Morgunblaðið - 01.11.1977, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1977
Eilítið
1.
grein
um
elliárin
Margir kviða elliárunum að ástæðu
lausu. Mikil breyting á sár að visu
oft stað á þessu aldursskeiði — en
það veitir mönnum oft meiri lifsfyll-
ingu og gleði en margan grunar.
Ymis vandamál verða á vegi okkar
sem fyrr, en máltækið segir. að
„ekki sé ráð nema i tima sé tekið"
— og á það sannarlega við i þessu
tilviki.
Breytingar
Margt hefur breyst i íslensku þjóðfélagi
undanfarna áratugi. Flestum er Ijós þessi
breyting, þegar um hana er rætt, en fáir
gera sér grein fyrir, hverjar afleiðingarnar
hafa orðið fyrir ýmsa hópa samfélagsins,
eins og ellilífeyrisþegna t.d
Margt hefur verið ritað og rætt um málefni
þeirra undanfarín ár og mikið hefur breyst til
batnaðar á ýmsum sviðum En betur má ef
duga skal. Það er þó ekki ætlunin að ríta um
einstök vandamál eldri kynslóðarinnar, sem
vissulega á ekkert nema gott skilið —
heldur er ætlunin að rekja í stórum dráttum
ýmsar augljósar staðreyndir sem blasa við á
þessu skeiði ævinnar og hvernig bregðast
má við ýmsum vanda með þvi að undirbúa
að einhverju leyti það, sem koma skal.
Óhætt er að fullyrða, að flest okkar. eiga
ættingja, sem komnir eru á „efri ár" eins og
kallað er, og flest eigum við sjálf eftir að lifa
það aldursskeið. Sumum finnst erfitt og
óþarfi að ræða um ellina og margir segja
eitthvað á þá leið, að óþarfi sé að ræða um
það löngu fyrirfram ,,Den tid, den sorg,"
eins og danskurinn segir!
Lífsfylling
Ekki er nokkur efi á þvi, að flest okkar
óska þess innra með sér að eiga góða og
ánægjuríka daga á efri árum, þegar halla fer
undan fæti Við sjáum fram á, að við höfum
nú meiri tíma en áður til þess að sinna
ýmsum verkefnum, sem okkur hefur lengi
langað til þess að vinna að — sumir vilja
ferðast, aðrir lesa — margir vilja vinna að
einhvers konar handavinnu, aðrir vilja skrifa
o.s.frv.
A þessu timabili gefst mönnum oft betri
tími til þess að „hugsa málin" og virða þau
fyrir sér frá öðrum sjónarhól en áður og
öðlast þvi víðari sjóndeildarhring, meiri lifs-
fyllingu og hamingju en fram til þessa tíma.
Ég minnist gamallar konu, sem hafði verið
blind i tiu ár. Þegar ég spurði hana um líðan
hennar, svaraði hún: „Ég hef aldrei haft jafn
mikið yndi af lifinu og nú. Nú get ég rifjað
upp góðar og gefandi stundir í lífi mínu,
farið í huganum yfir alla víni mina, sem ég
hef mætt um æfina og beðið Guð um að
blessa þá og veita þeim hamingju og frið."
Margir hafa ort um ellina og skáld látið
mörg gullkorn falla um líf og reynslu fólks á
þessu aldursskeiði. Hinu ber þó ekki að
leyna, að ýmiss konar vandamál verða nú á
vegi okkar sem fyrr, vandamál, sem ein-
kenna þetta aldurskeið fremur en önnur —-
vandamál, sem i mörgu eru öðruvísi en fyrri
kynslóða vegna ýmissa breytinga í samfélag-
Vandamál
Mér hefur alltaf fundist, að orðið „ellilíf-
eyrisþegi" sé ekki nógu gott til þess að
einkenna þetta aldurskeið Miðað við þá
reynslu, sem ég hef, finnst mér þeir vera
meiri „gefendur" en „þiggjendur." Ég vann
um nokkurt skeið hjá Félagsmálastofnun
Reykjavíkur við deild þá, sem kennd er við
aldraða, og kynntist þá mörgum sem komnir
eru á efri ár. Án undantekninga miðlaði
þetta fólk mér af reynslu sinni og þekkingu
og treysti mér fyrir vandamálum sínum, —
og veitti mér á þann hátt í rauninni miklu
meira en ég gat veitt því Ég bý enn að þeirri
reynslu, sem ég hlaut á þeim árum.
