Morgunblaðið - 09.10.1977, Síða 32

Morgunblaðið - 09.10.1977, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1977 Þegarviö VEGUM kostina, þá veröur svarið ISHIDA Höfum fengið einkaumboð fyrir ISHIDA eletróniskar vogir og flytjum þær beint inn frá framleiðenda í Japan. VERÐSTIMPLUNARVOG AL SJÁLFVIRK VOG Verð áætlað m/sölusk T.052.000.- Sýnishorn fyrirliggjandi Phstns lil' GRENSÁSVEGI 7 þessi vog tekur frá 10gr. til 8kg. Veró ááetlað m/sölusk. 290.000- Sýnishorn fyrirliggjandi SÍMAR 82655 & 82639 — Mennsk rödd Framhald af bls. 23 Viöhorf barns til fullorðins fólks er einkennandi fyrir ljóð- in í Life Studies. Barnsleg for- vitni og undrun setur svip á ljóðin, en skilningur lífsreynds manns vegur þyngra. Ekki er úr vegi að ætla að Robert Lowell sé oft að lýsa sjálfum sér í vægðai'lausri könnun á ætt sinni og uppruna, ekki sfst þeg- ar geðræn vandamál eru yrkis- efni, en við þau átti Lowell löngum að striða. Robert Lowell fæddist í Bost- on 1917. 1 ætt hans voru skáld og bókmenntamenn eins og Sskáldkonan Amy Lowell og bók- menntaprófessorinn James Russell Lowell. 1 ættinni voru einnig framámenn í hernum, faðir hans var sjóliðsforingi. Lowell lauk háskólaprófi frá Keynon College og Harvard og hann átti sæti í bandarisku lista- og bókmenntaakademí- unni. Eftir lát Roberts Frosts 1963 hlaut Lowell stól hans í akademiunni. Asamt skáld- skapnum fékkst Lowell vió há- skólakennslu og flutti fyrir- lestra um bókmenntir. Hann var þrikvæntur. Einkalíf hans var stormasamt og kostaði hann nokkrum sinnum dvöl á tauga- hælum. I ljóðum hans er mikið um innri átök og mótsagnir. Hann sækir yrkisefni í líf sitt og umhverfi og í vestu ljóðum hans af því tagi kynnumst við manninum og skáldinu náið. Þótt Lowell verði liklega ekki talinn dæmigert játningaskáld eru ljóð hans óvenju berorð. I ljóðabókum eins og Lord Weary’s Castle (1946) og The gpiÖRYGGI—ÞJÓIMUSTA SÖLUAÐILAR UM LAND ALLT FYRIR GOODfYEAR HJÓLBARÐA REYKJAVÍK: Hjólbarðaþjónusta Heklu Laug'avegi 170—172, sími 28080. Gúmmívinnustofan, Skipholti 35, simi 31055. Sigurjón Gíslason, Laugavegi 1 71, sími 1 5508 BORGARNES: H/F, Guðsteinn Sigurjónsson, Kjartansgötu 12, sími 93-7395. ÓLAFSVÍK: Maris Gilsfjörð, bifreiðastjóri, simi 93-6283 GRUNDARFJÖRÐUR: H jól ba rða verkstæði Grundarfjarðar, sími 93-861 1 ÍSAFJÖRÐUR: H jól ba rða verkstæði, Björns Guðmundssonar, sími 94-3501. HÚNAVATNSSÝSLA: Vélaverkstæðið Viðir, Víðidal. SAUÐARKROKUR: Vélsmiðjan Logi, sími 96-51 65 HOFSÓS: Bílaverkstæði Páls Magnússonar, sími 96-6380. SELFOSS: Gúmmivinnustofa K Á , sími 99-1 260. ÓLAFSFJÖRÐUR: Bilaverkstæðið Múlatindur, sími 96-621 94. DALVÍK: Bílaverkstæði Dalvíkur, sími 96-61 122. AKUREYRI: Hjólbarðaþjónustan, Glerárgötu 34, sími 96-22840 EGILSSTAÐIR: Vélatækni S/F, sími 97-1455. SEYÐISFJÖRÐUR: Jón Gunnþórsson, simi 97-2305. ESKIFJÖRÐUR: Bilaverkstæði Benna og Svenna, sími 97-6299. REYÐARFJÖRÐUR: Bifreiðaverkstæðið Lykill, sími 97-4199 STÖÐVARFJÖRÐUR: Sveinn Ingimundarson, sími 97-5808. KIRKJUBÆJAR- KLAUSTUR: Bílaverkstæði, Gunnars Valdimarssonar. GRINDAVÍK: Hjólbarðaverkstæði Grindavíkur, sími 92-8179. VESTMANNAEYJAR: Hjólbarðaverkstæði