Morgunblaðið - 18.11.1977, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 18.11.1977, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. NÖVEMBER 1977 13 Handgerðir lampar úr ekta Capiz Á 2 Overlock saumar 2 Teygjusaumar Beinn SAUMUR □ Zi9 Za9 0] Hraðstopp (3ja þrepa zig-zag) Q Blindfaldur ] Sjálfvirkur hnappagatasaumur ! Faldsaumur Tölufótur i Útsaumur j Skeljasaumur "] Fjölbreytt úrval fóta og stýringar fylgja vélinni ÁRMÚLA 23, R SÍMI: 81733 Áttræður í dag: Lýður Guðmundsson hrepp- stjóri Litlu-Sandvík í Flóa Suöurlandsundirlendið er sam- felldasta gróöurlendi á íslandi. Þar hefur um aldir verið blómleg- ur búskapur. I Flóanum stóð vagga stærstu verklegra fram- kvæmda á íslandi, áður en vélræn tækni líðandi stundar kom til sög- unnar. Þar hefur lika verið gjör- andi félagslegra hrifa á Suður- landi um langt skeið. Þessa minn- ist ég hér, sökum þess, að Lýður Guðmundsson og áar hans, hafa þar staðið í fylkingarbrjósti um langt skeið, og verið i brautryðj- endastarfi i mörgum þeim mál- um, sem til mestra heilla og fram- fara hafa horft. Frægustu býlin í grennd ölfus- ár í Sandvíkurhreppi niður með ánni, eru Kaldaðarnes og Sand- víkurbæirnir. Nöfn þessara bæja eru runnin af nágrenni árinnar, en nafnið Sandvík minnir mjög á vestrænan uppruna, forsöguleg- an. Það ber í sér minni þeirrar sögu, er Islendingum Var meinað að varðveita, en Sunnlendingar hafa nokkur minni um í varð- veizlu óbeinna sögulegra raka. í Litlu Sandvik í Sandvíkur- hreppi hefur búið sama ættin að langfeðgatali á aðra öld. Það er faðir Lýðs og afi. Nú er sonur hans tekin við búinu að nokkru. Lýður Guðmundsson hrepp- stjori er fæddur í Litlu Sandvik 18. nóvember 1897. Foreldrar hans voru: Guðmundur hrepp- stjóri þar Þorvarðarson hrepp- stjóra Guðmundssonar, og Sigrið- ur Lýðsdóttir hreppstjóra i Hlið í Gnjúpverjahreppi Guðmundsson- ar. Þessar ættir eru alkunnar og því óþarft að reka þær hér. Lýður hreppstjori i Litlu Sand- vík fór i Bændaskólann á Hvann- eyri og útskrfiaðist þaðan árið 1923. Næstu árin van hann heima á búi föður síns og stundaði einn- ig vörubílaakstur um stund, aðal- lega til Reykjavikur. Hann tók við föðurleyfð sinni árið 1937 og hef- ur búið þar síðan. Hann var hreppstjóri í Sandvíkurhreppi ár- ið 1939, og oddviti sveitar sinnar árið 1946 og sýslunefndarmaður sama ár. Magnús sýslumaður Torfason, nefndi þá menn er höfðu þessar trúnaðarstöður á hendi i senn, þristjóra og þótti honum slíkir vera miklir virð- ingarmenn. Lýður í Sandvík hefur gegnt mörgum fleiri störfum fyrir sveit sína, hérað og sýslu. Hann var fyrsti formaður Nautgriparæktar- sambands Arnessýslu og árið 1960 varð hann formaður Flóaáveitu- félagsins. Flóamenn hafa löngum verið frægir fyrir gott kúakyn, og eru til þess margar sögur að svo varð, jafnt þjóðsögur og kunnátta i kynbót af raun og ætlun fram- sýnna manna. I Sandvíkurhreppi varð þetta af raun framsýns em- bættismanns, Sigurðar Ólafssonar sýslumanns