Morgunblaðið - 04.12.1977, Síða 10
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1977
42
—ÁLXIAMÍL
„Úrslitin i prófkjörum Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins er til marks
um óánægju kjósenda með „kerfið". Verkefni næstu ára er að breyta þvi."
eftir HANNES GISSURARSON
Úrslit prófkjaranna
í Reykjavik
Að öllum líkindum verður kosið til Alþingis á
vori komanda, og tveir stjórnmálaflokkanna,
Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðuflokkurinn,
hafa valið frambjóðendur sína í Reykjavik,
langmannflesta kjördæminu, í prófkjörum, en
auk þess efndi Sjálfstæðisflokkurinn til skoð-
anakönnunar um fáein málefni. Úrslitin eru
öllum kunn: Vilmundur Gylfason sigraði í
prófkjöri Alþýðuflokksins. Albert Guðmunds-
son í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins (og reyndar
einnig Friðrik Sophusson), og í skoðanakönn-
un Sjálfstæðisflokksins töldu kjósendur, að
Bandaríkjamenn ættu að kosta þjóðvegalagn-
ingu hérlendis, að ekki ætti að lækka kosn-
•ngaaldurinn niður i 18 ár. að leyfa ætti
bruggun og sölu áfengs öls og að hætta ætti
ríkiseinokun á útvarpi Fimmtu spurningunni,
*sem var fullkomlega út í bláinn. var reyndar
einnig svarað: Kjósendur töldu, að ráðuneytin
ættu að-hafa aðsetur í gamla miðbænum En
þessi spurning átti að sögn siðdegisblaðanna
að vera um afstöðu manna til kaupa á Viðis-
húsinu svonefnda fyrir menntamálaráðuneytið
(en það er ekki í gamla miðbænum) Ég ætla í
þessari grain að fara fáeinum orðum um úrslit-
in i þessum prófkjörum og skoðanakönnun-
inni, reyna að skýra þau og skilja með stjórn-
málaskoðun frjálslyndra manna að viðmiði
Prófkjör
Alþýðuflokksins
Prófkjör Alþýðuflokksins tókst í þeim skiln-
ingi, að fleiri kusu í prófkjörinu en kusu
flokkinn í siðustu alþingiskosningum. en sá
árangur er auðvitað ágætur. Er þessi fjöldi til
mundsson i prófkjöri Sjálfstæðisflokksins og
Vilmund Gylfason i prófkjöri Alþýðuflokksins.
sameiginlegir stuðningsmenn þeirra eru
..fimmti flokkurmn", lesendur síðdegisblað-'
anna, stjórnmálaflakkararnir Skipulögð sam-j
tök voru lítil sem engin i þessum prófkjörum
þó að áróður væri mikill. i þau söfnuðust af
sjálfsdáðun óánægðir alþýðumenn, lausafylgið
í stjórnmálum Og hending ein ræður þvi,
hvað þeir kjósa flestir í þingkosningunum En
opin prófkjör eru varasöm fyrir jafnfámennan
flokk og Alþýðuflokkinn, þó að þau hafi gefið
góða raun i Sjálfstæðisflokknum. Liðsmönnum
Alþýðuflokksins ber að muna aðvörunarorð
aldins foringja sins, Stefáns Jóhanns Stefáns-
sonar, i Minningum hans (bls. 96 í síðara
bindi): „Og vissulega er Alþýðuflokknum það
nauðsyn, ef hann á að geta gegnt hlutverki
sínu, að halda fullu sjálfstæði gagndum öðrum
flokkum og vera vel á verði gegn hvers konar
áhrifum frá þeim, ekki sízt á skipan sinna innri
mála og val manna i trúnaðarstöður."