Guðna, v/Strandveg, simi 98-1414. HAFNARFJÖRÐUR: H jól ba rða verkstæðið, Reykjavíkurvegi 56, sími 51 538. Millsof the Kavanaughs (1951) er form ljóðanna yfirleitt hefð- bundið, hrynjandi og rim skipa þar veglegt rúm. Eins og fyrr segir verður breyting á með Life Studies, en i bókum eins og For the Union Dead (1964), Near The Ocean (1967) og Notebook (1969) yrkir Lowell jöfnum höndum rímað og órím- að. Svo persónulegur er Lowell í skáldskap sínum að formið skiptir ekki máli. Hann hefur það mikið að segja að ljóð hans verða aldrei gælur við form eða leiikur einn þrátt fyrir mikla kunnáttu í ljóðagerð. Hann er einnig skáld klassískrar menntunar, skáldskapur hans fullur af skírskotunum. 1 sum- um verka sinna er Lowell kannski um of mælskur, of hrif- inn af sjaldgæfum orðum, of heillaður af goðafræði. Það sannar aðeins fjölbreytni skáld- skapar hans. Lowell snerist til kaþólsku, en hjónaband hans og kaþólsku kirkjunnar var ekki árekstra- laust fremur en önnur hjóna- bönd hans. Mig minnir að hann hafi sagt skilið við kaþólsku á timabili og síðan gerst kaþólsk- ur aftur. En kaþólskan hefur óneitanlega sett mark á skáld- skap hans. Aðalyrkisefni Lowells var lengi lif betri borgara í Boston. En í For the Union Dead brydd- ir á samfélagsgagnrýni hjá hinu lærða skáldi. Athygli vakti þegar hann skipaði sér i sveit þeirra sem hvað ákafast mót- mæltu þátttöku Bandaríkja- manna í Víetnamstríðinu. Lowell var í hinni margum- ræddu Washington- mótmælagöngu og hefur ort ljóð um hana þar sem hann skopast að sjálfum sér, segist hafa verið hræddur. Þátttak- endum lýsir hann svo að flestir hafi þeir verið „gráhærðir, sköllóttir eða konur. . . dapur- lega þróttlitlir til að láta drauma sína rætast”. I síðustu bókum sínum orti Lowell töluvert um sögufrægt fólk. 1 ljóði um Che Guevara sem hann kallar síðasta vopn- aða spámanninn er skáldið bit- urt vegna þess ofbeldis sem rík- ir í heiminum. Skýjakljúfar New York borgar ógna hinum fátæku og vesölu. Notebook kom i aukinni út- gáfu 1970. Bókin er ein viða- mesta ljóðabók bandarisks skálds, metnaðarfullt verk þar sem leitast er við að draga upp víðtæka mynd af lífi og baráttu nútímamannsins, sigrum hans, en þó einkum ósigrum. Þrátt fyrir frábær ljóð í Notebook held ég að Lowell hafi náð einna lengst í Life Studies og í ljóðum sem eru líkt og fram- hald þeirrar bókar, ljóðum þar sem hann yrkir um einkalíf sitt með þeim hætti að lesendur þekkja þar sjálfa sig. I þessum ljóðum eru yrkisefnin mannleg vandamál, erfiðleikar sambúð- ar, gleði og sorgir lífsins. Vit- undin um það hvernig tíminn breytir öllu er nærgöngul í þessum ljóðum og þar er engu leynt. Robert Lowell samdi einnig leikrit sem birtust í The Old Glory (1965). Meðal bók- menntalegra afreka hans eru ljóðaþýðingarnar Imitations (1961), en þær er réttara að kalla enduryrkingar. Væntanleg er ný ljóðabók eft- ir Lowell. Hann lést i New York þar sem hann bjó siðustu árin. Dauða hans bar að höndum í leigubíl á leið frá Kennedyflug- velli, en hann var að koma úr utanlandsferð. Þannig endaði síðasta Life Studies ljóðið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.