Morgunblaðið - 18.11.1977, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 18.11.1977, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1977 29 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL 10 — 11 FRÁ MANUDEGI ^ MUJAm&raia'ú n Þessir hringdu . . . 0 Hvaða Breiðholts- ævintýri? Breiðholtsbúi hringdi og vildi bera fram eftirfarandi spurningu til Sigrúnar Stefáns- dóttur fréttamanns sjónvarpsins: — I sjónvarpsfréttum miðviku- dagskvöldið 16. nóvember birtist fréttaviðtal, sem þú áttir á Akur- eyri. Þar var spurt um nýja byggð á Akureyri og viðmælandinn spurður m.a. hvort þarna væri á ferðinni nýtt Breiðholtsævintýri. Ég hef búið í Breiðholti í fjölda ára og ég hef kunnað vel við mig hér. Ég kannast ekki við neitt ,,Breiðholtsævintýri“ og því bið ég þig, Sigrún Stefánsdóttir, að segja mér og öðrum íbúum Breið- holts hvað þú meintir með þessu orði. Þessari fyrirspurn er hér með komið á framfæri og ef henni verður svarað skal það að sjálf- sögðu birt. % Þjóðverjar Asgeir Guðmundsson, iðn- skólakennari: „Hinn 17. nóv. sl. ræðir frú Hildegard Þórhallsson um sjón- varpsmynd af glæpaverkum naz- ista í síðari heimsstyrjöldinni. Ég er fæddur 1912 og man því árin fyrir stríð og stríðsárin vel. Geri ég mér e.t.v. betri grein fyrir ýmsu en þeir er ekki muna það. Þetta stríð tilheyrir nú mann- kynssögunni eins og heims- styrjöldin fyrri. Finnst mér að þannig ættu ráðamenn sjónvarps- ins að líta á málin. Ef þeim þykir heppilegur þáttur og vænlegur til góðs að rifja upp slíka atburði er af nógu að taka úr mannkynssög- unni. Væru ógeðslegustu þættir hennar sýndir myndi það skýrast fyrir fólki að þetta er nazistar gerðu í síðari heimsstyrjöldinni er aðeins einn þáttur úr löngum glæpalista annarra þjóða hverra SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson A vetrarmóti Skákfélagsins Mjölnis í Reykjavík, sem nú stendur yfir, kom þessi staða upp í B flokki í skák þeirra Axels Þorkelssonar, sem hafði hvitt og átti leik, og Arna Árnasonar: afkomendur þykja nú ekki verra fólk en aðrir. Ekki skulum við heldur gleyma því að frá því svæði er nú nefnist: Þýzkaland en var raunar áður miklu stærra, hafa komið hinir mestu tónlistarmenn, andans menn og hugsuðir veraldar. Ekki get ég látið hjá liða að minnast þess fólks þýzks er flutti hingað að stríðinu loknu. Dugnað og sparsemi hafði það með sér. Ég kynntist nokkrum fjölskyldum þýzkum. Flest mun þetta fólk nú dáið, en afkomendur þess munu ekki hafa reynzt síðri Islendingar en afkomendur okkar. Ef einhver minna gömlu kunningja les þess- ar línur eða afkomendur þeirra sendi ég þeirn minar beztu kveðjur.“ Og Asgeir heldur áfram og tek- ur nú að ræða annað mál, sem einnig var til umfjöllunar hjá Velvakanda í gær, en það er ungl- ingarnir. £ Eitthvað róttækt? „Ein óánægð ræðir um hvernig eigi að verja sig og sína líka fyrir unglingunum, t.d. með þvi að loka gamla bænum, og hafa þar aðeins hana og hennar líka. Stóryrði eru sjaldnast til góðs og hæfa sízt fullorðnu fólki. E.t.v. væri gott að hafa þetta fólk i girðingu svo unglingarnir mættu sjá framferði alltof margra okkar eldri, t.d. í sambandi við neyzlu áfengis. Hitt er svo víst að fyrir- mynd sú er við eldri alltof mörg gefum unga fólkinu er ekki væn- leg til eftirbreytni. En það er eftirtektarvert hve margt fólk sem er með ádeilur vill ekki láta nafns sins getið." Fullt hús matar Eitthvað fyrir þig? Urvals nautasnitchel Folaldasnitchel Svinasnitchel Lambasnitche! Skráð Okkar verð verð 2350 - 1590 - 1950 - ....... 1980 - Skráð Okkar verð verð Lambagullasch 1900. Folaldagullasch 1390. Nautagullasch 1990. Hakkað nautakjöt Hakkað folaldakjöt Hakkað lambakjöt Hakkað svínakjöt Hakkað saltkjöt Nýtt hvalkjöt Reykt hvalkjöt Unghænur 1 0 stk. i kassa Kjúklingar 1 0 stk í kassa /2 reyktir folaldaframpartar Skráð veró j>@3"- _Þ§arS% ter/'- L&etr- Okkar verð 1090 - 650 - 970 - 1250 - 970 - 530 - 730 - 690 - 990 - 580 - vóruhynmnff I dag kl. 4—7 verða kynntar Goða léttpylsur sem er sérlega góð ný pylsutegund fyrir þá sem vilja passa uppá línurnar. Sérstakt kynningarverð aðeins kr. kg. 850,— í umsjón frk. Jennýar Sigurðardóttur, húsmæðrakennara. TH: 'hirir tfinnm mal .G^ÐA kfötídnadarvörur Við seljum 36 tegundir af Goða pylsum og áleggi. Soðnu matarpylsurnar frá Goða eru handhægar þegar framreiða þarf Ijúffenga og næringaríka máltið í skyndi. Opið frá kl. 7 — 7 föstudag. Opið frá kl. 7 —12 laugardag. Laugalœk 2, REYKJAVIK, simi 3 5o 2o S33 SlGeA V/öGA g 'íilveRAU 25. Dxh7 + ! — Kxh7, 26. Hh4 + — Kg7, 27. Bh6+ — Kh8, 28. Bf8, Mát. Meðal þátttakenda á vetrar- mótinu eru þeir Jónas Þorvalds- son, núverandi skákmeistari Mjölnis, Bragi Halldórsson, Björgvin Víglundsson, Kristján Guðmundsson að ógleymdri Guð- laugu Þorsteinsdóttur ■j/tM, k y rr \6<R VÁ ót- AOVHNáiAe^ WW OO cvmifj'fá) vAovi/AiýoM Vö 'wír® w \AW%7 £KK/ YYRR m MAW WEIVÍTAW IfiW- OALmOÚ’ V7/a)I Vú SAVI TWvÚ ÚEIUA'ú 'm ViAVtv \tEWI VA9 YlEWI 7EN6\Í) HflýA Wjm* V£R\V gfítfi EINA ATKV/fyifi^KEMMT/- •LUM %G VífíWA Pí múi veú" úÁiúMtm IXG&A W- yyi?\£-ít

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.