Morgunblaðið - 23.04.1978, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1978
Heimsókn til ntanríkisráðherrafjölskvldu Portúgals
„Mig langar mikið til að maður-
inn minn og^börn fái tækifæri til
að kynnast fslandi, skoða sig þar
um og ég er viss um að Victor
kynni vel að meta landið, fólkið
og þess náttúru. Af börnunum
þremur finnst mér Paulo sem er
14 ára vera einna mestur Islend-
ingur í sér, hann hefur mikinn
áhuga á því að fá að fara til
íslands.“
Börnin þrjú, Paulo 14 ára, Marguerita 13 ára og André 8
Þetta segir Kirsten Thorberg,
utanríkisráðherrafrú í Portúgal,
þegar ég var í heimsókn hjá henni
fyrir stuttu. Kirsten hefur ekki
komið heim síðan Paulo var
nokkurra mánaða, það var rétt
eftir að móðir hennar, Margrét
Thorberg, lézt. Hún hefur búið í
Portúgal í sautján ár og það er
ekki fyrr en á síðustu árum að
einhverjar umtalsverðar gesta-
komur frá Islandi hafa verið hjá
henni. Þó talar hún algerlega
lýtalausa íslenzku og segir að
auðvitað telji hún sig Islending í
húð og hár.
„Auðvitað er ég íslenzk og lít á
mig sem slíka. Hins vegar á ég
mitt heimili hér í Portúgal og mér
hefur liðið vel hér, fjölskylda
Victors tók mér prýðilega og hér
er sem sagt mitt heimili, ekki á
arskólanum og barn var hún í
sveit að Staðarfelli í Dölum hjá
Halldóri E. Sigurðssyni bónda þar
og nú ráðherra og hún segir það
hafa verið góðan tíma: „Þau
hjónin voru ung og létt í lund. Þá
var margt skeggrætt. Það var
mannmargt á Staðarfelli, þar voru
umsvif og erill. Og húsráðendur
komu fram við okkur unglingana
eins og jafningja og töluðu við
okkur eins og fullorðið fólk og
hlustuðu á það sem við höfðum til
mála að leggja. Unglingar kunna
vel að meta það.“
Hún vann á skrifstofu hjá H.
Ben. og varð síðar flugfreyja hjá
Plugfélagi Islands.
Þau hjónin Kirsten og Victor
eiga þrjú börn, Paulo 14 ára sem
áður er minnzt á, Margarit 13 ára
og André 8 ára, glaðleg, fríð og
Kirsten og Victor Sa Machado.
j. tfiTÍn
vinnuleysið í landinu sem áhyggj-
um valda.
Victor Sa Machado segir:
„Við þurfum að gera ákaflega
margar breytingar. Og á afar
skömmum tíma. Það er enginn
vafi á því að lífskjaraskerðing
verður en hér gildir í raun og veru
aðeins það, hvort ríkisstjórninni
tekst að fá fólk til að trúa á hana
og verður fúst að taka á sig þær
byrðar sem verða afleiðingar af
þeim ráðstöfunum sem á næstunni
er nauðsynlegt að gera — og er
þegar byrjað að gera. Það getur vel
verið að um hríð verðum við að
borða kartöflur í staðinn fyrir
hrísgrjón sem okkur finnst miklu
betra og ýmislegt fleira kynnum
við að þurfa að neita okkur um.
Það gæti meira að segja farið svo
— ef allt um þryti — að við yrðum
að hætta að borða saltfisk. Það
væri meiri háttar áfall. En ég hef
trú á því að fólk skilji og muni átta
sig enn betur á því að ástandið hér
í Portúgal er svo erfitt viðureign-
ar, að það duga engin vettlingatök
ef á að koma málunum á réttan
kjöl. Annars er bara flotið sofandi
að feigðarósi.
„Verðum að snúa
okkur að Evrópu“
Meðal þeirra verkefna sem ég tel
mikilvægt er að stuðla að virkri
utanríkisþjónustu, til dæmis gera
sendiherra okkar að sölumönnum
okkar ef svo má á orði kveða.
Sendiherra Portúgals á íslandi,
Fernando Reino, hefur verið ötull
og áhugasamur og áfjáður í að
„ísland njtor óneitanlega tölnverðs
velvilja í utanríkisráðuneytinu... ’ ’
íslandi, heldur í Portúgal. Það
væri líka óbærilegt að búa í
framandi landi og geta aldrei
hugsað um annað en það að fá
tækifæri til að fara heim. Þegar ég
fluttist hingað búferlum gerði ég
það eftir töluvert langan aðdrag-
anda, síðan var ég þó nokkuð lengi
að komast niður í máiinu, en eftir
að ég náði góðu valdi á portúgölsk-
unni, breyttist margt til hins betra
eins og gefur að skilja. Maður er
hálfeinangraður ef maður talar
ekki málið, og við hjónin töluðum
saman á ensku framan af. „Mínar
rætur eru ekki lengur á Islandi,"
segir hún blátt áfram. „Það væri
ósköp mikil hræsni að segja það.
