Alþýðublaðið - 02.11.1958, Síða 3
Sunnudagur 2. nóv. 1958.
AlþýðublaS3<5
'3
Alþýðublaöiö
Útgefandi:
Ritstjóri:
Fréttastjóri:
Auglýsingastjóri:
Ritstjórnarsímar:
Auglýsingasími:
Afgreiðslusími:
Aðsetur:
A Iþýðuf1okkurínn.
Helgi Sæmundsson.
Sigvaldi Hjálmarsson
Emilía Samúelsdóttir.
14901 og 14902.
1 4 9 0 6
1 4 9 0 0
Alþýðuhúsið
Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfisgötu 8—10.
Ráðstefnan í Genf
Á FÖSTUDAG hófst í Genf ný ráðstefna-um kjarnorku.
málin, sem verið hafa eitt mesta ágreiningsefni stórveld-
anna undanfarið. — í því samíbandi er þess spurt af millj-
ónum víðs vegar um heim, hvort tilraunum með kjarn-
orkuvopn muni hætt. Því miður er ekki ástæða til mikillar
bjartsýni í upphaf. ráðstefnunnar, hversu svo sem til 'tekst •
að lokum. Bretar og Bandaríkjamenn vilja hætta tilraun-
um með kjarnorkuvopn í eitt ár, ef Rússar geri slíkt 'hið
sama. Rússar ieggja hins vegar megináherzlu á, að tilrauri-
um þessum verði hætt um aldur og ævi. Ágreiningurinn ér
hins vegar um hvernig tryggja skuli, að við það bann verði.
staðið.
Auðvitað er eðlilegt að krefjast þess, að jafnframt banni
við tilraunum með kjarnorkuvopn komi til sögunnar öruggt
eftirlit í þessu efni og skipulögð afvopnun stórveldanna,
en þá myndu aðrar þjóðir að sjálfsögðu.fara að dæmj þeirra.
Vesturveldin gera þessi atrið. að skilyrði. Eftir er svo að
vita, hvort Rússar fallast á þau eða svara þeim þvermóðsku-
lega. Úr því mun ráðstefnan í Genf skera,
Von mannkynsins er sú, að stórveldin beri gæfu til
samlkomulags og samvinnu um kjarnorkumálin. Tilraun-
irnar með kjarnorkuvopnin eru öllumi hugsandi o-g á-
byrgum mönnum áhyggjuefni. Sérfróðir aðilar færa
mörg rök að því, hversu hættulegar þær séu. Þó er
skug-gi þeirra enn ægilegri. Hann er sú tilhugsun, að
kjarnorkustyrjöld kunni að vera í vændum. Hún myndi
tefla öllu lífi á jörðinni í tvísýnu.
Að þes§u athug'uðu virðist ekkert álltamál, að stórveld-
in eigi að hætta tilraunum með kjarnorkuvopnin í eitt
sk'pti fyrir öll eins og Rússar leggja til. En sú ráðstöfun
verður því aðeins raunhæf, að jafnframt sé fallizt á skil-
yrði Vesturveldanna, öflugu eftirliti á komið og hafizt
handa um, skipulagða afvopnun. Og smáríkin hljóta að
beita áhrifum sínurn eindreg ð í þá átt, að þessi megi verða
niðurstaða ráðstefnunnar í Genf. Þar með væri óttanum
víð tortímingarstyrjöld bægt fá dyrum heimsins og mann-
kynsins. En hann verður því aðeins sigraður að áður sé endi
bundinn á kalda stríðið. Tiliögur begsja deiluaðilanna hafa
því rétt á sér. Spurningin er aðeins sú, hvort þeir ná. sam-
komulagi um að fram,kvæma sameiginlega, það, sem hvor
um sig læzt vilja.
BRYNJÖLFUR BJAENASON vék af vettvangi íslenzkra
stjórnmála í síðustu alþ ngiskosningum, en nú er hann
kominn aftur í leitirnar. Iiann var kjörinn formaður Sós-
íalistafélags Reykjavíkur á aðalfundi þess í síðustu viku og
fékk til ráðunevtis nokkra af kunnustu Moskvakommúnist-
um höfuðstaðar ns.
Afturkoma Brynjólfs er að athuguðu máli ekkert undr-
unarefni. Hann tók sér fyrir hendur að ag'a Þá Alþýðubanda
lagsmienn, sem dirfðust að fordæma „lýðræðið" í Ungverja-
landi. Og vitað er, að Brynjólfur hefur litla velþóknun á
þeim mönnum, sem leystu hann frá störfum sumarið 1956.
Raunar metur hann varla þingmennskuna mikils, en hon-
um er sárt um völdin í flokknum. Nú er hann sem. sagt kom.
inn á stúfana aftur. Er því ekki ósennilegt, að til nokkurra
tíðinda dragi í Sósíalistaflokknum og að „lýðræðishetjurn-
ar“ í Alþýðubandalaginu, sem ætluðU að losa íslendinga við
Moskvukommúnismann, fái verk að vinna.
