Morgunblaðið - 01.11.1977, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 01.11.1977, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NOVEMBER 1977 Tillaga til þingsályktunar: Slitlag á hring- veginn á 15 árum Arlegir verkáfangar 150-200 km ÖLAFUR G. Einarsswn (S) og Jón Helsason (F) hafa endurflutl til- Iöjíu (il þingsályklunar uin aö humlió slillag veröi lagl á helztu þjóövegi landsins, þ.e. hringveg- inn og helztu vegarkafla út frá honum, á næstu 10—15 árum. ísraelskar appelsínur munu lækka EKKI ER ósennilegt aö gengisfellingin í ísrael muni koma íslenzkum neytendum til góöa þegar kemur fram f desemher, þannig aö þeir fái þá ódýrari Jaffa-appelsínur en ella. Magnús Erlendsson, aöstoð- arframkvæmdastjóri hjá Heildverzlun Björvins Schram, sagði i samtalí viö Morgunblaðió að engar Jaffa- appelsinur væru nú á markað- inum enda uppskerunnar ekki að vænta fyrr en kæmi fram í desember. Magnús sagði að engar fregnir hefðu borizt um verð þessarar uppskeru enn sem komið væri, en gengisfell- ingin sjálf fæli i sér alll að 15—20% verðlækkun. Hins vegar væri í ísrael sérstakt verölagsráð fyrir appelsinu- framleiðsiuna sem ætti eftir að koma sér saman um verð næstu uppskeru en Magnús kvað óhjákvæmilegt að um ein- hverja verðlækkun yrði að ræða. R íkissl jórnin undirbúi tillögur til vegaáætlana þannig, að þess- um áfanga veröi náö. Slitlagiö veröi lagl á vegina, eins og þeir eru nú, eftir því sem fært er, þ.e. án sérstakrar endurb.vggingar þeirra. Þeir kaflar vega, sem ekki þykir fært aö leggja á slillag meö þessum hætti, skuli endurbyggöir fyrir fjármagn úr Vegasjóöi, sam- kva-mt vegaáætlun. Unniö skal aö þessum framkvæmdum I iillum landshlutum hvert ár eftir því sem áætlun segir til um. Kostnaö- ur viö lagningu slitlagsins greiö- ist úr Vegasjóöi samkvæmt vega- áa'tlun, og meö innlendum og er- lendum lántökum, ef þörf krefur, eftir nánari ákvörðun Alþingis síöar. I greinargerð segir m.a. að nær þvi ómögulegt sé að halda við malarvegum, þannig að sæmandi geti lalizt, eftir aö vissum umferð- arþunga sé náð. Nauösynlegt sé að bregóast nú þegar við vaxandi bifreióaeign landsmanna með raunhæfum hætli; samræmi verði að vera í bifreiöainnflutningi og vegagerð. Rykmengun frá malar- vegum sé og vaxandi vandamál, þar eð þúsundir tonna al' of- aniburöi leggist yfir tún og lend- Framhald á bls. 30. (Ljósm. Mbl. ÓskarSæmundsson). SKIPVERJAR á hafrannsóknarskipunum hafa margsinnis að- stoðað báta á miðunum er þeir hafa lent í erfiðleikum. Meðfylgj- andi mynd er tekin í siðustu viku er skipverjar á Arna Friðriks- syni aðstoðuðu Hafölduna SU 155, en litlu munaði að nótin lenti i skrúfu skipsíns. Iscargo út með háhyrn- ing á morgun Höfn í Hornafirði 31. okt. HAHYRNINGURINN, sem Hafn- arnes kom meó til Hafnar fyrir nokkru verður fluttur út til Frakklands á morgun með vél Is- cargo. Er förinni heitiö til Nissa, en þangaó var annar háhyrningur fluttur í fyrra og hefur dafnað vel í sædýrasafninu Marineland, sem er skammt fyrir utan N issa. Háhyrningurinn sem fluttur var út í fyrra er