Morgunblaðið - 26.04.1978, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. APRIL 1978 \ \
Landspítalanum veitt
ar 25 milljónir úr
Minningarg j af as j óði
1‘REYTTIR EN ÁNÆGÐIR tóku þeir félagar í tríói danska
bassasnillingsins Niels Henning Örsted Pedersens við dynjandi
lófataki heillaðra áhorfenda í lok tónleika þeirra í Háskólabíói á
mánudagskvöldið. Húsfyllir var á tónleikunum og urðu
þremenningarnir að leika tvö aukalög áður en lauk. Nánar verður
fjallað um tónleikana í Slagbrandi næstkomandi sunnudag. (Ljósm.
Kristinn).
Sauðárkrókur:
Framboðslisti sjálf-
stæðismanna ákveðinn
„SANNLEIKURINN er sá að það
er erfitt að uppfylla óskir allra
um nýjungar og ný tæki á
sjúkrahúsum. þó að ríkissjóður
veiti Ríkisspítölunum styrk. Því
vil ég þakka Minningargjafasjóði
Landspítala íslands fyrir gjöf
hans til Landsspítalans. en fénu
verður varið til kaupa á lækn-
ingatækjum.“ Svo fórust Páli
Sigurðssyni. formanni stjórnar-
nefndar Ríkisspítalanna. orð. er
hann veitti viðtöku 25 milljón
króna ávi'sun úr hendi Guðrúnar
P. Helgadóttur. formanns Minn-
ingargjafasjóðsins.
Páll sagði að stjórn Minningar-
gjafasjóðsins yrði gerð grein fyrir
tækjakaupunum, en hann kvaðst
telja líklegt að fénu yrði varið til
kaupa á tækjum til nýrnadeildar
og jafnvel einnig til kaupa á
svonefndum „sónartækjum" sem
notuð eru á fæðingardeild.
Þetta er í þriðja sinn sem
sjóðurinn afhendir Landspítalan-
um fé til tækjakaupa og í fjórða
sinn sem Landspítalanum er út-
hlutað fé úr sjóðnum.
Minningargjafasjóður Landspít-
ala Islands var stofnaður árið
1916. Hann var alla tíð aðskilinn
frá öðrum sjóði, er kallaðist
Landspítalasjóður, en sá sjóður
varð til af fé er konur um allt land
söfnuðu til væntanlegrar spítala-
byggingar fyrir landið.
Fé því, sem gefið var til
minningar um látið fólk, var alltaf
haldið sér í sjóði — Minningar-
gjafasjóði Landspítala íslands —
og var upphaflega ekki ætlað til
styrktar stofnunarinnar, heldur
eingöngu til styrktar sjúklingum í
fjárhagslegum vandræðum.
Fyrsta úthlutun úr þessum sjóði
fór fram 28. marz 1931 og nam sá
styrkur 84 krónum. Til saman-
burðar má geta þess að á þessu ári
er þegar búið að veita til sjúklinga
fjárhæð sem nemur um einni
milljón króna.
Fyrstu árin var styrkveitingum
aðallega varið til styrktar sjúkl-
ingum sem dvöldust á Land-
spítalanum, voru ekki í sjúkra-
samlagi né nutu styrkja annars
staðar frá. En er sjúkrasamlögin
náðu almennri útbreiðslu fækkaði
umsóknum. Stjórnarnefnd Minn-
ingargjafasjóðsins fékk því árið
1952 staðfestan viðauka við 5.
grein skipulagsskrár sjóðsins, þar
sem heimilað er að styrkja til
sjúkradvalar erlendis þá sjúkl-
inga, sem ekki gátu fengið full-
nægjandi læknishjálp hérlendis að
dómi lækna, enda mæli þeir með
umsókn sjúklingsins. Síðan hefur
styrkjum til einstaklinga verið
úthlutað að mestu leyti samkvæmt
þessu ákvæði.
Fyrsti formaður Minningar-
gjafasjóðsins var Ingibjörg H.
Bjarnason, en er hún féll frá 1941
tók frú Lára Árnadóttir við
formennsku til ársins 1967. Þá tók
frk. Sigríður Bachmann við
formennsku og hafði hana með
höndum til 1971 er Kristín Jóns-
dóttir varð formaður Minningar-
gjafasjóðsins. 1973 tók núverandi
formaður sjóðsins, Guðrún P.
Helgadóttir skólastjóri, við for-
mennsku. Aðrir í stjórn Minn-
ingargjafasjóðsins eru María
Sigurðardóttir, gjaldkeri, Hólm-
fríður Stefánsdóttir, ritari, og
Guðrún Erlendsdóttir og Kristín
Framhald á bls. 19
Sauðárkróki 25. apríl.
FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæðis-
flokksins við bæjarstjórnarkosn-
ingar á Sauðárkróki 28. maí n.k.
verður ^þannig skipaður: 1. Þor-
björn Árnason, lögfræðingur, 2.
Árni Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri, 3. Friðrik J. Friðriksson,
héraðslæknir, 4. Björn Guðnason,
byggingameistari, 5. Pálmi Jóns-
son, verktaki, 6. Jón Ásbergsson,
framkvæmdastjóri, 7. Birna Guð-
F áskrúðsfjörður;
Framboðslisti
sjálfstæðis-
manna birtur
FRAMBOÐSLISTI sjálfstæðis-
manna á Fáskrúðsfirði til sveitar-
stjórnarkosninga í Búðarhreppi
hefur verið lagður frani og er hann
þannig skipaður:
l.Albert Kemp, vélv., 2. Stefán
Jónsson, iðnnemi, 3. Sigurður
Þorgeirsson, afgr.m., 4. Jóhann
Antoníusson, framkv.stj., 5. Guð-
laugur Einarsson, skipasm., 6.
Oddný Jónsdóttir, húsfrú, 7. Agn-
ar Jónsson, vélvirki, 8. Ægir
Kristinsson, bifreiðastjóri, 9.
Bergur Hallgrímsson, framkv.stj.,
10. Dóra Gunnarsdóttir, húsfrú,
11. Erlendur Jóhannesson stýri-
maður, 12. Heiðar Jóhannsson,
sjómaður, 13. Guðmundur Vest-
mann, skipstjórk 14. Einar
Sigurðsson, skipasmíðameistari.
Til sýslunefndar er Már Hall-
grímsson, útibússtjóri í framboði
og til vara Olafur Bergþórsson,
kennari.
jónsdóttir, húsmóðir, 8. Sigurður
Hansen, lögregluþjónn,9. Guð-
mundur Tómasson, hótelstjóri, 10.
Kristján Ragnarsson, skipstjóri,
11. Páll Ragnarsson, tannlæknir,
12. María Ragnarsdóttir, verka-
kona, 13. Haraldur Friðriksson,
bankamaður, 14. Fjóla Sveinsdótt-
ir, verkakona, 15. Jón Árnason,
bílstjóri, 16. Bjarni Haraldsson,
kaupmaður, 17. Jón Nikódemus-
son, vélsmiður, 18. Halldór Þ.
Jónsson, lögfræðingur.
— Jón.
Alþjóóleg bílasýning
í Sýningahöllinni aó Bíldshöfóa
BÍLAHAPPDRÆTTI— vinningur MAZDA 323
GESTUR DAGSINS hlýtur utanlandsferó meó Samvinnuferóum
GESTAGETRAUN — vinningur Casio tölvuúr
TUGÞÚSUNDASTI hver gestur hlýtur Pioneer segulbandstæki í
bílinn frá Karnabæ
opió frá 17— til 22— nema laugard. og sunnud. frá 14— til 22—
Simar sýningarstjórnar: 83596 og 83567