Morgunblaðið - 09.10.1977, Side 20

Morgunblaðið - 09.10.1977, Side 20
SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER AUGLÝStNG ... Með pilsi til að fá konur til að vera konur... — segir Guðlaugur í Kamabæ Sem kunnugt er eru tvær mikl- ar sýningar afstaðnar í Reykjavík. Eitt þeirra fyrirtækja sem tók þátt í þessum sýningum var Karnabær h.f. Við spurðum Guðlaug Bergmann, annan for- stjóra Karnabæjar, hvaða árangur fyrirtækið hefði haft af þessum sýningum. — Ég tel að árangurinn hafi orðið með afbrigðum góður, miklu betri en ég bjóst við sjálfur, enda ekki á hverjum degi sem maður getur náð til 138 þúsund fbúa af 220 þúsund manna þjóð. Við lögðum höfuð- áherzlu á hljómtækjadeild okkar og framleiðsluvörur. Við tókum strax eftir því að Sharp- litasjónvörpin nutu geysilegrar eftirtektar. Þessi tæki eru með allra beztu tækninýjungum sem völ er á hvað snertir myndlamp- ann en hann skiptir mestu máli. PIONEER A TÍZKUSÝNINGUNNI. Þar sem við höfum verið að selja Pioneer- hljómtæki nokkuð lengi þá urðum við mest hissa á, hversu gífurlega eftirtekt þau höfðu vakið, þegar sýningin fór að haf a áhrif á söluna, en það þakka ég m.a. því að tækin voru notuð á tizkusýningum sýning- anna, og hafði fólk orð á hvað hljómburður væri góður. Raunar höfðu þeir hjá Iðnkynningu ekki ætlað sér að nota Pioneer- hljómtæki, en kl. tvö aðfararnótt föstudagsins, daginn sem Iðn- kynningin átti að hefjast, var hringt í okkur og við beðnir um að bjarga þessum málum þar sem tækin sem átti að nota væru algerlega ófullnægjandi. Þið voruð með fleira en Sharp- litsjónvörp og Pioneer-hljómtæki á sýningunum. SÓLAR RAFHLÖÐU TÖLVUR — Sharp er geysistórt fýrirtæki og línan sem þeir bjóða upp á er mjög breið. Við höfum ákveðið að kynna mjög gaumgæfilega hverja vörutegund sem við tökum á markaðinn, og nú þegar höfum við náð umtalsverðum árangri í sölu á sambyggðum Sharp- stereohljómtækjum sem eru mjög ódýr en fyrsta flokks. Þá höfum við náð mikilli sölu í tölvum af alls konar gerðum og mætti geta þess, að Sharp hafa náð lengst í tölvugerð í heiminum og eru m.a. komnir með á markaðinn tölvu sem fær orku af sólarrafhlöðum og eru þvi eilífðartæki. Einnig höfum við náð góðri sölu í raf- eindabúðakössum, reiknivélum svo og í örbylgju- bökunar- og steikarofnum. Það sem framund- an er hjá Sharp eru isskápar og frystikistur, breiðari lína i hljóm- tækjum, viftur, hárrúllur, hár- þurrkur og margt fleira. frAbær „PICKUP“ I básunum voru einnig aug- lýsingaspjöld yfir grammófón- nálar? Þessar nálar eru frá fyrirtæki Isem heitir Ortofon og sérhæfa þeir sig i gerð grammófónnála ,(pickup) en eins og allir vita skiptir nálín ekki hvað sist máli. Eg hef lesið í erlendum tæknirit- Um um hljómtæki, að Ortofon eru taldir þeir albeztu á þessu sviði. HÖNNUÐURA HEIMSMÆLIKVARÐA Þið kynntuð einnig ykkar eigin framleiðsluvörur á Iðnkynning- unni? Við höfum rekið eigin sauma- stofu frá 1969 og hefur Colin Porter stjórnað henni. Við erum mjög stoltir af þessari saumastofu okkar þar sem okkur hefur tekist að gera hana há-tækniþróaða, og segja okkur sænskir tækni- fræðingar sem