Morgunblaðið - 04.07.1978, Side 1
140. tbl. 65. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Fréttaritarar
neita að svara
Sadat fellst á nýjar
viðræður við ísrael
Álexandria 3. júlí. Reuter. AP.
ANWAR Sadat forseti
Egyptalands afhenti í dag
Walter Mondale varafor-
seta Bandarikjanna síð-
ustu friðartillögur Egypta
og féllst á að senda utan-
Brezkt
bann við
síldveiði
l-ondon 3. júlí. Reuter.
BRETAR lögðu í dag bann
við síldveiðum fyrir vestan
Skotland eftir margra mán-
aða deilur við Efnahags-
bandalagið um fiskveiðar.
John Silkin landbúnaðar-
og sjávarútvegsráðherra
skýrði frá þessu og öðrum
verndunarráðstöfunum í
þingskjali. Bannið kemur
harðast niður á brezkum,
dönskum og frönskum fiski-
mönnum.
Ráðstafanirnar fela meðal
annars í sér aukna möskva-
Framhald á bls. 26
Tartari lagði
eld að sér
Moskvu 3. júli. Reuter.
Tartari frá Krím, Musa
Makhmud, kveikti í sér og réðst
á lögreglumenn sem komu heim
til hans að því er fulltrúi
Ilelsinkinefndarinnar, ungfrú
Tatyana Osipova, skýrði frá í
dag.
Makhmund var fluttur í sjúkra-
hús eftir atburðinn sem gerðist
23. júní og lézt fimm dögum síðar.
ríkisráðherra sinn til fund-
ar með utanríkisráðherr-
um ísraels og Bandaríkj-
anna í London.
Þar með hefur Sadat
samþykkt að beinar samn-
ingaviðræður verði^ aftur
teknar upp við ísraels-
menn en hann virðist úti-
loka þann möguleika að
hann ræði við Carter for-
seta í Evrópu þótt það
virtist hafa verið ákveðið
samkvæmt egypzkum
heimildum fyrr í dag.
Fréttir voru uppi um að Carter
mundi hitta Sadat að máli ein-
hvers staðar í Austurríki eða
Vestur-Þýzkalandi í næstu viku en
bæði Sadat og talsmaður Hvíta
hússins báru fréttirnar til baka.
Hins vegar er ákveðið að Sadat
hitti ísraelska Verkamannaflokks-
leiðtogann Shimon Peres þegar
hann fer til Vínar til viðræðna við
Bruno Kreisky kanzlara síðar í
vikunni.
ísraelsstjórn hefur ekki ákveðið
endanlega hvort Moshe Dayan
utanríkisráðherra fari til London
til að taka þátt í fundinum en
Mondale kvaðst viss um að Dayan
færi til London. Sjálfur sagði
Dayan í Jerúsalem að hann gerði
ráð fyrir því að hann færi til
fundarins í London ef Egyptar
settu engin fyrirfram skilyrði.'
Sadat hefur gert nokkrar breyt-
ingar á friðartillögum sínum
samkvæmt egypzkum heimildum
og í þeim er skorað á ísraelsmenn
að bjarga friðartilraununum úr
þeirri sjálfheldu, sem þær hafa
Moskvu 3. júlí. Reutcr.
BANDARÍSKU blaða-
mennirnir Harold Piper
frá Baltimore Sun og Craig
Whitney frá New York
Times sögðu fyrir rétti í
Moskvu í dag að þeir
neituðu að svara ákærum
gegn þeim um rógskrif.
Þeir afhentu réttinum
yfirlýsingar þar sem þeir
sögðu að þeir teldu ekki
rétt að taka frekari þátt í
réttarhöldunum.
Jafnframt ræddi banda-
ríski sendiherrann í
komizt í, með því að láta af hendi
Gaza-svæðið og vesturbakka Jór-
dan.
