hátt. ROBERT LOWELL T^.nnarsso^. Mntan lslandf ÍflfallL^o^teinSr urlöndum, Sjálfstæðisflokkurinn er miklu víðsýnni og frjálslyndari flokkur en hægri flokkarnir á Norðurlöndum eru yfirleitt og hann nær til miklu fleira fólks en hægri flokkarnir á Norðurlönd- um. Astæðan er auðvitað sú, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur náð til allra stétta í borgaralegu Is- lenzku þjóðlífi, en það hafa hægri flokkarnir á Norðurlöndum yfir- leitt ekki getað svo þröngir sem þeir hafa verið oft og einatt. Ekki verður farið út í það hér að lýsa mismuni á hægri flokkum á Norðurlöndum og annars staðar og Sjálfstæðisflokknum, en ein- ungis látið nægja að minna unga sjálfstæðismenn á þessa stað- reynd og jafnframt það, að brezki Ihaldsflokkurinn og Sjálfstæðis- flokkurinn eru t.a.m. ólíkir flokk- ar á margan hátt og er ástæðan auðvitað sú, að þjóðfélagslegar forsendur eru allt aðrar í Bret- landi en hér á landi. Það er i raun og veru ekki gæfa Sjálfstæðis- flokksins, hver hefur orðið þróun hans, heldur íslenzku þjóðarinn- ar, sem á því láni að fagna að geta stutt stóran, víðsýnan borgaraleg- an flokk, sem er laus við þau tengsl við þröngsýnar eiginhags- munaklikur, sem íhaldsflokkar ánetjast oft og einatt, eins og kunnugt er. Við þurfum ekki að fá neinn formann Samtaka ungra hægrimanna á Norðurlöndum til að fagna lýðræðislegri þróun á Spáni eða segja okkur að lýðræðið sé bezt tryggt hér á landi með þvi að Sjálfstæðisflokkurinn haldi um stjórnvölinn, þetta vita Is- lendingar miklu betur en nokkur útlendingur. Þessi leiðtogi sænskra ungmoderata er fulltrúi /lokks, sem er sér-sænskt fyrir- brigði og við skulum fara varlega i innflutningi á stjórnmálaskoð- unum með allri virðingu fyrir sænskum moderötum. En sjálf- stæðismenn ættu að muna, að Ólafur Thors varaði þá við að hafa sérstök samskipti t.a.m. við konservativa í Danmörku — þeir ættu ekkert erindi við þá. Sjálf- stæðisflokkurinn á rætur I lýð- ræðislegri hefð Islendinga, og er ávöxtur þessarar hefðar. Hann hefur verið opinn fyrir margvís- íminningu Roberts LoweUs Svo opinskár er Lowell í þess- um ljóðum að þau voru að ýmsu leyti nýjung í bandarískum skáldskap og er þá vert að hafa í huga að bandarisk skáld eiga sér fáa jafningja í játnngum. Meðal þeirra skálda sem Life Studies hafði mikið gildi fyrir var Sylvia Plath, skáldkona sem varð eins konar popp- stjarna í ljóðlist eftir að hún framdi sjálfsmorð 1963. Ljóðin í Life Studies eru flest i breiðum stil. Lowell hefur yndi af að lýsa ýmsum smáatr- iðum i lifi fólks. Siðir þess, ekki síst sérviska, varpa ljósi á heila mannsævi, afdráttarlaus hrein- skilni skáldsins kemur þvi til leiðar að við þykjumst þekkja þetta fólk vel eftir lestur ljóð- Bókmenntlr % eftir JÓHANN HJÁLMARSSON anna. Það er einkum faðirinn sem við kynnumst náið. Dauða hans er lýst með hversdagslegu orðfæri. Hvergi í bókinni er reynt að slá á strengi sem kenna má við hátíðleik. 1 ljóð- inu Sailing Home from Rapollo er sagt frá ferð skáldsins frá Italíu með lik móður sinnar: While the passengers were tanning on the Mediterranean in deck chairs, our family cemetery in Hunharton lay under the White Mountains in the sub-zero weather. Eitt af stystu ljóðunum í Life Studies er For Sale. Það er hnitmiðuð örlagasaga, einfalt, sterkt: Poor sheepish plaything, organized with prodigal animosity, lived in just a year — my Father’s cottage at Beverly Farms was on the market the month he died. Empty. open, intimate, its town-house furniture had an on tiptoe air of waiting for the mover on the heels of the undertaker. Ready. afraid of living alone till eighty, Mother mooned in a window. as if she had stayed on a train one stop past her destinatíon. Framhald á bls. 32. legum utanaðkomandi áhrifum og gæfa hans er ekki sizt sú, að hann hefur tileinkað ser viðhorf frjáls- lyndra flokka (enda sprottinn úr Frjálslynda flokknum) og hug- sjónum forystumanna frjáls- hyggjunnar, sem létu sér jafn annt um velferð einstaklingsins og þess þjóðfélags, sem hann lifir í. Hægri flokkar erlendis hafa, a.m.k. oft og einatt, átt erfitt með að tileinka sér velferóarhugtakið í ofurkappi sínu að vernda hags- muni þeirra, sem frekastir eru til fjörsins. Nú er þetta þó eitthvað að breytast og gæti sú þróun orðið stjórnmálabaráttu á Norðurlönd- um til mikilla heilla. Kosningar i Noregi benda t.a.m. mjög í þá átt að hægri menn þar í landi séu farnir að þekkja sinn vitjunar- tima. Menntastefna Ungir sjálfstæðismenn hafa oft sýnt meiri áhuga en eldri flokks- bræður þeirra á