Morgunblaðið - 01.11.1977, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NOVEMBER 1977
23
KALLIGERIR ÞAÐ
GOH MEÐ HK
HK ÚR Kópavogi viróist ætla að
gera það gott á sínu fyrsta ári f 2.
deild. A sunnudaginn lék HK við
Gróttu á Seltjarnarnesi og vann
HK yfirburðasigur, 34:19, eftir að
staðan hafði verið 15:9 f háifleik.
HK hafði náð góðu forskoti i
hálfleik og liðið jók yfirburði sína
smátt og smátt eftir því sem leið á
seinni hálfleik. Undir lokin fór
leikurinn allmikið úr böndunum
og HK menn urðu ansi kærulausir
og varð sigur þeirra ekki eins stór
og hann hefði getað orðið.
HK-liðið er skipað ungum
mönnum og gamalreyndum köpp-
um i bland og virðist það líklegt
til að krækja í ófá stig í 2. deild-
inni í vetur. Þeir Björn Blöndal
og Ragnar Ólafsson, þekktari sem
golfmaður, skoruðu flest mörk
HK en Karl Jóhannsson var pott-
urinn og pannan i spili liðsins.
Karl hefur engu gleymt af kúnst-
um leiksins þótt orðinn sé 44 ára
og það er örugglega einsdæmi að
maður á hans aldri sé tekinn í
sérstaka gæzlu, eins og Gróttu-
menn gerðu í leiknum!
Lið Gróttu var ekki upp á
marga fiskana í þessum leik og er
útlit fyrir að þetta verði erfiður
vetur hjá liðinu. Nokkrir af leik-
mönnum liðsins frá i fyrra eru
hættir og mestu munar auðvitað
fyrir liðið að missa Arna Indriða-
son.
MÖRK HK: Björn Blöndal 7,
Ragnar Ölafsson 7, Kristinn Ól-
afsson 6, Karl Jóhannsson 5, Stef-
án Halldórsson 4, Hilmar Sigur-
gislason 3 og Jón Einarsson 2
mörk.
MÖRK GRÓTTU: Grétar Vil-
mundarson 5, Gunnar Lúðvíksson
4, Magnús Margeirsson 4, Axel
FriðrikSson 3 og Þór Ottesen 3
mörk. _ SS.
Þessi mynd var tekin er Stjarnan og HK léku á dögunum. Hilmar
Sigurgfslason hefur lyft sér upp og skýtur að marki Stjörnunnar.
Jón var maðurinn á
bak við sigur KA
KA LÉK sinn fyrsta leik á heima-
velli í 2. deildinni f handknattleik
að þessu sinni, á laugardag. Mót-
herjarnir voru Stjarnan úrGarða-
bæ og sigruðu heimamenn örugg-
lega meö 22 mörkum gegn 19,
eftir að hafa leitt f hálfleik með
13 mörkum gegn 7.
Leikur liðanna var annars
nokkuð vel leikinn og skemmti-
legur á að horfa. KA náði foryst-
unni í upphafi, komst í þrjú gegn
einu, en Stjarnan náði að jafna og
bætti um betur, náði forystu, fjög-
ur gegn þremur. Smám saman
náði KA síðan afgerandi forystu
og leiddi i héli með 13 mörkum
gegn sjö sem fyrr getur.
Fljótlega í síðari hálfleiknum
tókst Stjörnunni að minnka mun-
inn niður í þrjú mörk, en aldrei
dró meira saman með liðunum en
það og úrslitin urðu 22 gegn 19,
KA í vil.
í þessum leik skartaði KA nýj-
um leikmanni, Jóni Haukssyni,
sem áður lék með Haukum, fyrsta
sinni. Jón átti afburða leik, eink-
um í fyrri hálfleik, skoraði þá sex
mörk, en alls urðu rhörk hans níu.
Ekki leikur efi á að Jón mun
styrkja lið KA mikið og ekki
kæmi undirrituðum á óvart þó
KA mundi blanda sér mjög i bar-
áttuna um sæti i 1. deild, jafnvel
þó lióið hafi tapað sínum fyrsta
leik í mótinu.
Lið KA hefir orðið fyrir þung-
um búsifjum frá því í fyrra. Þann-
ig hefir Hörður Hilmarsson horf-
ið frá félaginu. leikur reyndar
með Stjörnunni, sem hann og
þjálfar. Halldór Rafnsson, sem í
mörg ár hefir verið einn af
burðarásum handknattleiks á
Akureyri, er frá vegna meiðsla og
þannig mætti áfram telja. KA hef-
ir hins vegar fengið nokkurn liðs-
auka, Jón Hauksson, sem fýrr get-
ur og nafna hans, Jón Árna
Rúnarsson, sem áður lék með
Fram. Þá hefir Sigurður Ágúst
Sigurðsson, sem áður lék með ÍR,
einnig gengið í raðir KA, en hann
lék ekki að þessu sinni. Auk Jóns
Haukssonar áttu Jón Árni, Þor-
leifur og Ármann Sverrisson
(einnig kunnur knattspyrnu-
maður með KA) góðan leik.
