Morgunblaðið - 24.05.1978, Síða 6

Morgunblaðið - 24.05.1978, Síða 6
38 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978 GARÐABÆR hlaut kaupstaðarrétt- indi 1. janúar 1975. Jafnframt fékk hreppsnefndin umboð til að stýra málefnum hins nýja kaupstaðar fram að bæjarstjómarkosningum á sunnu- daginn kemur. Bæjarfulltrúar verða 7 í stað 5 hreppsnefndarfulltrúa áður. Sjálfstœðisflokkurinn hefur haft meirihluta í hreppsnefnd Garða- bæjar um árabil. Að þessu sinni efndu sjálfstæðismenn til opinnar ráðstefnu um bæjarmál, er mótaði stefnuskrá flokksins fyrir komandi kjörtímabil í Garðabæ. í kjölfar þeirrar stefnumörkunar var síðan efnt til opins prófkjörs um röðun á framboðslista, semfylgt var í einu og öllu varðandi 9 efstu sæti listans. Þannig var bæði stefnumörkun og framboð byggt á almannavilja og breiðu samstarfi. Um helmingur kosningabærra manna í Garðabœ tók þátt í prófkjöri Sjálfstœðisflokksins. Garðabær er blómleg byggð og vel i sveit sett. Hér á eftir fer stutt viðtal við Garðar Sigurgeirsson, bæjar- stjóra og efsta mann D-listans. Spurningar blm. komafram i svörum bæjarstjórans. • Fræðslumáli Fyrri áfangi Garðaskóla var tekinn í notkun og smíði 2. áfanga er hafinn. Hofstaða^kóli tók til starfa í Safnaðarheimili Garðakirkju fyrir yngstu nemendurna. Rekstur tónlistarskóla var yfir- tekinn af bæjarfélaginu, skv. lögum 1975. — Starfsemi hans hefur vaxið og nemendum fjölg- að. Bókasafn bæjarins hefur verið stækkað og eflt. Náms- flokkar á vegum bæjarins tóku til starfa á kjörtímabilinu. • íþrótta- og æskulýðsmáh íþróttahúsið Ásgarður tók til starfa. Sundlaug hefur verið sett upp við íþróttahúsið í snyrtilegu umhverfi. Knatt- spyrnuvöllur við íþróttahúsið hefur verið endurbyggður og svæðið umhverfis hann lagfært. Leikskóli tók til starfa við Bæjarbraut. Gæzluvöllur var opnaður við Hofstaðabraut. Siglingaklúbburinn Vogur hefur með stuðningi bæjarins komið upp siglingaaðstöðu við Arnar- nesvog. • Gatna- og umferðarmáh Unnið hefur verið við gatnagerð í nýjum hverfum í Byggðum, Búðum, Arnarnesi og Móum (á Viðta! við Garð- ar Sigurgeirs- son, bæjarstjóra, efsta mmn D-list-ans í Garðabæ Garðabyggð er blóm- leg og vel í sveit sett Garðabyggð er blómleg byggð og vel í sveit sett, sagði Garðar Sigurgeirsson, bæjarstjóri og efsti maður D-listans, í stuttu viðtali við Mbl. sl. mánudag. Bæjarlandið er ákjósanlegt byggingarland í góðum tengslum við tilkomumikla og óspillta náttúru. Heiðmörkin er að stórum hluta í bæjarlandinu, einnig Búrfellshraun og Gálga- hraun. Fagrar og friðsælar göngu- leiðir eru svo að segja við dyr okkar. Arnarnesvogur býður okk- ur beztu aðstæður á höfuðborgar- svæðinu til siglingaíþrótta. Við höfum frá upphafi byggðar hér borið gæfu til þess að nýta land okkar skynsamlega; síðustu ára- tugina með markvissri verndun þess, sem náttúran hefur hér fegurst skapað. Byggðarlagið, sem óðfluga er að rísa, er eitthvert myndarlegasta á landi hér, enda eftirsótt til búsetu. Byggðin hefur fengið núverandi svip á fáeinum áratugum; breytzt úr fámennu landbúnaðarhéraði í vinalegan kaupstað. Kjörtímabilið, sem er að enda Jú, margt hefur áunnist í málum Garðbæinga á iíðandi kjörtíma- bili. Ég