Morgunblaðið - 09.10.1977, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1977
37
„Ikaros sér á parti'
Magnús Tómas
son í SUM
Það hefur verið nokkurt hlé á
sýningum í SUM að undan-
förnu, enda eru yngri menn ný-
lega búnir að setja i gang
gallerí í Suðurgötu 7, sem að
ýmsu leyti starfar í sama anda
og Súmmarar gerðu f sinni tið.
Það var Kristján Kristjánsson,
sem seinastur var með sýningu
í SUM, og því miður sá ég ekki
þá sýningu, en nú er það
Magnús Tómasson, sem efnt
hefur til sýningar á verkum sín-
um, en hann er prímus mótór i
rekstri staðarins. Magnús hefur
hingað til aðalega sýnt verk,
sem frekar hafa talist til skúlp-
túrs (flugur til dæmis), en nú
bregður svo við, að flest það,
sem sýnt er á þessari sýningu,
hangir á veggjum, og mætti ef
til vill nefna þetta upphieypt
myndverk eða „perskektífa
póesíu". Samt mun alþjóða
heitið vera „visual poetry“, en
ekki kann ég nokkurt orð á
íslensku, sem fyllilega nær því
að skýra þetta fyrirbæri.
Það eru fjórtán myndverk á
þessari sýningu Magnúsar, og
sum þeirra eru i fleiri eining-
um. Þarna getur að lita ýmis-
legt laglegt og ekki neitt, er
kemur veruiega á óvart. Til
dæmis munu íslendingar ekki
verða hissa á, að myndverk,
sem byggt er á veðurfarslýs-
ingu og ber nafnið „I leit að
Myndllst
eftir VALTÝR
PÉTURSSON
Snæfellsjökli", skuli vera í sex
einingum. Við hér við flóann
vitum vel, að margbreytilegt
veðurfar er svo daglegt brauð,
að það er í frasögu færandi, ef
veður helst stöðugt meir en
tvær stundir í senn. Hér nefni
ég eitt af viðfagsefnum
Magnúsar, og svo að ég nefni
annað, er það saga flugsins,
sem hann glímir við i fjórum
verkum. Samanburðar-
landafræði, griskar goðsögur og
ýmislegt annað kemur þarna
við sögu. Þetta eru allt fremur
snotur verk, en ekki sérlega
kraftmikil og heidur bitlitii i
eðli sinu. Litir eru þægilegir og
allt er snyrtilega unnið. Ég get
þó ekki að því gert, að mér
finnsÞ' eins og vanti svolítið
meiri kraft og öryggi í þessi
verk, þannig að áhrifin sitji eft-
ir i huga manns, þegar út er
komið af þessari sýningu
Magnúsar Tómassonar. Sýning
þessi verkaði samt vel á mig, og
ég hafði fremur skemmtan af
þessum verkum en hið gagn-
stæða, og ég held ég megi segja,
að engin sýning Magnúsar
Tómassonar hafi orðið mér til
meiri yndis en þessi, ef frá er
tekin sýning, er hann hélt á
málverkum fyrir mörgum árum
i Bogasalnum og mér þótti mjög
skemmtileg, ef ég man rétt.
Þar sem Magnús Tómasson er
nýlega búinn að lýsa gáfnafari
þess, er þessar línur ritar, i
víðlesnu tímariti, verð ég að slá
þann varnagla að sinni, að eftir
þeirri iýsingu verður að taka
þessa jákvæðu umsögn mína
með fyrirvara.
Ég endurtek: snotur sýning í
SUM, sem stendur til 10. októ-
ber.
V erðlagsþróun
í löndum EBE
SAMKVÆMT nýlegum upplýsingum frá Efnahags-
bandalaginu lækkaði verölag í flestum löndum þess í
júlí-mánuði s.l. Lækkunin var mjög lítil og má sem dæmi
nefna, að í Vestur-Þýzkalandi nam hún 0.1%, sem einnig
þýddi að verðbólgan á ársgrundvelli var orðin 4.3%.
Samsvarandi tala fyrir Frakkland var 10.1%, Bretland
18.8% og ítalíu 17.5%. Geta má þess að síðasta spá fyrir
fsland hljóðar upp á 35% verðbólgu á ársgrundvelli.
Renault 12. TL
Stöðugt hcekkandi bensínverð
er áhyggjuefni flestra bifreiðaeigenda.
Af þeim sökum hefur athygli manna
beinst að sparneytnum bifreiðum.
Renault 12 er frekar stór, rúmgóður
en umfram allt, eyðir mjög litlu bensíni.
Renault 12 er með framhjóladrif
sem eykur ökuhcefni við allar aðstceður.
Renault, mest seldi bíllirm íEvrópu 1976
KRISTIMN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633
Hvað er gullið þrnigtO
( V~| »V Frú GuSlaug ásamt eiginmanni sinum tekur viS verSlaununum frá Jóni og Óskari. A borðinu^
sjíst svörin 18200 sem bárust i getrauninni.
„Gullið, sem um er að ræða var til sýnis í deild okkar á sýningunni
Iðnkynning í Laugardal og var 2913 kg.
Alls bárust 18200 svör, og hafði frú Guðlaug Björnsdóttir, svarið
’hárrétt uppá gramm og fékk því verðlaunin, módel gullhring eftir-t
eigin vali.
) Vegna fjölda áskoranna sýnum við nú í verzlunargluggum okkar
að Laugavegi 70, sömu vörur og voru á sýningunni.
►Þökkum öllum sem bátt tóku í getrauninni.
Ur og skartgripir,
/
Jón & Oskar
VANTAR ÞIG VINNU
VANTAR ÞIG FÓLK o