Brynjólfur Bjarnason var kosinn formaður Sósíalistafé-
lags Reykjavíkur fjarverandi eftir að hafa gengið frá und-
irbúningi afturkomunnar. Hann er um þessar mundir í
fyrirlestraferð um Rússland og Kína. Táknræn tilviljun
það!
Samstarfsfólki, félögum, stofnunum, vin-
um, kunningjum og vandafólki, er sýndu mér
margvíslega vinsemd á is'extugs afmæli mínu
29. september síðastliðinn, þakka ég innilega
og bið þeim allrar blessunar.
J ó n A x e I.
lurjón Jónsson rithöfundur sjöfugur.
SIGURJÓN Jónsson, einn af
sérstæðustu mönnum, sem ég
hef kynnzt, og um leið mjög
sérkennilegur rithöfundur, er
sjötugur í dag.
Sigurjón er fæddur í Reykja-
vík 2. nóvember 1888. Faðir
hans stundaði sjósókn. Hann
var Vatnsdælingur að ætt og
uppruna. Móðir Sigurjóns hét
Guðrún og var Sæmundsdótt-
ir. Hún var úr Skagafirði, Sig-
urjón fór snemma í fóstur til
Guðrúnar Jónsdóttur úr Norð-
tungu í Borgarfirði og ólst upp
hjá henni í Húsavík í Þingeyj-
arsýslu. Hún hefur verið ein
af þeim miklu, íslenzku al-
þýðukonum, sem með hand-
leiðslu fátækra og fákænna, en
í rauninni mjög mannaðra og'
á vettvangi skapgerðarinnar
þroskaðra foreldra, mótuðust
þanriig í bernsku, að.þæf urðu viðbrögð hennar við hverjum
höfðingskonur í kotiingskjör-
um og sérstæð valmenni. kröfu
harðar við sjálfar sig, en ótrú-
lega skilningsríkar á mein og
misferli annarra. og því gædd-
ar svo ríkri fórnarlund, að þær
sáust ekki fyrir um viðleitni
sína til bóta og bjargar og mátu
aldrei velgjörðir sínar við það,
hvort um þær munaði til fram-
búðar, heldur við skyldu sína
og líknarþörf þeirra, er þáðu.
Sigurjón tók gagnfræðapróf
á Akureyri tvítugur, og var
síðan farkennari í Þingeyjar-
sýslu í fimm ár. Árið 1913
kvæntist hann Rósu Jónasdótt-
ur frá Völlum í Eyjafirði, tók
þar við búi og bjó þar til vors-
ins 1918. Þá fluttist hann til
Reykjavíkur og gerðist starfs-
maður í Landsbankanum. Þar
gegndi hann störfum í hálfan
fjórða áratug og veitti lengi
forstöðu útibúi bankans við
Klapparstíg.
Við Sigurjón hittumst fyrsí
vorið 1918. Ég var þá í könn-
unarleiðangri upp á þá sjónar-
hæð, sem guðspekingar höfðu
fundið og töldu veita víða sýn
yfir dulda heima tilverunnar
og að nokkru tilgang hennar.
Sigurjón var þa orðinn sann-
færður guðspekingur og jafn-
framt var hann á hraðri leið til
sósíalismans, því að honum
virtist markmið hans samræm-
ast þeirri lífsskoðun, sem guð-
spekin hafði að flyt.ja. Við Sig-
urjón ræddumst stundum við
sumarið 1918 og veturinn 1918
—19, en raunar voru samræð-
ur okkar oftast þannig, að ég
spurði, og hann svaraði. Þótti
roér hann fjölvís um dulda
heima og æðri máttarvöld,
skýr í hugsun og markviss, en
í rauninni fannst mér hann
vita til margt um hið flestum
hulda og stefna hans öll furðu
strikbein, og þótti mér ólík-
legt, að svo væri byr hagstæð-
ur, sjóar litlir, straumar linir
og skyggni gott á hafi tilver-
unnar, ag ekki kæmi til ein-
hverra frávika á strikinu, ef
skútan ætti að verða vel reið-
fara. Ég sá og heyrði sitthvað
af því, sem hann hafði þá skrif-
að. Það var skráð á óvenju-
hreinu og rökvísu máli, og mér
duldist ekki, að hann réð yfir
miklum orðaforða og hafði ríkt
hugarflug, en ég þóttist sjá, að
hann léti mál- og skáldgáfu
sína þjóna svo mjög ákveðnum
tilgangi, að ekki gæti gætt
æskilegrar og eðlilegrar fjöl-
breytni um könnun þeirra
hvata og tilfinninga manneskj-
hans, sem í rauninni eru rit-
aðar í anda hins svokallaða og'
síðar ræmda sósíalrealisma.