karlkyns, en þessi er kvenkyns. Gera menn sér vonir um að þeim eigi eftir að koma vel saman og jafnvel geta af sér af- kvæmi. — Elías. Hitaveitustjóri: Hugsanlega skortur á heitu vatni næsta vetur - ef yfirvöld halda fast við ákvarðanir um verðlagningu — IIALDI yfirvöld fast við ákvöróun sína um verólagningu á heitu vatni frá Hitaveitu Reykja- víkur gæti fariö svo að fyrirtækið gæti ekki séð notendum fyrir nægilega miklu af heitu vatni veturinn 1978—‘79, sagöi Jóhann- es Zoéga hitaveitustjóri f samtali við Mbl. í gær. Svo sem fram hefur komið i fréttum, var Hitaveitu Reykjavik- ur heimilað að hækka taxta sina um 15% en hún hafði óskað eftir 24% hækkun. Af þessum sökum Framhald á bls. 30. Rán seldi fyr- ir 13,5 millj. TOGARINN Rán RE seldi 93 lest- ir af fiski i Bremerhaven i gær- morgun fyrir 145.500 mörk eða 13.5 milljónir króna. Meðalskipta- verð á kíió var kr. 103.00. Ekki hægt að setja fullt starf við Sinfóníuhljómsveitina og ætla mönnum ekki næg verkefni — segir Birgir Thorlacius, ráðunegtisstjóri, um frumvarp til laga um Sinfóníuhljómsveitma „EG heid aó andstaóa gegn þessu frumvarpi lil laga um sinfóniu- hljómsveit sé alveg ástæöulaus. Hljómsveitin hefur starfaó við erfiðar aöstæður og ör.vggisleysi og þetta frumvarp á aó skapa henni starfsöryggi," sagöi Birgir; Thorlacius, ráðuneytisstjóri, er Mbl. spurói hann álits á fram- kominni gagnrýni á frumvarp til laga um Sinfónfuhljómsveit tslands, en Birgir var formaður nefndarinnar, sem undirbjó frumvarpið.“ Þaö er rangt hjá starfsmönnum hljómsveitar- innar, að ekki hafi verió leitaó álits. Framkvæmdastjöri hljóm- sveitarinnar, Siguróur Björnsson, kom á okkar fund'og hann taldi þann starfsmannaf jölda sem frumvarpið gerir ráð fyrir, nægi- legan til aö hljómsveitin gæti Framhald á bls. 30. 11 „Sá torkennilegan hlut í sjónum.. Flugmaður tilkynnti um piltana tvo, sem bjargað var úr sjónum úti af Amamesi eftir 25 min. volk TVEIR PILTAR úr Kópavogi voru hætt komnir á sunnudaginn er skúta, sem þeir voru á, fór á hlióina nokkuó úti af Arnarnesi, mitt á milli Kársness og Bessastaöa. Tókst piltunum, sem eru 12 og 19 ára, aó hanga á síðum bátsins, þar til hjálp barst úr landi. Munu þeir hafa verið f 25 minútur í sjónum, ert eftir að þeir höfðu fengið aóhlynningu á Borgarsjúkrahúsinu, fengu þeir að fara heim og varð ekki meint af volkinu. Það var Jytta Marcher Jóns- son, flugkennari hjá Flugskóla Helga Jónssonar og eiginkona Helga, sem kom auga á skutuna á hliðinni ogtilkynnti Flutturn- inum um óhappið. — Ég var með flugnema í tíma og vorum við að æfa lend- ingar, sagði Jytta í samtali við Morgunblaðið i gær. — Er við vorum að koma inn í lendingar i annað skiptið sá ég einhvern torkenniiegan hlut i sjónum. Ég tilkynnti flugturninum að ég ætlaði að iækka mig og fara lítinn hring til að kanna þetta nánar. — Kom þá i ljós að þarna var skúta á hliðinni og utan á henni sá ég annan piitanna hanga. Var hann í rauðum stakk að því er mér virtist, og veifaði hann til min. Hinn piitinn sá ég ekki, en tilkynnti Flugturninum strax um