Undirritaður er reyndar ekki i
vafa um að Þorleifur væri með
fjölda landsleikja að baki, ef
hann hefði búið á „réttum stað“ i
henni veröld.
Lið Stjörnunnar er skipað
nokkuð sterkum einstaklingum.
Aðal liðsins er varnarleikurinn,
en sóknin mun síðri. Hörður
Hilmarsson, núverandi þjálfari
Stjörnunnar, á án efa eftir að
sníða vissa vankanta af sóknar-
leiknum, og þegar það hefir tek-
ist, má telja víst að Stjarnan verði
öllum liðunum i 2. deild skeinu-
hætt. Hörður bar uppi sóknarleik-
inn, en auk hans áttu Magnús
Arnarson, sterkur linumaður, og
nafni hans Teitsson, góðan leik.
Ágætir dómarar þessa leiks
voru Jón Magnússon og Pétur
Christiansen.
Mörk KA: Jón Hauksson 9 (3),
Þorleifur 4, Páll Kristjánsson og
Jón Árni 3 hvor, Armann 2 og
Sigurður Sigurðssón eitt.
Mörk Stjörnunnar: Magnús Teits-
son 8 (7), Hörður 6, Magnús
Arnarson 2, Logi Ólafsson, Eggert
Isdal og Baldur Svavarsson eitt
hver. Sigb. G.
Dönsku Norðurlandameistararnir í handknattleik 1977. Lengst til vinstri er fyrirliði liðsins, Anders
Dahl-Nielsen, sem var markhæsti leikmaður Norðurlandamótsins, en sá er heldur á bikarnum er Tliomas
Pazy, en hann skoraði sigurmarkið í leiknum við Svía.
Danir meistarar eftir fram-
lengdan hörkuleik við Svía
MARK sem hinn hávaxni leik-
maður Thomas Pazy skoraði fyrir
Dani á lokasekúndum framleng-
ingar í úrslitaleik þeirra við Svía
f Norðuriandamótinu, færði Dön-
um titilinn að þessu sinni, en
Thomas þessi er félagi Ólafs
Benediktssonar í sænska liðinu
Olympía. Hafði hann sannarlega
heppnina með sér þegar hann
skaut, þar sem færið var lokað, en
sænski markvörðiirinn kom ekki
auga á knöttinn fyrr en hann var
að sigla í markið hjá honum, og
þvf fór sem fór. Var gleði Dan-
anna að leikslokum mikil og inni-
leg, en fullyrða má að þeir áttu á
að skipa heilsteyptasta liðinu í
þessu móti og voru því vel að
sigrinum komnir.
Úrslitaleikurinn á sunnudaginn
bar einkum keim af tvennu. Mik-
illi spennu leikmanna, og furðu-
legum rosta þeirra í garð íslenzku
dómaranna Björns Kristjánssonar
og Óla Olsen. Þeim Birni og Óla
urðu á mistök snemma í leiknum í
sambandi við útafrekstur eins
leikmanns sænska liðsins, og eftir
það höfðu leikmennirnir og for-
ystumenn lióanna ekki við að lýsa
vanþóknun sinni á öllum dómum
þeirra. Slíkt var þó siður en svo
réttmætt. Leikurinn var mjög
erfiður að dæma, og þeir Björn og
Óli komust yfirleitt ágætlega frá
hlutverki sinu — voru i það
minnsta sízt slakari en dómara-
pörin frá Noregi og Danmörku
sem dæmdu i móti þessu.
Harka og barátta var einkenni
þessa leiks, rétt eins og alltaf mun
vera er Svíar og Danir mætast á
íþróttavelli. Framan af fyrri hálf-
leik var leikurinn mjög jafn, en
þar kom að Svíarnir tóku að síga
frammúr og höfðu þeir náð
þriggja marka forystu i hálfleik
10—7. Þá forystu juku þeir siðan
í 12—7 eða fimm mörk i byrjun
seinni hálfleiks, og áttu þá flestir
von á að úrslitin værðu ráðin. En
Danir höfðu einnig verið fimm
mörk undir í leik sínum við ís-
lendinga á laugardaginn og bar-
átta þeirra og frammistaða i
seinni hálfleiknum vai' afskap-
lega skemmtileg og leikur liðsins
oft með miklum ágætum. Enginn
átti þó stærri hlut að máli en
fyrirliði liðsins, Anders Dahl-
Nielsen. Á laugardaginn var það
hann sem fór með íslendinga, en
hann fór svo jafnvel enn verr með
Svia á sunnudaginn. Af sfðustu 10
mörkum Dananna skoraði hann
sjálfur 7, og tvö af hinum komu
eftir fallegar línusendingar hans!
