Morgunblaðið - 01.11.1977, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1977
47
Hubert Humphre.v öldungadeildarmaður á tröppum bandaríska þinghússins á
f.vrsta vinnudegi sínum siðan i Ijós kom að hann þjáist af ólæknandi krabbameini.
Sómalir hrinda fyrstu
sókn Eþíópíuhermanna
Nairobi. :U. okt. Kruter.
SÓMALSKIR skæruliðar
hrundu fyrstu sókn
eþíópískra hersins gegn
þeim í fjöllum Austur-
Eþíópíu um helgina að því
er útvarpið í Mogadishu
skýrði frá í dag.
Útvarpið segir sam-
kvæmt frásögn skæruliða-
blaðsins Danab, að 320
eþíópískir hermenn hafi
verið felldir og níu teknir
til fanga í hörðum bardög-
um á Babile-svæðinú. Aðr-
ir eþíópískir hermenn
skildu eftir skotfæri Og Útvarpið í Mosadi.shu segir að
annan búnað á f lóttanum.
Babile er aðeins 30 km frá bæn-
uni Harar, næsta takmarki skæru-
liða í strfðinu sem hófst fyrir
þremur mánuðum um yfirráðin
yfir Ogadeneyðimörkinni. Tið-
indalitið hefur verið frá vígstöðv-
unum síðan sómalskir skæruliðar
tóku skriðdreka- og ratsjármið-
stöðina Jijila fyrir sjö vikum.
Diplómaar i Addis Ababa og
Djibouti segja, að sovézkar MIG-
flugvélar, skriðdrekar og stór-
skotalið hafi verið sent í miklum
flýti ásamt nokkrum kúbönskum
ráðgjöfum til Harar og Dire Dawa
sem skæruliðar reyna einnig að
ná á sitt vald.
einnig hafi verið barizt í síðustu
viku á svæðinu milli Dire Dawa
og Addis Ababa. Það segir að
Eþiópiumenn hafi reynt að ná aft-
ur brú sem sómalskir skæruliðar
hafa náð á sitt vald á járnbrautar-
linunni milli Addis og Djibouti.
Skæruliðar felldu 105 Eþíópíu-
menn og ráku hina á flótta að
sögn útvarpsins. Eþíópíumenn
hafa ekki getað notað járnbraut-
ina.
Sleppti
eftir 14
Toronlo. .'U. október. Keuler.
VOPNAÐUR maður í
kúrekafötum sleppti 36
manns sem hann hélt í
gíslingu í banka í Toronto í
gær og gafst upp fyrir lög-
reglu eftir 14 tíma umsát-
ur.
Maðurinn, Paul Vintan-
en, afhenti riffil sinn yfir-
mannibankans þegar hann
gekk út úr bankanum
ásamt síöustu sex gíslun-
um.
Lögreglustjórinn í Toronto,
Harold Adamson, sem reyndi að
semja við manninn í síma, sagði
fréttamönnum að engan hefði
sakað í umsátrinu.
Nokkrir gíslanna voru þó born-
ir burtu á sjúkrabörum, þar á
meðal maður nokkur sem virtist
að því kominn að fá hjartaáfall.
Vintanen hélt á whisky-flösku
þegar hann hafði sleppt síðustu
gíslunum og kom út úr bankan-
um. Eftir nokkur handalögmál
var honum ekið burtu i lögreglu-
bifreið.
Grófu göng
að banka
Napoli. 31. októher. AF.
TILRAUN til að grafa göng inn I
Banco di Napoli fór út um þúfur
um helgina þegar öryggisverðir
heyrðu hávaða undir hankanum
og gerðu lögreglunni viðvart.
Tveir menn voru handteknir
þegar þeir komu út úr holræsum
sem lágu frá bankanum. Lögregl-
an telur að 10 menn hafi verið
viðriðnir málið og verið að verki f
nokkra daga. Göngin voru orðin
15 metra löng.
gíslum
tíma
Maðurinn skaut að minnsta
kosti 12 skotum meðan á umsátr-
inu stóð tíl að halda lögreglunni i
skefjum.
Ljósmyndari sem fékk að fara
inn að taka myndir af Vintanen
með gíslunum, lýsti honum, þann-
ig að hann væri „kúreki sem veif-
aði riffli og gerði gys að því sem
fram færi“
Brezezinski
varar Suð-
ur-Afriku við
WasliinRton. 31. okl. AP
SUÐUR-
Afríkustjórn
verður að finna
friðsamlega lausn
á kynþáttamálum
landsins vegna
hugsanlegrar
ásælni Rússa eða
Kúhumanna,
sagði Zbignieu
Brzezinski, ráðu-
nautur Carters forseta I þjóðar-
öryggismálum, í sjónvarpsþætti
CBS, „FaceTheNation“,uni helg-
ina.
Framhald á bls. 37.
Sonur Hitlers
sagður fundinn
Bonn. 31. oklóber. Keuler
VESTUR-þýzki sagnfræðingur-
inn YVerner Maser kveðst hafa
fundið óskilgetinn son Adolf
■Hitlers eftir 12 ára leit.
