Morgunblaðið - 09.10.1977, Side 30

Morgunblaðið - 09.10.1977, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1977 Grjótaþorp Brattagata 3A 1904 Helgi Zoéga kaupmaður 1940 Geirþrúður Zoéga ekkja 1943 Silli & Valdi exgendur Lóðin var óbyggð þar til Helgi Zoéga kaupmaður sem þá var eigandi hússins Aðalstræti 10 lét reisa þar hús 1904. Geymsluhús fyrir sunnan var byggt á sama tima og var þar fjós, hesthús, heygeymslur og salerni. Húsið er járnvarið timburhús, 2 hæðir, kjallari og ris. íbuðir eru á báðum hæðum, þurrkloft í risi en geymslur í kjallara. Húsið er áfast húsinu nr. 3 B, sem er ekki venja þegar um timburhús er að ræða. Litlar útlitsbreytingar virðast hafa verið gerðar, gluggar og hurðir eru óbreytt, kvistir eru þó til- komnir síðar. Grasblettur er fyrir austan húsið, fyrir framan var áður girðing sem er horfin og er þar nú bifreiðastæði. Húsið er ómissandi þáttur í þeirri götumynd sem er ein sú heillegasta í hverfinu. Pað er svipmikið og gott dæmi um reisulegt timburhús frá aldamótunum. Æskilegt væri að lóðin yrði ræktuð og girt með rimla- girðingu. Könnun á sögu og ástandi hús- anna í Grjótaþorpi, sem unnin hefur verið undir stjórn Nönnu Hermannsson, borgarminjavaró- ar, er lokið, og hefur verið lögð fyrir borgarstjórn i itarlegri og mjög vandaðri skýrslu með upp- dráttum og myndum. Er þar rakin saga þessarar fyrstu byggðar i Reykjavik, og gerð grein fyrir hverju húsi Grjótaþorps, sögu þess, byggingarstíl, ástandi og gildi þess í umhverfinu og vegna þess sjálfs. Er ætlunin að leggja þessa skýrslu fram sem undir- stöðu við ákvarðanatöku um skipulag á þessum stað og afdrif húsanna og hefur henni verið vís- að til skipulagsnefndar. Könnunin hefur staðið yfir undanfarin tvö ár. Þegar um- hverfismálaráð Reykjavikur fékk deiliskipulagstillögur arkitekt- anna Guðmundar Kr. Guðmunds- sonar og Óiafs Sigurðssonar tii umsagnar fól það á fundi sínum 12. nóvember 1975 borgarminja- verði að gera „úttekt á byggingar- sögulegu gildi húsanna og ástandi þeirra, auk þeirrar sögulegu könnunar, sem þegar var byrjað á“ að því er segir í skýrslunni. Hófst þá gagnsöfnun en verkið varð umfangsmeira en upphaf- lega hafði verið gert ráð fyrir og tók lengrí tíma. Að könnuninni unnu Júlíana Gottskálksdóttir fil.cand., safnvörður í Arbæ, og Nanna Hermannsson borgar- minjavörður. En að mælingum og fl. unnu arkitektarnir Hjörleifur Stefánsson og Stefán örn Stefáns- son og svo Grétar Markússon og Pétur Ottósson. 0 Hjálegan Grjóti Þar sem fjallað er um sögu Grjótaþorps seg ir m.a. um hjá- leiguna Grjóti: Grjóti hét ein af hjáleigum Reykjavíkur eða Víkur, eins og bærinn er nefndur. í jarðabók Árna Magnússonar 1703 er jörðum lýst og sagt er frá gjöidum og sköttum. Þá var lög- býlið Vik orðið konungseign og hjáleigurnar átta: Landakot, Götuhús, Grjóti, Melshús, ein nafnlaus (síðar Suðurbær), Stöðlakot, Skálakot og Hólakot. Arió 1751 lagði Skúli Magnússon landfógeti fram ýmsar tillögur til að bæta og efla hag þjóðarinnar í verklegum efnum, um landbúnað með innlendum ullariðnaði og sjávarútveg með því að fá hingað fiskiduggur. Undir forustu hans