Morgunblaðið - 01.11.1977, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1977
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL 10 — 11
FRÁ MANUDEGI
j^j/jAnrsQi. 'ujj'u i?
ekið er á þá. 1 þriðja lagi fannst
mér hausinn bitinn af skömminni
þegar settur var „stökkpallur" i
einstigið eða mjóddina.
Að þessu samanlögðu lit ég svo
á að verið sé að búa til slysagildru
á slikum stöðum. Mér er ekki
alveg ljóst hvort ég er með réttar
hugmyndir um tilganginn með
þessum götuþrengslum, en hef þó
óljóst hugboð um það. í framhaldi
þessara ábendinga skýt ég fram
þeirri spurningu hvort gang-
brautarljós ná ekki betri árangri
og tiigangi en þessar vegahindr-
anir?
Guðmundur Jóhannsson."
Frá umferðarmálum hverfum
við að máli, sem mikið var deilt
um fyrir fáum árum og var að því
er Velvakanda minnir mikið hita-
mál, en það eru framkvæmdir við
fyrirhugað Seðlabankahús.
0 Dýr breyting?
„Nú hefur mátt lesa þær
fréttir í blöðum að búið sé að
teikna a.m.k. frumteikningar að
nýju húsi f.vrir Seðlabankann.
Var það gert vegna þess að mikil
mótmæli komu fram við staðsetn-
ingu hússins og útlit. það þótti og
hátt og skyggja of mikið á útsýnið
frá Arnarhóli o.fl. Látum það
vera. En spyrja má í hverju breyt-
ingin sé fólgin? Skyggir húsið
eitthvað að ráði minna á en það
gamla?
Ég er ekki að spyrja vegna þess
að það sé mín skoðun að fyrri
hugm.vndin hafi verið ómöguleg.
hún var að rninu áliti prýðileg og
skemmdi ekki eitt eða neitt.
miklu fremur var að vænta skjóls
af húsinu fyrir norðanátt og
senniiega hefði Arnarhóllinn orð-
ið enn vinsælli sólbaðsstaður en
hann er nú í hádeginu. fyrir
margt fólk. sem vinnur þarna í
nágrenninu, Nei. ég er að spyrja
vegna hinna, sem mótmæltu sem
mest hér um árið. geta þeir með
góðri samvizku eitthvað frekar
samþykkt að þessi bygging risi?
Hvað um það, ekki ætla ég að
svara þvi, en eitt jákvætt hefur
þessi breyting kannski i för með
sér, ef af henni verður. en það er
að sænska frystihúsið verður rif-
ið. Sjálfsagt saknar enginn þess.
En er þessi breyting ekki mjög
dýr. Hefur ekki verið eytt alltof
miklu fé með litlum árangri hvað
varðar útsýni og það alit. sem
mest var mótmælt? Þessu skýt ég
aðeins fram til athugunar. Það
sem mér finnst sorglegt við þessa
nýju hugmynd er það að nú er
þetta fremur venjulegt hús. sem
skal rfsa. en ekki öfugur pýramidi
eins og fyrri hugmyndin var og
mun skemmtilegri að niinu mati.
Það er sem sé verið að varpa fyrir
borð mjög skemmtilegri hugmynd
varðandi b.vggingarlist. en ekkert
virðist mega. Það hefði vel mátt
bæta einni skrautfjöður í hatt
Reykjavíkurborgar. það er ekki
víst að margir séu reiðubúnir til
að byggja svo dýra og glæsilega
byggingu sem Seðlabankahúsið
sáluga átti að vera. Eiginlega ætti
að reisa minnisvarða um húsið
sem aldrei var byggt og veita arki-
tektunum verðlaun fyrir.
Borgari."
0 Gott starf
hjá Kiwanis
Maður. sem vildi helzt ekki
láta nafns sins getið, hafði eftir-
farandi að segja um Kiwanis-
hreyfinguna og klúbba í svipuð-
um dúr:
„Um helgina eins og svo oft
áður hafa Kiwanis-félagar verið
með herferð til styrktar geðsjúk-
um. Það er ómetanlegt að vita til
þess að slíkar hreyfingar sem
Kiwanis, Lions, Rotary og fleiri
láti sig varða ýmis þjóðþrifamál.
Þessar hreyfingar opna augu al-
mennings fyrir ýmsu, sem er
ábötavant i þjóðfélagi okkar.
safna fjármunum til þess að bæta
úr og verða með þessu tvennu oft
til þess að ráðamenn taka málið
upp á sinum vettvangi og halda
áfram þvi starfi, sem þessar
hreyfingar hafa kannski hafið. Ég
SKÁK
Umsjón:
Margeir Péturáson
Á alþjóðlegu skákmóti i Biel í
Sviss í sumar kom þessi staða upp
i skák þeirra Miles, Englandi, sem
hafði hvítt og átti leik, og Sviss-
lendingsins Lomhard.