Albert Guðmundsson
jekki sérstaklega við sigurvegarana í þessum
iprófkjörum, heldur við umræðuefnin og um-
ræðuhættina í íslenzkum fjölmiðlum Fjölmiðl-
ungarnir hafa ekki gagnrým „kerfið ', greint
það að neinu gagni, gefið fullnægjandi skýr-
ingar á röngum ákvörðunum og kynlegum
atburðum, bent á aðra aðferð til umbóta en þá
að kjósa aðra menn á þing — sjálfa fjölmiðl-
ungana Aðfinnslur þeirra eru grunnfærnisleg-
ar, þó að þeir afli sér vinsælda með þeim,
væmninni og vandlætingunni En hvað veldur
því, að óánægjukornunum er sáð í þennan
frjósama jarðveg? „Kerfið" er ekki gaMaðra nú
en áður, fjármálaspillingin sízt meiri Mönnum
finnst einungis meira til um sakamálin og
„spillinguna" nú en áður, staðreyndirnar einar
skipta ekki öllu máli, heldur einnig hitt, hvaða
afstöðu almenningur tekur til þeirra Það, sem
veldur þessum viðbrögðum við uppljóstrunum
fjölmiðlunganna, er annar hugsunarháttur nú
en áður. Og ástæðan til hans er umfram allt
verðbólgan. Verðbólgan á íslandi brenglar sið-
Friðrik Sophusson
um samanburði hagsmunahópanna, mismun-
un, illvild og siðferðilegri upplausn Draga
verður úr verðbólgunni til þess að draga úr
spillingu, almennar markaðsreglur verða að
taka við af geðþóttaákvörðunum ráðamanna.
Taka ber efnahagsvöldin af skömmtunarstjór-
unum og fá þau einstaklingunum. En verð-
bólgan er ekki sök þessarar ríkisstjórnar. held-
ur landsmanna allra. Stuðningur hefur ekki
fengizt við aðhaldaaðgerðir, lánsfjárkröfur at-
vinnurekenda og launakröfur almennings hafa
farið úr öllu hófi íslendingar hafa ekki gert sér
grein fyrir efnahagslegum takmörkunum sín-
um. Ríkinu er ætlað að sinna öllum kröfum. Ég
held, að ríkisstjórnir eigi að meta eftir fjölda
mistaka þeirra: Þær, sem gera fæst mistökin,
eru beztar Og ríkisstjórn Geirs Hallgrimssonar
hefur gert miklu færri mistök en fyrrverandi
ríkisstjórn og sú ríkisstjórn, sem hefði tekið við
völdum, ef Sjálfstæðismenn hefðu ekki hafið
samstarf við Framsóknarmenn. Frjálslyndum
mönnum ber því að styðja þessa stjórn, muna
Vilmundur Gylfason
Prófkjörin og prófraunin
Rlkisstjómarfundur
marks um raunverulega fylgisaukningu Al-
þýðuflokksins? Prófkjörið var opið öllum
„stuðningsmönnum" Alþýðuflokksins, hvort
sem þeir voru flokksbundnir eða ekki Að öllu
óbreyttu má ætla, að Alþýðuflokkurinn auki
verulega fylgi sitt við næstu kosningar, hann
hefur verð í stjórnarandstöðu á erfiðum timum
og ekki borið ábyrgð á óvinsælum ákvörðun-
um En getur slík fylgisaukning haldizt? Það er
auðvitað komið undir öllum aðstæðum fram að
kosningum, málstað hans og málflutningi for-
ingja hans, Benedikts Gröndals formanns og
Kjartans Jóhannssonar varaformanns En Al-
þýðuflokkurinn þarf að bæta við sig miklu
fylgi, ef hann á að ná aftur sögulegum, hlut-
fallslegum styrk sínum í íslenzkum stjórnmál-
um eftir hrakfarir siðasta áratugs Fylgisaukn-
ing hans, ef af henni verður, verður í rauninni
fylgisheimt Og valt er veraldargengi þeirra
flokka, sem hafa boðið fram á íslandi undir
vígorðum eins og „nýtt afl í íslenzkum stjórn-
málum" og „gegn stjórnmálaspillingunni"
Langþreyttir kjósendur, sem leita að nýjum
kosti. grípa hann fegins hendi, en fleygja síðan