En mér þykir ákaflega vænt um
allt sem íslenzkt er og ég er stolt
af þjóðerni mínu og hef sanna
gleði af því að hitta íslendinga
sem koma hingað og vona þeir geri
miklu meira af því en hingað til.
Það breyttist svo margt, þegar
móðir mín dó ... eftir það fannst
mér einhvern veginn að það væri
ekkert sem kallaði beinlínis á mig
heim. Þó á ég mín móðursystkini
þar, indælis fólk sem væri fjarska
gaman að hitta, ég á tvo hálfbræð-
ur sem mér þykir vænt um, en þeir
eru langtum yngri en ég og kynni
okkar hafa mótast af því. Eini
albróðir minn er líka dáinn. Við
vorum ákaflega náin hvort öðru og
þó að við værum sitt í hvoru landi
mörg síðustu árin sem hann lifði
voru mjög sterk tengsl milli okkar.
Ég á líka góða vini á íslandi sem
ég held alltaf sambandi við, og það
er mér mikils virði."
Kirsten segist minnast bernsku-
og æskuára sinna á Islandi með
óblandinni gleði. Hún var í Landa-
kotsskólanum og síðan í Verzlun-
viðfelldin börn. Fjölskyldan býr í
rúmgóðri blokkaríbúð sem þau
hafa haft á leigu í nokkur ár, ekki
ýkja langt frá flugvellinum. Þau
hafa ekki hugsað sér að breyta til
þó svo að húsbóndinn hafi tekið
við ráðherrastöðu.
Einn sunnudaginn þegar ég var
í Portúgal í fyrra mánuði var mér
boðið til þeirra í mat ásamt sr.
Jóni Thorarensen og Ólafi syni
hans. Ólafur hafði komið þarna
skipstjóri á saltfiskskipinu Eldvík
og sr. Jón hafði slegizt í för með
honum að gamni sínu. Kirsten
sagði að það væri sérstök gleði
fyrir sig að fá að taka á móti sr.
Jóni á heimili sínu, vegna þess að
sem unglingur kom hún mikið á
heimili hans og konu hans vegna
vináttu við Hildi dóttur þeirra.
„Þar var mér alltaf tekið afskap-
lega hlýlega: Og auk þess er mér
það mikils virði að fá að hitta sr.
Jón Thorarensen, vegna þess að
hann er af kynslóð móður minnar,
kynslóð sem nú er óðum að hverfa
og mér finnst skilja eftir skarð í
lífi mínu.“
„Við þurfum að
gera margt á
_____skömmum tímau
Victor Sa Maghado er ákaflega
önnum kafinn maður. Hann fer að
heiman frá sér í bítið á morgnana
og sést yfirleitt ekki fyrr en síðla
kvölds. Þannig vinna aHir ráðherr-
arnir í þessari nýju ríkisstjórn.
Þeir eru staðráðnir í að liggja ekki
á liði sínu til að vinna að því að
leysa alla þá ótal erfiðleika sem
við er að glíma og eru það þá fyrst
og fremst efnahagsmálin og at-
Kirsten á tali við gest af íslandi, sr. Jón Thorarensen.
Victor Sa Machado. (Ljósm. ól. Thorarensen)
vinna að raunhæfum og gagn-
kvæmum viðskiptatengslum.
Hann verður nú fyrir sendinefnd
sem er að koma til Islands með það
fyrir augum að fjalla um þessi
flóknu mál. Sendiherrar okkar
eiga ekki að vera toppfígúrur, þeir
verða að vinna og vinna mikið og
ég vona ég geti beitt áhrifum
mínum í þá átt. „Meðal annarra
verkefna sem ég tel að séu
aðkallandi e'r að bæta samskiptin
við fyrrverandi landsvæði okkar í
Afríku. Segja má að samskipti
Portúgals og Mósambik séu komin
í nokkuð gott horf og sama má
segja um Gíneu Bissá og Græn-
höfðaeyjar.
En umfram allt verðum við að
einbeita okkur að Evrópu. Landið
tilheyrir þessari álfu, én það er
’eins og við höfum einhvern veginn
orðið utanveltu við Evrópu og
gleymzt. Það liggur í augum uppi
að við verðum að vinna að því að
þarna verði breyting á. Með
Evrópuríkjum eigum við fyrst og
fremst samleið."
„ísland nýtur 4ölu-
verðs velvilja í
utanríkisráðuneytinu..
Þegar hann er inntur eftir
saltfiskmálunum segir hann og
brosir við:
„Ég dreg enga dul á að Island
nýtur töluverðs velvilja í utanrík-
isráðuneytinu. Og víðar reyndar.
Svo að það mun áreiðanlega verða
fullur vilji af okkar hálfu til að
finna lausn á þeim vanda sem
saltfiskmálin eru nú. En við eigum