Morgunblaðið - 01.11.1977, Side 37

Morgunblaðið - 01.11.1977, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1977 37 — Sigurður sextugur Framhald af bls. 2 ur .hjónanna Sigríðar Lovísu Sigurðardóttur og Björns Jósefs- sonar héraðslæknis. Hann tók próf frá Verzlunarskóla íslands árið 1940, en fór síðan utan til framhaldsnáms i bankafræðum hjá Barclays Bank Ltd. i Englandi á vegum British Council. Árið 1941 réðst hann til Landssíma Is- lands á Húsavík, hann var sýslu- skrifari á árunum 1942—‘43, en á afmælisdegi sínum, er hann varð 26 ára, varð hann sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Húsavikur. Gegndi hann því starfi til ársloka 1962, er sparisjóðurinn var lagður niður og Landsbankinn stofnaði útibú sitt á Húsavík. Tók þá Sigurður við störfum útibússtjóra, sem hann gegnir enn. Sigurður P. Björnsson hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum öðrum en hér hafa verið tíunduð, en hann hefur m.a. verið sæmdur gullmerki ÍSÍ. Blaðamann Morgunblaðsins og framkvæmdastjóri senda Silla hugheilar afmæliskveðjur á þess- um timamótum í lífi hans og vona að þeir megi njóta fréttamannsins á Húsavik um ókomna framtíð. — Brezezinski Framhald af bls. 47. Hann sagði að Kúbumenn hefðu verið viðriðnir stríðið i Angóla, að verið gæti að þeir væru viðriðnir stríðið í Eþiópíu og hugsanlegt væri að þeir yrðu viðriðnir atburði í Suður-Afríku. Brzezinski kvaðst ekki vera að spá þessu, aðeins benda á að forð- ast yrði ástand sem gæti freistað Kúbumanna til afskipta. Hann sagði að harðnandi átök í Suður- Afríku gætu gefið utanaókom- andi stórveldum færi á að skara eld að sinni köku og senda á vett- vang vopn og leiðbeinendur. — Naglar eða... Framhald af bls. 3. væri farið eftir ákvæðum laga og reglugerða um útbúnað bif- reiða til vetraraksturs, en það yrði t.d. að vera sami útbúnað- ur á öllum hjólbörðum, ef nagl- ar, þá á öllum hjólbörðum. Ölaf- ur sagði það skoðun sina að naglar kæmu að takmörkuðu gagni, „og er ég lítt hrifinn af þeim vegna hins falska öryggis, sem ökumenn eru oft haldnir. Einnig er það að naglarnir standa langt út úr dekkjunum því þau slitna hraðar en þeir og þá vilja þeir leggjast flatir þeg- ar hemlað er og virka eins og sleðar. Mesta öryggið er falið í því að mínu mati, að stilla hrað- anum í hóf og taka þá heldur einni eða tveim mínútum meira í hverja ökuferð en venjulega," sagði Ólafur að lokum. Gunnar Sigurðsson hjá Sam- vinnutryggingum sagði það vera metið i hverju tilfelli hvort útbúnaður bifreiða, sem lent hafa í árekstri, sé nægileg- ur og þá farið eftir umferðar- lögum og dómum, sem byggðir hafa verið á þeim. Sagðist hann álita að nagladekk væru betri en keðjur þegar um ísingu væri að ræða og væri t.d. ekki hægt að líta neitt vægari augum á þá ökumenn sem ekki notuðu nagla fyrir tilmæli gatnamála- stjóra, meðan umferðarlögin teldu naglana meðal hins full- komna búnaðar til vetrarakst- urs. Þá sagðist Gunnar álíta að t.d. á Kringlumýrarbraut þar sem hefði verið sett nýtt lag af malbiki á i vor eftir að öku- menn hættu að nota nagladekk- in, sæist engu minni merki um slit þrátt fyrir að þar hefði ekki verið ekið á nöglum, og sagðist telja að þótt naglar slitu götun- um eitthvað þá kæmi þar einn- ig margt annað til. — Gangskör Framhald af bls. 36 kvöld“ þ.e. frá kl. 20—24. 