lista- og mennta- málum, góðu heilli. Æskan veit, í hverju verðmæti eru fólgin. Hún vill stinga við fótum og staldra við i lífsgæðakapphlaupinu, og þá hverfur hugurinn þangað þar sem mölur og ryð eru ekki alls ráð- andi. I vor efndu ungir sjálf- stæðismenn til merkrar listkynn- ingar í Sjálfstæðishúsinu i Reykjavík, þar sem þeir fengu ágæta lista- og menntamenn til að fjalla um listir og menningu í þjóðfélaginu og varð ráðstefna þessi varða á þeirri leið, sem ungt lýðræóissinnað fólk vill fara. Þá hafa ungir sjálfstæðismenn gefið út nýjan Stefni, sem fjallar um menntunarmál, eins og getið var um í síðasta Reykjavikurbréfi, og eru I honum margar og merkar greinar, sem almenningur ætti að kynna sér. Það er ástæða til að fagna þessu framtaki. Morgun- blaðið vill nú minna sérstaklega á grein Kristjáns J. Gunnarssonar, fræðslustjóra í Reykjavik, sem hann nefnir Hugleiðingar um menntastefnu. Þar segir fræóslu- stjóri m.a.: „Ymsum stjórnmála- mönnum, sem halda að til stjórn- mála teljist varla annað en efna- hagsmál, kynni að koma sú kenn- ing undarlega fyrir sjónir, að menntamál séu í eðli sínu einhver „pólitískasti málaflokkurinn” sem til meðferðar er innan lýð- ræðisþjóðfélags. Það ætti þó að liggja í augum uppi, að svo er. Með menntastefnu er beint og óbeint tekin afstaða til margra grundvallarþátta almennrar stjórnmálalegrar stefnumótunar,, sem um er deilt meðal lýðræðis- þjóða. Og menntastefnan ber þess oftast merki að vera aó meira eða minna leyti málamiðlun milli ólikra sjónarmiða, jafnt hug- myndafræðilegs og stjórnsýslu- Jegs eðlis.. . * ... með því að mennta þegn- anna tekur hvert ríkjandi þjóð- skipulag þá áhættu, að þeir kunni að snúast gegn þvi, er það stendur höllum fæti gagnvart öðru skipu- lagi, sem nemendur kynnast og kynnu að telja betra. Með sumum þjóðum er óttinn i þessum efnum svo mikill, að stjórnvöld hafa hindrað, að þær geti t.d. átt að- gang að erlendum blöðum og út- varpi. Hjá þjóðum, sem búa við slíkt stjórnarfar, er menntakerfið þjóðnýtt í þágu ríkjandi þjóð- skipulags og þvi beitt til innræt- ingar á hinni einu viðurkenndu skoðun, en ekki til upplýsingar um aðrar skoðanir. Hver er staða islenzka skólans í þessu efni? Sú sama að ég held og yfirleitt gerist. i löndum hins vestræna lýðræðis- skipulags, þ.e.a.s. „kerfið" er bæði ihaldssamt og frjálslegt, þó að það kunni að hljóma sem þver- sögn. Ihaldssamt að þvi leyti að auðvitað leitast skólinn við að ala fólk upp og mennta til að þjóna og falla inn í ríkjandi samfélag. Slík stefna felst beint og óbeint i skipulagningu skólans og við framkvæmum hana vitandi vits, en einnig stundum án þess að okkur sé það sjálfum Ijóst. Frjáls- lynt er islenzka menntakerfið að þvi leyti að löggjöfin gerir beinlín- is ráð fyrir að aukið sé viðsýni nemendanna með þvi að kynna sem flest sjónarmið og þar af leið- andi, að innræting eigi sér ekki stað í þá veru að eitt viðhorf sé öðru réttara, hvað þá að það sé allur sannleikurinn. Framkvæmd þessarar stefnu leggur mikla ábyrgð á hendur kennara og gerir til þeirra kröfur um, að þeirra eigin skoðanir og sannfæring verói ekki svo rikj- andi, að það hindri að um aðrar skoðanir sé fjallað af óhlutdrægni og þeim gert jafnhátt undir höfði i kennslunni.. Innræting eða fræðsla Þannig farast fræðslumála- stjóra orð. Morgunblaðið vill vekja sérstaka athygli á ummæl- um hans, ekki sizt vegna þess, að hér i blaðinu hafa farið fram miklar og víðtækar umræður um mennta- og skólamál, þar sem sýnzt hefur sitt hverjum. Stund- um hafa birzt greinar hér í blaó- inu frá öfgamönnum, sem telja að ekkert sé sjálfsagóara en að nota kennslustundirnar til að innræta nemendum eigin skoðanir í stað þess að auka víðsýni nemendanna með því að kynna sem flest sjón- armið — en þvi hefur einmitt verið haldið fram af hálfu Morgunblaðsins, að hér sé um tvær stefnur að ræða og sé ekki unnt að samræma þær. Blaðið hefur því gagnrýnt harðlega þá tilhneigingu, sem borið hefur á, að sumir kennarar viróast ekki hafa getað greint á milli þess að auka nemendum sínum víðsýni og innræta þeim eigin skoóanir, sem oft eiga rætur i prédikunum eóa kenningum þeirra öfgamanna, sem bera ábyrgð á mestu af því ófrelsi og mannúðarleysi, sem einkðnnir svo mjög okkar tima. Það er vonandi að kennarar íhugi grein Kristjáns J. Gunnars- sonar og slái skjaldborg um þann kjarna þessara umræóna, að eitt sé að auka mönnum víósýni, en annað að innræta þeim skoðanir eða kenningar, sem hafa beðið skipbrot i veruleikanum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.