Morgunblaðið - 09.10.1977, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1977
> ~
— Jassað í Sviss
Framhald af bls. 26
ásamt Ursulu til Þýskalands og
síðan Sviss árið 1971 og til Banda-
ríkjanna árið 1974 og hvarvetna
hlutu þau mikla athygli og vin-
sældir. Sá jass sem Urbaníak leik-
ur er mjög biandaður pólskri
þjóðlagahefð og á köflum minnir
tónlistin einna mest á fiðluspil
sigauna. Ursula Dudziak er söng-
kona sveitarinnar. Hún á þó ekk-
ert skylt með þessum venjulegu
söngkonum eins og Svanhildi eða
Lindu Walker. Ursula syngur til
dæmis engan texta og í öðru lagi
syngur hún margraddað (þú þjá-
ist ekki af nærsýni, þetta er rétt).
Hún syngur í gegnum allra handa
raftæki og tóntölvur, sem gera
henni kleift að syngja marg-
raddað sem og að víkka raddsvið
hennar gifurlega til beggja átta,
svo Rebroff verður bara litill feit-
ur karl (hvað hann hefur alltaf
verið). Hljómsveit Mikjáis lék
lengi kvölds og bar að vonum
mest á fiðlaranum sjálfum í leikn-
um, að ógleymdri Ursulu, sem
söng annað slagið sóló með þvílík-
um hætti að ótrúlegt var á að
hlýða, jafnt strigabassa sem yfir-
náttúrulegan sópran eða jafnvel
pólífóniu. Aðrir meðlimir sveitar-
innar stóðu sig einnig af stakri
prýði og undirritaður yfirgaf jass-
inn hress í skapi um miðnættið og
tók stefnu á draumalandið, sem
nær með nes og skaga allt frá
islandi til Sviss. — SIB
— Þeir sem hafa
rokkið í sér...
Framhald af bls. 27
þar og telja þeir sig hala haft mjög gott
af starfínu á þessum stað:
Hans: ..Þetta hefur verið mjög gott
fyrir okkur Þangað koma allar tegund
ir af fólki og á öllum aldri og það hefur
haldið kunnáttu okkar mjög vel við að
þurfa að leika fyrir svo ólika hópa
Berti: ..Okkar kjörorð hefur alltaf
verið og verður alltaf Að leika tónlist
fyrir fólkið Við þurfum að þjóna þeim
hópum sem þangað koma á árshátíðir,
félagadansleiki, skólaböll Við þurfum
að geta leikið allt frá hálfgerðri klassik
undir borðhaldi til gömlu dansanna,
suðuramerískrar tónlistar, rokks,
bumps, diskótónlistar og bittónlistar
Einn daginn leikum við kannski fyrir
skólakrakka. annan daginn fyrir forset-
ann ."
— sh.
— Byssan og
valdið . . .
Framhald af bls. 16
hershöfðingi var ráðinn ritstjóri
dagblaðsins La Opinión, sem gef-
ið er út f Buenos Aires. Og er þá
fáir einir taldir.
Herinn er búinn að koma sér
svo vel fyrir í stjórnsýslunni, at-
vinnulífinu og fjölmiðlum, að
enginn fær hróflað við honum.
Hins vegar stendur hann ekki
sameinaður. Mikill rígur er með
sjóher, flugher og flota, og auk
þess stöðugar deilur innbyrðis í
öllum þessum deildum, einkum
þó í landhernum. Þetta gekk svo
langt á síðasta áratug, að kom til
vopnaviðskipta hermanna á göt-
um í Buenos Aires. Börðust þar
tveir flokkar úr landhernum,
„rauðstakkar", sem eru íhalds-
samir, og „blástakkar", sem eru
frjálslyndari og fremur við
alþýðu skap. Þessar deilur hafa
haldið áfram og reyna fhaldssam-
ir liðsforingjar hvað þeir geta til
að spilla viðleitni Videla forseta,
sem hefur haft ýmsa tilburði til
þess að minnka hlut hersins f
stjórnun landsins og koma á borg-
aralegri stjórn f einhverjum
mæli.
—HUGH O’SHAUGHNESSY.
— Rifja upp
Framhald af bls. 17
orrustuvellirnir þar, sem þeir
háðu hildirnar forðum daga.
Þeim veittist líka hálferfitt að
trúa því, að svo mjög hafði skipt
um til hins betra í stjórnmálum,
sem raun bar vitni. Þeir höfðu
farið halloka fyrir alræðissinnum
forðum og siðan liðu nærri 40 ár
þar til þeim var óhætt að koma
aftur til Spánar. En þá voru víð-
tökurnar líka slikar, að þeir sann-
færðust um það í eitt skipti fyrir
öll, hafi þéir efazt áður, að þeir
höfðu ekki til einskis barizt.
-WILLIAM CEMLYN-JONES.
r
— Ostjórnar-
afmæli. . .
Framhald af bls. 17
kaldhæðnislegt að hugsa til
þess, að á Haiti var stofnað
fyrsta, sjálfstæða lýðveldi
blökkumanna f heiminum...
— GREG CHAMBERLAIN.
Nýr bíll á Islandi
Komið og skoðið LADA 1600
Verð ca. 1585 þús. Hagstæðir greiðsluskilmálar
Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hi.
Sudurlandsbraul 14 • Ileykjavík - Sími UlllíOtl
frá Volkswagen
árgerö
glænýr. en jafnframt þraut-
reyndur bíll frá Volkswagen,
nýtízkulegur en þó sígildur i
útliti. Stórar, gáttmiklar dyr.
Sætisrými 2,34 ferm.
Farangursrými 515 lítra, sem
jafnframt er stærsta farangurs
rými i sambærilegum bílum og
það er til staðar. hvort sem þú
ert einn eða 5 manns i bilnum.
Tækniþróuð sparneytin 50 ha
vatnskæld vél, sem liggur
þversum frammi bilnum
Gormafjóðrun á hverju hjóli.
Tvöfalt hemlakerfi með kross-
deilingu Framhjóladrif, alsam
hæfður girkassi, 4 ganghraða-
stig.
er byggður á hinni velþekktu
reynslu er fengist hefur af Golf
og Passat. hann er þvi laus við
alla ,,barnasjúkdóma'V_^——g(|(Íl
er sá nýjasti af
yngri kynslóð-
inni frá
Volkswagen.
Sýnmgarbíll á staðnum
Laugavegi 1 70—172 — Sfmi 21240
VESTUR-ÞYZK GÆÐAFRAMLEIÐSLA