Morgunblaðið - 23.04.1978, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1978
17
berjast gegn hryðjuverkamönnum
á þann hátt einan, sem þeir skildu.
Það yrðu hörmulegar afleiðingar
af ódæðisverkum, ef þróunin yrði
slík í lýðræðislöndum V-Evrópu og
víðar. Við skulum vona, að þau öfl
verði ofan á, sem með lýðræðisleg-
um hætti geta unnið bug á
hermdar- og hryðjuverkamönnum
og öfgamönnum yfirleitt.
Aldo Moro
og íslendingar
Við Islendingar göngum nú senn
til kosninga. Við skulum minnast
þess, að enda þótt slíkir atburðir,
sem hér hafa verið gerðir að
umtalsefni, séu enn nokkuð fjar-
lægir okkur, þá getur leikurinn
borizt heim í okkar eigin hlað-
varpa, og þá fyrst mundum við
e.t.v. sjá okkar sæng upp reidda.
Við skulum gera okkur grein fyrir
því, að fjölmiðlamenn hér vita, að
ekki alls fyrir löngu var ástæða til
að staldra við dálitla fréttatil-
kynningu, sem enginn fjölmiðl-
anna birti að visu, en allir sáu í
hendi sér, sem fengu hana til
lestrar, að hún táknaði það fyrst
og síðast, að hugir einhverra
hérlendra manna hafa sýkzt af
þeim hryllilega andlega sjúkdómi,
sem kallar á ódæðisverk af fyrr-
nefndu tagi. En við skulum vona,
að sjúkdómurinn fái enga út-
breiðslu hér á landi og eigi ekki
eftir að hafa neinar alvarlegar
afleiðingar í för með sér, svo hætt
sem mörgu ungu fólki virðist nú
um stundir við að gleypa
bakteríur öfga og ofbeldis og leyfa
þeim að hreiðra um sig í ómót-
uðum huga sínum. Islenzk æska
ber vonandi gæfu til þess að
fordæma atburði í Angólu,
Ogaden, Eritreu, Kambódíu og
víðar og hrista af sér þau öfgaöfl
sem dreifa rauðum sýklum haturs
og fyrirlitningar um heim allan.
Örlög manna eins og Aldo Moros
verða vonandi ekki örlög neinna
íslendinga.
Anna Moffo
til íslands
í TILEFNI af tuttugu ára afmæli
Fulbright-stoínunarinnar á
íslandi hefur Fulbright-nefndin í
samvinnu við Iláskóla íslands
afráðið að efna til tvennra
tónleika í Reykjavík á hausti
komanda þar sem hin heimsfræga
sópransöngkona Anna Moffo
kemur fram.
Að sögn Franks Ponzis,
formanns Fulbright-nefndar, og
Guðlaugs Þorvaldssonar háskóla-
rektors verða umræddir tónleikar
haldnir í Háskólabíói
fimmtudaginn 26. október kl. 20.30
og sunnudaginn 29. október kl.
14.30.
Snemma á Iistamannsferli
K-dagurinn:
Söfnunarféð nam
15 milljónum kr.
SÖFNUN Kiwanishreyfingarinn-
ar á íslandi er fram fór í október
síðast liðnum á svonefndum
K-degi nam alls um 15 milljónum
króna, en á fundi með frétta-
mönnum í gær kynntu Kiwan-
is-menn árangur söfnunarinnar.
K-dagurinn sem er árlegur
söfnunardagur Kiwanishreyf-
ingarinnar og fer fram um allt
land, var hinn 29. október og var
þá undir kjörorðinu Styðjum
geðsjúka. Höfuðtilgangur dagsins
var að vekja fólk til umhugsunar
um vandamál geðsjúkra, sagði
Eyjólfur Sigurðsson sem var
formaður framkvæmdanefndar og
voru þessi vandamál kynnti í
fjölmiðlum og leitað til almenn-
ings eftir fjárframlögum til fram-
kvæmda í þágu geðsjúkra. Merki
K-dagsins, lykillinn, var seld um
allt land en á landinu eru nú 32
klúbbar með um 1100 meðlimi og
þar sem ekki eru starfandi klúbbar
voru fengnir t.d. skólanemendur
til að annast framkvæmdina.
Forráðamenn Kiwanishreyfingarinnar og framkv.nefnd K-dagsins
Ráðstöfun fjárins verður ákveð-
in á þingi Kiwanishreyfingarinnar
í sumar, og verður tíminn fram að
því notaður til að kanna hvernig
þessir fjármunir koma bezt að
notum í þágu geðsjúkra, en
könnunina annast félagar
Kiwanishreyfingarinnar í samráði
við þá aðila er bezt þekkja til
vandamála geðsjúkra, sagði
Eyjólfur Sigurðsson, og gat hann
þess að lokum að þær vaxtatekjur
sem af söfnunarfénu fást muni
nægja til að standa undir kostnaði
við söfnunina þannig að til ráð-
stöfnar verði um 15 milljónir
króna. Og sagði hann að Kiwanis-
mönnum væri það mikil ánægja að
svo margar fórnfúsar hendur
skildu hafa gengið til liðs við þá
í þessu verkefni.
sínum hlaut Anna Moffo Ful-
brightstyrk til söngnáms á Ítalíu.
