Morgunblaðið - 26.04.1978, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 26.04.1978, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1978 ' ... ' ' FH í fimmta sinn í úrslit? Fyrri leikur FH og Frarrfí úrslitum 1. deildar kvenna í Firöinum í kvöld í kvöld fara fram tveir mjög þýðingarmiklir leikir í handknattleik I í íþróttahúsinu f Hafnarfirði. Fyrri leikurinn er milli Fram og FH | f meistaraflokki kvenna og hefst leikurinn kl. 20. Leikur þessi er sá fyrri af tveim sem liðin verða að leika um íslandsmeistaratitilinn f > handknattleik, en að loknu íslandsmótinu voru félögin jöfn að stigum, | höfðu bæði hlotið 22 stig. Fram hefur alls sigrað 9 sinnum f íslandsmótinu f meistaraf lokki kvenna en FH aðeins einu sinni, árið 1961. Ekki er að efa að spenna verður mikil f leiknum í kvöld og hart barist þar sem svo mikið er f húfi. FH-stúlkurnar þurfa að tryggja sér sigur í leiknum þar sem þær leika á heimavelli, ætli þær sér að eiga möguleika á að ná í íslands- meistaratitilinn í ár. Sfðari leikur liðanna fer fram f Laugardals- höllinni á föstudagskvöld kl. 20. Sfðari leikur kvöldsins hefst kl. 21 og er á milli erkif jendanna FH og Hauka og er leikurinn liður í undanúrslitum bikarkeppni HSÍ. Leikir þessara liða í Hafnar- firði eru með mest spennandi handknattleiksleikjum sem sjást, og ekki ósjaldan hefur blóð dropið og hnefar verið á lofti er liðin leika saman. Mikið er f húfi að sigra í leiknum þvf farið gæti svo að sigurvegarinn hefði tryggt sér rétt til þátttöku í Evrópubik- I arkeppninni næsta ár. Sá' möguleiki byggist á því, að , sigri Valur Víkinga í hinum ' leiknum f undanúrslitunum, | verða mótherjar þeirra f úrslitun- i um fulltrúar f bikarkeppninni, þar sem Valsmenn taka þátt í I Evrópukeppni meistaraliða. FH | og Haukar hafa sinn vinninginn , hvort í dag í leikjum vetrarins ' svo að þarna “ fer lfka fram | uppgjör hvort liðið fær betra hlutfall úr leikjum innbyrðis í 1 vetur. FH-liðið hefur sigrað alls fjór- | um sinnum af þeim fimm skiptum sem keppt hefur verið í bikar- I keppni HSÍ, og má þvf segja að | FH liðið sé sannkallað bikarlið, , verður fróðlegt að sjá hvort þeim tekst að komast f úrslit bikar- | keppninnar f fimmta skiptið í i röð. Landsliðsfólkið verður væntanlega meðal keppenda f Eyjum um helgina EYJAMENN MEÐ OPIÐ SUNDMÓT VESTMANNAEYINGAR halda opið sundmót f hinni glæsilegu sundhöll sinni um næstu helgi. Keppt verður í 18 greinum og má búast við að flest af bezta I sundfólki landsins verði meðal i þátttakenda. Sundfólki hefur líkið vel að keppa f Eyjum og þar 1 hafa mörg met verið sett á mótum | frá að Höllin var tekin f notkun. , Þátttökutilkynningar þurfa að ' berast f dag eða á morgun til Jóns | Hauks Danfelssonar, Höfðavegi 1, i sími 98—1867 eða á kvöldin milli 19 og 20 í síma 98—2401. PUMA íþróttatöskur gott verö Póstsendum. A Árangur meistaraflokks FH f handknattleik hefur verið slakur f vetur miðað við gengi félagsins undanfarin ár. Það er þó engin ástæða fyrir FH-inga að örvænta því framtfðin er þeirra. Þriðji flokkur FH varð íslandsmeistari á Akureyri um helgina og er myndin af þvf liði FH, f 2. flokki á FH einnig mjög sterkan flokk. ÍR eignaðist sína fyrstu meistara f kvennaflokki er liðið sigraði f þriðja flokki f Hafnarfirði um helgina. Þessar hressilegu stúlkur eiga örugglega eftir að hefja merki ÍR f kvennahandknattleiknum. Valsmenn hafa staðið sig með afbrigðum vel f þvf Islandsmóti, sem nú er að ljúka. 1. flokkur karla er eitt af fjórum meistaraliðum Vals og eins og sjá má á þessari mynd eru margir kunnir kappar f þessu sigursæla liði Vals. f 1. flokki létu sitt ekki eftir liggja og urðu meistarar eins og karlarnir. FRAM AÐALFUNDUR Knattspyrnu- deildar Fram verður haldinn í Félagsheimili Fram við Álftamýri klukkan 20.30 í kvöld. Venjuieg aðalfundarstörf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.