27. Bxf7+ ! — Kxf7, 28. Dd7+ —
De7, 29. Df5+ Svartur gafst upp.
Eftir 29.. . Kg7 eða 29. . . Df6
vinnur hvitur með 30. Hd7. Röð
efstu manna í mólinu varð þessi:
1 Miles 11 v. af 15 , 2.—4. Panno
(Argentínu), Hernandez (Kúbu)
og Andersson (Sviþjóð) 9 v.
5.—8. Hug (Sviss), Kavalek
(Bandarikjunum), Vukie (Júgó-
slavíu) og Torre (Filippseyjum)
8'/j v.
Tillaga um Sedlabankahús
á /óð Sænska frvstihússins
» X tlf*
Tt»*ft»«m t«««
i ofjum *t*<s
ifttwviaiuí
.>»•«»« »**■ r>*» fcor* «•
iK >:<o «lt*4r.< «
•HM ft-«» >y. KS
.< e* :.•»*>:«» *» v'a *.«**
...................... »•*»»«>
inywtáaat v*. ...
>>í.j«ok-A.lfOK't< tn.'al
»»>r»K >■»«« fnt» •»:»*:«*». v*
<-x ■ ».-*»:««» -I "-wtn
V.w t-ý «»v«i>í »>!
> v.<•*.»«•.< KfcSsOÍKK
ws Irrnvxríf Xw,
M »•»<*> »>«»♦.
•. V. J6 ><»« « tCIWn*
t&s i ’■
* tV!i''"b
>>*• •.♦»« «*v sry**l'x*rt »»«-<
k« wn ** >*+* :.k»o> :<,'■* * <-n*
«*>.»<»•« ««•* tx*.
*»«x< '<*K'-f««x> <•* :«
K*«m« <»m »«»*»
Ww;i»k« •>:<** M*.-:
*« í:x««t *»•>«>:<.« * ft>x»-
>k:.o: wii'í.-o x*»ft.
s*><««><f <>(*, v». »>»»» v. <i« kí
. í»*ft.|l**««».>- :>*» .*>xft.ý>. >!><•»
■>X:>: N<r-s». feíjft. oxftiftft*
Í.HN WÍKOí.ftftM NX. v'íftW'ö
» ;.:x :».:•>:;•>.« :.:»<vv. <•»:<,. <
' S.>><:fft»ft;*ftvft;>>«.:<.f otffto.sftitoft :
»»*■• kx-; :<* :oft»: k-xx}«t*>:ft.
huv.tííetii *»*oí«sot >
víldi bara koma á framfæri þakk-
læti tii forystumanna allra þess-
ara hreyfinga og hvetja lands-
menn til að styrkja þær vel. þvi
allar vinna þær að nauðsyniegum
málum."
HÖGNI HREKKVÍSI
Ég hélt hann vrði afbrvðisamur út í Trvgg?
Kvikmyndasýning og fyrirlestur
í Norræna húsinu þriðjudaginn 1 nóv. kl.
20 30
„Filmvisning pá nytt sátt".
Anja Paulin frá Svenska Filminstitutet sýnir
„Oskyldigt offer", franska kvikmynd eftir Yves
Boisset (sænskur texti) og flytur erindi um
nýstárlega tilraun sem um þessar mundir er
unnið að í Svenska Filminstitutet.
Verið velkomin
Norræna húsið.
NORR€NA HUSIO POHJOLAN TAIO NORDENS HUS
Hressingaleikfimi fyrir karla
i hádeginu kl. 1 2.00 — 1.00 (sauna á eftir)
Karatefélag Reykjavíkur
SEDWAKAI
INNRITUIM í NÝTT BYRJENDANÁMSKEIÐ
félagsins verður dagana 1/11 og 2 / 1 1. Innritað verður,i
flokka karla og kvenna á öllum aldri.
Kennt verður eftir reglum GOJU KAI og ALL JAFAN
KARATE FEDERATION.
Aðalkennari félagsins verður Kenichi Takefusa 3. Dan í
Goju-Ryu Karate Do.
Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins að Ármúla
28, 2. hæð og í sima 35025 kl. 19—21.
8hl
eldhúsviftur
eru ísenn kröftugar, hljóðlátarog fallegar.
Eigum fyrirliggjandi tvær gerðir, SANIM AR
með þremur hröðum og Ijósi og
ELECTRONIC með elektrónískri
hraðastillingu og innbyggðu Ijósi.
Báðar aerðir er hægt að stilla á inn - eða
útblástur
Verð frá kr. 44.500,-
Verzlunin
PFAFF
sími 26788