Alþýðublaðið - 02.11.1958, Blaðsíða 1
JCXXIX. árg.
Sunnudagur 2. nóv. 1958.
249. tbl.
FYRIR nokkrum mánuðum
var hafizt handa um uppsetn
ingu ratsjár á Reykjavíkur-
flugvelli. Málið hafði verið í
undirbúningi nokkurn tíma,
enda að allra dómi tími til
kominn að ratsjá yrði sett
þar upp.
Brezkir sérfræðingar komu
til landsins og unnu að upp-
setningu ratsjárinnár ásamt
íslenzkum mönnum.
Nii liefur komið í ljós, að
ratsjá þessi er stórgölluð, svo
ekki sé meira sagt. I góðu
veðri sjást flugvélar, sem ná-
læ-gt vellinum fljúga, allvel,
en er syrtir að með rigningu
cða éli, sést umferðin engu
betur í ratsjánni en með ber
um augum.
Enn fremur hefur það flog-
ið fyrir, að ratsjáin nái m'un
skemur en upphaflega var á-
kveðið. Samkvæmt samningi
flugmálastjórnarinnar ís-
lenzku átti svið ratsjárinnar
að vera 75 rriílur. Reyndin
mun vera að ekki náist heim-
ingur þeirrar vcgalengdar.
Hvort hér er um bein svik
að ræða hjá íyrirtækinu, sem
seldi Islendingum ratsjána,
er erfitt að segja, en full á-
stæða er til að halda, að hér
sé eitthvað gruggugt á ferð-
inni.
Sem betur fer hefur flug að
og frá Reykjavíkurflugvelíi
gengið vel þau seytján ár,
sem völiurinn hefur starfað,
þótt ratsjá hafi ekki verið
fyrir hendi. Engin ástæða cr
til þess að halda, að svo verði
ekki einnig í framtíðinni.
En fyrst búið er að leggja í
kbstnað við að ka-upa rat-
sjána og koma henni upp, þá
er það slæmt — að ekki sé
meira sagt — að ekki skuli
verða að henni þau not, sem
til var ætlast.
/ritskoðun^
„Og þar sem við höfum alltaf verið á móti bóka
brennum, bá ættum við að banna að gefa bókina út.”
FRÁ ÞVÍ að reglugerðin um 12 sjómílna fisk-
veiðilandhelgi íslands gekk í gildi hafa alls 113 hrezk-
ir togarar verið kærðir fyrir ólöglegar veiðar, þar af
margir oftar en einu sinni. Á þessu tímabili hafa ís-
lenzku varðskipin og flugvélarnar farið 59,450 sjó-
mílur í gæzluerindum.
Alþýðublaðinu barst í gær
eftirfarandi fréttatilkynning
frá landhelgisgæzlunni um
ganga málanna undanfarið:
,,Frá því að hin nýju fisk-
veiðitakmörk tóku gildi hinn 1.
sept. sl. og tii þessa dags er
ekki vitað um að önnur skip
hafi stundað ólöglegar veiðar
hér við land en brezkir togarar,
en þeir hafa eins og kunnugt
er gert það samkvæmt fyrir-
mælum útgerðarfélaga sinna
og undir vernd brezkra her-
skipa.
Þessar ólöglegu veiðar hafa
þó ekki verið stundaðar jafnt
kringum allt land, heldtir á á-
kveðnum svæðurn og undir
stjórn yfirmanna brezku her-
skipanna, eða umíboðsmanna
togaraeigendanna, sem hafa
verið þar um borð. Virðast á-
kveðnar reglur hafa gilt um
þar, en þær eru í stuttu máli
þannig:
í fyrsta lagi hefur hver brezk
ur togari, sem veiðir á fslands-
miðum, fyrirmæli um að stunda
ólöglegar veiðar a. m. k. 3 sól-
arhringa (72 klst.) í hverri
veiðiferð, á einhverju þeirra
veiðisvæða, sem vernduð eru af
herskipunum. Hann skal til-
kynna bæði komu sína og brott
för frá svæðinu og vera í nánu
radio-sambandi og undir algerri
yfirstjórn herskipanna á meðan
hann dvelst þar. Þessum regl-
Framhald á 11. síðu
■iir
Fasfakaup hækkar um 22% í grunn á mánuði
Áki Jakobsson
í GÆR tóku gildi nýir kaup-
og kjarasamningar háseta og
annarra undirmanna á togur-
um. Samkvæmt þeim samning-
um fá hásetar 22% grunnkaups
hækkun á fastakaupi sínu á
nánuði. Netamenn, bátsmaður
tg matsveinar fá hlutfallslega
afnmf.kla hækkun. Gilda hinir
týju samningar til 1. júní nk.
