Morgunblaðið - 04.12.1977, Qupperneq 19
1 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1977
51
Þetta eru nýjustu adressuteiknin. Frimerkjamiðstöðin frá 1974 og Prentsmiðja Arna Valdemarssonar
frá 1976.
V erzlanamerki
I HANDBÖK myntsafnara, ís-
lenzkar myntlr, sem Frímerkja-
miðstöðin, Skóiavörðustíg 21A
gefur út, er skrá um íslenzka
vöru og brauðpeninga og birtar
myndir af nokkrum þeirra.
Meðal þessarra peninga eru þó
peningar, sem hvorki eru brauð
né vörupeningar, heldur eru
þetta hin svokölluðu adressu-
teikn eða verzlanamerki. Þessi
merki voru aðeins notuð sem
auglýsing frá kaupmönnunum,
sem létu gera þau. Voru þau
mest gefin um borð í skip og til
nýrra kaupenda, sem komu ef
til vill langt að í kaupstaðinn.
Oftast munu til dæmis merkin
frá Thostrup á Seyðisfirði hafa
verið gefin um borð í skútur.
Þarna liggur kannske skýring-
in á þvi hve sjaldgæf þessi
merki éru hér á landi. Merki
þessi hafa komið í ljós hjá
frönskum myntsölum, sem ekk-
ert botnuðu í hvað það var sem
þeir voru þarna með í höndun-
um.
Það hafa aðeins örfá af hin-
um gömlu verzlanamerkjum
komið i leitirnar og ekki minn-
ist ég þess, að þau hafi nokkurn
tíma verið boðin upp hjá Mynt-
safnarafélaginu. Það væri fróð-
legt ef einhver lesara minna
veit um þessi merki og ef til vill
ítarlegar, en að ofan greinir.
Það væri lika til bóta, ef merk-
eftir RAGNAR
BORG
in væru út af fyrir sig i næstu
útgáfum af íslenzkar myntir,
en ekki innan um vöru og
brauðpeningana.
Ekki er fráleitt, að fleiri
verzlunamerki hafi verið i
gangi hér á landi, en þau tvö,
sem tilfærð eru hér og enn í
dag eru verzlanamerki í notk-
un. Má þar fyrst nefna merki,
sem Frimerkjamiðstöðin sjálf
lét slá árið 1974 og hefir gefið
sumum viðskiptavinum sinum.
Ég á einnig í fórum mínum afar
skemmtilegt adressumerki sem
mér var gefið af Prentsmiðju
Árna Valdemarssonar. Er þetta
veglegasta adressumerkið sem
ég hefi enn séð, 61 mm í þver-
mál 8 mm á þykkt og er úr
gljáfægðum kopar. Er þetta all
þungur peningur enda ætlast
til þess að hann sé notaður sem
bréfapressa. Ég var svo lánsam-
ur að kynnast Árna heitnum
Valdemarssyni og hefi verzlað
töluvert við prentsmiðju hans.
ÖIl verzlanamerkin eiga það
sameiginlegt að þeim er ein-
göngu ætlað að vera auglýsing
Adressumerki frá V.T.
Thostrup kaupmanni á Sevðis-
firði. Stærðin er 24 mm. Þetta
merki kom líklega fyrst fram
árið 1892.
Adressumerki Guðmundar Is-
leifssonar á Eyrarbakka frá um
1890. Stærð 20,5 mm.
fyrir þann, sem gaf þau. Minna,
á skemmtilegan hátt, á fyrir-
tækið sem merkið lét gera.
Verzlanamerkin eru öll úr
málmi og endast þvi töluvert
lengi. Til dæmis hafa merkin
frá Thostrup á Seyðisfirði og
Guðmundi ísleifssyni á Eyrar-
bakka enzt miklu lengur en
fyrirtækin sem létu slá þau.
