Morgunblaðið - 26.04.1978, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1978
13
Islenzku matreiðslumennirnir með viðurkenningarspjöld og
verðlaun er þeir hlutu í keppninni í Bella .Center.
íslendingar fjórðu
beztu kokkarnir
ALÞJÓÐLEG keppni í matreiðslu
fór fram í Bella Center í Kaup-
mannahöfn í byrjun apríl og var
bæði keppt f framleiðslu heitra og
kaldra rétta, samhliða tækja- og
vörusýningu fyrir hótel og veit-
ingahús.
Klúbbur matreiðslumeistara á
íslandi var meðal þátttakenda í
þessari keppni. Fyrir hönd ís-
lands tóku þátt þeir Sigurvin
Gunnarsson, yfirmatreiðslumað-
ur Hótel Sögu, Gísli Thoroddsen
yfirmatreiðslumaður í Brauðbæ,
og Ililmar B. Jónsson veitinga-
stjóri á Ilótel Loftleiðum.
Sigurvegarar í keppninni urðu
Norðmerfn og þá Austurríki og
Svisslendingar og í fjórða sæti
komu íslendingar með gullverð-
laun. Vantaði Islendinga 6 stig í að
ná þriðja sætinu í keppninni.
Næstir á eftir íslendingum urðu
matreiðslumenn frá Danmörku,
Vestur-Þýzkalandi, Ungverja-
landi, Svíþjóð, Kína og Indlandi.
íslenzku matreiðslumennirnir
hlutu einnig sérstaka viðurkenn-
ingu fyrir bezta kalda fatið á
sýningunni sem var lundi í hlaupi.
Hilmar B. Jónsson sagði í
samtali við Morgunblaðið, að hann
vildi þakka sérstaklega veitinga-
húsunum Hótel Sögu, Brauðbæ,
Hotel Loftleiðum og Sambandi
íslenzkra samvinnufélaga fyrir
veitta aðstoð í sambandi við
undirbúning keppninnar. Enn-
fremur Hótel- og veitingaskólan-
um fyrir að hafa útvegað húsnæði
fyrir æfingar undir keppnina.
Þá tók Hilmar fram, að þetta
væri í fyrsta sinn, sem íslendingar
tækju þátt í slíkri keppni sem
A-listinn
á Akranesi
FRAMBOÐSLISTI Alþýðuflokks-
ins á Akranesi hefur verið birtur.
Hann skipa eftirtaldir menn:
1. Ríkharður Jónsson málara-
meistari, 2. Guðmundur Vésteins-
son tryggingafulltrúi, 3. Rannveig
Edda Hálfdánardóttir húsmóðir, 4.
Sigurjón Hannesson bygginga-
meistari, 5. Önundur Jónsson
prentari, 6. Arnfríður Valdimars-
dóttir húsmóðir, 7. Haukur Ár-
mannsson framkvæmdastjóri, 8.
Erlingur Gissurarson tæknifræð-
ingur, 9. Guðrún Jónsdóttir hús-
móðir, 10. Guðmundur Rúnar
Davíðsson trésmiður, 11. Valentín-
us Ólason stýrimaður, 12. Guð-
mundur Páll Jónsson nemi, 13.
Þórólfur Ævar Sigurðsson íþrótta-
kennari, 14. Jóhannes Jónsson
bakarameistari, 15. Kristín Ólafs-
dóttir ljósmóðir, 16. Hallgrímur
Árnason byggingarmeistari, 17.
Svala ívarsdóttir húsmóðir og 18.
Sveinn Kr. Guðmundsson banka-
útibússtjóri.
þessari og hefði það verið mjög
ánægjulegt að þeir félagar hefðu
komizt á blað. Þá eru sýningar
sem þessi í Bella Center mjög
mikil landkynning, þar sem þús-
undir manna komu til þess að
skoða keppnisfötin.
Að lokum má geta þess, að
meðal dómaranna á sýningunni
var Ib Wessmann, yfirmatreiðslu-
maður í Nausti.