Alþý'ðublaðið sneri sér til
Sjómannafél. Rvíkur í gær og
'ékk þessar upplýsingar:
Samningaviðræður hafa und-
mfarið staðið yfir milli samn-
.nganefnda Félags ísl. botn.
vörpuskipaeigenda Og sjó-
rnanna um breytingar á samn-
ingunum án þess, að til upp-
sagnar þyrfti að koma. En ef
samningunum hefði verið sagt
upp, þá hefðu þeir fallið úr
gildi 1. desember.
22% GRUNNKAUPS-
HÆKKUN FASTAKAUPS
'Samkomulag tókst um, að
fastakaup háseta hækkaði úr
1596 kr. á mánuði í grunni 1950
kr. eða um 22%. Kaup kyndara
og matsveina skyldi hækka
hlutfallslega. Þá náðist einnig
samkomulag varðandi kaup þeg
ar um slys eða veikindatilfelli
er að ræða, á þá lund, að út-
gerðin skuli greiða eftirfarandi
umfram það, er sjólög ákveða:
Sjómanni, sem hefur verið eitt
ár í þjónustu útgerðarinnar, 75
kr. á dag í grunn og fæðispien-
inga auk verðlagsuppbótar í 2
vikur (til viðbótar þeirri viku,
er sjólög ákveða). Manni, er hef
ur unnið 2 ár í þjónustu útgerð
árinnar þetta sama í allt að 4
Vikur til viðbótar því, er sjó-
lög ákveða. Og þeim, sem unnið
hafa í 3 ár eða lengur, þetta
sama í allt að 6 vikur til við-
bótar.
KAUP UNGLINGA HÆKKAÐ
Auk þessa voru ýmsar
fleiri breytingar gerðar til
hagsbóta fyrir sjómenn. Varð
andi kaup unglinga yngri en
16 ára var samið um eftirfar-
andi: Efitir 2ja mán. reynslu-
tíma skulu 15 ára unglingar
Framhald á 5. síðu.
Pasfernak skrifar Krústjov
Eggert G. Þorsteinsson.
TVEIR fundir verða haldnir
í dag á vegum Alþýðuflokksins.
Á Hofsósi hefst fundur kl. 2
e. h. í dag og á Sauðárkróki
í kvöld í Templarahúsinu kl.
8.30 e. h. Á fundum þessum
mæta alÞingismennirnir Áki
Jakobsson og Eggert G. Þor-
steinsson.
BORIS PASTERNAK hefur
skrifað Krústjov hréf og biður
hann að korna því til leiðar, að
hann fái að búa áfram í Sovét-
ríkjunum. Bréfið er einnig stíl-
að til miðstjórnar kommúnista-
flokks Sovétríkjanna. Paster-
nak segir að það sé ógerningur
fyrir sig að flytja úr landi, hann
sé fæddur í Rússlandi og þar sé
bakgrunnur verka sinna og
starfs. Hann kveðst ekki hafa
-gerf sér í hugarlund, að hann
yrði miðdepill pólitísks mold-
viðris á Vesturlöndum.
Bókmenntamenn i Sovétríkj.
unum hafa mjög krafizt þess að
Past-ernak hverfi úr landi. Tass
fréttastofan lét svo um mæ'lt í
gær, að Pasternak væri heimilt
að fara úr landi og setjast að
þar sem hann geti notið lysti-
semda hins kapítalíska heims.
Bréf Pasternaks til Krústjovs
fer hér á eftir í lauslegri þýð-
ingu:
„Kæri Nikita Sergeyvits.
Ég sný mér til yðar persónu-
lega, miðstjórnar Kommúnista
flokksins og ráðstjórnarinnar.
Af ræðu félaga Semikastni
Framhald á 5. síðu.