Ekki er nokkur efi á því, að margt getur
betur farið, ef við búum okkur betur undir
þau vandamál, sem við vitum að mæta
okkur, þegar síga fer á efri ár ævi okkar. Við
HÆTTUM venjulegri VINNU okkar og meira
eða minna leyti og ef við hugsum ekki um
það, sem koma skal, getur það haft óþægi-
legar afleiðingar í för með sér
FJÁRHAGSVANDAMÁL verða oft á þessu
aldursskeiði, en þó eru þeir margir, sem vita
ekki nákvæmlega, hvaða rétt þeir eiga til
ellilífeyris og styrkja, sem samfélagið hefur
búið þeim
B’ÚSETU- OG ÍBÚÐAVANDAMÁL veldur
sumum áhyggjum Marga langar til þess að
skipta um íbúð og kaupa sér hentugar
íbúðir, sem e.t.v. eru sérhannaðar fyrir gam-
alt fólk, aðrir þurfa að leigja sér íbúðir, en
megna varla að standa undir þeirri gifurlegu
húsaleigu, sem algeng er á höfuðborgar-
svæðinu t.d. Og þannig mætti lengi telja.
Að öllum þessum vandamálum má huga í
tíma, ræða um þau við aðra, leita til þeirra,
sem hafa sérþekkingu á þessu sviði og
undirbúa sig á þann hátt sem best undir
það, sem koma skal
Eftir því sem ellin færist yfir okkur, mæta
okkur ýmsir sjúkdómar, sem næstum „til-
heyra" eðlílegri og líkamlegri hrörnun. Við
þolum ekki eins mikið og áður. Við verðum
að taka okkur betri tíma til hvíldar enn fyrr,
og oftar — stundum segir gigtin til sín og
gæti t.d. gert okkur erfitt um gang. Þá er
nauðsynlegt að þekkja til ýmis konar tækja,
sem til eru, og geta létt undir með okkur. Við
verðum stundum svo veik, að við getum
varla hjálpað okkur sjálf, og þá er gott að
þekkja að einhverju leyti til heimilishjálpar,
heimahjúkrunar, starfs safnaðarsystra og
annarra, sem við gætum leitað til undir
slíkum kringumstæðum.
Elliárin geta veitt okkur meiri gleði og
lífsfyllingu en margan grunar og við getum
undirbúið okkur til að sigrast á þeim vanda-
málum, sem við vitum að mæta okkur, mað
þvi að rrtiðla hvert öðru af reynslu okkar og
þekkingu betur en við höfum gert fram að
þessu
Evrópukeppni flugfélaga i skák:
Flugleiðir í 2. sæti
SKÁKSVEIT Flugleiða tók í fyrsta sinn þátt í árlegri Evrópukeppni
flugfélaga í skák dagana 30. september til 2. október s.l. IMótið var
haldið í Vínarborg í Austurríki og sá austurfska flugfélagið um
framkvæmd mötsins að þessu sinni. Flugfélög frá 13 þjóðum tóku þátt
í keppninni. Sigurvegari varð austuríska flugfélagið (Austrian Air-
lines), en Flugleiðir urðu í öðru sæti. í þriðja sæti varð spænska
flugfélagið Aviaeo, en þeir voru efstir í fyrra. Þetta var sveitakeppni
og var teflt á fjórum borðum. Sá einstaklingur, sem fékk flesta
vinninga á hverju borði, fékk sérstök verðlaun. Hálfdán Hermannsson,
skáksveit Flugleiða, fékk verðlaun fvrir flesta vinninga á fjórða borði.
í mótslok afhenti einn af framkvæmdastjórum austuríska flugfélags-
ins verðlaun.
Að öðru leyti voru úrslit eftirfarandi, en efst taldist sú sveit, sem
flest stig fékk. Tvö stig fengust fyrir unninn leik, en eitt stig fyrir
jafntefli. Röð Stig Vinningar
Austuriska fél. Austrian Airl. 1 23 35- '/í
Flugleiðir 2 22 42-4
Spænska leigufél. AVIACO 3 20 41
ísraelska fél. EL-AL 4 17 28
SAS 5 16 30-4
Finnair 6 16 30
Hollenska félagíð KLM 7 16 29-4
Swissair 8 16 29
Air France 9 10 22-4
Belgiska félagið Sabena 10— 11 9 22-4
V-þýzka félagið Lufthansa 10— 11 9 22-4
Austrian Airlines Sveit II 12 6 16
Breska félagið British Airways 13 2 11-4
Irska félagið Aer Lingus 14 0 4
í mótslok fengu Flugleiðir boð um að taka þátt i sveitakeppni í Sviss
þann 28. janúar n.k. Þar munu tefla sveitir frá 8 bönkum og 4
flugfélögum.
Norræn menningar
vika í Linköping
LINKOPINGSHÉRAÐ og Menn-
ingarsjóður Norðurlanda stóðu
fyrir samnorrænni menningar-
viku hér í Linköping dagana
15,—23. okt.
Upphaf þessarar menningar-
viku var laugard. 15. okt. kl. 13.30
í héraósbókasafninu hér i Linköp-
ing með ræðu John Eric Kroon,
síðan söng stúdentakórinn
norræna söngva.