vonsviknir, þegar það kemst upp, að siðbótar-
mennirnir gleyma að siðbæta sjálfa sig, hald-
reipið reynist hálmstrá Þjóðvarnarflokkurinn
kom 2 mönnum á þing árið 1953, en missti
þá árið 1956, en stefnumál hans var auk
andstöðunnar við varnarliðsdvölina barátta
gegn „spillingunni" Og Samtök frjálslyndra
og vinstri manna fengu 5 þingmenn kosna árið
1971, misstu 3 árið 1974 og missa líklega 2
hina síðustu árið 1978 Báðar þessar bylgjur
risu vegna óánægju, báðar hnigu. Fylgisaukn-
ing vegna óánægju helzt ekki lengi, nýjabrum-
ið fer af flokknum
„Fimmti flokkurinn"
En prófkjör Alþýðuflokksins mistókst í þeim
skilnangi, að kjósendur flokksins og stuðnings-
menn höfðu ekki úrslitavöldin, heldur lausa-
menn á stjórnmálum og stuðningsmenn ann-
arra flokka Fjöldi manna kaus í prófkjöri
Alþýðuflokksins án þess að telja sig skuld
bundinn til að kjósa flokkinn í þingkosningun-
um sjálfum, sumir þeirra til dæmis flokks-
bundnir Sjálfstæðismenn „Fimmti flokkurinn"
hefur margoft verið nefndur i fjölmiðlum og
sagðar af honum samsærissögur, kosninga-
sigrar skýrðir með skipulagningu „baktjalda-
manna" Ég held, að sannleikurihn sé heldur
hversdagslegri „Fimmti flokkurinn" er flokkur
stjórnmálaflakkaranna — þeirra, sem leita að
því, sem þeir geta ekki fundið fullkomnum
stjórnmálaflokk „sterkra" stjórnmálamanna
Og fjölmargir þeirra kusu bæði Albert Guð-
Óánægjan með „kerfið"
Sigrar Vilmundar i prófkjöri Alþýðuflokksins
og Alberts og Friðriks i prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins eru umfram allt til marks um
óánægju kjósenda með það, sem kallað er
„kerfið" Auðvitað nutu þeir mála sinna. Vil-
mundur „siðvæðingarinnar", Albert atorkunn-
ar og Friðrik starfa sinna með ungum Sjálf-
stæðismönnum En allir eru þeir taldir and-
stæðingar „kerfisins" Vilmundur er einn af
uppljóstrunarmönnum Dagblaðsins. og Albert
og Friðrik hafa báðir gagnrýnt rikisstjórn lands-
ins opinberlega, þótt Sjálfstæðismenn séu
Þessi óánægja með „kerfið" er auðvitað á
margan hátt réttmæt íslenzka stjórnkerfið er
stórgallað. verðbólgan er að nálgast 30%
fyrirgreiðslumenn sumra stjórnmálaflokkanna
hafa náð miklum völdum, margar fjárfestingar
ríkisins eru vafasamar. bankakerfið er lokað.
litlar sem engar upplýsingar eru fáanlegar um
það. og sjóðakerfið er i rauninni úthlutunar-
kerfi Og menn finna fyrir auknum umsvifum
þess rikis, sem seilist i sífellu með krumlurnar
niður í vasa skattborgaranna i nafni samneyzl-
unnar Og réttarkerfið hefur alls ekki gegnt
hlutverki sinu Margt er rotið i ríki íslendinga,
þótt það sé ekki „gerspillt" eins og fjölmiðlung-
arnir segja En við megum ekki gleyma því, að
á íslandi er mannúðlegt stjórnarfar, við eigum
þvi láni að fagna að búa i lýðræðisriki og
megum ekki missa sjónar á kostunum, þótt
gallarnir séu margir
G runnfærnislegar
aðfinnslur
En „kerfið" er ekki eitt aðfinnsluvert, heldur
einnig flestir þeir, sem hafa fundið að því Ég á
ferðilegt mat manna — bæði þeirra, sem
fremja afbrotin, og hinna, sem mikla þau fyrir
sér — eins og hún ruglar verðskyn þeirra i
efnahagsmálum. Fjölmiðlungarnir fást við
hismið, en ekki kjarnann í stjórnmálum afglöp
einstakra manna, en ekki kerfið, sem margfald-
ar þessi afglöp.