9. Já, svo sannarlega. Ég gæti þá hætt i skúringavinnunni, sem ég hef orðið að bæta aftan við fullan vinnudag til að geta lifað sómasam- legu lifi. — Fylgt úr hlaði Framhald af bls.36 nægilega fast í tauminn til að stöðva hringekjuna með þjóð- ina, ringlaða og áttavillta innanborðs. Skuldakóngar og braskarar hafa dafnað með ágætum eins og púkinn á fjós- bitanum forðum. Hinar gömlu dyggðir: sparsemi, nýtni og nægjusemi eru fyrir bi. — Svona hefir verðbólgan leikið okkur. Núverandi ríkisstjórn hefir sýnt í verki vilja til að koma launamálum í eðlilegra og rétt- látara horf. Þegar vinstri stjórnin fór frá völdum vorið 1974 var launabilið — bilið milli hinna hæst- og lægstlaun- uðu — orðið breiðara en nokkru sinni fyrr. En hér er við ramman reip að draga. Þegar ASl-samningar stóðu fyrir dyr- um s.l. vor, var mikill viðbúnað- ur og fjálglega talað um, að nú þyrfti fyrst og fremst að bæta kjör hinna lægst launuðu, hinir gætu látið sér nægja minna. En hvernig fór? Komu ekki sumir sérkröfuhóparnir út með allt að þvi þriðjungi hærri prósentu- hækkun en lægstu flokkarnir? Og ætli það verði ekki eitthvað svipað upp á teningnum, þegar öll kurl koma til grafar í samn- ingum BSRB? Gert er ráð fyrir, að almennat> meðaltals kauphækkanir i land- inu muni verða um 40% á þessu ári. Hvaða þjóðfélag fær risið undir sliku, enda þótt góð- æri sé og þjóðarframleiðsla og þjóðartekjur aukist um fáein prósent. Fyrir Alþingi liggur frumvarp til fjárlaga upp á rúma 123 milljarða. Þar við bætist 7.7 milljarða útgjalda- auki ríkisins, vegna hinna nýju kjarasamninga við rikisstarfs- menn. Frumvarpið gerir ráð fyrir 5% samdrætti ' fram- dkvæmdum ríkisins — algert nýmæli i fjárlögum síðari ára. Það er spor í rétta átt, en meira þarf til, eigi jafnvægi að nást — og það verður að nást. Það er engin ástæða til svartsýni um, að það takist, ef raunsæi og sanngirni fá að ráða ferðinni — ef fólkið i landinu og stjórnvöld bera gæfu til að Ieggjast á eitt og rifa seglin í sameiningu. Sigurlaug Bjarnadóttir form. Landssambands sjálfstæðiskvenna. — Verðbólga ! Framhald af bls. 36 ingana sína inn á banka í ástandi eins og þvi sem nú er á islandi er vitlaus og ekkert minna. Biðraðir hjá bankastjór- um landsins eru hins vegar óendanlegar, allir vilja fá lán og það er ekkert skrítið þegar lánið er ekki lán heldur gjöf að hluta. Hagsmunahópurinn, sem vill hafa vexti undir raunvöxt- um virðist sterkari en sparifjár- eigendurnir. Sumir stjórnmála- mehn hafa hamazt við að telja launþegum trú um að háir vext- ir séu það versta sem til er, án tillits til allrar verðbólgu. Þar með urðu launþegar og at- vinnurekendur sammála — þá er eitthvað mikið að. Það er hin mesta tálmynd, að verðbólgan hjálpi ungu fólki að byggja. Unga fólkið þarf að visu ekki að greiða nema lítinn hluta andvirðis ibúðarinnar, en allt verður að greiða engu að síður. Það eru aðrir en þeir sem byggja, sem gera það. Fólk virð- ist telja sér trú um að þá sé allt i lagi. Verðbólgan kennir mönn- um, að það sé um að gera að sleppa sem auðveldast frá öll- um hlutum, en láta aðra um vandann. Hverjir eru það, sem borga allar þessar byggingar? Lánin koma úr ýmsum áttum, úr opinberum sjóðum, úr lif- eyrissjóðum, og þeir sem hafa góð sambönd fá bankalán. Skattgreiðendur borga það sem upp á vantar i opinberu sjóð- ina, lífeyrisþegar það sem vant- ar í lífeyrissjóðina og sparifjár- eigendur það sem upp á vantar í