Morgunblaðið - 23.04.1978, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1978
3
Samkeppni um húsa-
og umhverfisvernd
FERÐAMÁLARÁÐ íslands og
samtökin Evropa Nostra —
Evrópa okkar — efna um þessar
mundir til samkeppni meðal
þeirra er sérstaklega hafa unnið
að varðveizlu og endurbótum á
byggingar- og náttúruarfleifð
Evrópu.
Mun domnefnd skipuð af Ferða-
raálaráði veita sérstaka viður-
kenningu einum íslenzku þátttak-
endanna en verklýsingar keppenda
verða síðan sendar höfuðstöðvum
Evropa Nostra. A því sérhver
keppandi kost á tveimur viður-
kenningum. Mun Evropa Nostra
gefa út bók með myndum af
verkefnum þeirra, er viður-
kenningu hljóta og verður henni
dreift um öll Evrópulönd.
Þátttakendur geta sent verk-
Framhald á bls. 31
Gústaf og félagar í Reykjavík
VAKIN skal athygli á því að í
dag, sunnudag, sýnir hinn þekkti,
þýzki brúðuleikhúsmaður Al-
brecht Roser í Hagaskóla kl. 20
og er það eina sýning hans hér á
landi en um hann var fjallað í
frétt • Morgunblaðinu í gær.
Skólasýningunni í
Asgrímssafni að ljúka
SKÓLASÝNINGU Ásgrímssafns,
sem opin hefur verið undanfarn-
ar vikur, lýkur í dag. Verður
safnið lokað um tíma vegna ýmiss
konar lagfæringa. Næsta sýning
þess verður hin árlega sumarsýn-
ing, sem opnuð verður um svipað
leyti og Listahátíðin hefst.
Fjöldi nemenda úr hinum ýmsu
skólum borgarinnar skoðuðu
sýninguna. Meðal verkanna á
þessari sýningu eru þjóðsagna-
myndir og landslagsmyndir,
málaðar með olíu- og vatnslitum.
I dag er sýningin öllum opin frá
kl. 1.30 — 4. Aðgangur er ókeypis.
Roser kom hingað a vegum
Goethe-stofpunarinnar þýzku,
þýzka bókasafnsins og Unima,
félags íslenzkra brúðuleikhús-
manna. Þau Hallveig Thorlacius
og Jón E. Guðmundsson formaður
Unima á íslandi höfðu samband
við Mbl. til að vekja athygli á
sýningu Rosers. Sögðu þau m.a.:
„Við. sóttum alþjóðlega hátíð
brúðuleikhúsfólks í Moskvu árið
197é og sáum um 20—30 brúðu-
leikhússýningar hvaðanæva að úr
heiminum og óhætt er að segja að
sýning Rosers vakti mesta athygli
Enda eru sýningar hans eftirsótt-
ar alls staðar."
Þau Hallveig og Jón vildu að
lokum koma á framfæri þakklæti
til fræðsluráðs Réykjavíkur fyrir
veitta aðstoð í sambandi við
sýninguna.
Málverkasýningu Gísla Sigurðssonar í Norræna húsinu
lýkur á morgun, mánudag. Aðsokn að sýningunni hefur
verið góð en hún er opin frá kl. 14—22 daglega.
Sýningu Gísla í Norrœna
húsinu að Ijúka
^i
-A= |
Grípiö tækifæriö
meö Loftbrú Út-
sýnar sem lækkar
feröakostnaöinn
svo aö miöaö viö
hótelgistingu meö
háifu fæöi eru
Grikklandsferöir
Útsýnar
á sambærilegu
veröi viö Spánar-
feröir.
Grikkland er gætt marg-
slungnum töfrum og Ijóma,
sem ekki stafar aöeins af
fornri frægö og hetjudáðum
Heilena hinna fornu, heldur
orkar hér bjarmi himins og
blámi lofts og sjávar á
gestinn með seiðmögnuðu
afii, og dulúö liöinna alda,
biönduð austrænu ívafi, ails
staðar nálæg, greypt í
ásýnd landsins og ótal
minjar svo aö sagan stígur
fram eins og Ijóslifandi og
-i5?5ií|jSjr~*ii, &ar1| • -|r
Brotttör:
Maí 13. — uppsalt
Júní 1. — örfá Mti laua
Júní 22. — laus sati
Júlí 6. — nokkur sssti
Júlí 27. — laus sæti
Ágúst 10. — laus s»ti
Ágúst 24. — nokkur sssti
Sapt. 14. nokkur s»ti laus
feS.JBiib-'Sta
I
tr -
tur
STRAND HOTEL verður aöalgististaður Útsýnarfar-
þega í Vouliagmeni sumariö 1978. Þetta vistlega
hótel stendur aöeins steinsnar frá AKTI-ströndinni,
um 5 mín. gang frá ASTIR-ströndinni og um 10 mín.
gang frá miöborginni. öll herbergi eru loftkæld,
hafa baö og svalir, útvarp og síma. Á 1. hæö er
bar og veitingastaöur undir beru loft meö tónlist
og dansi á kvöldin.
MARGI HOUSE Hótel, sem er í A. flokki er mjög
smekklegt og þægilegt, steinsnar frá AKTI-ströndinni.
Öll herbergi eru loftkæld, hafa baö og svalir, útvarp
og síma. Stór setustofa og bar. Hárgreiöslustofa,
gjafa-verzlun o.m.fl. Á efstu hæð er skemmtileg
„TavernaMnnréttuö í rúmönskum stíl. Lítil sundlaug.
Hótelið hefur sérstakan áætlunarbíl í förum til Aþenu
fyrir gesti hótelsins, gegn vægu gjaldi. Diskótekiö, þar
sem dansað er flest kvöld.
WHITE HOUSE er nýtízkuleg íbúöabygging, sem
stendur viö strandgðtuna f Vouliagmeni. tbúöirnar
eru eitt eöa tvð svefnherbergi, Iftiö eldhús, setustota
meö svölum og gott baöherbergi. íbúöirnar eru
smekklega búnar og öll nauösynleg eldhúsáhöld
fylgja. Matvöruverzlanir skammt frá. i Vouliagmeni
eru margir matsölustaöir f öllum veröflokkum, frá
hinum þekktu grísku „Tavernum', þar sem lítiö er
lagt upp úr íburöi, en hægt aö fá góöa máltíö fyrir
ótrúlega lágt verö, allt upp í glæsilegustu matsölu-
og skemmtistaöi Grikklands, sem einnig eru
staösettir f Vouliagmeni og nágrannabænum
Varklza.