Morgunblaðið - 24.05.1978, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 24.05.1978, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978 35 af hráefnum. Annar agnúi er sá að Austantjaldsþjóðir greiða inn- fluttar vörur ekki í peningum heldur vöru. Fólksvagna með brúnkolum, Coca-Cola með dýna- míti o.sv.frv. Annaðhovrt tekur þú þá vöru, sem í boði er, eða ekkert verður af viðskiptum. Við bætast einnig erfiðleikar verktaka, sem reyna að athafna sig í efnahags- kerfi gerólíkrar tegundar og þar sem ákvarðanataka á sér stað eftir allt öðrum boðleiðum, en þeir hafa átt að venjast. Verða af þeim sökum margvíslegir árekstrar og tafir. Viss áhætta er og ávallt fólgin í spilinu og speglast hún í dæminu um Fiat-bílaverksmiðj- una, sem Italir reistu í Togliatti- grad. Sovétmenn voru fljótir að tileinka sér tækniþekkingu fag- mannanna, og von bráðar fóru að streyma sovéskir bílar inn á Vestur-Evrópumarkað, sem velgdu Itölum sjálfum undir uggun. Kommúnistazarinn bugtaði sig og beygði Þessi mikilvægu atriði varðandi samskipti landanna bregða fróð- legu en þó e.t.v. ekki óvæntu ljósi á fund Breshnevs og Sehmidts. Smám saman fer að skýrast hvað Bruno Kreisky, kanzlari Austur- ríkis, átti við í viðtali sínu við vikuritið „Der Spiegel", er hann talaði um „Þýzkalandsástríðu" Sovétmanna. „Vitið þér,“ sagði hann, „stundum fær maður á tilfinninguna að fyrir Rússum sé aðeins um tvö Vesturveldi að ræða, nefnilega Bandaríkin og Þýzkaland... Þýzkaland er í aug- um Rússa eitthvað alveg sérstakt." Eftirá hefur verið sagt að fundur leiðtoganna lyktaði miklu frekar eins og fundur efnahagsfor- kólfa en stjórnmálamanna. Það er ekki að ófyrirsynju að Breshnef er efnahagslega samvinna ofarlega í huga. Enda þótt kreppur hafi dunið yfir Vesturlönd á síðustu tímiim hafa þau þó einatt rétt við aftur. Sovétmenn hafa á hinn bóginn ekki átt þeirri gæfu að fagna og virðist sem skipulagslegt öngþveiti og vanþrif í efnahagslífi sökkvi þeim æ dýpra. Þar við bætist að uppfinningar og tækni- nýjungar hafa á undanförnum áratugum heyrt undantekningum til í Austur-Evrópulöndum ef frá eru taldar framfarir í vígbúnaði og geimvísindum. Þótt erfitt sé að meta áreiðanleika slíkra talna hafa bandarískir vísindamann talið að um 90 til 95 af hundraði allra tækninýjunga, sem Sovét- menn hafa tekið í þjónustu sína, sé innflutt frá Vesturlöndum. Og Þýzkaland, eins og alkunna er, hefur verið „alveg sérstakt" á sviði verkmenningar á okkar öld. Hver hreyfing Sovétleiðtogans var mæld og íhuguð meðan á heimsókn hans stóð í Bonn og hinir eftir- tektarsömu gátu vart orða bund- izt: „Það er næstum mótsagna- kennt, hvernig kommúnistazarinn bugtaði sig og beygði frammi fyrir þýzku verktakaauðvaldi i Bonn. I sendiráðsveizlu Rússanna tryggði framkvæmdastjóratitill meiri viðingarsess við matborðið en ráðherradómur". (Frankfurter Neue Presse). „Friðarástin er okkur eðlislæg“ I sjónvarpsávarpi sínu til þýzkra áhorfenda fór Breshnev lotningar- fullum orðum um stórfram- kvæmdir í landi sínu. „Við smíðum ekki aðeins," sagði hann, „heldur breytum á skipulagðan hátt ásjónu lands okkar.“ En til að svo meigi verða er nauðsynlegt að friður haldist, bætti hann við. „Með hliðsjón af þessu er ekki erfitt að sjá að sú friðarást, sem er lífsandinn í stjórnmálastefnu okkar, er ekki bara tilburður, heldur lífi okkar einginleg." Fram hefur komið að viðburða- leysi hafði öðru fremur einkennt heimsókn Breshnevs til Bonn 4. til 7. maí. I alþjóðastjórnmálum er það engu að síður svo að litlaus- ustu fundir stafa oft engu minna ljósi yfir grunn pólitískra bylgju- laga en aðrir. í þessu tilviku Framhald á bls. 62. Flæddi í Gróttu FÉLAGAR í unglingadeild björg- unarsveitarinnar Alberts undir stjórn Guðjóns Jónatanssonar sóttu fjögur börn og fullorðinn mann, sem flæddi úti í Gróttu á mánudaginn og tók Kristján þessa mynd, þegar komið var úr björgunarleiðangrinum. Maður- inn hafði verið á gangi í fjörunni með krökkunum í gærmorgun, þegar þau hlupu frá honum og út í Gróttu. Þegar hann kom þangað á eftir þeim var svo fallið að, að börnunum var ekki fært til lands aftur og þorði maðurinn ekki að yfrgefa þau. Það var svo um klukkan sex í gær, að leitað var til lögreglunnar, sem svipaðist um eftir fólkinu og sá þá til þess í Gróttu. Hafði lögreglan þá samband við björgunarsveitina. Innflvtjendur rekstrarvöru fyrir iðnaðinn þurfa að geta treyst því að vörurnar komi á réttum tíma til landsins, og óskemmdar. Vöntun á einni tegund hráefnis getur stöðvað rekstur heillar verksmiðju. Flugfrakt leitast við að veita þeim öryggi í þessum efnum. Hraði skiptir meginmáli hafi hráefni gengið til þurðar fyrr en ætlað var. Með þéttofnu flutninganeti Flugfélags Islands og Loftleiða um öll helstu viðskiptalönd okkar íslendinga komast vörurnar hingað heim hratt og örugglega. SEM SAGT: FLUGFRAKT FLUGFÉLAG ÍSLANDS UOoaffrakt LOFTLEIOIR Suöurlartdsbraut 2 Simi 8 48 22 (j Hótel Esju husinu)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.