Morgunblaðið - 23.04.1978, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 23.04.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1978 21 hins vegar ekki margra kosta völ. Við eigum engan gjaldeyri og þar af leiðandi verðum við að minnsta kosti um sinn að beina meginhluta viðskipta okkar til þeirra sem vilja eiga við okkur skipti. Ég veit hins vegar að saltfiskur frá Islandi stendur að mörgu leyti betur að vígi en til dæmis frá Noregi. Vegna verkunar á íslenzka fiskin- um. Hann er seldur ekki fullverk- aður hingaö og það skapar aftur atvinnu fyrir á annað þúsund manns, svo að það vegur nokkuð, og við leggjum töluvert upp úr því. En hvað verður ofan á í þessu efni, treysti ég mér ekki til að spá um. Það er í rauninni afar margt sem við verðum að snúa okkur að. Við getum ekki aðeins talað um að bæta efnahagsástandið og gert efnahagsráðstafanir. Við verðum að vinna að því að hugarfarsbreyt- ing verði í þá átt að vekja með Portúgölum meiri vinnugleði og samvizkusemi. Því að framleiðsl- una þarf að auka í nánast öllum greinum og við eigum að hafa til þess möguleika ef rétt er að staðið." Ættaður frá Angola og áður forstjóri Gulbenkian Victor Sa Machado er fæddur í Angola en kom til Portúgals ungur og stundaði síðan laganám í háskólabænum Coimbra. Hann tók síðar doktorsgráðu í lögum og varð forstjóri Gulbenkian stofnunar- innar í Lissabon. Eftir byltinguna í Portúgal 1974 tók Sa Machado þátt í stofnun Miðdemókrata- flokksins ásamt Freitos do Ameral og nokkrum fleiri og var kjörinn á stjórnlagaþingið fyrir flokkinn í Aveiro 1975. I kosningabaráttunni þá sættu margir fylgismenn hans miklum ofsóknum og má segja að flokkurinn hafi nánast verið skor- inn niður við trog. Þá náðu nokkrir fulltrúar hans kosningu þar á meðal Sa Machado eins og áður segir. Sumarið 1975 sem nú er kallað „heita sumarið 75“ manna á meðal voru það þó ekki miðdemó- kratar einir sem áttu í erfiðleik- um, fylgismenn bæði alþýðudemó- krata (sem nú heita sósíaldemó- kratar) og PS-flokks Mario Soares Form. miðdemókrata í Portúgal do Amaral ásamt Mario Soares. „Hefði verið auðveldara fyrir CDS að vera utan við stjórn ...“ Ég spyr Victor hvort það sé ekki nokkuð merk þróun miðað við atburðarás síðustu ára að mið- demókratar skuli vera komnir í ríkisstjórn? Og hvernig má ætla að það stjórnarsamstarf gangi? — Það er miklu meira en athyglisvert. Það er stórkostlegur móralskur sigur, og má mjög þakka það formanni flokksins Freitos do Amaral, hversu traust og tiltrú á Miðdemókrataflokknum hefur vaxið. Það er okkur ráðherr- um CDS líka mjög verðugt verk- efni að takast á við þessi mál til að við getum sýnt að fulltrúum flokksins sé treystandi. Það er áreiðanlega kappsmál þeirra sem sitja í þessari ríkisstjórn að henni takist það metnaðarsama verk sem hún stefnir að. Staða hennar er sterk á þingi, svo að ekki þarf að hafa áhyggjur af því. Ég held mér sé óhætt að taka undir það sem Basilio Horta viðskiptaráð- herra hefur áður sagt við þig, að í þessari stjórn er ekki unnið eftir flokkspólitískum línum. Við reyn- um að vinna að málum með þjóðarhagsmuni í huga. Hins vegar er því ekki að neita að það hefði verið auðveldari kostur fyrir CDS að vera utan ríkisstjórnar. Sitja á þingi og segja nei við öllu sem ríkisstjórn hefði lagt til málanna. En forysta flokksins leit á það sem móralska skyldu að taka þátt í að leysa vandamál Portú- gals, og við teljum það vissulega meira en verðugt verkefni." urðu fyrir hvers kyns aðkasti og ofsóknum þann tíma sem komm- únistar voru allsráðandi. Sa Machado var þá einn af mörgum sem var sagt upp starfi sínu og olli það fjölskyldunni bæði fjárhags- erfiðleikum og almennum mann- eskjulegum vanda eins og gefur að skilja. Það mál er nú fyrir dómstólum og verður að telja það býsna ótrúlegt að Sa Machado sem hefur verið falið forsjá utanríkis- mála Portúgals teljist hafa verið óhæfur til að gegna starfi for- stjóra Gulbenkian. Þegar erfiðleikar fjölskyldunnar vegna þessa voru hvað mestir sumarið 1975 kom um tíma til tals að þau reyndu að komast úr landi og þá væntanlega til Brasilíu, en þangað flúðu þúsundir, einkum úr röðum menntamanna þegjir kommúnistar fóru að herða tökin. Nú hefur þetta smám saman breytzt og CDS hefur vaxið ótrúlega ásmegin. í kosningunum síðustu vann flokkurinn umtals- verðan kosningasigur og Freitos do Amaral formaður flokksins virðist að Mario Soares ólöstuðum, vera sá stjórnmálamaður sem menn hafa mesta framtíðartrú á í Portúgal. Do Amaral er rétt hálffertugur maður, lagaprófess- or. Þau orð létu margir falla í mín eyru að hann væri eini portúgalski stjórnmálamaðurinn sem kalla mætti „statesman". Það orð er erfitt að þýða svo merking náist en mætti kannski skýra það svo að það orð notuðu útlendir stjórn- málamenn og sérfræðingar um íslenzk mál um Bjarna heitinn Benediktsson. Vinnujakkar og sportjakkar kr 7.900. Rúllukragapeysa kr. Kuldaúlpur kr. nuiiumayapvjoa wi. _ 2.900.- 6.900, Storkostlegur afslattur Mikið vöruurval Vinnuskyrta kr. 1.800- Wranglerbuxur frá kr. 3.900- Sjóliðaskyrtur 2.900- iVinnufatabúðin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.