Morgunblaðið - 09.10.1977, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1977
29
Félagssamtök og áfengismál
BETRA ER HEILT
EN VEL GRÓIÐ
Þessa dagana er unnið að myndun samtaka áhugamanna um
áfengismál: S.Á.Á. Þau samlök œtla sér fyrst ogfremst að koma upp
og reka hjálparstöðvar fyrir ofdrykkjufólk. Ætlast er til að allir þeir
sem i alvöru vilja afturhvarf slíkra til eðlilegs lifs geti verið aðilar
þessara samtaka.
Um þetta er gott eitt að segja. Þörfin fyrir slíka hjálp er geysileg.
Og við skulum vona að það sé almennur vilji og áhugi til þessara
liknarstarfa en litið um marklausa hrœsni þar sem um slíkt er talað.
Hitt er annað mál að þegar drepsóttir geisa hefur það jafnan þótt
sjálfsagður hlutur að reyna að hindra útbreiðslu þeirra jafnframt þvi
að sjúkum er hjúkrað og reynt að lækna þá. Betra er heilt en vel
gróið. Það urðu þáttaskil i baráttunni við barnsfararsóttina þegar
Semmelweis hafði sannað að læknarnir sjálfir báru hana frá einni
konu til annarrar, en fyrr ekki. Þá fyrst urðu þáttaskilin. Þangað til
var viðleitnin vonlaus.
Florence Nightingale varð heimsfræg vegna liknarstarfa sinna i
Krimstriðinu. Henry Dunant varð heimsfrægur sem stofnandi Rauða
krossins. Hugsjónir slikra eru alltaf i fullu gildi. En draumur
mannkynsins er samt sem áður sá að styrjaldir hverfi úr sögu þess.
1 áfengismálunum verður ekki fullur sigur unninn fyrr en áfengis-
bölinu er útrýmt. Það er ekki vanmat : líknarstofnunum og
lækningahœlum þó að við höldum i þann draum og reynum að láta
hann rætast.
Þvískyldum við sætta okkur við annað en stefna að fullum sigri?
Reynum að hrifa sem flesta frá hörmungum þeirrar drepsóttar sem
hér er um að ræða en reynum eins og engu siður að stöðva
drepsóttina sjálfa.
HA LLDÓR KRISTJÁ NSSON
Vetrardvöl í sólarlönd-
um fyrir eftirlaunafólk
FERÐASKRIFSTOFAN Sunna '
hefur tekið upp þá nýbreytni að
gefa eftirlaunafólki kost á dvöl í
sólarlöndum á þeim tfma sem
hinn almenni ferðamannastraum-
ur er ekki f hámarki. Hafa hópar
þegar dvalizt erlendis á vegum
Sunnu og er nú staddur á
Mallorka hópur fólks úr Kópavogi
og er fólkið flest á eftirlaunum.
Hinn 16. október n.k. verður
efnt til tveggja mánaða dvalar á
Mallorka og í frétt frá Sunnu
segir að eftirlaun og atvinnu-
bætur frá Tryggingastofnuninni
nægi fyrir dvölinni. Kostar hún
98.000 krónur en 129.000 ef
dvalizt er á hóteli og fullt fæði
keypt.
Sérstakir fararstjórar verða í
ferð þessari og verður efnt til
skemmti- og skoðunarferða og á
hótelinu sem flestir búa eru spila-
stofur, leikherbergi, fundarher-
bergi og kvikmyndasalur. Verður
þar efnt til sérstakra kvikmynda-
sýninga svo og skemmtikvölda og
spilakvölda. Þá hefur Sunna ráðið
Magnús Ágústsson fyrrverandi
héraðslækni, til að dvelja á
Mallorka þessa tvo mánuði og
mun hann hafa fasta viðtalstíma
fyrir gesti Sunnu og fylgjast með
heilsufari þeirra.
Sem fyrr segir kostar tveggja
mánaða ferð með flugferðum,
fæði og hótelgistingu 129 þúsund
krónur og hægt verður að gefa
nokkrum kost á dvöl í íbúðum,
fólki er vill sjá um sig sjálft og
kostar ferðin þá 98 þúsund
krónur, en alls komast í ferðina
100 manns.
harmonikuhurðiri leysir
Er þetta hægt
MATTHÍAS...
Lindargötu 25 - símar 13743 • 15833
Tennis- og Badmintonfélag
Reykjavíkur
heldur opið mót í badminton hinn 1 6. okt. kl. 2 síðdegis i
íþróttahúsi T.B.R., keppt verður í einliðaleik og auka-
flokki (fyrir þá, sem tapa fyrsta leik) karla og kvenna.
Tekið verður á móti þátttökutilkynningum í íþróttahúsi
T.B.R. við Gnoðarvog.
Þátttökutilkynningar þurfa að hafa borist fyrir 12. þ.m.
Tónleikar
í Háteigskirkju sunnudaginn 9. október kl. 5.
Á efnisskrá eru verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson
(Lofsöngur — 1977) og Mendelsohn.
Flytjendur:
Elín Sigurvinsdóttir, Sigurður Björnsson, Guðfinna D. Ólafsdóttir, Rut
Magnússon, Halldór Vilhelmsson. Kirkjukór Háteigskirkju og félagar úr
Sinfóniuhljómsveit Islands.
Stjórnandi:
Marteinn Hunger Friðriksson.
Byggingavöru-
verzlun
í fullum gangi til sölu, ef viðunandi tilboð fæst.
Sérlega góð erlend vöruumboð. Ársvelta ca: 50
millj. Einnig kæmi til greina að selja aðeins
hluta í fyrirtækinu.
Tilboð sendist Morgunblaðinu merkt: „Bygg-
ingavörur — 41 40".
Kópavoiskadpsteður □
Starfsmaður óskast
á bæjarskrifstofuna í Kópavogi. Umsóknir
sendist undirrituðum á eyðublöðum, sem þar
fást, fyrir 15. þ.m. Hálfs dags starf kemur til
greina.
Bæjarritari.
ZTíp, hinna
S>Ivia
JóhamiMlóllir
la*ró fiá
i:aslr«nmÍNk
ItisltUK.
Kobt'nhatn
DaKÖjöii
Imsland
la*ró fi á
!)<*« Ciamlt*
B> Arhus
Björii Axclsson,
v f I rmal rt'ióslu ni aðu r
Einnig bendum við
á okkar glæsilegu húsakynni
sem yður standa til boða
til hvers konar mannfagnaðar
SÍMAR: 23333 - 23335 ki. i-4 dagiega j
EINN GLÆSIL EGASTI SKEMMTISTAÐUR EVRÓPU