Morgunblaðið - 02.12.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DEJSEMBER 1977
37
Bjarni Ásgrfmsson og Gústaf Vffilsson nemendur í 8. bekk J.J. Á milli
þeirra er myndskreyting eftir einn nemenda.
upp að töflu og lesa eitt ljóð. Þrátt
fyrir örlitla feimni vegna nær-
veru blaðamenns virtist honum
þau koma mjög vel fram og vera
vel fær um að lesa upp ljóð og
eins og sagt var áðan spurði
Jenna þau síðan um hvað þeim
fyndist viðkomandi skáld vera að
segja og hvernig þau skildu ljóð
þess. Jenna sagði að reynt væri að
kynnast sem flestum skáldum og
frá sem lengstum tíma og eru þau
elzt fædd árið 1899 og á þann hátt
segizt hún vilja tengja þau yngri
við eldri skáldin, ganga yfir frá
hinu hefðbundna formi til hins
nútímalegra.
Einn bekkurinn, 9. S.K., hefur
lesið smásögur og voru þau Jón
Ólafsson og Þóra Steinunn
Steffensen spurð nánar útí það:
— Það fer fram á svipaðan hátt
og þegar ljóðskáldin eru tekin
fyrir, þá kynnum við okkur einn
höfund, lesum t.d. smásagnasafn
eftir hann, segjum frá og veljum
síðan eina sögu til að skrifa rit-
gerð um.
— Við hefðunt áreiðanlega
ekki lesið svona mikið af smásög-
unt eins og við höfum gert hér í
skólanum, sagði Jón, og þó að við
lesum kannski einn og einn höf-
und þá kynnumst við mun fleiri
því við lesum fyrir bekkinn eina
sögu. og fáum við því að kynnast
mörgum skáldum.
Þóra Steinunn var spurð að
hvað hún hefði aðallega lesið:
Eriing S. Tómasson skóiastjóri
Langholtsskóla.
Ljósm. Friðþjófur.
— Ég hef aðallega lesið bækur
eftir Guðmund Böðvarsson,
Indriða G. Þorsteinsson og Gisla
J. Astþórsson og hefur mér þótt
gaman aó þeirra sögum öllum.
Hefurðu lesið eitthvað eftir er-
lenda höfunda?
— Það er nú ekki mikið, enda
hefur það ekki verið á dagskrá
hér i skólanum, en þqhef ég lesið
nokkuð eftir t.d. Sartre, Camus og
Kafka og til að kynnast þeirra
verkum og störfum nánar hef ég
fengið að láni skrána, sem Jenna
hefur gert um ýmsa erlenda höf-
unda.
Þá töldu þau Þóra Steinunn og
Jón það vera mjög góðan undir-
i>úning undir frekara nám að hafa
kynnst svo náið nútímabókmennt-
um, t.d. gott fyrir frekara nám í
menntaskóla eða haskóla.
Þarna nærstödd var iíka
Sólveig Jónasdóttir, nemandi úr
9. bekk H.J., en hún hefur einnig
lesið smásögur í bókmenntatím-
um hjá Jennu.
— Við höfum gert þetta einsog
aðrir bekkir i bókmenntatímun-
um hjá Jennu/lesið einn höfund
og kynnt okkur það sem hann
hefur skrifað. Síðan er tekið
munnlegt próf í þeim höfundi
sem viðkomandi nemandi hefur
lesið. Við höfum aldrei áður verið
tekin upp á töflu á þennan hátt og
»agt svona frá og er það ábyggi-
lega mjög gott að æfast í því að
koma fram fyrir fólk.
meiri vinna fyrir nemendur. þá
hafa ekki talið sér hana eftir þeg-
ar fram í sótti."
Hafa aðrir kennarar hér tekið
upp þessa aðferð?
,,Nei, ekki þessa aðferð Jennu
eins og hún hefur haft hana, en
vissulega hefur hún vakið hug-
myndir, sem hinir kennararnir
hafa getað notfært sér og þannig
haft sin áhrif. Þetta hefur að sínu
leyti orðið til þess að kennarar
hér hafa lært heilmikið hver af
öðrum eins og gerist i öllum skól-
um, menn eru stöðugt að þreifa
fyrir sér. Það er eiginlega merki-
legast finnst mér að hægt skuli
vera að vinna á þennan hátt með
nemendum, í okkar aldurshópi,
um áð beita vinnubrögðum, sem
erurn frekar notuð á hærri skóla-
stigum, en þaö hefur sýnt sig að
þau ná til alls þorra nemenda sé
rétt að fariö."
