Morgunblaðið - 24.05.1978, Page 10
'"•asoKsnEr
42 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978
Finnur P. Fróðason Húsgagnasýningin í Höfn
Þrjár íslenskar sýningardeildir
Græna laufið í maí táknar
komu vorsins, en það táknar
líka opnunina á húsgagnasýn-
injjunni í Kaupmannahöfn.
Scandinavian Furniture Fair
var haidin haldin dajíana 3.-7.
maí í Bella Center í Kaup-
mannahöfn. Formaður Sam-
hands danskra húsjtaunafram-
leiðanda opnaði sýninnuna, og í
ræðu hans ríkti mikil bjartsýni
á framtíðina. Arið 1977 var
metár í húsgagnaiðnaðinum á
öllum Norðurlöndunum. Ut-
flutningur óx um 20%og er ekki
útlit fyrir neinn samdrátt fram-
undan.
Það er liðin tíð að fara á
sýningar til að sjá miklar
nýjungar, enda eru nýjungar
nýjungarinnar vegna lítils virði.
Það bezta í norrænni húsgagna-
list kemur ekki fram í hástökk-
um, en sýnir sig í aðdáun
hönnuðar og framleiðanda á
efninu. Þar er verið að endur-
bæta og fínpússa. Oft má gera
góðan hlut betri og ungu arki-
tektarnir vinna margir í anda
hinna gömlu meistara. Þó Alvar
Aalto og Börge Mogensen séu
ekki lengur uppi, er gott að sjá
aðrir taka upp hanzkann.
Heildaráhrif af sýningunni
eru falleg og létt“. Hægt er að
sjá tengsl við beztu ítölsku
húsgögnin eins og þau voru fyrir
u.þ.b. 15 árum. Hreinar og
einfaldar línur. Sérstaka athygli
mína vöktu stálhúsgögn, sem
Daninn Jens Jörgen Haugesen
hefur teiknað. Þar er hægt að
stafla stólunum, taka borðfætur
undan plötunni, og þannig fer
lítið fyrir öllu. Oftast eru
stálhúsgögn búin til úr stálrör-
um, sem eru tiltölulega gild, en
Haugesen notar í staðinn 8 mm
stálteina, og byggir húsgögn sín
upp í kringum verkfræðihug-
Skriistofuhúsgögn. Framleiðandi. Gamla kompaníið.
Hönnunt Pétur B. Lúthersson
Til mikils
að vinna
Það var bjart yfir að líta
þegar Bella Center opnaði fyrir
Dæmi um norsk límtréhúsgögn
þátt tóku í sýningunni voru
Gamla Kompaníið, sem sýndi
skrifstofu húsgögnin Tabella,
teiknuð af Pétri B. Lútherssyni
húsgagnaark. Stáliðjan hf. í
Kópavogi sýndi skrifborðsstóla
og Húsgagnavinnustofa Ingvars
og Gylfa, sem sýndi svefnher-
bergishúsgögn. En auk hús-
gagnaframleiðendanna sýndu
einnig Álafoss hf. og Gefjun á
Akureyri húsgagnaáklæði og
værðarvoðir.
Danir og Islendingar eiga
margt sameiginlegt í húsgagna-
framleiðslu. Framleiðslúfyrir;
tækin eru mörg og smá. I
Danmörku eru t.d. 500 hús-
gagnafyrirtæki, helmingur
þeirra er með minna en tuttugu
og fimm manna starfslið hvert,
og hjá mörgum þeirra vinna
alveg niður í 6 manns. Þegar
formaður danskra húsgagna-
framleiðanda opnaði sýninguna
lagði hann á það áherzlu í ræðu
sinni, að norrænu þjóðirnar
gætu ekki keppt á alþjóðamark-
aði í krafti magns og lágs
vöruverðs, heldur yrðu þeir að
efla gæði, bæði með tilliti til
hönnunar og framleiðslu. Við
myndir um hinn stabíla þrí-
hyrning. Þannig er efnisnotkun-
in í lágmarki og þægindi í
hámarki.
Ekki er við hönnuði og fram-
leiðendur að sakast ef hús-
gagnasalar selja Ijót húsgögn,
því framboðið af fallegum og vel
gerðum húsgögnum er gífurlegt
og er gervirómantíkin sem betur
fer á niðurleið. Mjög lítið var í
ár um norska og sænska
sveitarómantík. „Seterjenten"
hélt sig heima fyrir í ár, en það
gerðu aftur á móti ekki barok-
dömurnar frá Miðevrópu.
Alþjóðadeildin, sem í ár var
stærri en nokkri sinni fyrr, var
eyðimerkurganga. Þar blómstr-
aði stílruglingur og rómantík
fyrra alda og mátti sjá þýzk og
hollenzk „barok“ og ensk „herra-
garðs“-húsgögn í anda fyrra
tíma. Á einum stað var gengið
svo langt að lagt hafði verið á
borð (síðasti kvöldverðurinn?)
með silfurpletti og plastblóm-
um. Tveir básar skáru sig þó úr.
Strássle Collection frá Sviss
sýndi leðurhúsgögn eins og þau
gerast bezt og þýzka fyrirtækið
Thonet sýndi hina þekktu víner-
stóla sína m.m. Áriö 1819 er ekki
óþekkt fyrir fólk sem áhuga
hefur á listasögu. Þá stofnaði
Michael Thonet húsgagnafyrir-
tæki sitt, en áður hafði hann
fundið upp sérstaka aðferð til að
beygja tré. Mikilvægur áfangi í
sögu húsgagnagerðar. Árið 1900
unnu hjá fyrirtækinu 6.000
manns og framleiðslan var 4.000
stólar á dag. 1930 höfðu meira
en 50 milljónir Thonet-stólar
selst. Eftir seinni heimsstyrjöld
var verksmiðjan og framleiðslan
byggð upp frá grunni að nýju og
módelúrvalið aukið. En samt
sem áður er uppistaðan í fram-
leiðslunni frá árunum 1860-80.
Scandinavian Furniture Fair í
12. sinn. Alls staðar var skreytt
með grænu laufi og blómum. í
íslenzku deildirnar á sýningunni
var einnig komið vor. 5 bjartir
básar kynntu ísland fyrir 5.000
innkaupastjórum frá víðri ver-
öld. Með tilkomu nýs sýningar-
salar (Hal H) er sýningin í Bella
Center orðin stærsta og mikil-
vægasta húsgagnasýning í
Evrópu. Nú eru ekki aðeins sýnd
húsgögn, heldur einnig skraut-
munir fyrir hús og heimili,
lampar og textil.
íslenzku fyrirtækin fimm sem
seljum kannski ekki svo mikið,
en það sem við seljum verðum
við að selja dýrt. Gildir þetta
einnig hjá okkur íslendingum.
Að sýningunni í Bella Center
lokinni, er rétt að staldra við og
líta um öxl. íslendingar seldu
vel á þessari sýningu, og er það
að sjálfsögðu aðalmarkmiðið, en
slíkar vörusýningar eru einnig
kjörið tækifæri til að kynna
land og þjóð. Á komandi mánuð-
um er því mikið verk að vinna
fyrir útflutningsmiðstöð Iðnað-
arins að treysta og efla ný og
gömul viðskiptasambönd.
Fallegur og létt-
ur húsgagnastíll