Þær eru Silkikjólar og vað-
málsbuxur og Glæsimennska . .
Þar var hinn þröngi sósíalíski
áróður settur í hásætið og lát-
inn ráða um val leiða og leið-
arloka. í fótspor Sigurjóns fet-
aði síðan Gunnar Benedikts-
son. Ég þekkti Gunnar og taldi
hann mikið efni í að minnsta
kosti mjög rökrænan og víð-
sýnan rithöfund, en mér duld-
ist ekki, að kreddublindan
mundi jafnt hefta hann og Sig-
urjón á brautinni til frjórrar
leitar og listræns sjálfstæðis.
Án þess að ég þá gerði- mér
fulla rökræna grein fyrir því,
var ég þarna að hefja barátt-
una gegn þeim þrældómsanda,
unnar, sem valda mestu um sem gíðar he£ strítt og
Sigurjón Jónsson.
lífsvanda. Þó var ég svo óráð-
inn sjálfur og' bókmenntaleg
viðleitni mín svo reikul og
fitlkennd, að engan veginn
þóttist ég bær til, að kveða
þarna upp neinn áfellisdóm, og
skildum við Sigurjón sáttir,
þegar ég lagði leið mína aust-
ur á land 1919.
En á þessum árum mátti
heita, að ég sinnti ekki nema í
ígripum neinu öðru en lestri
og heilabrotum um skáldskap-
arleg, trúarleg og söguleg við-
horf, sem ég þóttist finna að
vrðu að vera grundvöllur þjóð-
félagslegra stefna og mark-
miða. Ég komst að þeirri nið-
urstöðu, að hvað sem öðru liði,
yrðu skáldin að skyggnast sem
dýpst í menningarleg og sögu-
leg rök þjóðlegrar þróunar,
gera upp reikningana fyrir ein-
staklinginn og heildina á tím-
um mikilla breytinga og um-
brota og móta í samræmi við
fortíðina heildarstefnu, sem
gerði ráð fyrir nægilega mörg-
um og margvíslegum frávik-
um til þess að fullnægja þörf
einstaklinganna til persónu-
legs frelsis og þroska og þjóð-
félagsins til lífrænnar fjöl-
breytni um hvers konar við-
horf. Því var það, að þá er hin-
ar fyrstu bækur Sigurjóns
komu út, var ég ekki lengur
í neirium vafa um, að skáld-
gáfa hans og ritleikni væri á
villigötum. Hvort sem litið var
til listarinnar eða til áróðurs-
gildis væru þær of léttvægar,
vegna einhæfni um viðmiðun,
skort á lífrænum andstæðum
og skírskotun til hins marg-
breytilega lifandi lífs, Dómur
minn hlaut því að verða óvægi-
legur. Eins fór um þær bækur
nú hefur lýst sér svo skýrt og
átakanlega í viðhorfum ráð-
stjórnarvaldanna til Boris Pa-
sternaks, að jafnvel áratuga
bandingjar rumska í fjötrun-
um.
Dómar mínir um fyrstu bæk-
ur Sigurjóns urðu til þess, að
leiðir okkar skMdi um áratugi.
Árið 1947 las ég nýja bók frá
hans hendi, Sögur og ævintýri.
Þar hverfur hann í sumum sög-
unum til bernskunnar, að
knjám fóstru sinnar og í hóp
leikbræðra og leiksystra. Hann
kannar á vegum fóstrunnar
þau lífskjör og lífsviðhorf, sem
mótuðu hana og gerðu hana að
þeim sérstæða persónuleika,
sem hún var, hann athugar
bernskuferil sinn og gerir sér
grein fyrir, hverju örin frá
beim árum hafa valdið um stæl
ingu, herkju, einsýni og þörf
til stuðnings, þá er í þau hef-
ur tekið svo miög í næðingum
lífsins, að vart hefur hann get-
að af sér borið. Yfir öllu, sem
hann segir frá úr þessari könn-
unarför sinni á vit bernskunn-
ar. hvílir blær heiðríks raun-
sæis, sem einnig nær að móta
flest annað, sem í bókinni birt-
ist. Mér var þegar ljóst, að af
rithöfundinum Sigurjóni Jóns-
svni hafði fallið fjöturinn, og
að hvort tveggja kostir og
gallar þessarar bókar var í
nánu samræmi við hæfileika
hans og eðlilega lífstjáningu.
Svo gerist þá það, að á sjö-
tugsaldrinum skrifar Sigurjón
skáldsögu eftir skáldsögu, þar
sem hann rýnir í menningar-
leg örlagarök þjóðar sinnar.
Þessar sögur gerast á þeim tím
um, sem hinn heiðni dómur
Framhald á 5. síÍSu.
Hrcyfilshúðin.
Það er hentugt fyrir
FERVAMENN
að verzía í Hreyfilsbúðinnl.
Hreyfilsbúðin.