Morgunblaðið - 18.11.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1977
3
SLÁTURFÉLAG Suðurlands í Austurveri opnar f dag nýja deild sem
hefur verið nefnd Sparimarkaðurinn. Jóhannes Jónsson verzlunar-
stjóri sagði að opnun þessa Sparimarkaðar markaði tfmamót í verzlun-
arháttum 1 Reykjavík þar sem gengið væri lengra til móts við
neytendur er vilja kaupa til heimila sinna f stórum einingum og eiga
með þvf kost á lægra vöruverði en dæmi eru til um áður.
Sparimarkaðurinn er til húsa í sparnaðar. I fyrsta lagi að kaupa
500 fermetra húsnæði á jarðhæð
Austurvers, verzlunarmiðstöð
sem hafin var bygging á fyrir 11
árum og er nú verið að taka í
notkun siðari áfanga hennar.
Sunnan við háhýsið eru bílastæði
fyrir 130 bíla og inngangur frá
Háaleitisbraut. Jóhanncs Jónsson
i) SPARIMflRKAÐURINN flUSTURVERI
Leyfiiegtverö
okkarverö 103 okkar verö.kassi 1 ó 48
mikið magn vara og fá magnaf-
slátt þann sem í hoði væri og í
öðru lagi að með þvi að kaupa svo
mikið í einu tryggðu kaupendur
sér að þurfa ekki að lenda i verð-
hækkunum sem yrðu meðan
birgðir þeirra entust.
Að lokum sagði Jóhannes Jóns-
son að lagt hefði verið kapp á að
gera húsnæði markaðarins bjart
og vistlegt og fyrir ávexti og land-
búnaðarvörur væri sérstakur
kæliklefi, sem viðskiptavinir yrðu
aö fara inni til að velja vörurnar.
Vöruvagna er siðan hægt að keyra
út á bílastæði fyrir sunnan verzl-
unarhúsnæðið.
Sparimarkaður-
inn — ný deild
SS 1 Austurveri
Þannig eru vörurnar merktar:
annars vegar einingarverð Spari-
markaðarins og heildarverð ein-
ingarinnar og hins vegar leyft
verð.
sagði að Sparimarkaðurinn væri i
raun vörulager stórmarkaðar SS i
Austurveri árdegis og til kl. 2
eftir hádegi en þá yrði hann opn-
aður almenningi og allar vörur
þar fáanlegar í stórum einingum
og heilum kössum. Sagði Jóhann-
es að verzlun SS í Austurveri
hefði viðskipti við allar heild-
verzlanir sem verzluðu með mat-
vörur, birgðastöð SÍS og allar
þjónustustöðvar matvælaiðnaðar-
ins og matvælaframleiðslunnar
og aðra sem verzluðu með nauð-
synjavörur til heimilishalds. Væri
því Sparimarkaöurinn eins konar
miðstöð allra heildverzlana og
eins konar heildsölutorg sem opið
væri almenningi.
Um almenna álagningu Spari-
markaðarins er það að segja að
hún er 15% með frávikum í báðar
áttir. Allar niðursuðuvörur fást
með 15% álagningu i stað 41%
álagningar, ávextir i kössum fást
með 15% álagningu í stað 51% og
ávextir í 5 kg pokum með 20% i
stað 51% álagningar. Þá fást ostar
og smjör á sama verði og er í Osta-
og smjörsölunni. Kjöt er í sér-
stöku frystiborði, heilir skrokkar
niðursagaðir á ýmsan máta. Það
er nýlunda að sögn verzlunar-
stjórans að hægt sé að kaupa gos-
drykki með afsláttarverði en af-
slátturinn er 7% séu keyptir heil-
ir kassar og afsláttur er á tóbaki
3% er keypt er i kartonum.
Jóhannes Jónsson sagði að
Sparimarkaöurinn veitti eigin-
lega tvenns konar tækifæri til
Hver sá slysið
á Kleppsvegi?
Þú notarhendumarekki bara
í uppþvottinn
Starfsfólk Sparimarkaðarins frá vinstri: Bjarni Sigurðsson, Jóhannes Jónsson, verzlunarstjóri SS,
Gunnar Hannesson og Guðný Guðmundsdóttir. Ljósm. RAX.
MANUDAGINN 26. september sl.
klukkan 9.20 kom gömul kona
upp í strætisvagn á Kleppsvegi
■nóts við hús númer 24. Spurði
hún hílstjórann spurningar, en
fór ekki með vagninum og ók
hann á brott.
Gamla konan datt, að þvi er hún
telur vegna þess að vagninn fór of
fljótt af stað. Strætisvagnstjórinn
man ekki eftir þessum atburði, en
rétt eftir að hann gerðist bar að
mann á jeppabfl að því er gamla
konan telur og einnig konu og
veittu þau gömlu konunni aðstoð,
en hún hafði lærbrotnað við fall-
ið. Nauðsynlegt er fyrir slysa-
rannsóknadeild lögreglunnar að
ná tali af þessu fólki, og er það
beðið að gefa sig fram við lögregl-
una.
...svo það er eins gott að fara vel
með þær. Nýi Palmolive uppþvotta-
lögurinn varnar því að húðin
þorni og gerir hendurnar fallegri
og mýkri í hverjum uppþvotti.
Taktu eftir hvernig þú notar hendurnar. Þú tjáir
með þeim tilfmningar þínar, sorg og gleði. Farðu
þess vegna vel með þær.
I nýja Palmolive uppþvottaleginum er protein,
sem verndar húðina og gerir hendurnar fallegri og
mýkri í hvert skipti, sem þú þværð upp.
Nýi Palmolive uppþvottalögurinn er mjög
drjúgur, aðeins nokkrir dropar og diskarnir verða
skínandi hreinir.
Nýi Palmolive uppþvottalögurinn með protein.