bankakerfinu. Ráttara sagt: þannig gengi þetta fyrir sig, ef ekki kæmi til aðrar aðgerðir svo sem aukin seðlaprentun eða erlendar lántökur. Verðbólgan og hinir lágu raunvextir valda einnig al- rangri fjárfestingu. Það ætti að vera hverjum manni ljóst að lán, sem veitt eru til 15—20 ára, á að nota, ef allt er með felldu, til fjárfestingar, sem heldur gildi sinu að minnsta kosti í jafn langan tima og helst leng- ur. Auk þess á hún að skila arði, sem að minnsta kosti greiðir vexti af láninu. Nú mun hins vegar ekki óalgengt að fólk taki lífeyrissjóðslán og kaupi sér fyrir það bíl. Harla óliklegt er, að það hvarfli að nokkrum manni sem kaupir sér nýjan bil að hann endist honum jafngóður i 15 ár. Verðbólgan veldur því að peningar, sem til eru í þjóðfélaginu og, ef állt væri með felldu, ættu að fara i arðvænlega uppbyggingu, er eytt i neyzlu, og minnkar þar með framtiðarauð þjóðarinnar. Ég hef reynt að bregða upp hér að framan, hvernig verð- bólgan breytir fjármálalegri hegðan fólks. Án utanaðkom- andi afla tæki verðbólga eins og sú sem hér ríkir enda af sjálfu sér. Þvi ekki er hægt að færa tekjur endalaust örar á milli manna en hagvexti nemur. Aúkin seðlaútgáfa getur hins vegar haldið hjólinu gangandi. Svo fer þó að lokum að traust manna á peningum þverr og vöruskipti taka við. Þá getur enginn snuðað neinn. Einmitt þetta gerðist þegár efnahags- kerfi Þjóðverja hrundi eftir fyrri heimsstyrjöldina. Siga- rettur voru taldar traustari gjaldmiðiðll en peningar. Hjólinu má einnig halda gang- andi töluvert lengi lengi með erlendum lántökum. Þjóðarbú er hins vegar ekki hægt að reka til lengdar á lánum fremur en heimili á víxlum. Einhver verð- ur að greiða skuldirnar, ef við gerum það ekki verða börnin okkar að gera það. Það er varla fyrirmyndarforeldri, sem vill láta barnið sitt eyða ævinni í að greiða óreiðuskuldir sínar. Okkur íslendinga hefur hing- að til ekki skort rembing yfir að geta byggt svo harðbýlt land, sem island óneitanlega er. Við ættum líka að sjá sóma okkar i því að fara ekki á hausinn með þjóðarbúið, en það hlýtur að gerast, ef ekki verður um það samstillt átak að kveða niður verðbólguófreskjuna og sníða okkur stakk eftir vexti. — Dentalía hf. 20 ára Framhald af bls. 17 læknum starfandi hér I borg og nágrannabæjunum Markmið fyrirtækisins og þessara tannlækna var að standa saman um innkaup sln, bæði hvað tæki og rekstrarvörur snerti, veita íslenzkum tannlæknum sem bezta þjónustu I sambandi við þessi mál, stilla og efna til kynningar á nýjungum á sviði tannlækninga aðallega hvað viðkemur tækjum, efnum o.fl Fyrstu stjórn Dentalíu h/f, skip- uðu þessir tannlæknar: Geir R. Tómasson form., Kjartan Guð- mundsson ritari, Ólafur Stephensen gjaldkeri og Engilbert Guðmunds- son í upphafi var stofnað til viðskipta- sambanda við eflend tannlækna- vörufyrirtæki. Hefir þeim fjölgað og nú er svo komið að Dentalía h/f hefir umboð fyrir mörg þekktustu tannlæknavörufyrirtæki austan hafs og vestan S I 1 5 ár hefir Dentalía h/f verið með starfsemi sina ýmist I nábýli eða undir sama þaki og Tannlækna- félag (slands, en á s.l." ári eignaðist fyrirtækið sitt eigið húsnæði að Hraunteig 23 hér I borg. Meirihluti islenzkra tannlækna eru i dag hluthafar fyrirtækisins, en þeir eru 93. Núverandi stjórn skipa: Birgir Jóh. Jóhannsson formaður, Gunnar Helgason ritari, Guðmundur Árna- son