Morgunblaðið - 02.12.1977, Side 4
36
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1977
Held ég sjái
talsverdan
árangur af
þessari vinnu
nemenda
Jfnna Jcnsdódir konnari.
Rætt vid Jennu Jensdóttur um
tilraunakennslu hennar í bókmenntum
Hvaða erindi eiga islenzk nú-
tímaljóð til 13—15 ára ungl-
inga? Á að leggja rækt við að
kynna islenzkri skólaæsku
órímuð ljóð, atómljóð? Eða á að
Iáta nægja að þau kynni sér hin
eldri skáld, sem uppi voru fyrir
100—200 árum? Eru einhverjir
fordómar á ferðinni varðandi
nútímakveðskap íslenzkra ljóð-
skálda?
Til að ræða þetta nokkuð fór
blm. á fund Jennu Jensdóttur,
sem vitað er að hefur með
höndum tilraunakennslu í nú-
tímaljóðum. Jenna hefur um
árabil verið kennari, fyrst á
Akureyri, en síðustu 13 árin
hefur hún kennt við Langholts-
skólann í Reykjavík. Hún er
einnig þekkt sem barnabóka-
höfundur, en ásamt manni sín-
um Hreiðari Stefánsssyni hefur
hún skrifað allmargar barna- og
unglingabækur. Einnig hefur
komið út eftir hana ein ljóða-
bók. Jenna Jensdóttir hefur
lagt áherzlu á að unglingarnir
kynntust nútímakveðskap ís-
lenzkra höfunda og er hún fyrst
spurð hvenær þessi tilrauna-
kennsla hafi byrjað hjá henni:
„Það eru meira en 10 ár síðan
ég byrjaði að kynna nemendum
mín nútímaljóðlist, en í byrjun
var þetta aðeins lausleg kynn-
ing, sem átti rætur sínar að
rekja til þess að ég hafði ein-
hvern tíma heyrt menn ræða
nútímaljóð í útvarpsþætti.
Komu þar fram fordómar hjá
mönnum, sem sögðust þó ekki
hafa kynnt sér nútímaljóð."
Hvernig skilgreinir þú nú-
tímaljóð?
„Mér og öðrum hefur orðið
það tamt að nefna slíku nafni
þá ljóðlist sem ekki lýtur formi
í kveðskap, og þ.e. hinu hefð-
bundna formi, sem hefur vikið
á síðustu áratugum úr ljóðinu."
Hvernig fer þessi kynning
nútímaljóða fram?
„í 30 nemenda békk höfum
við 30 ljóðskáld og verk þeirra
til umræðu þannig að hver
nemandi tekur að sér kynningu
á einu ljóðskáldi en kynningin
fer þannig fram að sameigin-
lega á bekkurinn að ræða um
skáldið og verða fróðari um
skáld og verk þeirra. Ég sé um
að útvega þeim ljóðabækurnar
og bendi jafnframt á aðrar. Síð-
an velja nemendur sjálfir úr
þessum bókum ljóð, lesa upp-
hátt fyrir bekkjarsystkini sín
og fjalla um ljóðið, hvað það
segir þeim og þá eru bornar
fram spurningar og umræður
verða sem fyrst og fremst miða
að aukinni jákvæðri þekkingu á
skáldinu og verkum þess. Einn-
ig ber nemendum að kynna sér
æviatriði skáldsins og önnur
verk þess eins og tíminn leyfir
og af þvi að erfitt er fyrir þá að
ná í heimildir um yngri skáldin,
auk þess sem slíkar heimilda-
bækur eru mjög ófullnægjandi
hér á landi, hefi ég komið upp
nokkurs konar skáldatali fyrir
okkur um viðkomandi höfunda
til að spara tíma og vinnu nem-
endanna á þessu sviði. Ég hef
látið gera filmu af þeim skáld-
um og rithöfundum, sem við
fjöllum um þannig að hægt er
að sýna þær á myndvarpa um
leið og við fjöllum um skáldið.
Þetta tel ég að festi Ijóðið betur
í vitund þeirra.
Á þessum árum hafa sum
skáldanna komið í heimsókn og
þá hefur það oft komið í Ijós að
nemendur hafa stundum valið
þau Ijóð er skáldinu sjálfu hef-
ur þótt vænst um. Einnig hafa
nemendur fengið tækifæri til
að ræða við skáldið sjálft er þau
hafa verið að kynna og þarf
varla að geta um hve mikils
virði þeim hafa verið slíkar
viðræður."
Fljót að tileinka
sér nútímaljóðin
Hvernig gengur að fá nem-
endur til að koma upp og út-
skýra ljóð fyrir bekkjarfélög-
unum?
