Morgunblaðið - 18.11.1977, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.11.1977, Blaðsíða 16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. NÖVEMBER 1977 plfrgai Utgefandi ttWfkfeifr hf. Árvakur. Reykjavik. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen. Styrmir Gunnarsson. R itstjómarf ulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fróttastjóri Bjöm Jóhannsson. Auglýsingastjóri Ámi GarSar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla ASalstræti 6. simi 10100. Auglýsingar ASalstræti 6, simi 22480. Áskriftargjald 1500.00 kr. í mánuSi innanlands. t lausasölu 80.000 kr. eintakiS. 16 r Aviðskiptaþingi, sem Verzl- unarráð Islands efndi til fyrir skömmu, var sérstaklega fjallað um ástand og horfur í fslenzkum fjármálum og er það út af fyrir sig ekkert nýtt að það efni komi til umræðu manna á meðal. Hitt er óvenjulegra, að fram komi vel undirbúnar, athyglisverðar til- lögur til þess að ráða bót á þvf, sem afiaga fer og stuðla þar með að nýsköpun fslenzkra fjármála, en um slfka nýsköpun fjallaði þetta viðskiptaþing. t ályktun, sem þingið sendi frá sér, er fyrst vakin athygli á nokkrum óum- deilanlegum staðreyndum um ástandið f fjármálum fslenzku þjóðarinnar eins og það er í dag. Bent er á, að ef tslendingar spöruðu svipað hlutfall tekna sinna og var á árunum 1960—’64 mundu inneignir landsmanna f bankakerfinu nema 55 milljörðum króna hærri fjárhæð sem nú er, en það samsvarar um einni milljón króna : hverja fjögurra manna fjölskyldu f landinu. Athygli er vakin á þvf, að eigið fé f járfestingarsjóða landsmanna hefur rýrnað um 20% árlega á síðustu þremur árum og frekari 10% rýrnun sé fyrirsjáanleg á þessu ári. Vakin er athygli á þvf, að framlög til lífeyrissjóða, sem nema um 10% af launum starfsmanna, eyðast f verðbólgunni og hætta sé á, að lífeyrissjóðirnir geti ekki staðið við raunhæfar greiðslur lífeyris til félagsmanna sinna, þegar þar að kemur. Sagt er, að fjárfesting okkar, sem hefur numið allt að þriðjungi af þjóðartekjum, skili aðeins hálfum arði f samanburði við aðrar þjóðir, og ef við næðum sama arði af fjárfestingu og Bandarfkjamenn gætum við dregið úr henni um helming og aukið einkaneyzlu um fjórðung. Fullyrt er, að Iffskjör hér væru nú um fjórðungi betri, ef engin verðbólga hefði ríkt f landinu sl. 25 ár. Viðskiptaþing leggur fram ákveðnar tillögur til umbóta á þessu ástandi og eru þær m.a. í þvf fólgnar, að gjaldeyrisverzlun- in verði gefin frjáls samhliða raunhæfri gengisskráningu, þannig að öllum landsmönnum verði heimilt að eiga, kaupa og selja erlendan gjaldeyri þegar þeir óska. Ennfremur er lagt til, að lánastofnunum og fyrirtækj- um verði heimilað að bjóða almenningi raunhæfa vexti af lánum með eða án vfsitölu- bindingar og að Iffeyrisjóðum verði heimiluð raunhæf vfsitölu- binding útlána og bent á, að þá gætu þeir lánað sjóðfélögum mestan hluta byggingarkostnaðar til langs tfma og greitt eðlilegan Iffeyri þegar þar að kemur. Þá leggur viðskiptaþing til, að skattalögum verði breytt til að eyða áhrifum verðbólgunnar á atvinnulffið og til að láns- og áhættufé Ieiti f auknum mæli f atvinnulffið, að aðgangur atvinnulffsins að erlendu fjár- magni verði rýmkaður eftir almennum reglum án mismunun- ar milli fyrirtækja og atvinnu- vega og að aðgerðum verði beitt f peningamálum og fjármálum hins opinbera til að vinna bug á verðbólgunni. Loks leggur viðskiptaþing til, að afnumin verði mismunun milli atvinnu- vega og létt verði höftum af at- vinnulffinu, þannig að innlend atvinnustarfsemi búi við svipuð starfsskilyrði og keppinautar okkar erlendis. Umræður á viðskiptaþingi og þær tillögur, sem þar voru sam- þykktar að lokum, beindust mjög að því að