Morgunblaðið - 04.12.1977, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 04.12.1977, Blaðsíða 30
62 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1977 16 hlutu styrk úr Menningarsjóði ís- lands og Finnlands STJÓRN Menningarsjóðs Islands og Finnlands kom saman til fund- ar 14. nóvember sl. í Abo i Finn- landi til þess að ákveða úthlutun styrkja úr sjóðnum. Umsóknar- frestur var til 30. september sl. og bárust alls 86 umsóknir, þar af 70 frá Finnlandi og 16 frá Islandi. Úthiutað var samtals 52.500 finnskum mörkum, eða sem svarar 2.6 milljónum króna og hlutu eftirtaldir umsækjendur styrki: 1. Einar Bragi, rithöfundur, 4.000 mörk, til að kanna verk nokkurra sænsk-finnskra ljóð- skálda, einkum eftirlátin ljóða- handrit Gunnars Björiings í háskólabókasafninu i Abo. 2. Haukur J. Gunnarsson, leik- listarfræðingur, 4.000 mörk, til að kynna sér finnska leiklist. 3. Sigfús Halldórsson, tónskáid og listmálari, 2.000 mörk til kynnisferðar til Finnlands. 4. Sveinn Asgeirsson, rit- höfundur, 2.000 mörk, til Finn- landsferðar til ritstarfa. 5. Greta Brotherus, blaða- maður, 4.000 mörk, til að kynna sér og skrifa um starfsemi Norræna hússins í Reykjavik. 6. Barbara Helsingius, vísna- söngkona, 3.000 mörk, til tón- Ieikaferðar til Islands. 7. Terttu Hirvenoja, fil. mag., 3.000 mörk, til að taka saman upp- lýsingaefni um Island, ætlað sænskukennurum í finnskum skólum. 8. Lauri Kanerva, ljósmyndari, 4.000 mörk, til að ljúka gerð myndaflokks um Island. 9. Raiku Kemppi, dagskrár- stjóri, 3.000 mörk, til að kynna sér íslenska leikhúslist, svo og leikrit fyrir útvarp og sjónvarp. 10. Lauri Oliila, rektor, 3.000 ■ mörk, til að kynna sér íslenska 1 skólakerfið og sérstaklega menntun íslenzkra kennara. 11. Ulla Rantanen, myndlistar- maður, 3.000 mörk, til að vinna að undirbúningi sýningar á verkum með efni úr islenzkri náttúru. 12. Olle Spring, ritstjóri, 3.000 mörk, til að kynna sér þátt fjölmiðla í íslensku þjóðlifi. 13. Dansleikhúsið Raatikko, 5.600 mörk, til íslandsferðar með sýningu á dansleiksýningunni „Salka Valka“. 14. Anna Tauriala, barnabóka- höfundur, 4.000 mörk, til Islands- ferðar til að safna efni i barna- bók. 15. Wasa-leikhúsið, 900 mörk, ferðastyrkur til að bjóða tveimur íslenzkum rithöfundum á Islands- vikuna í Wasa. 16. Tauno Áikáá, organisti, og Matti Tuloisela, söngvari, 4.000 mörk, til tónleikaferðar til Is- lands. Höfuðstóll sjóðsins er 450.000 finnsk mörk sem finnska þjóð- þingið veitti í tilefni af því að minnzt var 1100 ára afmælis byggðar á tslandi sumarið 1974. Stjórn sjóðsins skipa Ragnar Meinander, deildarstjóri i finnska menntamálaráðuneytinu, for- maður, Juha Peura, fil. mag., Kristín Hallgrímsdóttir stjórnar- ráðsfulltrúi og Kristín Þórarins- dóttir Mántylá, en varamaður af finnskri hálfu og ritari sjóðs- stjórnar er Matti Gustafson, fulltrúi. (Fréttatilkynning frá mennta- málaráðuneytinu). Sleðaförin mikla endurútgefin ISAFOLÐARPRENTSMIÐJA h.f. hefur sent frá sér Ijósprentun bókarinnar „Sleðaförin mikla“ eftir landkönnuðinn fræga Knud Rasmussen, en þar segir hann frá ferð á hundasleða um norðurslóð- ir allt frá Grænlandi til Kyrra- hafs. Er þetta fyrsta bók Knud Rasmussens, sem gefin var út á íslenzku, en hún kom fyrst út árið 1955. Um bókina segir höfundur í formálsorðum um Sleðaförina miklu: „Ég hef ritað ýmis þekkt og vísindaleg rit um þessa ferð frá Grænlandi til Kyrrahafs, en í „Sleðaförinni miklu“ hef ég leit- azt við að þjappa frásögninni sam- an og aðeins látið getið þess mikil- vægast af því, er varóar ferðina sjálfa og gólkið, sem ég kynntist. — Með þakklæti viðurkenni ég, hve mikilvægt mér var að ná á þroskaárum mínum takmarki, er ég hafði sett mér ungur. Því helga ég æskulýðnum þessa bók. Jón Helgason islenzkaði bókina. Á bókarkápu segir m.a.: „Knud Rasmussen og Vilhjálmur Stefánsson eiga margt sameigin- legt um starfshætti. Báðir una þeir sér bezt hjá frumstæðum þjóðum norðursins, báðir kanna þeir ókunna stigu, taka upp lifnaðarhætti náttúrubarnanna, og rita alþýðlega og vísindalegar ferðasögur um kjör og lífsvenjur þessa fólks. r — I Japan . . . Framhald af bis. 39 ir vinna langan vinnudag, og svo fangan, að þeir hafa hreinlega ekki tíma til þess að krækja sér í maka! En forráðamenn fyrir- tækja eru boðnir og búnir I því efni eins og öðrum. Hafa ýmis fyrirtæki stofnað til hjónabands- miðlana. Bezt þvkir að sjálfsögðu, að menn giftist „innan fyrirtækis- ins“. Þá á fyrirtækið hjónin bæði — og fær svo börnin í kaup- bæti... —MARK MURRAY. með svalandi og hressandi piparmyntubragði. Nú kynnir Wrigley’s Dentokej með xylitol. Xylitol er náttúrulegt sætiefni, sem notað er í Dentokej til verndar tönnum þínum. REYNDU DENTOKEJ í DAG. ÞAÐ FÆST í NÆSTU BÚÐ. dentokej með xylitol, Sérstaklega gert fyrir tennurnar. WRIGLEY’S þekktustu tyggigúmmíframleiðendur heims.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.