Tvö ný Lærdóms-
rit frá Bók-
menntafélaginu
Galdrafárið í Evrópu og Gorígas
MORGUNBLAÐINU hafa borizf tvö
ný rit i bókaflokki Hins islenzka
bókemnntafélags, Gorigas eftir
Platón og Galdarfárið í Evrópu eftir
Hiigh Trevor-Roper Rit Platóns er i
islenzkri þýðingu Eyjólfs Kjalar
Emilssonar, sem einnig ritar inn-
gang að bókinni, en Helgi Skúli
Kjartansson hefur snarað Galdrafár-
inu á islenzka tungu og ritar hann
einnig inngang Ritstjóri Lærdóms-
rita Bókmenntafélagsins er Þor-
steinn Gylfason, háskólakennari
Nú hafa komið út 1 6 lærdómsrit
Hins islenzka bókmenntafélags, en
útgáfan hófst með ritunum Um sál-
greingu, Frelsinu eftir Mills og Af-
stæðiskenningunni eftir Einstein, en
meðal merkra rita, sem eru í þessum
flokki. má geta Síðustu daga Sókra-
tesar eftir Platón, Samræðna um
trúarbrögð eftir Hume, Birtings
Voltaires og Um skáldskaparlistina
eftir Aristoteles
í kynningu Hins íslenzka bók-
menntafélags á nýju ritunum tveim-
ur segir um Gorgias Platóns:
„Gorgias er ugglaust sú samræða
Platóns, sem mest erindi á við allan
almenning á síðustu tímum. í henni
gerir Platón upp sakirnar við lýðræð-
ið, þá stjórnskipun, sem við nú
lifum; höfum þegið i arf frá hinum
fornu Aþenumönnum Óvist er.
hvort nokkur höfundur hefur visað
lýðræðinu á bug af öðrum eins
sannfæringarkrafti og Platón gerir i
Gorgiasi Þó er kannski meira vert
um falsleysi Platóns, þvi að við er-
um þvi vönust. að jafnvel eindregn-
ustu andstæðingar lýðræðis telji
prýði að nafni þess og margvisleg-
um ytri búnaði Samræðan er eitt af
höfuðritum Platóns um siðfræði. og
er þar ýtarlegasta tilraun hans til að
sanna með rökum svonefnt lögmál
Sókratesar: að betra sé að þola órétt
en beita honum."
Og um Galdrafárið i Evrópu segir
í kynningu forlagsins: „H R. Trevor-
Roper er einn kunnasti sagnfræð-
mgur Breta og það af ritsnilld sinni
ekki síður en lærdómi í Galdrafár-
inu tekur hann til umhugsunar þann
þátt hugmyndasögu Vesturlanda,
sem m a leiddi til galdramála og
nornabrenna. Hann lýsir á minnis-
stæðan hátt mörgum atvikum þeirr-
ar ófögru sögu, en einkum beinir
hann sjónum að þeim hugmynda-
heimi lærðra manna, sem gerði
galdafárið möguleg Hvernig gat svo
afskræmileg kenning náð þvíliku of-
urvaldi? Hvað hvatti og hvað seink-
aði hruni þessa hugmyndakerfis?
Rannsóknin er gerð af alvöruþunga
manns. sem þekkir úr samtíð sinni
Gyðingaofsóknir og aðrar haturs-
hreyfingar, sem galdrafár fyrri alda
er óhugnanlega áþekkt
MWIIIt-
IflHtlfVfV
SG - híjómplölur*
FJÖRTÍU GULLFALLEG JÓLALÖG
í ÁTTA BRÁÐSKEMMTI
LEGUM SYRPUM.
SILFURKÓRINN
var stofnaöur sérstaklega með
þessa plötu í huga.
Hann er skipaður tuttugu og fjórum
ungmennum, sem öll hafa sungið
i öðrum kórum — hér er valinn
maður í hverju rúmi.
Útsetningar, kór- og
hljómsveitarstjórn er í höndum
MAGNÚSAR INGIMARSSONAR.
Þetta er jólaplata, sem kemur öllum
í jólaskap. Tvímælaíaust vandaðasta
og bezta jólaplata, sem komið
hefurút á íslandi.
Verð á plötu eða kassettu kr.3300.~
*•«*
SG-^^nplötur