auka frelsi á þeim sviðum athafna og viðskiptalffs, þar sem höft eru enn við lýði. Þegar stefnan í vaxtamálum hefur verið til umræðu hefur oft komið fram það sjónarmið hjá talsmönnum atvinnuveganna, að atvinnufyrirtækin gætu ekki greitt hærri vexti og að vaxta- byrðin í dag væri f raun of mikil fyrir atvinnufyrirtækin. En um- ræður á viðskiptaþingi og tillögu- gerð þess leiddi f Ijós, að sjónar- mið atvinnuveganna eru nú mjög breytt f þessum efnum og sú skoðun var nokkuð almennt látin f ljós, að f þvf væri fólginn meiri sparnaður fyrir atvinnurekstur- inn að eiga greiðan aðgang að fjármagni, þótt vextir væru háir, heldur en að búa við þau lánsfjár- höft, sem nú eru við lýði, enda þótt vextir væru lægri við þær aðstæður. Þetta er mjög mikilvæg stefnubreyting hjá talsmönnum atvinnuveganna vegna þess, að hún þýðir, að samstaða á að geta tekizt um þá stefnu að frelsi rfki á peningamarkaðinum, sem annars staðar í viðskiptalffinu, sem væntanlega mundi þýða nokkru hærri vexti en um leið yrði það hvatning fyrir sparifjár- eigendur til þess að ávaxta fé sitt með öðrum hætti en nú tfðkast, þannig að meira sparifé yrði til f landinu og þar með greiðari aðgangur atvinnufyrirtækjanna að lánsfé til rekstrar. Það er sam- eiginlegt hagsmunamál sparifjár- eigenda og atvinnuveganna, að vextir séu það háir, að sparifjár- eigendur hijóti eðlilegan arð af fjármagni sínu og að atvinnu- vegirnir geti gengið að fjármagn- inu nokkuð vísu. Oft er Ifka talað um það, að háir vextir mundu gera ungu fólki erfitt með að eignast þak yfir höfuðið, en viðskiptaþing bendir réttilega á, að raunhæf vfsitölu- binding útlána á að skapa grund- völl til miklu vfðtækari lánveit- inga til húsbyggjenda til lengri tfma. Það er þvf sama, hvort litið er á vaxtamálin frá sjónarmiði sparifjáreigenda, atvinnu- veganna eða húsbyggjenda, öllum er f raun f hag að frjálsræði rfki á peningamarkaðinum, að ávöxtun sparifjár verði með eðlilegum hætti og að nægilegt lánsfjár- magn sé fyrir hendi. Þær breytingar f vaxtamálum, sem Seðlabankinn beitti sér fyrir sl. sumar, stefna f þessa átt, enda þótt skrefið háfi ekki verið stigið til fulls. Tillögur viðskiptaþings um aukið frelsi f gjaldeyris- verzlun eru einnig í samræmi við þá stefnu, sem ríkisstjórnin hefur boðað. Upplýst hefur verið, að unnið er að tillögugerð um, rýmkun á gjaldeyrisreglum. Það er fyrst og fremst í þágu almennings f landinu. Þá er þriðji þáttur þeirrar haftastefnu, sem enn er við lýði ótalin, en það eru verðlagshöftin. Eins og margsinnis hefur verið rakið í Morgunblaðinu að undan- förnu er alveg ljóst, að verðlags- höft eru fyrst og fremst neytend- um f óhag. Umræður um frelsi í verðlagsmálum eiga ekki að bein- ast að þvf að slíkt frelsi sé nauðsynlegt fyrst og fremst vegna verzlunarstéttarinnar, heldur er það nauðsynlegt vegna hagsmuna almennings í landinu. Sú verðsamkeppni, sem nú þegar er fyrir hendi í verzluninni hefur sýnt og sannað, að verzlunarstétt- inni er treystandi fyrir slfku frelsi og að það stuðlar að lægra vöruverði f raun, um leið og það er Ifklegt til þess að bæta hag verzlunarinnar. Svo almennur vilji er nú fyrir því, að afnema þau höft, sem rfkja á peninga- markaðinum, í gjaldeyrismálum og í verðlagsmálum, að full ástæða er til þess fyrir ríkis- stjórnina að beita sér fyrir auknu frjálsræði á þessum sviðum. Teflir við tíu andstæðinga blindandi HELGI Ólafsson skák- meistari kemur austur um helgina og teflir fjöltefli. M.a. teflir Helgi blindandi við tíu andstæðinga sam- tímis, en það mun vera Islandsmet í blindskák. Fyrsta fjölteflið verður á Eskifirði föstudaginn 18. nóvember. Teflt verður í skólanum og hefst taflið kl. 20.30. Laugardaginn 19. nóvember teflir