Að lokum sagói Eirling S.
Tómasson að þetta hefði borið
góðan árangur og kvað hann að
sinum dómi það án efa hafa góð
áhrif á nemendur og kennara.
Ballett
kynntur
í skólum
ISLENZKI dansflokkurinn hefur
að undanförnu ásamt Þórhalli
Sigurðssyni leikara kynnt og sýnt
í ýmsum skólum í Reykjavik dag-
skrá sem ballettmeistari Þjóðleik-
hússins hefur tekið saman.
Þessi dagskrá tekur 30 mínútur
og sýnir helztu atriðin úr daglegri
þjálfun listdansarans, allt frá
byrjunarstöðum og þar til hann er
tilbúinn að dansa, og skýrir Þór-
hallur um leið frá tilgangi hverr-
ar æfingar. Einnig eru sýndir 3
dansar úr ballettinum Hnotu-
brjóturinn sem verður frumsýnd-
ur i Þjóðleikhúsinu á annan í
jólum.
Nú þegar hafa verið heimsóttir
4 skólar. Hefur dansflokkurinn
alls staðar fengið góðar viðtökur,
og er ætlunin því að halda áfram
og heimsækja fleiri skóla fyrir
jól.
Mjólkurmál
- nýtt tímarit
MJÖLKURTÆ KNIFÉLAG Is-
lands hefur hafið útgáfu á tima-
riti um mjólkurmál. Fyrsta tölu-
blað kom út 26. nóvember, gert er
ráð fyrir að út verði gefin 3—5
tölublöð á ári.
I þessu fyrsta tölublaði eru
þrjár greinar um stjórnun og
skipulag mjólkuriðnaðarins, þær
hafa skrifað Pétur Sigurðsson,
Sævar Magnússon og Grétar Ein-
arsson. I þessum greinum er gerð
úttekt á stöðu mjólkuriðnaðarins
og hvernig mætti breyta skipulagi
hans.
Þá er i heftinu þýtt erindi sem
prófessor P.E. Jacobsen við Land-
búnaðarháskólann í Kaupmanna-
höfn flutti á síðast liðnu sumri
um næringargildi mjólkurafurða.
I þessu erindi hélt Jacobsen þvi
fram að það væri meira fitandi aö
neyta svokallaðs megrunarsmjör-
likis í stað smjörs. Samkvæmt til-
raunum sem hann stóð fyrir telur
hann að sá eða sú sem neytir
daglega 50 g af megrunarsmjör-
líki í -stað sama magns af smjöri
safni 2,5 kg af líkamsfitu, umfram
hina á einu ári.
Margvíslegt annað efni er í
þessu fyrsta tölublaði Mjólkur-
máls. — Ritstjóri timaritsins er
Sævar Magnússon, mjólkurverk-
fræðingur hjá Osta- og smjörsöl-
unni.
íkveikja
í Turku
Helsinki, 30, nóvember.
Reuter
FINNSKA lögreglan kveðst
hafa handtekið mann sem sé
grunaður um íkveikju sem olli
miklu tjóni í prentsmiðju þar
sem tvö dagblöð öfgasinnaðra
vinstrimanna eru prentuð.
Prentsmiðjan er i Turku
(Abo) í Finnlandi og tjónið er
metið á um 100 milljónir
íslenzkra króna.
Lögreglan hefur nýlega
bannað nokkur samtök sem
eru sökuð um nýfasisma í
Turku en hefur ekki birt
nokkur gögn sem sanna að
íkveikjan hafi verið af pólitísk-
um toga spunnin.
Lífeyrissjóður Apótekara
og Lyfjafræðinga
Frá og með mánudeginum 5. desember nk.
verður afgreiðsla Lífeyrissjóðs Apótekara og
Lyfjafræðinga ,að Garðastræti 38 Reykjavík,
sími 1 7533.
Stjórnin
Annual
meeting 1977
Flywheel, Shyster & Flywheel
Club of New York, U.S.A., is
holding their annual meeting
at Hotel Loftleidir on Sunday,
December 4th.
Aðalfundur 1977
Flywheel, Shyster & Flywheel klúbburinn í
New York heldur aðalfund sinn á Hótel
Loftleiðum sunnudaginn 4. desember.
Loksins komin
Öllum
nauðsynlegt
Fœst ekki í apótekum
itdiwr Dreifing um Karnabæ simi 28155