Morgunblaðið - 18.11.1977, Síða 1
247. tbl. 64. árg.
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sadat í tveggja daga
sögulega ísraelsferð
Kaíró, 17. nóvember. Reuter
ANWAR Sadat forseti fer i sögulega tveggja daga heim-
sókn til Jerúsalem á laugardag til að ræða frið við
ísraelska leiðtoga og skýra málstað Araba fyrir israelska
þinginu.
Ismail Fahmi utanríkisráðherra ákvað þegar í stað að
segja af sér vegna „nýrra kringumstæðna“ og
Mohammed Riad aðstoðarutanríkisráðherra sem Sadat
skipaði eftirmann hans sagði einnig af sér. Einn þriggja
stjórnmálaflokka Egypta, Framfarasinnaði einingar-
flokkurinn, gagnrýndi ferðina þar sem hún mundi
„veikja afstöðu Araba.“
við Hafez Al-Assad Sýrlandsfor-
seta og sagði: „Ég heimsæki
Knesset (israelska þingið)
Menachem Begin, forsætisráð-
herra Israels, sagði bandariskum
þingmönnum sem hann ræddi við
að bandariski sendíherrann,
Samuel Lewis, hefði fært sér þau
skilaboð frá Sadat að hann mundi
koma til tsraels kl. 17.30 (GMT) á
laugardag. Begin sagði að hann
hefði vitað siðan i gær að Sadat
vildi koma á laugardag, en
tsraelsmenn áttu ekki von á hon-
um fyrr en seint i næstu viku.
Sadat skýrði frá ákvörðun sinni
í Damaskus að loknum viðræðum
Begin forsætisráðherra tsraels (annar frá vinstri) tilkynnir sögulega
heimsókn Anwar Sadats forseta til tsraels. Lengst til hægri er sendi-
herra Bandaríkjanna, Samuel Lewis.
Sadat forseti á blaðamannafundi
f Damaskus þar sem hann sagði:
„Þótt Assad forseti sé andvfgur
heimsókn minni til Jerúsalem fer
ég samt.“
bráðlega. “ Hann sagði að Assad
væri andvigur hugmyndinni og
kvað þá ósammála um aðferðir en
ekki markmið. Hann kvaðst vilja
ryðja úr vegi meinlokum sem
stæðu i vegi fyrir friði.
Assad gagnrýndi heimsóknina á
blaðamannafundi og kvað hana
hættulcga málstað Araba. Hann
sagði að hann og Sadat hefðu
aldrei orðið ósammála áður en
kvað Sadat hafa fullvissað sig um
að hann mundi ekki veikja mál-
stað Araba með undirritun
santnings við ríki Gyðinga.
1 kvöld dvaldist Sadat i Ismailia
við Súez-skurð og ekki var búizt
við að hann færi þaðan til Kaíró
áður en hann færi til Jerúsalem.
Hann verður fyrsti Arabaleiðtog-
inn sem stígur fæti á israelskt
land siðan riki Gyðinga var stofn-
að fyrir 29 árum.
Begin forsætisráðherra sagði að
sérstök egypzk flugvél kæmi til
ísraels á morgun beint frá Kairó
með tugi egypzkra embættis-
manna. „Þeim verður tekið sem
gestum. Þeir koma með egypzka
fána. Það verða kærkomnar
gjafir," sagði Begin.
Hann sagði að Sadat mundi
dveljast á King David-hóteli i
Jerúsalem sem stuðningsmenn
Begins sprengdu upp 1947 þegar
hann var leiðtogi hryðjuverka-
manna. Sadat vill biðjast fyrir i
Al-Aqsa-moskunni á sunnudags-
morgun og siðan mun hann fara
að minnismerki sex milljóna
Gyðinga sem var útrýmt í siðari
heimsstyrjöldinni.
Thatcher
fram úr
London,
17. nóvember. Reuter.
ÍHALDSFLOKKUR frú
Margaret Thatchers hefur
3'/i% meira fylgi en Verka-
mannaflokkurinn samkvæmt
skoðanakönnun Gallups er
birtist i dag í Daily Telegraph.
Samkvæmt könnuninni
styðja 4514% landsmanna
íhaldsflokkinn, 42% Verka-
mannaflokkinn, 8!4% Frjáls-
lyndaflokkinn og 4% aðra
flokka.
Stóru flokkarnir voru hníf-
jafnir i síðasta mánuði sam-
kvæmt skoðanakönnin Gallups
þá og nutu stuðnings 45%
kjósenda hvor.
Þriðjungur þeirra sem voru
spurðir töldu verðbólgu mesta
vandann. í siðasta mánuði
höfðu flestir áhyggjur af verð-
bólgu, siðan atvinnuleysi og
loks verkföllum.
Ferd Sadats talin geta
valdið klofningi Araba
Amman, 17. nóvemher. Reuler. AP.
Stl ákvörðun Anwar Sadats
Eygptalandsforseta að fara til
Israels þrátt fyrir mótstöðu Sýr-
lendinga virðist ætla að hafa í för
með sér nýjan og stórfelldan
klofning í röðum Araba.
Ekki einn einasti Arabaleiðtogi
hefur lýst yfir stuðningi við
heimsóknina og erlendur stjórn-
arfulltrúi í Jórdaníu hefur sagt
að hún sé mesta áhættan sem
Sadat hafi tekið á ferli sínum.