Ilann segir að sonur Hitlers
heiti Jean Lorret og búi í
Norður-Frakklandi skammt frá
þýz.ku landamærununi. Hann
vill halda heimilisfangi sínu
leyndu að svo slöddu.
Dr. Maser kveðst hgfa fundið
soninn fyrir tveimur árum.
Hann er 59 ára gámall, kvæntur
og níu barna faðir.
Hitler er sagður hafa hitt
móöur Lorrets 1918 þegar hann
var uridirliðþjálfi f fyrri heims-
styrjöldinni. Hún lézt í Paris
1951 og sagði ekki syni stnum
leyndarmálið f.vrr en á dánar-
beðinu að sögn Masers.
Nú vill Lorret opinbera
leyndarmálið þar sem hann
heldur að hann eigi skammt
eftir ólifað. Dr. Maser segir aö
hann sé veikur, en ímyndi sér
alltaf að hann gangi með hina
og þessa sjúkdóma eins og faðir
hans. „A hverjum degi heldur
hann að hann muni deyja. Ég
Adolf Hitler
vil ekki segja að hann sé tnjög
alvarlega veikur."
Sagnfræðingurinn segir að
þjónn Hitlers, Heinz Linge,
hafi tekið sér ferð á hendur
ásamt foringjanum 1941 til að
leita að húsinu sem móðirin og
sonurinn áttu heima f. Þeir
fundu þau ekki, en ári síðar
yfjrheyrði Gestapo soninn i
París og setti hann í itarlega
læknisskoðun.
Flugræningjar frá
Víetnam gáfust upp
Sinjíaporo, 31. okl. Router.
VIETNÖMSK farþegaflugvél sem
var snúið til Singapore er farin
aftur til Víetnam en fjórir Víet-
namar seni ra-ndu vélinni eru
enn í haldi f Singapore þar og
vfirvöld þar hafa enn ekki ákveð-
ið hvað þau ætla að gera við þá.
Mennirnir skutu og stungu til
bana tv.o menn af áhöfn vélarinn-
ar skönunu eftir flugtak frá Ho
Chi Minh-horg (Saigon). Flugvél-
in var af gerðinni DC-3 og var I
innanlandsflugi.
Flugræningjarnir neyddu
áhöfnina til að fljúga til Thai-
lands þar sem flugvélin tók elds-
neyti og þaðan til Singapore þar
sem lending var aðeins leyfð
vegna þess að flugstjórinn sagði
að vélin væri að verða eldneytis-
Iaus.
Þegar flugvélin var lent gáfust
flugræningjarnir upp og báðu um
hæli sem pólitfskir flóttamenn.
Flugvélin snéri síðan aftur til
Vfetnam með 31 farþega, þrjá af
áhöfninni og lík þeirra tveggja
sem biðu bana. Eftir urðu flug-
ræningjarnir fjórir, einn farþegi
sem neitaði að snúa heim og flug-
freyja sem særðist.
Singapore-stjórn hefur reynt að
bæta sambúðina við kommúnista-
ríkin í Indókína og á því erfitt
með að ákveða hvort flugræningj-
unum skulu skilað eða veitt hæli.
Singapore og Vietnam hafa ekki
gert með sér samning um framsal
sakamanna. Hingað til hefur
stjórnin i Singapore aðeins veitt
flóttamönnum frá Vietnam hæli
um stundarsakir meðan þeir hafa
sótt um hæli annars staðar.
Nguyen Van La flugstjóri sagði
á blaðamannafundi að hann hefði
heyrt skothríð um 15 minútum
eftir flugtak: „Ég leit við og sá
vélamanninn og loftskeytamann-
inn liggjandi á gólfinu. Þeir voru
ekki alveg látnir, en flugræningj-
arnir gerðu út af við þá með löng-
umhnifum."
Aður en flugræningjarnir gáf-
ust upp og slepptu farþegum og
áhöfn reyndu embættismenn
stjórnarinnar að semja við þá i
fimm tima.
— Spassky
Framhald af bls. 2
hans stað. Anthony Miles
hefur á hinn bóginn gefið í
skyn að reikna megi með þátt-
töku hans á mótinu, ekki sízl
fyrir þá sök hversu nýstárlegt
það er. Miles vill koma með
vinkonu sína hingað ef kostur
er en það er Jana Hartston, ein
fremsta skákkona Breta um
þessar mundir. Þá hefur einn-
ig Waller Browne frá Banda-
ríkjúnum gefið f.vrirheit um að
koma til landsins en hann var
nú fyrir skönnnu að sigra á
bandaríska meistaramótinu i
þriðja sinn í röð.
Browne lýsti einnig þeirri
skoðun sinni að hið nýja
keppnisfyrirkomulag sem rætt
hefur verið um í lengslum við
þetta mót, þ.e. að hafa tvö
tímamörk á hverri skák og
leika 50 leiki á 2 og tíma i
stað 40 leikja áður og bónus-
greiðslur fyrir unnar skákir,
væri til þess fallið að laða
fleiri áhorfendur á mótið. Hort
hefur einnig látið svipað álit i
ljós, en Spassky er hins vegar
þeirrar skoðunar, að þessi
nýju tímamörk geti orðió skák-
meisturum af eldri kynslóð-
inni erfið.