Staðan að loknum venjulegum
leiktíma var 17—17 og höfðu Sví-
ar jafnað á síðustu stundu. Þurfti
að framlengja í 2x5 minútur og
eftir fyrri hluta þeirrar framleng-
ingar var enn jafnt 19—19. Dahl
Nielsen færði liði sínu forystu á
fyrstu mínútu seinni hálfleiks
framlengingarinnar, en Svíar
náðu að jafna og stóð 20—20, unz
Thomas Pazy tókst að skora úr-
slitamark þessa skemmtilega
leiks.
Konungur vallarins í leiknum
var tvímælalaust Anders Dahl
Nielsen og féll frábær frammi-
staða Bo Andersons í sænska
landslióinu jafnvel í skuggann.
Leikmaður sem Nielsen er virði
þyngdar sinnar í góðmálmi fyrir
hvaða handknattleikslandslið sem
er.
Mörk Danmerkur: Anders Dahl
Nielsen 10, Michael Berg 4,
Thomas Pazy 3, Thor Munkager 2,
Morten S. Christensen 1, Henrik
Jacobsgaard 1.
Mörk Svíþjóðár: Bo Anderson
5, Göran Gustafson 3, Bengt
Hakanson 3, Basti Rasmussen 2,
Claes Ribendahl 2, Dan Eriksson
2, Lars Goran Jonsson 1, Sven-
Ake Frick 1, Ingemar Anderson 1.
Stjarnan vann yfirburðasigur yfir Þór
A SUNNUDAG léku Þór og
Stjarnan í 2. deild íslandsmótsins
í handknattleik og fór leikurinn
fram á Akureyri. Skemmst er frá
því að segja að heimamenn voru
teknir f kennslustund, Stjafnan
sigraði með 30 mörkum gegn 19,
eftir að hafa leitt í leikhléi með
15 mörkum gegn 8.
Leikurinn var lítt skemmtileg-
ur á að horfa, til þess voru yfir-
burðir Stjörnunnar of miklir.
Þannig skoraði Stjarnan sjö
fyrstu niörk leiksins. Það var ekki
fyrr en um miðbik f.vrri hálfleiks,
sem Þórsurum tókst að komast á
blað. Þessu sjö marka forskoti
hélt Stjarnan út fyrri hálfleik og
leiddi með 15 gegn 8 í hléi sem
fyrr st'gir.
I síðari hálfleiknum hélt Stjarn-
an áfram að auka forskotið og
sigraði með ellefu marka ntun, 30
gegn 19.
Vist er að Stjarnan getur orðið
hvaða liði sem er skeinuhætt,
einkum þó á heimavelli sinum.
Varnarleikur Stjörnunnar er
prýðilegur, en ýmsir agnúar á
sóknarleiknum, sem leikmönnum
tekst án efa að sníða af þegar
fram liða stundir. Hörður
Hilmarsson er potturinn og pann-
an i leik liðsins, en auk hans áttu
Eyjólfur Bragason og Magnúsarn-
ir, Teitsson og Andrésson ágætan
leik. Þáttur markvarðarins,
Ómars Karlssonar, var stór í þess-
um leik. Hvað eftir annað varði
hann glæsilega og átti hann ekki
minnstan þátt í þessum yfirburða
sigri Stjörnunnar.
Þessi leikur var fyrsti leikur
Þórs i deildinni. Ef til vill er liðið
ekki komið í mikla æfingu, en hitt
er Ijóst að langt er síðan Þórsarar
hafa haft jafn slöku liði á að
skípa. Þar skilur Þorbjörn Jens-
son eftir vandfyllt skarð. Þá er
markvarslan höfuðverkur. Það
var varla að markverðir liðsins
verðu skot í þessum Ieik, en þess
ber og að gæta að vörnin var afar
slök. Ef ekki verður á mikil breyt-
ing gæti hlutskipti Þórs orðið að
berjast fyrir sæti sinu í deildinni
og gæti það orðið erfið barátta.
Sigtryggur Guðlaugsson og Jón
Sigurðsson voru einna skástir
Þórsara.
Jón Magnússon og Pétur
Christiansen dæmdu leikinn og
skiluðu sfnu hlutverki nokkuð
vel.
Mörk Stjörnunnar: Hörður 7,
Magnús Teitsson 7 (3), Eyjólfur
6, Eggert Isdal 3, Baldur Svavars-
son 2. Magnús Andrésson.
Magnús Arnarson, Þorvarðu.
Þórðarson, Guðlaugur Jónsson og
Árni Björnsson eitt mark hver.
Mörk Þórs: Sigtryggur 7 (3).
Jón 4, Gunnar Gunnarsson 3, Arni
Gunnarsson 2. Aðalsteinn Sigur-
geirsson, Óskar Gunnarsson og
Halldór Halldórsson eitt mark
hver. Sigb.G.
V/ f t ‘ •' \j / \
ti./t