þetta, sem gerði siðan ráðstafanir til að fá aðstoð. Það var vont veður um þetta leyti á sunnudaginn og gaf talsvert yfir bátinn, ég og flugneminn höfðum á orði að ekki vildum við vera með tærnar í Atlants- hafinu eins og veðrið var á sunnudaginn og kuldinn, sagði Jytta Marcher Jónsson að lok- um. Lögreglan i Kópavogi sagði í samtali við Morgunblaðið i gær að tilkynning hefði komið frá Flugturninum í Reykjavík klukkan 16.45 á sunnudaginn um óhapp þetta. Hefði lögreglu- maður farið út á báti, sem hjálparsveit skáta á, en lögregl- an notar einnig í svona tilfell- um. Eftir nokkra erfiðleika við að setja bátinn niður hefði ferð- in á slysstaðinn gengið vel, en auk lögreglumannsins voru einn skáti T>g tveir menn, sem þarna bar að, með í förinni. Greiðlega hefði gengið að bjarga piltunum um boro i bát- inn, en þeir voru fluttir á Borg- arspítalann eftir að í land var komið. Þar var hlúð að þeim, en siðan leyft að fara heim og virt- ist þeim ekki hafa orðið meint af volkinu. Skúta þeirra sökk hins vegar skömmu eftir að þeim var bjargað, en frá því að skútan fór á hliðina og þangað til þeim var bjargað hékk annar þeirra á lunningunni, en hinn stóð á mastrinu og hélt í siðuna, að sögn Kópavogslögreglunnar. Að sögn Kópavogslögreglunn- ar voru piltarnir báðir vel klæddir, í ullarfötum innst, og báðir í björgunarvestum. Sagði varðstjóri lögreglunnar í Kópa- vogi að rik ástæða væri tii að brýna fyrir fólki að gæta fylistu varúðar á fleytum og smábátum þegar þessi árstími væri kom- inn og vera ekki að leik langt frá lahdi þegar allra veðra væri von. SPASSKY kemur ekki BORIS Spassky hefur í bréfi til Skáksamhands Islands talió öll tormerki á því aó hann geti orðió meðal þátttakenda á Reykjavíkurmótinu, þar sem að einvígi hans við Kortchnoj kunni að geta staðið fram eftir öllum janúarmánuði og hann muni því hvíldarþurfi að þvf loknu. Gerir hann sér góðar vonir um að vinna þetta ein- vígi. Morgunblaðið hefur áður skýrt frá því, að Hort sjái sér ekki fært að keppa hér á þess- um tíma, þar sem það rekist á við Tito-mótið í Júgóslavíu en í bréfi til Skáksambandsins getur hann þess, að samlandi hans, Smejkal muni að öllum líkindum taka þátt í mótinu í Framhald á bls. 47. Sigurður P. Bjöms- son sextugur í dag SIGURÐUR P. Björnsson banka- stjóri á Húsavík og elzti fréttarit- ari Morgunblaösins er sextugur í dag. Silli hefur verið fréttaritari 1 blaósins frá 19 ára aldri eóa í 41 ár og hann hefur jafnan gætt fréltalegra hagsmuna þess þar með stakri prýói. Sigurður Pétur eins og hann heitir fullu nafni er fæddur á Kópaskeri 1. nóvember 1917, son- Framhaid á bls. 37. Kristneshæli 50 ára í dag Akureyri 1. nóvember. KRISTNESHÆLI er 50 ára 1 dag. Þaö var vígt og formlega tekiö 1 notkun 1. nóvember 1927 og tók þá strax til starfa sem aðalvígi herklavarna á Noröurlandi. Næstu ár og áratugi á undan, hafði berklaveiki verió mjög skæö 1 Eyjafirði og öðrum nálæg- um héruðum og lagt marga að velli 1 blóma Iffsins; en nú varð Framhaid á bls. 47.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.