Morgunblaðið - 04.07.1978, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JULI 1978
A.B. gefur út skáld-
verk Kristmanns Guð-
mundssonar í 8 bindum
ALMENNA BókafélaKÍð hefur
Kefið út skáldverk Kristmanns
Guðmundssonar í átta bindum
otí innihalda þau 10 skáldsögur
og 59 smásögur.
Skáldsögurnar eru ritaðar á
25 árum. 1925 til 1950, og eru
átta þeirra frumritaðar á
norsku. en eru nú birtar í
nýjum þýðingum höfundar
sjálfs.
I fyrsta bindinu er skáldsagan
Brúðarkyrtillinn sem kom fyrst
út í Osló 1927 og einnig átta
stuttar sögur. Annað bindi
geymir Morgunn lífsins sem
kvikmynd var gerð eftir 1953 og
framhald hennar Arfur kynslóð-
anna. I þriðja bindi eru Ármann
og Vildís og Ströndin blá, í
fjórða bindi Fjallið helga, í
fimmta bindi eru Góugróður og
Nátttröllið glottir en hún var
fyrsta skáldsagan sem Krist-
mann ritaði á íslenzku. Sjötta
bindi geymir Gyðjuna og uxann
sem kom höfundinum á svartan
lista Hitlersstjórnarinnar en
fyrri bækur Kristmanns höfðu
verið gefnar út í stórum upplög-
um í Þýzkalandi. í sjöunda
bindinu er svo Þokan rauða og
í áttunda bindinu 51 smásaga en
þær eru ritaðar á ýmsum tímum
á rithöfundaferli hófundarins.
Sigurður Einarsson frá Holti
ritar um Kristmann Guðmunds-
son í inngangi að fyrsta bindi
verksins en það er alls 2950
blaðsíður.
Útlit fyrir að ferðamanna-
straumur verði í meðallagi
— þrátt fyrir fáar ráðstefnur og miklar afpantanir þýzkra ferðamanna
IIORFUR eru á að þetta sumar og
árið í heild verði sem næst
meðalár hvað straum erlendra
ferðamanna til landsins áhrærir.
Ferðamálamenn margir hverjir
telja það reyndar vel sloppið
miðað við aðstæður. því að bæði
eru ráðstefnur hér á landi með
Komst til
meðvitundar
í gærkvöldi
DRENGURINN, sem hrapaði í
bjarginu norðan Keflavíkur á
laugardagsmorgun, komst til með-
vitundar í gærkvöldi. Hann er
höfuðkúpubrotinn og handarbrot-
inn á báðum höndum.
Ljóst er nú að drengurinn, sem
er 11 ára, hrapaði þar sem bergið
er hæst og féll 15 metra niður í
grýtta fjöruna.
I'hilad«‘lphíu. Bandaríkjunum 3. jólf.
Frá Margriri Péturssynii
SEX umferðum er nú lokið á
skákmótinu „World open“, sem
fram fer á Sheratonhótelinu hér
í borg. f þessu móti tefla alls um
1100 keppendur í fjórum flokkum
og eru langflestir þeirra i opna
alminnsta móti nú í samanburði
við mörg fyrri ár og eins liggur
fyrir að v-þýzkar ferðaskrifstofur
hafa verið of bjartsýnar og
stórtækar 1 hótelbókunum sinum
fyrir þetta sumar.
Að sögn Konráðs Guðmundsson-
ar, hótelstjóra á Sögu, var júní-
mánuður sl. tiltölulega góður og
betri en í fyrra hvað fjölda gesta
snertir, enda framboð herbergja
töluvert meira en þá, þar sem
hótelið hefur nú tekið í notkun
eina hæð í viðbót. Nýtingin fyrir
júnímánuð var um 80% eða svipað
og var í fyrra. Þá virðist júlímán-
uður ætla að verða svipaður en
fyrrihluti ágústmánaðar töluvert
lakari en seinni hluta mánaðarins
er útlitið strax betra. Konráð
sagði, að það sem hvað helzt
einkenndi ferðamannastrauminn
nú væri að nánast ekkert væri um
ráðstefnur í ár.