Einstaklingarnir
og kerfið
Auðvitað skipta mennirnir máli. þeir eru
misjafnlega hæfir til stjórnmálastarfa En þessi
vandi er ekki mannanna, heldur kerfisins Ekki
skiptir öllu máli, hvort þessi maðurinn eða
hinn hafi tekið hina röngu ákvörðun, heldur
hitt, hvaða kerfisbreytingar beri að gera til þess
að fækka röngum ákvörðunum, minnka likurn-
ar á því, að mistök ráðamanna margfaldist
Skýringar á mistökum síðustu ára I hagstjórn
og allri „spillingunni" er ekki að finna i innræti
einstaklinga, heldur I þvi kerfi, sem leysir úr
læðingi fjárplógsstarfsemi, spillingu og brask
Það er mikill misskilningur, að öll verk séu
ætlunarverk einstaklinga Með öllum þjóðum
eru til menn, sem geta orðið fyrirgreiðslu-
menn, stofnað „nýja stétt" aðstöðusala. En
frjálshyggjusinnar vita af þeim reynslusannind
um, að vald sé misnotað og þess vegna beri að
dreifa valdinu og með því áhættunni af röng-
um ákvörðunum Þeir vilja breyta hagkerfinu i
markaðskerfi Á íslandi er kerfi úthlutana,
skömmtunar og skiptingar Samkeppni um
lánsfé er til dæmis svo hörð í verðbólgu, að
þeir, sem eru i góðri „aðstöðu". hagnast á
kostnað hinna úthlutun verður ivilnun Mein-
valdurinn er umfram allt verðbólgan, sem
veldur hóflausri fjárfestingu og neyzlu, sifelld-
það, að dyggð lýðræðissinnans er þolinmæði,
og kjósa þá stjórnmálamenn, sem þeir treysta,
— Þá, sem hafa bæði þekkingu og skoðanir.
Skoðanakönnun
Sjálfstæðisflokksins
Prófkjör stjórnmálaflokkanna eru sjálfsögð I
lýðræðisriki eiga borgararnir þess kost að
skipta friðsamlega um ráðamenn i þingkosn-
ingum á fárra ára fresti, og stuðningsmenn
stjórnmálaflokks eiga þess á svipaðan hátt kost
að skipta um frambjóðendur flokks sins i
prófkjörum Prófkjör tryggja lýðræði innan
flokks eins og þingkosningar tryggja lýðræði
innan ríkis En öðru máli gegnir um skoðana-
kannanir. Lýðræði er ekki og á.ek* að vera
aðferð til þess að kanna skoðamr manna,
heldur aðferð til þess að tryggja jafnan rétt
manna til frelsis. Afl atkvæða ræður ekki I
lýðræðisriki vegna þess, að meiri hlutinn hafi i
flestu eða öllu rétt fyrir sér Það ræður vegna
þess, að einstaklingarnir hafa allir sama at-
kvæðisréttinn, eru allir taldir jafngildir. Segjum
sem svo, að með nútimatækni væri unnt að
komast að skoðunum manna á öllum málum,
smlða vél til þess að „mæla" almenningsálitið
Á að nota hana til ákvörðunartöku? Alls ekki.
Þá hugsanlegu skoðun meiri hluta að meina
eigi minni hlutanum máls ber til dæmis»að
hafa að engu, vegna þess að menn hafa í
lýðræðisriki rétt til máls Auk þess er meiri
hlutinn breytilegur eftir efnum og ástæðum,
hann er ekki ein heild Lýðræði er ekki harð-
stjórn höfðatölunnar Það er umfram allt frjáls-
ræði, ekki meirihlutaræði Mannréttindm eru
frumhugtak lýðræðis, ekki meiri hlutinn Meiri
hlutinn á þess vegna ekki að meina minni
hlutanum þess að njóta áfengs öls eða fjör-
legra dægurlaga i einkaútvarpi Spurningarnar
um það i skoðanakönnun Sjálfstæðismanna
voru i rauninni óþarfar, frelsið er að minu viti
sjálfsagt Skoðanakannanir eru hæpnar aðferð-
ir til ákvörðunartöku i stjórnmálum, þótt fróð-
legar séu Og þjóðaratkvæðagreiðslur eru með
svipuðum rökum einungis flótti ráðamanna frá
ábyrgð Ákvarðanir á að taka i góðu tómi og að
vel athuguðu máli Og af þeirri skoðun margra
Sjálfstæðismanna, að Bandaríkjamenn eigi að
kosta þjóðvegalagningu á íslandi, á einungis
að draga þá ályktun, að brýna nauðsyn beri til
að rökræða um utanrikismál íslendinga, varn-
irnar og fyrirkomulag framkvæmda varnarliðs-
ins Auðvitað kemur leiga landsins ekki til
greina Við setjum ekki verðmiða á landið
Prófraun næstu ára er þessi: Treysta (slending-
ar sér til sjálfstæðis Ég svara þvi játandi