Áður hefur komið fram að
Bent Larsen hafi tilkynnt þátt-
töku sína. Væntanlega verða
auk þess tveir sovézkir meist-
arar, og hefur verið stungið
upp á Tal og Romanishin. Enn
á eftir að berasl svar júgó-
slavneska sambandsins varð-
andi þá Ljubojevie og Kurajica
og ekkert hefur heyrzt frá
Bubby Fischer fremur er
reiknað hafði verið með.
Ákveðið hefur verið aö bjóða
norska skákmanninum' Leif
Ögaar til mótsins og vitaö er að
v-þýzki stórmeistarinn Hubner
hefur áhuga á að.koma ef hon-
um verður boðið og einnig
Kavalec, Lombardy frá Banda-
ríkjunum og Timman og
Sosonko frá Hollandi.
— Kristneshæli
Framhald af bls. 2
mikil breyting á og þar kom að
lokum að sigur vannsl yfir þess-
um skæða sjiikdómi.
Afmælisins verður minnzt i
Kristneshæli í dag með ýmsum
hætti. Messað verður í hælinu kl.
14 og þar prédikar sér Pétur Sig-
urgeirsson vigslubiskup. Siðdegis
verða ýmis skemmtiatriði fyrir
vistmenn og kl. 20 í kvöld hefst
afmælishátíð þar sem Brynjar
Valdimarsson læknir flytur ágrip
af sögu hælisins,,en einníg munu
tala þar Úlfur Ragnarsson yfir-
læknir og Jórunri Ólafsdóttir frá
Sörlastöðum.
Það mun fyrst hafa verið árið
1918, aö vakið var máls á nauðsyn
þess að koma upp berklahæli í
Eyjafirði. Það geröi Sigurlina Sig-
tr.vggsdóttir húsfreyja á Æsustöö-
um á fundi í kaupfélagi Saur-
bæjarhrepps. Kaupfélagið visaði
málinu til Sambands norðlenzkra
kvenna, sem tók málið að sér og
hóf þegar fjársöfnun. Jónas Þor-
bergsson var þá ritstjóri Dags og
tók að skrifa um máliö í blaö sitt
og vekja áhuga almennings. 22.
febrúar 1925 var haldinn borgara-
fundur á Akureyri og þar stofnað
heilsuhælisfélag Noröurlands og
kosið i stjórn þess. Stjórnina skip-
uðu Ragnar Olafsson kaupmaður,
formaður, Böðvar Bjarkan lög-
fræðingur, gjaldkeri og Krist-
björg Jónatansdóttir kennari, rit-
ari. Auk þess voru þessi kosin í
framkvæmdanefnd: Anna
Magnúsdóttir, Hallgrímur Davíðs-
son, Jónas Rafnar, Jónas Þor-
bergsson, Kristján Karlsson,
Sveinbjörn Jónsson og Vilhjálm-
ur Þór, sem var formaður
nefndarinnar. Ingimar Eydal tók
fljótlega við af Sveinbirni, sem
varð eftirlitsmaður hælisbygg-
ingarinnar.
Þetta fólk gekk nú af miklum
dugnaði og fágætum áhuga að
störfum og mikið fé safnaðist á
stuttum tíma til hælisbyggingar-
innar. Margir gáfu stórgjafir, t.d.
Ragnar Ölafsson og frú, Magnús
Sigurðsson á Grund og kona hans
og Jósef Helgason á Espihóli. Auk
þeirra lagði fjöldi manna og
félaga fram gjafir. Það mun vera
einsdæmi, að félagið kostaði bygg-
ingu hælisins að hálfu og innbú
og búnað allan aö hálfu og gaf
rikinu á vigsludegi hælisins.
Ragnar Ólafsson afhenti þessa
miklu gjöf, en Jónas Jónsson rieil-
brigðisráðherra veitti henni við-
töku.
Hælið tók upphaflega 50 sjúkl-
inga, en þeir voru orönir yfir 60
eftii'fáa mánuði, slík var þörfin.
Arið 1931 var byggður læknisbú-
staður og þá losnaði læknisíbúðin
í hælinu sjálfu undir sjúkrarúm
og síðan hafa sjúklingar i hælinu
oftast verið upp undir 80. Hælið
var eingöngu berklahæli fram til
1960, en það ár kom einnig hjúkr-
unardeild fyrir endurhæfingar-
og langlegusjúklinga. Nú er það
eingöngu rekið fyrir langlegu-
sjúklinga og síðasti berklasjúkl-
ingurinn var tekinn af berklaskrá
i september 1976.
Jónas Rafnar var yfirlæknir
hælisins frá upphafi til ársloka
1955, en þá tók við Sriorri Olafs-
son og gegndi stöðunni til 1976.
Siðan er Úlfur Ragnarssón settur
yfirlæknir Hiúkrunarforstjóri er
Gyða Thoroddsen. en forstiiðu-
maður Eiríkur Brynjólfsson, sem
gegnt hefur starfinu nær óslitið
frá 1. október 1927. Starfsmenn
hælisins eru nú 43.
Sv.P.