Svipaða sögu var að segja um
Loftleiðahótelið og Hótel Esju'. Að
sögn Erlings Aspelund, forsvars-
manns Flugleiðahótelanna
flokknum eða rúmlega 500 skák-
menn. I þeim hópi eru 14 fslend-
ingar. Þeim hefur gengið misjafn-
lega fram til þessa. Ingvar
Asmundsson hefur staðið sig
bezt, er nú í 2—14. sæti með 5
vinninga.
Framhald á hls. 2«
tveggja, eru allar horfur á góðu ári
hjá Loftleiðahótelinu og útkoman
hjá Hótel Esju virðist einnig ætla
að verða mjög þokkaleg, fjárhags-
lega í það minnsta, þrátt fyrir
allóvæntar uppákomur í afpöntun-
um.
Um Loftleiðahótelið sagði Erl-
ing að þar hefði árið byrjað mjög
vel, reyndar farið lítið eitt niður á
við í febrúar og maí en apríl hefði
t.d. verið hinn bezti í sögu
hótelsins og júní hefði komið mjög
vel út með um 90% nýtingu.
t ramhald á bls. 2ti
• •
Okumaður
ársins 1978
Umferðarráð er um þessar
mundir að fara af stað með það
sem nefnt hefur verið allsherj-
ar góðaksturskeppni og er hún
í samvinnu við þáttinn Fjöl-
þing í útvarpinu. Á þetta
nýmæli að leiða til bættrar
umferðarmcnningar hér á
landi, segir í frétt frá Um-
ferðarráði.
Það sem hér um ræðir er að
ökumenn, sem verða varir við
aðra sem sýna sérstaka tillit-
semi í umferðinni, eru beðnir að
skrá hjá sér skrásetningarnúm-
er viðkomandi bíls. Eiga öku-
menn að senda línu um það til
þáttarins Fjölþing hjá ríkisút-
varpinu og verður af og til veitt
viðurkenning þeim ökumönnum
sem greinilega skara fram úr og
í haust fær sá ökumaður, sem
fengið hefur flest stig, viður-
kenningu svo og sá ökumaður,
sem oftast hefur sent ábending-
ar sínar.
World-open skákmótið:
/
Ingvar Asmundsson
í 2.—14. sæti af rúm-
lega 500 keppendum
Stefnir í stöðvun
með haustinu ef
ekkert verður gert
— segir Hjörtur Eiríksson fram-
kvæmdastjóri iðnaðardeildar SÍS
„VIÐ teljum alveg ljóst að það stefnir í stöðvun með haustinu, ef
ekkert verður gert. Á sama tíma og rekstrarkostnaðurinn hefur
tvöfaldazt hefur útflutningsverðið hækkað um 50% og þetta er of
breitt bil að brúa“, sagði Hjörtur Eiríksson framkvæmdastjóri
iðnaðardeildar Sambandsins í samt.ali við Mbl. í gær.
„Okkar krafa hefur verið að fá
hráefnið á heimsmarkaðs-
verði,“sagði Hjörtur, „en nú telj-
um við að það sem við greiðum
fyrir hráefnið sé að minnsta kosti
30% hærra en heimsmarkaðsverð-
ið.
Við erum svo illa staddir í
iðnaðinum að við höfum engan
verðjöfnunarsjóð eins og frysti-
húsin, sem fá nú með hans hjálp
290 krónur fyrir dollarann. Það
myndi bæta stöðuna hjá okkur, ef
við hefðum einhvern slíkan bak-
hjarl, en við verðum að sæta
gamla genginu, sem er orðið rangt,
hvað allan tilkostnað varðar."