„Fyrst í stað eru þau hikandi
og eiga mjög erfitt með þetta og
tel ég að það felist eingöngu í
því að þau eru óvön órímuðum
ljóðum. En þau eru ótrúlega
fljót að tileinka sér þessi ljóð,
engu síður en önnur. Þetta
þrönga tjáningarform, ljóðið,
krefst mikils af þeim bæði
framkomu og framsögn í með-
ferð málsins og ef þau ná
nokkru valdi á því þá tel ég að
það geri þau hæfari í að tjá sig
á öðrum sviðum.“
Um leið og Jenna greinir frá
þessu hefur hún dregið fram
ýmis konar gögn, sem hún not-
ar við kennsluna, m.a. myndirn-
ar sem hún hefur látið gera
filmur eftir og sýnir í mynd-
varpa, eins og hún gat um fyrr.
Einnig hefúr Jenna tekið sam-
an skrá yfir allar ljóðabækur er
út hafa komið á síðustu áratug-
um og segist hún hafa reynt að
gera það jafnóðum og bækurn-
ar koma út. En er ekki mikið
verk að lesa allar þessar ljóða-
bækur:
„Ég hef gaman af ljóðum og
myndi lesa flestar þeirra hvort
eð væri."
En hvernig gengur að útvega
nemendum allar þessar bækur?
„Fyrstu árin gekk það heldur
erfiðlega og notaði ég bækur úr
mínu eigin ljóðasafni, en yfir-
stjórn skólans og skólasafn-
vörður hafa alltaf sýnt mér sér-
staka hjálpsemi og skilning í
þessari tilraunakennslu minni
og aukið ljóðabókakost þann er
ég hefi þurft á að halda. Einnig
vil ég geta þess að Borgarbóka-
safníð hefur verið mér mjög
hjálplegt og er sérlega gott að
leita þangað."
Eru bækurnar aðeins notaðar
innan veggja skólans?
„Nei, nemendur fara með
þær heim og þeir hafa alltaf
sýnt þeim sérstaka viróingu.
Bók hefur aldrei eyðilagst á
þessum árum, en einu sinni
hefur það komið fyrir að bók
hafi týnst."
Þurfa nemendur að skila
skriflegum verkefnum?
„Já, nemendum ber að skrifa
ritgerð um skáldið og þau ljóð
er þau hafa kynnt hvert öðru.
Að vorinu skila þau árangri sín-
um munnlega og siðan Skóla-
rannsóknir veittu leyfi sitt til
þessarar tilraunakennslu minn-
ar hefur Halldór J. Jónsson
cand. mag. verið prófdómari að
vorinu. Þaó er gott að vinna
með Halldóri, hann var próf-
dómari á gagnfræðastiginu i
mörg ár og gjörþekkir
unglinga."
Nútímaljóð
lítið þekkt
Verðurðu vör við einhverja
fordóma eða neikvæð viðbrögð
við þessari kennsluaðferð og
námsefninu?
„Já, viðbrögðin geta stundum
verið neikvæð hjá einstöku
nemanda og er það kannski
mjög eðlilegt þegar að því er
gætt hve nútímaljóð eru i raun
og veru lítið þekkt í grunnskól-
anum og meðal fólks. Stundum
þykir mér erfitt að byrja á
haustin með nútimaljóð i nýj-
um deildum en þegar fram í
sækir held ég að okkur þyki
öllum jafngaman að þessum
vinnubrögðum."
Tekurðu eingöngu innlend
skáld til kynningar?
„Undanfarin ár hef ég reynt
að kynna þeim ýmsa þekkta
höfunda úr heimsbókmenntun-
um ekki sízt ef þeir hafa verið
þýddir á íslenzku og þau gætu
átt þess kost að lesa þá. Einnig
hefi ég komið mér upp þar
nokkru skáldatali til þess að
gera þeim auðveldara að fræð-
ast um verk þeirra, en ég fékk
ársleyfi frá störfum til að
kynna mér bókmenntir á
hinum Norðurlöndunum og átti
kost á að kynna mér ýmsa höf-
unda úr heimsbókmenntunum,
sem eru lítið þekktir hér.“
Hefuróu tekið yngstu ljóð-
skáldin til kynningar á þennan
sama hátt?
„Ég reyni alltaf að kynna
nemendum mínum sem flestar
ljóðabækur yngstu skáldanna
þó ég taki þær ekki allar í til-
raunakennsluna. Ég les þær
vanalega vandlega áður og þarf
að gera skil á þeim skáldum
sem ég ætla mér að taka til
beinnar tilraunakennslu og auk
þess hef ég notið góðrar aðstoð-
ar Jóhanns Hjálmarssonar um
val bóka. Núna er ég t.d. með
ljóðabók Aðalsteins Ingólfsson-
ar sem ég hefi áður kynnt fyrir
nemendum mínum og ætla mér
að taka hana í tilraunakennslu.
Ég kynni alltaf fyrir nemend-
um minum nýjar ijóðabækur
ekki siður eftir eldri skáld okk-
ar, sá sem glatar fortíðinni
gleymir deginum og framtið-
inni.“
Hafa aðrar greinar bók-
menntanna verið teknar til
meðferðar á þennan hátt?