Islendingum er hún vel kunn fyrir
söng sinn af hljómplötum í Ríkis-
útvarpinu og fyrir hlutverk sitt í
óperunni „La Traviata" eftir
Verdi, sem sýnd var í sjónvarpinu
ekki alls fyrir löngu. Þar söng hún
hlutverk Violettu, eitt af höfuð-
hlutverkum hinnar vinsælu óperu.
Þar sem búist er við mikilli
aðsókn að tónleikum Önnu Moffo,
var ákveðið að efna til tveggja
frekar en einna tónleika, þannig
að sem flestum gefist færi á að sjá
og heyra þessa glæsilegu söng-
konu.
Aldo Moro
Hverjum hefði dottið í hug
fyrir nokkrum árum, að maður,
sem gegnt hefur forsætisráðherra-
embætti í lýðfrjálsu landi fimm
sinnum, yrði fjötraður af hermdar-
verkamönnum, dreginn fyrir svo-
kallaðan alþýðudómstól og dæmd-
ur til dauða. Engum hefði getað
dottið í hug, að svo hryllileg örlög
gætu beðið manns, sem hefur ekki
annað til saka unnið en hlotið
mikið kjörfylgi í frjálsum,
lýðræðislegum kosningum merks
menningarríkis og byggt stjórn-
málastefnu sína á festu, en um-
burðarlyndi. Engum hefði getað
dottið í hug fyrir nokkrum árum,
að slíkt gæti gerzt. En það hefur
nú samt gerzt á Italíu, að Aldo
Moro, þessi virti og mikilhæfi
stjórnmálamaður og leiðtogi
stærsta lýðræðisflokksins þar í
landi, Kristilegra demókrata, hefur
verið svívirtur með þeim hætti, að
óhug hefur slegið á hvern þann
mann, sem hefur nokkurn veginn
normal tilfinningu. Fyrst er
þessum fyrrverandi forsætisráð-
herra Ítalíu rænt úr bil sínum
eftir mikið blóðbað, síðan er
honum komið fyrir í greni þeirra
blóðþyrstu rauðu úlfa, sem ódæðið
frömdu, og loks er því lýst yfir, að
hann hafi verið dæmdur til dauða.
Hryðjuverkasamtök þau, sem
ódæði þetta hafa unnið, eru kennd
við Rauðu herdeildina sem telur
það hlutverk sitt að fullkomna
yfirlýsingar Machiavellis um, að
tilgangurinn helgi meðalið. En
þeir vesalings ógæfumenn, sem að
þessu og öðrum svipuðum ódæðum
standa, virðast því miður ekki gera
sér grein fyrir, til hvers harm-
söguleg framkoma þeirra gæti
leitt; hún gæti orðið til þess, að
öfgaflokkum til hægri, s.s. nýfas-
istum, yxi fiskur um hrygg og
fólkinu í Ítalíu þætti það sjálf-
sagðasti hlutur í heimi, að slík
öfgaöfl hrifsuðu til sín völdin í því
skyni að koma á ró og spekt og
fjármagnið nokkuð og nam
söfnunarfé 1. apríl rúmum 15
milljónum króna. Kostnaður við
söfnunina var tæpar 3 m.kr. þar
sem um 200 þúsund er söluskattur
af framleiðslu lykilsins, sem að
líkindum verður endurgreiddur að
sögn Eyjólfs. Sérstök söfnun fór
fram meðal sjómanna og gaf hún
af sér um 1,5 milljónir króna.
Einnig var leitað til fyrirtækja um
framlög.
Samtals söfnuðust tæpar 14
milljónir króna alls auk þess sem
vaxtatekjur hafa þegar aukið
9 ■ f
, ,M„ III .......................
Hermenn kommúnistastjórnar Kambódiu fylgjast vopnaðir með
störfum fólks 6 ökrum.
ÁídoMoro fyrir handtokuna
* .. **■»!.<■« ,
m Moro í greipum
hryöjuverkamanna
•>.w 'Stor *«'•
i«0itm t , ' > 'i jí'wRSS
, -St'>-#*<!
... a. 1? ,■ . % k imi ’***....
Skæruliöar úr frelsishreyfingu Eritreu
Yfirmenn herja Kúbumanna
og Rússa í Eþíópíu, Ochoa
hershöföingi og Petroy hers-
höföingi í Rauöa hernum.
Kúbanskir hermenn taka sér hvild frá manndrápum i Angóla