Morgunblaðið - 18.11.1977, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 18.11.1977, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1977 11 BANKASTRATI 14275 fLllEL! 50 O sS 50. 48 II LAUGAVEGUR 3i-21599 FLAUELSMUSSUR MARGIR LITIR MARGAR GERÐIR byggingamaður, en er sölumaður að atvinnu, býr í Kópavogi, Gylfi, fulltrúi hjá Flugleiðum, býr i Hafnarfirði, og Hildigunnur, simamær, býr í Reykjavík. Þau Adolf og Helga eiga marga vini. Þau eiga vel búið heimili; þar hefur jafnan verið gestkvæmt og það er ánægjulegt að heim- sækja þau. Við hjónin óskum þeim hjartanlega til hamingju með þessi merku tímamót i lifi húsbóndans, og óskum þeim alls góðs i framtíðinni. B.G. mikill að færinu gat hann gefið nokkurn tíma. Strax og togaraútgerð hófst á Patreksfirði upp úr 1920 fór hann háseti á togara og var þar mjög liðtækur maður. Hann fór á Loftskeytaskólann í Reykjavík og tók þaðan próf, og gerðist síðan loftskeytamaður, sem varð hans aðalstarf. Jóhann Pétursson var fyrsti togaraskipstjóri hjá Verslun Ó. Jóhannesson á Patreksfirði, sem rak togaraútgerðina, og með hon- um byrjaði Adolf sína veru á tog- urum. Eftir það sigldi Adolf með Jóhanni, fyrst sem háseti og siðan loftskeytamaður öll þau ár, sem Jóhann var skipstjóri frá Patreks- firði. Samstarf þeirra var mjög gott og þeir mátu hvor annan mik- ils. Þegar Adolf hætti sjómennsku lagði hann fyrir sig verzlunar- störf. Hann rak á timabili mat- vöruverslun á Patreksfirði í sam- eign með svila sínum Gísla Bjarnasyni. En eftir að hann fluttist til Reykjavíkur vann hann um tíma í versluninni Kjöt og fiskur, en siðan hefur hann unnið i mörg ár sem afgreiðslumaður hjá J. Þorláksson og Norðmann. Adolf er mikið ljúfmenni í allri framkomu, jafnan glaður í vina- hópi. Hann kann vel að taka þátt í gleðskap, enda þótt hann sé alger reglumaður á vin. Hins vegar kann hann vel að taka tappa úr flösku og veita öðrum. Hrókurinn kominn út „HRÓKURINN", fréttablað Tafl- félags Reykjavfkur, er nýkominn út og er hér um að ræða 1. tölu- blað 4. árgangs. Blaðið er mjög stórt og vandað, alls 108 blaðsíður, og er í þvi fjöldi greina og mynda. Segir í blaðinu frá helztu skákviðburðum síðuslu missera. Ólafur H. Ólafs- son er ritstjóri blaðsins. Á forsíðu Hróksins er litmynd af hinum nýja heimsmeistara unglinga í skák, Jóni L. Arnasyni, en hann er einmitt félagi í Taflfélagi Reykjavíkur. Sjötugur: Adolf Hallgrímsson Aðalfundur Landssam- bands stangveiðifélaga LANDSSAMBAND stangveiðifél- aga hélt sinn 27. aðalfund um s.l. helgi í Borgarnesi. Alls sátu átta- tíu fulltrúar frá 29 aðildarfélög- um fundinn. Fundurinn hófst á því að fundarmenn minntust Friðriks Þórðarsonar forstjóra úr Borgarnesi, eins stofnanda sam- bandsins, en hann sat i stjórn sambandsins í 19 ár. Karl Ómar Jónsson var einróma endurkjörinn formaður en aðrir í stjórn voru kosnir Jón Hjartar- son, Friðrik Sigfússon, Bergur Arnbjörnsson, Birgir J. Jóhanns- son, Sicgurður I. Sigurðsson, Rós- ar Eggertsson og Matthias Einars- son. I dag er Adolf Hallgrímsson loftskeytamaður sjötugur. Hann er fæddur á Vatneyri vió Patreks- fjörð 18. nóv. 1907. Foreldrar hans voru Hallgrimur Guðmunds- son, forstöðumaður járnsmíða- verkstæðisins á Vatneyri, ættaður úr Biskupstungum, og kona hans Halldóra Guðbrandsdóttir frá Patreksfirði. Adolf fór snemma að vinna fyr- ir sér. Að loknu barnaskólanámi við fermingaraldur byrjaði hann að stunda sjóróðra á opnum vél- bátum og síðan á minni þilskip- um. Hann var matsveinn á 9 smá- lesta bát á handfæraveiðum, þar sem var 10 manna áhöfn, og leysti það starf vel af hendi, enda þótt dugnaðurinn og ákafinn væri það Eiginkona Adolfs er Helga Guð- mundsdóttir, Þórðarsonar frá Patreksfirði. Þau eignuðust fimm mannvæn- leg börn, þrjá syni og tvær dætur. Einn sonanna og aðra dótturina misstu þau börn að aldri, en hin eru: Hilmar lærður bifreiðayfir-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.