Þegar Mbl. spurði Hjört hvort
hann með þessu ætti við að
gengisfelling ein gæti forðað
iðnaðinum frá stöðvun, svaraði
hann: ^,Ég átta mig ekki á því að
annað komi til greina. Sumir hafa
að vísu talað um niðurfærsluleið
en ég er hræddur við að hún sé svo
sein og þungvirk að hún geti ekki
leyst þann vanda sem nú er við að
glírna." Hjörtur kvaðst ekki geta
tínt til ákveðnar tölur um tap-
reksturinn hjá iðnaðardeild Sam-
bandsins en kvaðst hins vegar
vilja benda á að þetta væri ekkert
einkavandamál hennar heldur
væri staðan þessi hjá iðnaðinum í
heiia.
Sölufélag garðyrkju-
manna býður tómatafram-
leiðslu með 30% afslætti
„ÉG hef ekki heyrt í nokkrum
aðila í dag vegna þessa tilboðs
okkar en það stendur áfram,“
sagði Þorvaldur Þorsteinsson
framkvæmdastjóri Sölufélags
garðyrkjumanna í samtali við
Mbl. í gær, en Sölufélagið hefur
auglýst að það selji með 30%
afslætti alla tómataframleiðsluna
hverjum þeim sem tryggt getur
sölu hennar allrar.
Þorvaldur sagði að þetta tilboð
væri staðfesting á því að Sölu-
félagið væri reiðubúið til af-
sláttarsölu gegn tryggingu á
magni og gætu nú þeir sem haldið
hefðu uppi gagnrýni á Sölufélagið
gripið tækifærið og sannað sitt
mál.
„Við sækjumst ekki eftir niður-
greiðslum," sagði Þorvaldur. „Við
viljum þær ekki og við erum líka
á móti styrkjum.
Hins vegar finnst ökkur rétta að
setja fram þetta tilboð meðan
framleiðsluhámarkið er því við
höfurn verið gagnrýndir fyrir að
nýta ekki þennan möguleika enda
þótt hið rétt sé að við höfum gert
ýmsar tilraunir til framboðs og
eftirspurnarmarkaðs án árang-
urs.“
Akureyri og nágrenni:
Þrennt slasast alvar-
lega í umferðarslysum
Akureyri 3. júlí
MIKIÐ hefur verið um umferðar-
slys og óhöpp á Akureyri og f
nágrenni um helgina. Alvarleg
slys hafa orðið á fólki f sumum
tilvikum.
„Það má segja að þetta verði
nokkurs konar jákvæðar njósnir
um náungann," sagði Óli H.
Þórðarson framkvæmdastjóri
Umferðarráðs. „Þessi tillitssemi
ökumanna, sem við erum að
fiska eftir, getur komið fram á
margvíslegan hátt og við getum
nefnt dæmi t.d. að þurfi öku-
maður að skipta um akrein og
Framhald á bls. 26
Fyrsta slysið varð klukkan 20:30
á föstudagskvöld, þegar fólksbíll
valt út af Eyjafjarðarbraut hjá
Vöglum í Hrafnagilshreppi. Þar
liggur vegurinn yfir hitaveitu-
leiðsluna og er ekki frágenginn
enn eftir jarðraskið, þannig að þar
er illræmd slysagildra. Piltur og
stúlka, sem voru í bílnum, slösuð-
ust allmikið.
Klukkan 02:55 aðfaranótt
laugardags lenti fólksbíll á ljósa-
staur í nánd við Höefnersbryggju.
Bíllinn var á norðurleið þegar
ökumaður, 17 ára piltur sem var
einn í bílnum, missti vald á honum
með þeim afleiðingum að vinstri
hlið bílsins lenti á staurnum og
bíllinn beinlínis vafðist utan um
Framhald á bls. 27
Viðræður um
sölu á prjóna-
vörum til
Sovétríkjanna
SENDINEFND frá Sovétríkjun-
um er væntanleg hingað til lands
17. júlí n.k. til viðræðna um kaup
á prjónavörum af fslenzkum
framleiðendum. Hjörtur Eiríks-
son framkvæmdastjóri iðnaðar-
deildar Sambandsins sagði í sam-
tali við Mbl. í gær að ekki hefði
ennþá verið samið um neinar
prjónavörusölur til Sovétríkjanna
á þessu ári.