skal reyna að rekja það helzta. miðbæjarsvæðinu). — Unnið hefur verið að síðari hluta gatnagerðar í eldri hverfum, á efri Flötum, í Fitjum, Lundum og Arnarnesi. Götulýsing hefur verið aukin og bætt. Handstýrð gangbrautarljós voru sett upp á Vífilsstaðavegi ofan Hagaflatar og á Hafnarfjarðarvegi við Lyngás. Almenningsakstur, strætisvagnaferðir, voru teknar upp. • Skipulagsmál o.fl.t Lögsagn- arumdæmismörk bæjarins hafa verið endurskoðuð og lagfærð. Keyptir voru liðlega 20 ha lands úr Hofsstaðalandi. Aðaiskipu- lag bæjarins er nánast tilbúið til almennrar kynningar. Hafn- ar eru framkvæmdir á mið- bæjarsvæði við safnaðarheimili, benzín og þjónustustöð og smíði sambýlishúsa með litlum íbúð- um. Iðnaðarlóðir í Búðahverfi eru til úthlutunar. • Ýmis máli Hitaveita hefur verið lögð í allt þéttbýli bæjarins. Byggðarlagið fékk kaupstaðar- réttindi. DAS hóf á Alftanesi starfrækslu dvalarheimilis fyrir aldraða úr Garðabæ og víðar að með fyrirgreiðslu frá Garðabæ og öðrum nærliggjandi sveitar- félögum. Áhaldahús bæjarins og skrifstofur hafa verið endur- bættar. Búnaðarbankinn setti upp útibú í bænum. Opin ráðstefna um framtíðar- markmið Sjálfstæðismenn í Garðabæ efndu til opinnar ráðstefnu um bæjarmál og verkefni kaupstaðar- ins í samtíð og næstu framtíð. Ráðstefna þessi lagði drög að starfi og stefnu sjálfstæðismanna í Garðabæ á næsta kjörtímabili. Ég nefni nokkur atriði úr þessari stefnuskrá. í atvinnu-, gatnagerðar- og fjármálum mun Sjálfstæðisflokk- urinn m.a. vinna að þvíi — að efla iðnað og verzlun í bænum, m.a. með því að bjóða á viðráðanlegum kjörum lóðir fyrir léttan iðnað og þjónustu við íbúðarhverfin og stærri atvinnulóðir á sérstökum at- vinnusvæðum. — að kanna möguleika á byggingu og rekstri iðngarða. — að kappkostað verði að hraða lokafrágangi gatna og gang- stétta í eldri og nýrri hverfum eftir raunhæfum kostnaðar- og framkvæmdaáætlunum. — að halda niðri rekstrarkostnaði sveitarfélagsins og vinna að hagkvæmni við verklegar fram- kvæmdir. — að berjast fyrir endurbótum á tekjustofnum og verkefnaskipt- ingu milli ríkis og sveitar- félaga, þannig að báðir aðilar verði ábyrgari fyrir sínum þáttum. í umhverfis- og skipulagsmál- um mun Sjálfstæðisflokkurinn beita sér fyrir þvíi — að fylgt verði markaðri stefnu um verndun fagurra og sér- stæðra svæða víðs vegar í bæjarlandinu. — að við alla mannvirkjagerð verði lögð áherzla á mannlegt og hlýlegt umhverfi. — að tekið verði tillit til mismun- andi húsnæðisþarfa íbúanna. — að hraðað verði gerð Reykja- nesbrautar úr Blesugróf að Keflavíkurvegi við Þórsberg. — að hraðað verði endurbótum á Hafnarfjarðarvegi um Garðabæ. í löggæzlumálum stefnir Sjálf- stæðisflokkurinn að þvíi — að fá lögregluvarðstöð í Garða- bæ til eflingar umferðar- og löggæzlu. í skóla- og menningarmálum mun Sjálfstæðisflokkurinn áfram vinna að skipulegri uppbyggingu skólastarfs m.a. með þvú — að búa skólana vel tækjum og styrkja kennara til endur- menntunar. — að hraða byggingu Garðaskóla eftir mætti. — að efla framhaldsnám í Garða- skóla, þannig að eftir því sem nemendafjöldi leyfir gefist þar kostur á að ljúka fjölbrautar- námi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.