Kl. 5. sama dag byrjaði dagskrá
á fjórum stöðum í borginni þar
sem norræn músik og dans fór
fram. Meða) þeirra sem fram
komu var Karelsk spele-
mansgrupp undir stjórn Sakari
Rikonen.
Upplestur á sænskum 17. aldar
ljóðum var lesinn af Helenu
Kallebeáck, og tónlist frá sama
tíma spiluð af Summerstams-
hópnum. 16. okt. voru norrænir
þjóðdansar og þjóðlagasöngur í
Sankti Lars skólanum.
18. okt. var sérstakt rithöfunda-
kvöld, þar sem þekktir höfundar
af yngri kynslóðinni frá Noregi og
Danmörku lásu úr verkum sínum.
19. okt. spilaði þekkt jazzhljóm-
sveit frá Danmörku.
20. okt. flutti fyrrum forsætis-
ráðherra svía, Tage Erlender,
ræðu um 25 ára starf norður-
landaráðs í Wallenbergssalnum í
safnhúsinu hér í Linköprng, og
norrænir söngvar voru sungnir af
kvennakórnum Ireklangen undir
stjórn Lennart Ekholm.
Listiðnaðarsýning frá Dan-
mörku var sett upp af Randi og
Kai Strandgard.
Bókasýning á úrvali norskra og
danskra rithöfunda ver hér einn-
ig-
Það er mikið ánægjulegt fyrir
okkur íslendingana sem búum
hér i Linköping, að af islenzkri
þátttöku í þessari menningarviku
gat orðið. Opnuð var sýníng á 20
málverkum íslenzkra listamanna
á bókasafninu hér, og mun hún
standa fram til 5. nóv.
Fyrir okkur var hápunktur
þessarar yiku, þegar Alþýðuleík-
húsið sýndi Skollaleik, við frá-
bærar viðtökur ...
1 blaðaumsögn stóð . . . „að vera
áhorfandi leiksýningar, án þes>
að skilja málið, sem frá leiksvið-
inu kemur, er merkilegt, en stóð
ekki í vegi fyrir því að við fengum
að lifa upp sterka og lifandi sýn-
ingu.
Leikstjórinn, Þórhildur Þor-
leifsdóttir, og þessir ágætu leikar-
ar færðu okkur frumlega og list-
ræna sýningu.
Frábær listræn tjáning."
Þetta samnorræna starf í þess-
ari menningarviku, hefur verið
fjölbreytt og vandað á allan hátt.
Sigursveinn Jóhannesson.
Linköping.
BRAGAGATA CA. 85 FM
Skemmtileg 3ja herbergja sér-
hæð i járnklæddu timburhúsi.
Falleg lóð. Laus strax. Verð 7,5
millj útb. 5 millj.
RAUÐARÁR
STÍGUR 85 FM
Björt og skemmtileg 3ja her-
bergja ibúð á 2. hæð. Nýleg
eldhúsinnrétting. Laus strax.
Verð 7.8 millj , útb. 5 millj.
HOFGERÐI 85 FM
3ja herbergja sérhæð i tvibýlis-
húsí. Sér inngangur, sér hiti,
falleg lóð. Bílskúrsréttur. Verð 9
millj., útb. 6 millj.
LAUGARNESVEGUR
3ja herbergja hæð i þribýlishúsi
(jarnklætt timburhús). Ný eld-
húsinnrétting, bilskúr. Verð 7.5
millj., útb. 5 millj.
LJÓSHEIMAR
Falleg 4ra herbergja ibúð á 7.
hæð. Þvottaherbergi i ibúðinni,
ný teppi. Verð 1 2 millj.
HRAFNHÓLAR 100 FM
4ra herbergja ibúð á 7. hæð.
Rúmgott eldhús mé borðkrók.
Verð 9 millj., útb. 6 millj.
DIGRANES-
VEGUR 110FM
4ra herbergja jarðhæð i þribýlis-
húsi. Sér inngangur, sér hiti.
Verð 10 millj., útb. 7 millj.
SELTJARNARNES
Skemmtilegt parhús á tveim
hæðum Á efri hæð: 5 svefnher-
bergi og stórt fjölskylduherbergi.
Á neðri hæð: Stofa. eldhús, bað-
herbergi, þvottahús og geymsla.
Bilskúrsréttur Útb. 1 5 millj.
SELJAHVERFI
Raðhús tilbúið'eða á byggingar-
stigi i Seljahverfi óskast i skipt-
um fyrir tilbúna 5 herbergja 120
fm. íbúð í sama hverfi.
LAUFÁS
FASTEIGNASAIA S: 15610 & 25556
UEKJARGÖTU6B
BENEDIKT ÓLAFSSON LÖGFR.
KVÖLDSÍMAR SÖLUMANNA
18710 GUNNAR ÞORSTEINSSON