Morgunblaðið - 09.10.1977, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÖBER 1977
39
Góð hey hjá bænd-
um í Skagafirði
Bæ á Höfóastrond 1.10.1977
Ég held aö skagfirskir bændur
þurfi ekki að kvarta yfir liðnu
sumri. Þó að heyskapartið hafi
verið tafsöm um mitt sumarið þá
náðu menn miklum heyjum í
hlöður og mörg hey sem sjást við
bæi, eru þvi bændur óvenju vel
heyjaðir eins og sagt er, og líkur
eru til að margt verði sett á fóður
á þessu hausti.
Haustlegt er nú orðið og hvitt
er nú niður að fjallsrótum, yfir-
leitt er gott veður um hádaginn
en kalt orðið um nætur. Kýr eru
viða látnar út ennþá, a.m.k. þar
Leiðrétting
frá landlækni
sem hafrasléttur eru til beitar.
Mjólkurframleiðsla er að minnka
eins og vanalegt er á þessum tíma,
en nú er meirihluti mjólkur flutt-
ur með tankbilum til Mjólkursam-
iags. Sauðfjárslátrun er í fullum
gangi, fé er talið misjafnt eftir
bæjum eins og oft áður og fer
nokkuð af sláturlömbum i annan
flokk að sögn innleggjenda, enn-
þá er þó ekki komin vissa um
meðalvigt sláturfjár. Kartöflu-
uppskera var mjög misjöfn og
jafnvel svo, að sumir tóku ekki
upp úr görðum en aðrir fengu
ágæta uppskeru, veldur þar
nokkru að viða féllu grös
snemma.
Krækiberjaspretta var talin góð
en bláber voru misjafnlega
sprottin.
Nú er, að ég held, verið að setja
handrið á nýja brú á Héraðsvötn
eystri hjá Lóni í Viðvíkursveit og
verður nýr aðalvegur opnaður til
umferðar á þeim slóðum áður
langt liður, verður það mikil sam-
göngubót á leiðinni frá Sauðár-
króki til Siglufjarðar. Sérstaklega
kemur þar til greina samgöngu-
bót að vetri þegar snjóa leggur til
tafar á Eylendi austan Hegraness.
Töluverður fiskur hefir komið
inn f Skagafjörð í haust og seinni-
partinn í sumar og er nú sýnilegt
að friðun fyrir dragnótaveiði er
að bera árangur, nú er meira að
segja farið að verða vart við færa-
fisk á firðinum sem ekki hefir
orðið vart í mörg ár. Bátar hafa
aflað mjög sæmileg í haust og
seinnipart sumars í þorskanet, en
nú er eitthvað að tragast.
1 Málmey á Skagafirði hefir
ekki verið búið i mörg ár en selir
eiga þar nú gott friðland nema
þegar vitavörðurinn, Kjartan
Hallgrímsson á Tjörnum, fer
fram i eyna til vitavörslu. Nú ný-
lega fór hann fram í eyna og kom
til baka með fjóra væna seli. Er
þetta ekki óvanalegt þvi að varla
er komið svo að eynni að ekki
sjáist selir og nú er fiskurinn
einnig að koma á gamlar slóðir en
oft var þar gott til fanga uppi i
landsteinum.
Ekki heyri ég annað en heilsu-
far fólks sé sæmilegt, en garna-
veiki er að stinga sér niður, sem
er gamail og slæmur draugur.
Björn i Bæ.
Útför t TORFA GUÐBJARTSSONAR,
yfirflugvirkja, Faxatúni 7
Garðakaupstað.
sem andaðist 2 október sl. fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
1 1 okt klukkan 1 5:00. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á
Hjartavernd. Ingibjörg Halldórsdóttir, Guðbjartur Torfason, Ásbjöm Torfason.
Hr. ritstjóri.
Ég óska eftir að koma á fram-
færi leiðréttingu á töflu 4 i grein
minni um kransæðasjúkdóma,
sem birtist í Mbl. 1. október 1977.
I töflunni er áætlaður fjöldi lát-
inna vegna kransæðasjúkdóma á
tímabilinu 1971—‘75 talinn hjá
körlum 1259 en á að vera 1276 og
hjá konum 798 en á að vera 782.
Ástæðurnar fyrir þessum breyt-
ingum eru tvær. 1. Dánartölur
iátinna vegna kransæðasjúkdóma
á timabilinu 1966—‘70 innihalda
hóp fólks er var með langvarandi
hjartaþelsbólgu, en ekki er rétt að
telja það með. 2. I fjórða dálki
töflunnar urðu einnig stafavíxl,
neðsta talan er snertir karla átti
upphaflega að vera 1298 en ekki
1259. Þrátt fyrir þessar breyting-
ar hefur orðið fækkun á dauðs-
föllum vegna kransæðasjúkdóma
á síðara tímabilinu.