Það sem er nýtt í tillögunum,
sem voru afhentar Mondale í dag
er að gert er ráð fyrir nærveru
Framhald ábls. 26
Moskvu, Malcolm Toon, við
sovézka utanríkisráðherr-
ann Andrei Gromyko. Mál
fréttamannanna er enn eitt
dæmið um aukna erfiðleika
í samskiptum Bandaríkja-
manna og Rússa og banda-
rísk stjórnvöld hafa gert
ljóst að þau telji ráðstöfun
Rússa til þess ætlaða að
skerða frelsi bandarískra
fréttamanna. Cyrus Vance
utanríkisráðherra mun
hafa rætt málið við sovézka
sendiherrann í Washing-
ton á fundi á laugardag.
í yfirlýsingum sínum til réttar-
ins í dag segja Piper og Whitney
að þeir hafi einfaldlega vitnað í
vini og ættingja andófsmannsins
Zviad Gamsakhurdia sem minnzt
er á í ákærunni. Því er haldið fram
í kærunni að fréttamennirnir hafi
skrifað að játning Gamsakhudria,
sem var útvarpað daginn sem
hann var dæmdur í fimm ára
vinnubúðavist, hafi verið fölsuð.
Whitney og Piper benda á í
yfirlýsingum sínum að greinarnar
hafi ekki verið birtar í Sovétríkj-
unum og segja að þeir séu ekki
reiðubúnir að gefa réttinum upp
nöfn heimildarmanna sinna.
Lev Almazov dómari ákvað að
vitnaleiðslur skyldu fara fram 1S.
júlí og varaði fréttamennina við
því að hann sæi enga ástæðu til að
vísa málinu frá.
Miklar æf ingar
í A-Þýzkalandi
AusturBerlín 3. júlí. Reuter.
SOVÉZKAR hersveitir í Aust-
ur-Þýzkalandi munu hafa byrjað
mcstu heræfingar í Austur-Evr-
ópu frá undirritun Helsinki-sátt-
málans 1975 í dag en opinber
staðfesting fékkst ekki á því
hvort þær væru hafnar.
Vestrænum fulltrúum hefur
ekki verið boðið að fylgjast með
æfingunum þótt það hafi verið
venja síðan Ilelsinki-sáttmálinn
var undirritaður.
Samkvæmt tilkynningu sovézka
landvarnaráðuneytisins í síðasta
Framhald á bls. 26
Undirbúning-
ur einvígisins í
Manila haf inn
Manila 3. júlí. Reuter. APi
Heimsmeistarinn í
skák Anatoly Karpov og
áskorandinn Viktor
Korchnoi eru komnir til
Manila á Filipseyjum til
þess að undirbúa einvígið
um heimsmeitaratitilinn
sem hefst 17. júlí og er
mesti atburður í skák-
íþróttinni síðan Bobby
Fischer og Boris Spassky
háðu einvígi sitt í
Reykjavík fyrir sex ár-
um.
Korchnoi gaf þá lýs-
ingu á andstæðingi sín-
um við komuna að hann
væri „mjög kuldalegur
og þurr persónuleiki44 og
sagðii „Karpov er góður
en Bobby Fischer er
snillingur*4. Hann sagði
líka um Karpovi „Ég er
ekki hrifinn af skákstíl
hans en- ég viðurkenni
styrk hans við skákborð-
ið og ég vil sérstaklega
leggja áherzlu á það að
hann hefur töluvert auk-
ið styrk sinn á undan-
förnum fjórum árum.“
Skákmeistararnir Korchnoi og Karpov við komuna til Manila
„Ýmsir segja að aldurs vegna
sé hann fulltrúi framfara en ég
eldri kynslóðarinnar og að það
verði að grafa mig. En ef við
lítum á þetta frá sjónarmiði
réttlætis ætti ég að sigra í
einviginu." Með þessu átti hann
við nauman sigur Karpovs í
einvígi sem þeir háðu 1974 um
réttinn til að skora á Fischer.
Karpov sagði í dag um um-
mæli Korehnois i sinn garð: „Ég
veit ekki hvaða heimildir hann
hefur. Ég hjálpa alltaf virium
mínum hvenær sem ég get en ég
er miskunnarlaus þegar keppi-
nautar mínir eiga í hlut.“
„Korchnoi er mjög góður
skákmaður og hann er baráttu-
'maður í þess orðs fyllstu merk-
ingu. En hvað mannlýsingum
Framhald á bls. 26