var stofnað hlutafélag og sótti Skúli um að fá jarðirnar Reykja- vík, Örfirisey og Hvaleyri fyrir iðnaðarstofnanir, sem almennt voru kallaðar innréttingarnar. Ríkið veitti stuðning og byrjað var að reisa hús fyrir verk- smiðjurnar í Reykjavík 1752. Þá var bóndabýli þar og bæjarhúsin uróu sum hver að þoka fyrir nýj- um timburbyggingum. Kirkja með kirkjugarði var þar sem nú er garður á horni Kirkjustrætis og Aðalstrætis og líklegt að sjáv- argata að lendíngunni hafi legið þar sem nú er Aðalstræti. Húsin í Grjóta voru efst í brekkunni fyrir vestan bæjarhúsin. Síðar i kaflanum er rætt um götur. Þar segir ma: „Fyrsta reglulega gatan í Reykjavík var kölluð „Hovedgaden". Um tíma (1820—1845) nefndist hún „Klubgaden" eftir félagi sem hélt samkomur sínar við suðurenda hennar. Árið 1848 var ákveðið að gefa götum nöfn formlega og jafnframt tölusetja hús og var þá heitið Aðalstræti staðfest. Götu- nöfn voru samt á reiki og seinna voru húsin tölusett að nýju. Eðli- legt má telja að þvergötur hafi snemma myndazt vestur úr Aðal- stræti, leiðir lágu út í Hólminn, að Götuhúsum, Landakoti og út á Seltjarnarnes. ,JEr siðan gerð grein fyrir því hvernig nýjar göt- ur urðu til, sem eru þær hinar sömu sem enn eru í Grjótaþorpi, gatan úr Aðalstræti að Hákotslóð frá 1856, sem seinna hlaut nafnið Fishersund, Grjótagatan sem virðist hafa verið leiðin út á Sel- tjarnarnes, sjávargata Grjðta- manna um Miðstræti o.s.frv. Sést strax að þarna er upphaf Reykja- víkurborgar enn. Margar hugmyndir hafa komið fram í skipulagstillögum um ger- breytingar á Grjótaþorpi. Segir i skýrslunni: Hugmyndir um breyt- ingu á svæóinu hafa verið allt frá 1927 án þess að komast i fram- kvæmd. Þess vegna hafa nýbygg- ingar ekki verið reistar á einstök- um lóóum og mörg gömlu hús- anna fengið að standa. Eru í skýrslunni raktar breytingar, sem orðið hafa á hverfinu. # Fjöldi húsagerða Þá er fjallað um hinar ýmsu húsagerðir og segir í lok þess kafla: Auk þeirra sérstæðu bygg- inga eins og Vinaminnis (Mjó- strætis 3), Fjalakattarins (Aðal- strætis 8), Verzlunarhúsanna Aðalstræti 2, sem eru í Grjóta- þorpi, er þar fjöldi húsagerða: lítil og stór einbýlishús og fjöl- býlishús, tvö vegleg hús með gafl- sneiddu þaki, lítil einbýlishús úr steini og stórt fjölbýlishús, stein- steypt einbýlishús og randbygg- ingar. Er margbreytileiki hús- anna í sjálfu sér vottur og um leið ávöxtur sögu svæðisihs. Gerð er grein fyrir horfnum húsum og síðan þeim húsum, sem enn standa, hverju fyrir sig. Fjall- aó er um framtið Grjótaþorps og varðveizlu húsanna. % 28 varðveitt hús í niðurstöðum segir m.a. að könnun á menningarsöguiegu gildi byggðarinnar í Grjótaþorpi sýni að þar eru 28 húseignir, sem eru þess virði að vera varðveittar. Reynt er að skipta þeim i fjóra flokka á uppdrætti. I fyrsta flokki eru hús sem talin eru hafa ein- stætt. menningarsögulegt gildi, svo að þau beri að friða sam- kvæmt þjóðminjalögum. I þessum flokki eru tvö hús eða hlutar þeírra: ytra borð hússins Aðal- stræti 10 og loftið i ibúðarhúsinu Grjótagötu 12. Könnunásögu og

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.