í 8. útgáfu hinnar alþjóðlegu
sjúkdóma- og dánarmeinaskrár
eru skráningarskilyrði fyrir blóð-
þurrðarsjúkdómum í hjarta
(410—414, Morbi Cordis
Ischaemici) víðtækari en í 7. út-
gáfu skrárinnar. I Bandarikjun-
um voru dánarvottorð frá árinu
1967, sem upphaflega voru flokk-
uð eftir 7. útgáfu endurflokk.uð
eftir 8. útgáfu og kom þá í ljós að
dánarhlutfali vegna kransæða-
sjúkdóma á 100 þúsund íbúa
hækkaði úr 289.7 í 331.9 (Sjá
„Comparability of Mortality Stati-
stics, DHEW Plb. no. (HRA) 76-
1340, bls. 14, USA, október 1975).
Athuganir, sem nú standa yfir
hér í landi benda eindregið til að
sams konar breytingar hafi orðið.
Raunveruleg fækkun skráðra til-
fella kransæðasjúkdóma á tima-
bilinu 1971—‘75 samanborið við
timabilið 1966—‘70 hefur því lik-
lega orðið meiri en áður er fram
komið.
Olafur Olafsson, landlæknir.
— Ný barna-
löggjöf
Framhald af bls. 1
Þá er ráð fyrir gert að hlut-
verk umboðsmannsins verði i
því fólgið að útkljá deiluefni
milli barna og ungmenna ann-
ars vegar og foreldra og/eða
þjóðfélagsins hins vegar, en þó
eru nokkrir þættir samskipta
þessara aðila utan ramma laga-
bálksins.
Tilgangurinn með lagasetn-
ingu þessari er ekki sizt sá að
samræma tvo lagabálka sem
hingað til hafa gilt um rétt
óskilgetinna barna annars*veg-
ar og skilgetinna hins vegar, en
í frumvarpinu kemur hvergi
fram mismunandi afstaða til
þessara hópa, þótt í nokkrum
atriðum séu mismunandi
ákvæða varðandi það hvort for-
eldrar barns búa saman eða
ekki. I frumvarpinu er kveðið
svo á að barn, sem orðið er sjö
ára, hafi rétt til að láta í ljós
skoðun sina varðandi hverja þá
ákvörðun foreldra eða forráða-
manna, sem hafa mun áhrif á
velferð þess.
SÉEHL BQÐ
ALLT í EINU TÆKIFRÁ
CROWN
170.000
kr. sambyjL^t stcrcosctt á
116.445
VIÐ HÖFUMNÁÐ VERÐINU
SVONA NIÐUR MEÐ ÞVÍ AÐ:
0 Gera sérsamning við verksmiðjuna.
© Forðast alla milliliði.
0 Panta verulegt magn með árs fyrirvara.
0 Flytja vöruna beint frá Japan með
Síberíu-lestinni frægu til Þýzkalands
og síðan sjóleiðina til Islands.
Lang hagkvæmasta flutningaleiðin.
AFLEIÐINGIN ER SÚ AÐ:
0 Þetta tæki jafnast á við 170.000.- kr. tæki annars staðar.
0 Tækið á sér engan keppinaut.
0 Draumur yðar getur orðið að veruleika.
ALLT 1 EINU TÆKI:
MAGNARI
Fjögurra vidda stereo magnari 12,5w+-
12,5w, gerir yður kleift að njóta bestu
hljömgæða með fjögurravídda kerfinu.
PLÖTUSPILARI
Fullkominn plötuspilari, allir hraðar
vökvalyfta, handstýranlegur eða sjálfvirk-
ur. Þetta tryggir góða upptöku af plötu.
SEGULBAND
Hægt er að taka upp á segulbandið af
plötuspilaranum, útvarpinu og gegnum
hljóðnema beint milliliðalaust og sjálf-
virkt. Segulbandið er gert fyrir allar gerð-
ir af cassettum, venjulegar og CROM-
DIOXIÐ (Dro2).
UTVARP
Stereo útvarp með FM, LW og MW bylgju.
Akaflega næmt og skemmtilegt tæki.
HATALARAR
Tvö stykki fyigja með. Bassahátalari 20
cm af konlskri gerð mið- og hátíðnihátalari
7.7 cm af konískri gerð. Tiðnisvið
40—20.000 rið.
Crown SHC 3150
/
/ PANTIÐ
STRAX1DAG
TILBOÐIÐ STENDUR
MEÐAN BIRGÐIR ENDAST
/
á horni Skipholts og Nóatúns.
Sími 29800 (5 línur)