í Siglufirði
Siglufirði, 25. apríl
BIRTUR hefur verið framboðslisti
Sjálfstæðisflokksins við bæjar-
stjórnarkosningarnar í Siglufirði.
Listann skipa:
1. Björn Jónasson bankaritari, 2.
Séra. Vigfús Þór Árnason, 3.
Runólfur Birgisson fulltrúi, 4.
Árni V. Þórðarson iðnverkamaður,
5. Steingrímur Kristinsson verka-
maður, 6. Ómar Hauksson skrif-
stofustjóri, 7. Markús Kristinsson
verksmiðjustjóri, 8. Steinar Jónas-
son hótelstjóri, 9. Páll G. Jónasson
byggingarmeistari, 10. Óli J.
Blöndal bókavörður, 11. Jóhannes
Þ. Egilsson iðnrekandi, 12. Soffía
Andersen húsfrú, 13. Matthías
Jóhannsson kaupmaður, 14.
Ásgrímur Helgason sjómaður, 15.
Hreinn Júlíusson byggingarmeist-
ari, 16. Kristinn Georgsson vél-
stjóri, 17. Þórhalla Hjálmarsdóttir
húsfrú og 18, Knútur Jónsson
framkvæmdastjóri. Fréttaritari
o.
INNLbiuT
Loftið skipti um eigendur
NÝLEGA urðu eigendaskipti á
gjafa- og listmunaverzluninni
að Skólavörðustíg 4, svo og
„Loftinu", sem er sýningarsalur
í sama húsnæði. Nýju eig-
endurnir eru hjónin Jósefína
Pétursdóttir og Sverrir
Krjstjánsson.
Keyptu þau húsnæðið af
Helga Einarssyni sem opnaði
gjafa- og listmunaverzlun þar
árið 1974 og „Loftið ári seinna.
Húsið að Skólavörðustíg 4 er
byggf um sama leyti og
Alþingishúsið að því er eigendur
sögðu. Mun Jósefína reka gjafa-
og listmunaverzlunina áfram
undir nafninu „Loftið“ og hefur
á boðstólum m.a. Feneyja krist-
al og handunnið keramik. Einn-
ig mun hún reka sýningarað-
stöðu fyrir listamenn eins og
áður hefur verið gert.
Meðfylgjandi mynd tók ljósm.
Mbl. Friðþjófur af nýju eigend-
ýoMuhu
TOSHIBA
SM-2700
Stereo-samstæðan
Verð kr. 162.800-
Stórfallegt
hljómflutningstæki
ó einstaklega góóu veröi
Allt í einu tæki:
Stereo-útvarp, cassettusegulband,
plötuspilari og 2 stórir hátalarar.
Magnarinn er 28 wött. Tveir hátalarar
eru í hvorum kassa. Stór renndur 28 sm
plötudiskur. Útvarpið er meö langbylgju,
miöbylgju og FM Stereo. CR 0 Selektor.
Komiö og skoöiö þetta stórfallega tæki
og sannfærist um aö SM 2700
Toshiba-tækiö er ekki aöeins afburöa
stíthreint í útliti heldur líka hljómgott.
SM 2700 gefur yöur mest fyrir peningana.
Háþróaöur magnari, byggöur á
reynslu Toshiba í geimvísindum.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF
BERGSTAOASTRATI I0A ■ SlMI I6995
UtsölustaAir:
Akranes: Bjarg h.f.
Borgarnes: Kaupf. Borgf.
Bolungarvík: Verzl. E.G.
Hvammstangi: Verzl. S.P.
Sauöárkróki: Kaupf. Skagf.
Akureyri: Vöruhús KEA.
Hljómver h.f.
Húsavík: Kaupf. Þing.
Egilsstööum: Kaupf. Héraösb.
Ólafsfiröi: Verzl. Valberg.
Siglufiröi: Gestur Fanndal.
Hvolsvelli: Kaupf. Rangæinga.
Vestmannaeyjum: Kjarni s.f.
Keflavík: Stapafell h.f.
Listi Sjálf-
stæðisflokks