Morgunblaðið - 23.04.1978, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1978
5
ÁRNI Johnsen, blaðamaður, ræðir í kvöld klukkan 21.20 við
óperusöngkonurnar Guðrúnu Á. Símonar og Þuríði Pálsdóttur í þætti
sem ber nafnið „Guðrún og Þuríður“.
Þær stöllur koma víða við í
samtalinu og atriði í þættinum
á að koma bæði þeim og
áhorfendum á óvart.
í viðtali við Mbl. sagði Guðrún
Á Símonar að henni þætti
þátturinn fullur af lífi og fjcri og
að svona ætti allt útvarps- og
sjónvarpsefni að vera.
Þuríður Pálsdóttir sagði að
Árni hefði komið þeim stöllum
mjög á óvart með spurningum
sínum og því væri þátturinn öllu
léttari en viðtalsþættir væru
almennt. Þá sagði Þuríður að
þátturinn hefði allur verið tek-
inn upp í einni lotu, og ekkert
verið endurtekið, hefði nánast
verið um beina útsendingu að
ræða. Þuríður sagði ennfremur
að augljóslega hefði verið vand-
að til þáttarins og ættu stjórn-
endur hans þakkir skildar fyrir
þá miklu vinnu sem þeir lögðu í
hann.
____■> ií . -• ’ÆBtMlk, 4M
„í ljósaskiptunum“ nefnist norskur einpáttungur sem sýndur veröur í
sjónvarpi annaö kvöld klukkan 21.20. Hann er saminn áriö 1908 og er
Sigrid Undset höfundur hans. Einpáttungurinn fjallar um hjón sem eiga
eina dóttur og skilja. Barnið veikist og konan bíöur eftir fööur pess.
Söng-
ferill
tveggja
óperu-
söng-
kvenna
í sjónvarpi í kvöld kl. 21.20
ræðir Árni Johnsen blaðamaður
við óperusöngkonurnar Guðrúnu
Á. Símonar og Þuríði Pálsdóttur.
í þættinum er rætt um feril
þeirra beggja og inn á milli
syngja þær bæði einsöng og
dúett, m.a. syngja þær Katta-
dúettinn fræga. Þá kemur fram
í viðtalinu við þær skoðun þeirra
á einu og öðru, en báðar eru
þekktar fyrir að segja meiningu
sína tæpitungulaust. Alls eru um
10 atriði í þættinum.
Guðrún og Þuríður hafa unnið
að söngmálum á Islandi um
þriggja áratuga skeið, en báðar
fóru þær til London til söng-
náms árið 1945. Þar kynntust
þær og hafa alla tíð síðan verið
beztu vinkonur. Báðar hafa lagt
mikið af mörkum til eflingar
sönglífi á íslandi. Guðrún hefur
verið meira á sviði tónleikanna
en Þuríður hefur tekið virkan
þátt í öllum óperu og óperettu-
flutningi og m.a. hefur hún
sungið 28 hlutverk á þeim
vettvangi á Islandi, en engin
önnur íslenzk söngkona hefur
sungið jafn mörg hlutverk í
söngbókmenntunum.
Þær Guðrún og Þuríður eru nú
söngkennarar við Söngskólann í
Reykjavík.
Egill Eðvaldsson stjórnar upp-
töku þáttarins en þetta er
lengsti viðtalsþáttur sem ís-
lenzka sjónvarpið hefur tekið.
VORIÐER YNDISLEGT
ÍSÓLARLÖNDUM
og þá er líka ódýrara að ferðast
Reykjavík: Bankastrœti 10, símar 16400 og 12070
Akureyri: Hafnarstræti 94, sími 21835
Vestmannaeyjum: Hólagötu 16, sími 1515
Vegna þess aö nú er fullbókaö í mörg flug Sunnu til sólarlanda
í sumar höfum viö aukið tíöni flugferöa til Mallorka, Costa del
Sol og Kanaríeyja. Getum viö því nú boöiö fólki einstaklega
hagstæðar vorferöir meö dvöl í hinu vandaöa og eftirsótta
gistihúsrými Sunnu í sólarlöndum — og dagflug aö auki, eins
og venjulega hjá Sunnu.
.... . ___ . 1. júní, 18 dagar. Verð Iró kr. 97.800
•VI AL.LORG A 18. júní, 22 dagar. Veró frá kr. 108.700
Dvalið í hinu stórglæsilega og nýja Helíos íbúöarhóteli á
Arenalströnd. Þar sem þér njótiö frelsis og þæginda í rúmgóöum
og vel búnum íbúðum meö setustofum, hótelþjónustu,
sundlaug, garöi og veitingasölum, dansað á kvöldin.
COSTA DEL SOL 13. maí — 16 dagar. Varó frá kr. 115.700
Dvalið í hinum stórglæsilegu Playamar íbúðum alveg viö
ströndina. Stórir garöar meö 2 stærstu sundlaugum á Costa
del Sol, alveg viö baöströndina, í göngufæri viö
skemmtanalífið.
KANARÍEYJAR fjölskylduparadís sumars-
ins, ókeypis fyrir börnin.
Beint dagflug allan ársins hring.
Verö frá kr. 285.400 fyrir 6 manna fjölskyldu, í 3 vikur.
Fjölbreytt skemmtanalíf og aldrei of heitt á Kanaríeyjum, þó
um hásumar sé.
GRIKKLAND — heillandi ævintýri
Sæti laus 16. maí í 3 vikur. Veró frá kr. 132.800
Hægt aö velja um íbúðir og hótel á eftirsóttustu
baöstrandarbæjum á Aþenuströnd. Eyjunum Rodos, Krít og
Korfú, og viku ævintýraferö með 17000 smálesta skemmti-
feröaskipi.
Corona Blanca