Hvorki Sadat né Hafez Al-
Olíustefnu Irans-
keisara fagnað
Paris, 17. nóvember. Reuter. AP.
IRANSKEISARI staðfesti I við-
ræðum við Valery Giscard d’Est-
aing Frakklandsforseta í dag að
hann mundi beita sér fyrir
óbreyttu oliuverði á fundi Sam-
Veiði Breta við
Færeyjar skert
Frá fréllaritara Morgunblaðsins,
Þórshöfn í Fœreyjum í gær.
LANDSSTJÖRNIN f Færeyjum
hefur ákveðið að fyrirskipa nýjar
takmarkanir á veiðum brezkra
togara við Færeyjar þar sem Bret-
ar hafa bannað spærlingsveiðar
Færeyinga frá og með 1. nóvem-
ber.
Veiðitakmarkanir Færeyinga
gilda frá og með miðnætti
miðvikudags og þar til samn-
ingurinn við Efnahagsbandalagið
rennur út 1. janúar.
Hingað til hefur Bretum verið
bannað að veiða á svæði norður og
vestur af Færeyjum innan 20
mílna en þessi mörk verða nú
færð út í 24 milur.
A svæði vestur af Færeyjum
hafa brezkir togarar mátt veiða í
Framhald á bls 18.
olíuframleiðslurfkja
f Caracas í næsta mán-
taka
(OPEC)
uði.
Keisarinn hefur hingað til beitt
sér fyrir þvi að olíuverðið hækk-
aði, en lýsti því yfir fyrr i vikunni
að hann væri orðinn hlutlaus í
afstöðu sinni og áður en hann fór
frá Washington til Parisar sagði
hann að Carter forseti hefði sann-
fært sig um að honum bæri að
berjast gegn verðhækkun.
Stefnubreytingu Iranskeisara
var fagnað i Hvíta húsinu í dag og
Jody Powell blaðafulltrúi sagði að
það væru „gleðjlegar fréttir” að
hann hefði ákveðið að berjast
gegn hækkuðu olíuverði.
Powell sagði að Carter hefði
engu heitið keisaraanum í staðinn
fyrir yfirlýsingu hans um olíu-
verðið til að verða við beiðni hans
Framhald á bls 18.
Vinstrafylgi
dregst saman
í Frakklandi
Paris, 1 7. nóvember AP
FYLGI vmstriflokkanna í Frakklandi
hefur minnkað en þó hefur fylgi
hægri- og miðflokka ekki aukizt
samkvæmt skoðanakönnun sem
blaðið Figaro sagði frá i dag
Stjórnarflokkarnir hafa á bak við
sig 4 7% kjósenda og fylgi þeirra
hefur haldizt óbreytt siðan i sumar
Fylgi sósialista hefur minnkað úr
31% í september í 26%. Fylgí
kommúnista er 21% miðað við
20% i september
Figaro bendir á i grein að þing-
sæti rúmlega 100 þingmanna
stjórnarinnar séu i alvarlegri hættu
og að stjórnin mundi tapa meiri
hluta sinum ef hún missti aðeins
helming þessara þingsæta
Assad Sýrlandsforseti drógu dul á
ágreining sinn að loknum viðræð-
um í Damaskus í dag og Sadat
virðist ákveðinn í að taka þá
áhættu að Egyptar einangrist eins
og eftir októberstrfðið 1973 þegar
þeir sömdu við ísraelsmenn um
aðskilnað herja á Sinai-skaga.
Stjórnin i írak hefur kallað
heimsóknina hættulegt vixlspor
sem muni veikja Araba og sundra
þeim. Sýrlenzka stjórnin og
Baath-flokkurinn hafa skorað á
Araba að stemma stigu við þeirri
hættu sem muni stafa frá heim-
sókn Sadats og óbeint skorað á
egypzku þjóðina að berjast gegn
Sadat.
Formaður Palestínska þjóðar-
ráðsins, Khaled Al-Fahoum,
kveðst munu kalla ráðið saman til
skyndifundar um málið og segir
að heimsóknin muni reka fleyg á
milli Araba innbyrðis. Fjölmenn-
ustu skæruliðasamtök Palestínu-
leiðtogans Yasser Arafats for-
Franihald á bls 18.
Croissant líka
í Stammheim
Stuttgart, 17. nóvember.
Reuter.
KLAUS Croissant, fyrrverandi
lögfræðingur Baader-
Meinhofhópsins, var í dag fluttur
f Stammheim-fangelsi þar sem
þrír leiðtogar hreyfingarinnar
frömdu sjálfsmorð í síðasta mán-
uði.
Hann sagði frönskum stuðn-
ingsmönnum sfnum áður en hann
var framseldur f gærkvöldi að ef
hann létist í vestur-þýzku fang-
elsi yrði það vegna þess að hann
yrði myrtur, ekki vegna þess að
hann fremdi sjálfsmorð.
Croissant sendi Iögfræðingi sin-
um í París bréf þar sem hann
sagðist ekki mundu frernja sjálfs-
morð eða taka þá áhættu að verða
skotinn á flótta.
Málaferli gegn Croissant hefjast
líklega ekki fyrr en eftir að
Framhald á bls 18.