gjaldkeri, Sverrir Einarsson varaformaður, Hörður Sævaldsson og Börkur Thoroddsen Starfsmenn fyrírtækisins eru fjórir auk bókhaldara Framkvæmdastjór- ar eru Hjördis Jóhannsdóttir og Daði Jónsson, sem hefir starfað hjá fyrir- tækinu i 10 ár. — Inna dyra í DDR Framhald af bls. 15 einn af fáum austur-þjóðverjum, sem fær að ferðast mikið um viða veröld til tónleikahalds, og kvaðst hann m.a. hafa verið nokkrum sinnum í tónleikaför i Bandaríkj- unum, en því miður aldrei með viðkomu hérlendis. Uppgrip bókmenntanna Það telst víst alls staðar i heim- inum erfitt og vandrækt lífsstarf bæði að verða og vera góður rit- höfundur, ekki hvað sizt á þeim stöðum, þar sem það þykir alls ekki góður tónn ef það skyldi detta í einhvern sérvitran frama- gosa í rithöfundaklúbbnum að festa þannig hugrenningar og hugmyndir á pappír, sem ekki fara saman við opinberar skoðan- ir Flokksins, og ekki hvetja hinn vinnandi almúga til meiri afkasta eða til innfjálgari ástar á ágæti sameignarstefnunnar. Bókaút- gáfa er mikil í Austur-þýzka al- þýðulýðveldinu bæði á verkum innlendra höfunda og sérstöku úrvali erlendra höfunda í þýzkum þýðingum. Þó er sá gallinn á, að verk hinna áhugaverðari og mest lesnu austur-þýzku höfunda eins og Hermann Kant, Giinter de Bruyn, Giinter Kunert, Alfred Matusche, Armin Stolper, Helmut Sakowski og Peter Hacks eru stöðugt „þvi miður, löngu, löngu uppseld" í öllum bókabúðum landsins, og þvi næstum ógerning- ur að komast yfir verk þeirra. Það er nefnilega forkastanleg kapitalistísk hugsanavilla að álíta, að verk einstakra höfunda, sem reynslan sýnir að fólkið vill kaupa og lesa, eigi bara þess vegna að koma út aftur í stærri upplögum, af því að eftirspurnin sé svo mikil. Langt þvi frá. Slikar sveiflur á bókamarkaðnum eru vart teknar til greina í stóru alls- herjar áætluninni, sem skipulegg- ur bókaútgáfuna i hundruðum þúsunda tonná af pappir árlega. Athyglisvert land Það er vissulega að mörgu leyti fróðlegt og lærdómsríkt að ferð- ast um þetta gamalgróna land og kynnast hinu þróttmikla sam- eigharríki. Fólkið er framúrskar- andi alúðlegt, opinskátt og frjáls- mannlegt i fasi. Austur- þjóðverjar eru stoltir af öllu þvi, sem áunnist hefur í landinu á siðustu áratugum og mega líka vera það. Og þeir eru ófeimnir við að gagnrýna það, sem þeim finnst miður fara. Verst af öllu þykir þeim að mega ekki lengur fara frjálsir ferða sinna i skreppitúra í vesturveg; svo þeir horfa þeim mun stífar á vestur-þýzkt sjón- varp til að fræðast um umheim- inn. Og allur þessi sovézki her i landinu kostar okkur morð fjár, því að við borgum brúsann, segja þeir umbúðalaust. Íbúðin er of lítil og launin of lág, biðtíminn 8 ár eftir bilnum. En við höfum stöðuga atvinnu og þurfum ekki að kviða morgundeginum. Af biturri reynslu vita þjóðverjar að lifshamingjan er hverful, og þeir vilja ekki vanþakka þá góðu tima, sem nú brosa við þeim. Ach, das Leben ist doch trotz allem schön. ÍÞROTTABLA ÐIÐ íþróttir og útilíf ER KOMIÐ UT. íþróttablaðið er málgagn íþróttasambands íslands. íþróttablaðið er vettvangur 57 þúsund meðlima íþrótta- og ungmennafélaga um allt land. Flytur að venju fjölbreytt efni um allar greinar íþrótta og útilífs. áskriftarsími 823001 Til íþróttablaðsins Ármúla 18, pósthólf 1193. Rvík. Óska eftir áskrift. Nafn heimilisfang Sími (ÞRÓTTABLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.