Helgi klukkufjöltefli á Norðfirði. Teflt verður í barnaskólan- um og hefst taflið kl. 2. Sunnudaginn 20. nóvem- ber teflir Helgi blindskák við tíu andstæðinga sam- tímis í skólanum á Fáskrúðsfirði og hefst tafl- ið kl. 3. Mánudaginn 21. nóvember teflir Helgi aftur blindandi við tíu and- stæðinga og nú i Eiðaskóla. Þriðjudaginn 22. nóvember teflir Helgi fjöl- tefli í skólanum á Egils- stöðum og hefst taflið kl. 1 30 ——— Þakkir frá Tjalda- nesheimilinu F.h. vistpilta í Tjaldanesi leyfi ég mér að færa Hilmari Garðars, forstjóra Gamla biós, beztu þakkir fyrir boð á kvikmynda- sýningu þ. 11. þ.m. Ég vil nota tækifærið og segja frá því hér, að forstjóri Garnla biós hefur undanfarin átta ár gert piltunum hér glaðan dag nokkrum sinnum á ári á þennan hátt. Þessi hugulsemi hans er til fyrirmyndar. Forstöðumaður. Sigurlaug Bjarnadóttir, alþm.: „Við ættum að vera þar fleiri” (Kveðið á Kvennaári 1975 — á Lækjartorgi „Þvi sé það I dag okkar áminning að ætla hlut okkar meiri. Fly kkjumst því konur sem flestar á þing þar fámenni okkar er óvirðing. Við ættum að vera þar fleiri.“ Prófkjör stjórnmála- flokkanna hafa að undan- förnu verið áberandi þáttur í almennri um- ræðu hér á landi. Sjálf- stæðisflokkurinn varð fyrstur íslenzkra stjórn- málaflokka til að taka upp prófkjör og var það í beinu samræmi við lýð- ræðislegar hugsjónir flokksins um aukið frjáls- ræði og aukna möguleika hins almenna kjósanda til að hafa áhrif á val manna til framboðs. Það varðar öllu, að hér sé að málum staðið með drengilegum og málefna- legum hætti. Landssamband sjálf- stæðiskvenna vill fyrir sitt leyti stuðla að því, að vel megi til takast við framkvæmd prófkjöra við tvennar almennar kosningar — til Alþingis og sveitarstjórna, sem framundan eru. Það vill að sjálfsögðu leggja áherzlu á, að hlutur kvenna í framboðum verði með eðlilegum hætti — og stórlega auk- inn frá því, er verið hefir hingað til. Hefir sam- bandið skrifað öllum kjördæmisráðum og kjör- nefndum flokksins til hvatningar í þá átt. Þar var og skírskotað til kvenna sjálfra — að þær létu ekki á sér standa, er til þeirra væri leitað um Sigurlaug Bjarnadóttir framboð og á það bent, að það samrýmdist ekki nú- tíma viðhorfum, að kon- ur stæðu utangarðs í jafnmiklum mæli og hingað til við umfjöllun og ákvarðanir í íslenzk- um þjóðmálum. Um næstu helgi fer fram prófkjör Sjálf- stæðisflokksins til al- þingiskosninga hér í okk- ar höfuðborg, stærsta kjördami landsins. í kjöri eru 43 frambjóðendur, þar af 10 konur eða ná- lægt einum fjórða hluta. Hefir þátttaka kvenna í prófkjöri aldrei verið jafnmikil áður og er það fagnaðarefni. í dag á Sjálfstæðisflokkurinn átta menn á Alþingi fyrir Reykjavík, þar á meðal aðeins eina konu. Minnt skal á, að við prófkjör árið 1971 náðu tvær kon- ur kjöri með glæsibrag og sú þriðja í næst efsta varamannssæti. Það er þvi ærin ástæða til að hvetja Reykvíkinga nú til að herða sóknina fyrir auknum hlut kvenna í þingliði Reykvíkinga. Við verðum að ná upp þvi, sem tapazt hefir — og meira en það. Skal þá ekki hvað sízt heitið á reykvískar konur að fylkja sér um þær ágætu konur sem í framboði eru í prófkjörinu nú. Þær eru þar ekki „upp á punt“. Þær hafa að sjálfsögðu menntun, áhuga og hæfni, fyllilega til jafns við karlana, sem i kjöri eru, til að vinna að al- mennum málum á Al- þingi. Við eigum í dag þrjár konur á þingi — af 60 alþingismönnum eða ein 5% — Á norska þjóð- þinginu er hlutfall kvenna 25%. Við eigum langt í land til að ná því marki. Þeim mun meiri ástæða er til að herða róðurinn nú. Sigurlaug BjarnadAttir. forniaður I.andssamhands sjálfstædiskvcnna. Nýsköpun íslenzkra fjármála

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.