,,í fyrra byrjaði ég að að
kynna smásöguna hjá 8. bekk.
Við lásum smásögur frá 1930 til
dagsins í dag. Þau reyndu að
gera sér grein fyrir þeirri
þróun sem orðið hefur í smá-
sagnagerð á þessu tímabili,
kynntu 28 smásagnahöfunda og
verk þeirra á sama hátt og hin
kynntu sér ljóðin. Þau þurftu
einnig að skila ritgerð og taka
próf munnlega um vorið. Þetta
tókst vel hjá þeim og nú er ég
að undirbúa 8. bekk þann er ég
kenni bókmenntir undir það að
taka smásöguna með sama
hætti í vetur. Ég hefi ekki inn-
leitt þessaikennslu í 9. bekk þar
sem nemendur þar hafa mikið
námsefni er þau þurfa að skila
á prófi í febrúar, en ég hef þó
hugsað mér að þau taki ein-
hvern tíma á vetrinum nútíma-
ljóð á sama hátt og 7. bekkur."
Hvað með skáldsöguna?
„Mér hefur dottið i hug að
Framhald á bls. 55
„Þetta er
bara fínt**
Nemendur spurðir álits
Eftir þetta spjall við Jennu
Jensdóttur þ.vkir hæfa að lita við í
skólanum hjá henni og sjá hvað
nemendur hennar eru að fást við.
í þoim bekk sem blm. staldraði
við í var verið að lesa nútíinaljóð
nokkurra höfunda og röktu nem-
endur nokkur æviatriði skáld-
anna og lásu síðan eitt Ijóð f.vrir
hekkjarsystkini. Að því loknu
spurði kennarinn hvað skáldið
væri að segja með Ijóðinu, hverju
væri verið að lýsa o.fl. í sambandi
við það.
Bjarni Asgrímsson og Gústaf
Vífilsson eru tveir piltar i 8. bekk
J.J. og spurði blm. þá hvernig
þeim þætti að kynna sér á þennan
hátt kveóskap nútímaljóðskálda:
— Þetta er bara ffnt, sögðu
þeir, og á þennan hátt er bók-
menntakennslan auðveldari og
jafnframt skemmtilegri viðfangs.
Við höfum kynnst yngri skáldum
nú í fyrsta sinn.
Þeir voru spurðir hvaóa skáld
þeir hefóu lesið og svaraði Gúst-
— Ég las ljóð eftir Jón úr Vör
og mér fannst létt og gott að skilja
kvæði hans og hann er einna
skemmtilegastur af þeim höfund-
um, sem ég hefi komist í kynni
við.
Þeir voru einnig spurðir að þvi
hvort þeir hefðu tekið uppá því að
lesa meira af nútímabókmenntum
eftir að þeir hafa komizt þannig í
nánari kynni við nokkra höfunda:
— Það er nú kannski ekki svo
mikiö, við höfum t.d. ekki alltaf
aðgang að ljóðum og höfum litiö
lesið af ljóðabókum utan við það
sem við höfum orðið að gera
vegna námsins, en við höfum
áreiöanlega kynnst mun betur
nútímaskáldum og bókmenntum
en aðrir nemendur á þessu
aldursstigi í skólakerfinu, sögðu
þeir félagar að lokum.
Þar sem 8. bekkurinn J.J. var á
förum er blm. bar að garði var
ákveðið að staldra við í næsta
tíma og heyra hvað nemendur
væru þar aó fást við, en það var 7.
bekkur F.O. Nokkrir voru valdir
af handahófi og beðnir að koma
Sólveig Jónasdóttir, Þóra Steinunn Steffensen og Jón Óiafsson.
Svipmynd úr kennslustund. LjósmyndirtFriðþjófur.
Hefur borið
góðan árangur
og haft góð áhrif
— segir skólastjóri Langholtsskóla
Skólastjóri Langholtsskóla er
Érling S. Tómasson og á leið út úr
skólanum var litið við á skrifstofu
hans og hann spurður álits á þess-
ari tilraunakennslu í nútímaljóð-
um:
„Þessi aðferð er á mun breiöari
grundvelli en gengur og gerist og
hefur Jenna lagt stund á hana
lengst af síðan hún kom að skól-
anum. Hún krefst mun meiri
vinnu og undirhúnings fyrir
kennarann og við erum mjög
ánægð með að þétta skuli reynt.
Við höfum ekki beöiö kennara að
taka upp þessa kennsluaðferð al-
mennt, hún krefst meiri vinnu en
beinlínis er hægt að krefjast af
kennurum."
Hefur nemendum ekki 'fundist
neitt ósamræmi i kennslu hinna
einstiiku kennara?
„Það hefur rétt aðeins komið
upp að nemendur hafi talió aö
þeim væri íþyngt með vinnu i
bókmenntanáminu hjá Jennu, en
þeir hafa alltaf sætt sig víð það
þegar þeir háfa fariö að vinna á
þennan hátt, og sé i þessu fólgin