í Kaldaðarnesi, og hefur orðið i framkvæmd bænd- anna á yfirstandandi öld ríkt til nytja. Sagan er þarna skýr í rök- um, en óljós í vitund og vilja sumra. Lýður Guðmundsson kvæntist 20. maí 1933 Aldisi Pálsdóttur hreppstjóra í Hlíð, Lýðssonar. Þau eru systkinabörn. Ég hef þekkt Lýð í Litlu Sand- vík frá þvi ég var barn, þó kunn- ingsskapur hafi aldrei verið mjög mikill. En hinsvegar hefur vin- átta verið milli heimila okkar i nokkra ættliði, og staðið föstum rótum, jafnt skoðanalega, hug- sjónalega, en þó fyrst og fremst i framkvæmd félagsmála í hérað- inu. Það hefur verið staðreynd um aldir, að Flóamenn hafa staðið óvenjulega vel saman um félags- mál sin innan sýslu, og mótað þau og fest meira en aðrir sýslubúar. Þetta er þýðingarmikið i raun hinnar miklu sögu, á rök sín í fyrstu heimildum í félagsskipun í landinu. Það er i hreppaskipulag- inu, En tveir af fjórum elztu hreppum landsins, voru Kaldnes- ingahreppur nú Sandvíku’rhrepp- ur og Hraungerðishreppur. Fjall- skil og fjallferðir urðu undirstaða þessara félagsmála, ásamt fátækraframfærslunni, en þau fyrrnefndu eru elztu félagsmál, sem rekja má samfleytt gegnum söguna. Guðmundur í Sandvík, faðir Lýðs var mikill bóndi framsýnn og mikill fjárgæzlumaður. Hann reisti eitt fyrsta steinhús og nú- tímalegri gerð í árneskri sveit, og í það var fyrst lögð miðstöðvarhit- un í sveit i Flóa. Hann var ræktunarmaður góður og fylgdi • hugsjónum Sigurðar Ölafssonar sýslumanns í Kaldaðarnesi i bar- áttunni fyrir auknum fram- kvæmdum í landbúnaði í hverju sem var. Myndarskapur var mikill í Sandvík um hans daga, og á stundum var vitnað til hans í fjar- lægum sveitum, þegar rætt var um afburðabónda í Flóanum. Lýður Guðmundsson og Aldis Pálsdóttir, kona hans, hafa haldið uppi fullri reisn forfeðranna, jafnt í búskap og myndarskap. Þau hafa fylgt köllun líðandi stundar i fullri vitund breyttra tíma og nýrra hátta. Vélmenning nútímans varð þar í túni til vegs og auðs. Þegar fyrst var lagt raf- magn í þorp og kaupsstaði í Flóanum, var það lagt að Sandvík, og var að því unnið að venjulegri framsýni bændanna þar, og vakti athygli annara bænda og jafn- framt eftirvæntingu að fá notið þess sama. Lýður Guðmundsson kaus sér ungur lífsstarf, starf bóndans. Hann hóf búskap á miklum ör- lagatímum í sögu sunnlenzks landbúnaðar. Bændurnir þar höfðu byggt upp skipuiag fram- leiðslumála sinna af ríkum anda hugsjóna og vilja framsýnustu mannanna í Flóanum. Fram- kvæmdirnar voru að bera ávöxt. Flóaáveitan hafði þegar gert mik- ið gagn. Lýður var hrifinn af framkvæmdum hennar, og því sem sigldi i kjölfar hennar í fram- kvæmdum landbúnaðarmálanna í Flóanum. Árið 1929 reistu Flóa- menn stærsta mjólkurbú á Norðurlöndum, Mjólkurbú Flóa- Framhald á bls. 23 ROSV'V hh USUmU Hamraborg 3, Kópavogi, sími 42011 ÞARFTU AÐ KAUPA? ÆTLARÐU AÐ SELJA? l>l AIGLYSIH l M ALLT LAND ÞEGAR Þl' AIGLYSIR I MORGLNBLAÐINL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.