hingað koma tvisvar á ári og fylgjast með öllum tækninýjungum að framleiðnin hjá okkur sé með því bezta á öllum Norðurlöndunum. Þáttur Colins Porters í samvinnu við okkur sem kaupum inn tízku- vörur fyrir Karnabæ er einstak- ur. Við fullyrðum að ekki einungis hvað viðkemur fyrsta flokks framleiðslu heldur einnig hvað viðkemur tízku í sniði og efnum, erum við með það allra nýjasta sem er að gerast í hinum harðsoðna samkeppnisheimi vest- rænnar tízku. „SAMKYNJA“ FÖT. Þið virtust vera með talsvert af kvenfötum í básum ykkar? Kvenfólk, eins og allir vita, hefur heimtað jafnrétti á við karl- menn og hefur því allur fatnaður meira og minna orðið „sam- kynja“. Nú er það hátízka í dag frá hinni tízkuþróuðu París að konur ganga I herrafatasniðnum fötum. En eðlilega bjóðum við konum líka upp á föt með pilsi til þess að reyna að fá konur til þess að vera konur. BANDIDÓ SPORTFATNAÐUR Það vakti athygli á tízkusýning- um Iðnkynningarinnar að þið vor- uð þar með dansatriði. Já, við fengum Heiðar Ástvalds- son til að útbúa dans fyrir okkur við gamla „beat“-lagið Tequila og síðan létum við stytta lagið inn i Hljóðrita og létum setja orðið Bandido í stað Tequila, en Bandido er nýja vörumerkið okk- ar á sportfatnaði sem við erum nýkomnir með og hefur þegar náð geysilegum vinsældum. Við fram- leiðum þessar buxur sjáifir og ætlum að vera með allar nýjungar í sniðum og efnum sem eru á heimsmarkaðnum hverju sinni. Þetta er því alíslenzk framleiðsla. Hún er ekkert í líkingu við Lee- Cooper, því eftir því sem ég bezt veit þá fá Lee-Cooper buxur slnar sniðnar til landsins ásamt tvinna, rennilás og öllu tilheyrandi, og er því aðeins um að ræða samsetn- ingu hér. Mér finnst orka tvímæl- is að kalla slfkt íslenzka fram- leiðslu. GRÓÐI Að lokum Guðlaugur, hvernig finnst þér að stunda verzlun og viðskipti á Islandi? — Ég þekki ekkert annað. En ef bera á saman við kollega okkar erlendis, sem ég hef kynnst náið af tíðum ferðum mfnum undan- farin 10 ár, virðist aðalmunurinn liggja f þvf að hjá þeim er sjálf- sagðast að græða, en hér er gróði bannorð. Mér þótti forvitnilegt að lesa f leiðara Tímans um daginn vangaveltur um gróða þar sem leiðarahöfundur (ÞÞ) telur að Is- lendingar verði að breyta hugsun sinni gagnvart gróða þannig að sá sem græðir sé ekki talinn allt að því glæpamaður heldur skyldi undirstaða alls efnahagslífs þjóð- félagsins byggð á gróða. Mín skoð- un er sú, að stór hluti af vandræð- um fslenzks efnahagslffs byggist einmitt á þessari hugsunarvillu. T.d. eru ríkisstarfsmenn núna að fara í verkfall og vilja fá meira kaup. Ég held að allir séu sam- mála um að allflest rfkisfyrirtæki séu illa rekin og hafi of margt fólk í vinnu. Ef þessi fyrirtæki væru betur rekin og þar af leið- andi með færra fólk þá væri hægt að borga hverjum einstökum sem eftir væri mun betra kaup. Og þetta á svo sem einnig við um hin úreltu einokunarfyrirtæki sem eru að tröllríða þjóðinni i skjóli spillts pólitísks embættisvalds. TÍZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a Simi frá sKiptlborðl 28155

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.